Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT Haukar - Keflavík 88:71 íþróttahúsið við Strandgötu, 12. umferð úrvalsdeildarinnar, fimmtudaginn 9. nóv- ember 1995. Gangur leiksins: 2:0, 2:4, 10:11, 15:16, 24:16, 35:30, 41:33, 49:41, 58:43, 67:47, 67:52, 76:52, 79:65, 88:71. Stig Hauka: Jason Wilíiford 20, Jón Amar Ingvarsson 19, Pétur Ingvarsson 13, Sigfús Gizurarson 11, Bergur Eðvarðsson 11, Ivar Ásgrímsson 6, Baldvin Johnsen 4, Vignir Þorsteinsson 2, Þór Haraldsson 2. Fráköst: 7 í sókn — 26 í vöm. Stig Keflavíkur: Lenear Burns 32, Albert Óskarsson 10, Davíð Grissom 10, Guðjón Skúlason 9, Gunnar Einarsson 4, Jón Kr. Gíslason 4, Elentínus Margeirsson 2. Fráköst: 6 í sókn — 18 í vöm. Dómarar: Bergrur Steingrímsson og Krist- ján Möller. Náðu einhvem vegin aldrei að komast alveg í takt við leikinn, en vom i lagi. yillur: Haukar 24 — Keflavík 14. Áhorfendur: Tæplega 400. UMFG-KR 103:77 Grindavtk: Gangur leiksins: 2:0, 9:2, 14:10, 23:10, 23:18, 34:25, 34:31, 38:34, 46:34, 50:40, 60:50, 66:50, 76:57, 88:57, 96:63, 103:77. Stig UMFG: Herman Myers 32, Hjörtur Harðarson 24, Helgi Jónas Guðfmnsson 17, Guðmundur Bragason 11, Marel Guðlaugs- son 10, Páll Axel Vilbergsson 4, Ámi Stef- án Bjömsson 2, Sigurbjöm Einarsson 2, Unndór Sigurðsson 1. Fráköst: 11 í sókn - 27 í vöm. Stig KR: Jonathan Bow 29, Ingvar Ormars- son 18, Óskar Kristjánsson 18, Tómas Her- mannsson 6, Atli Einarsson 4, Láms Áma- son 2. Fráköst: 10 í sókn - 21 i vöm. Dómarar: Helgi Bragason og Rögnvaldur Hreiðarsson. Vom oft á tíðum ekki í takt við leikinn. yillur: UMFG 19 - KR 19 Áhorfendur: Um 200. ÍR-UMFT 88:72 íþróttahúsið t Seljaskóla: Gangur leiksins: 2:0, 11:11, 21:11, 29:22, 35:22, 47:32, 47:34, 60:40, 73:54, 77:54, 88:72. Stig ÍR: Herbert Arnarson 29, John Fhodes 14, Jón Öm Guðmundsson 13, Máras Amar- son 12, Eggert Garðarsson 8, Eiríkur Ön- undarson 8, Broddi Sigurðsson 2, Guðni Einarsson 2. Fráköst: 12 í sókn - 35 í vöm. Stig UMFT: Torrey John 28, Ómar Sigm- arsson 22, Atli Bjöm Þorbjömsson 7, Hin- rik Gunnarsson 7, Láms Dagur Pálsson 5, Óli Barðdal 3, Fráköst: 13 í sókn - 24 í vöm. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Þorgeir Jón Júlíusson. Villur: iR 21 - UMFT 21. Áhorfendur: 128 greiddu aðgangseyri. ÍA-Valur 98:81 íþróttahúsið á Akranesi: Gangur leiksins: 2:0, 8:16, 13:22, 17:26, 24:26, 32:32, 41:40, 48:42, 55:55, 66:61, 72:72, 81:72, 91:77, 98:81. Stig ÍA. Milton Bell 34, Dagur Þórisson 20, Bjami Magnússon 16, Brynjar Sigurðs- son 15, Jón Þ. Þórðarson 11, Elvar Þórólfs- son 2. Fráköst: 14 í sókn - 20 í vöm. Stig Vals: Ronald Bayless 44, ívar Webst- er 14, Ragnar Þór Jónsson 9, Bergur Emils- son 6, Bjarki Guðmundsson 6, Guðni Haf- steinsson 2. Fráköst: 6 f sókn - 15 f vöm. Dómarar: Leifur Garðarsson og Einar Ein- arsson. Villur: lA 15 - Valur 20. Áhorfendur: Um 250. Skallagrímur - Þór 53:74 íþróttahúsið í Borgamesi: Gangur leiksins: 2:0, 4:4, 4:12, 10:17, 18:19, 22:22, 27:31, 30:33, 32:33, 34:38, 41:44, 41:52, 47:59, 53:65, 53:74. Stig Skallagríms: Ari Gunnarsson 18, Tómas Holton 9, Alexander Ermolinskíj 8, Sveinbjörn Sigurðsson 6, Grétar Guðlaugs- son 4, Gunnar Þorsteinsson 4, Sigmar Egils- son 2, Bragi Magnússon 2. Fráköst: 14 í sókn - 14 í vörn. Stig Þórs: Fred Williams 27, Kristinn Frið- riksson 21, Konráð Oskarsson 9, Birgir Birgisson 6, Hafsteinn Lúðvíksson 6, Bjöm Sveinsson 3. Fráköst: 10 f sókn - 24 í vöm. Dómarar: Jón Bender og Georg Andersen vom sanngjarnir en leyfðu of grófan leik. Villur: Skallagrímur 25 - Þór 19. Áhorfendur: 392 UMFN - Breiðablik 101:87 Iþróttahúsið í Njarðvík: Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 8:11, 18:27, í kvöld Körfuknattleikur 1. deild karla: Stykkish.: Snæfell-Reynir.. 1. deild kvenna: ...kl. 20 Njarðvík: UMFN - Keflavík.. Handknattleikur ...kl. 20 1. deild kvenna: Akureyri: ÍBA-Víkingur 2. deild karla: ...kl. 20 Strandgata: ÍH-Ármann ...kl. 20 Tennis Evrópukeppni kvennalandsliða Keppnin hefst i dag kl. 15 í Tennis- höllinni í Kópavogi. Keppninni verður síðan framhaldið á laugardag og sunnudag. 28:40, 42:44, 55:44, 70:60, 88:74, 88:82, 101:87. Stig UMFN: Rondey Robinson 29, Teitur Örlygsson 24, Friðrik Ragnarsson 11, Rún- ar Amason 10, Kristinn Einarsson 10, Jó- hannes Kristbjömsson 8, Páll Kristinsson 7, Jón Júlíus Amason 2. Fráköst: 19 í sókn - 21 f vöm. Stig Breiðabliks: Michael Thoele 39, Birg- ir Mikaelsson 18, Einar Hannesson 10, Halldór Kristmannsson 8, Agnar Olsen 7, Steinar Hafberg 3, Daði Sigurþórsson 2. Fráköst: 13 í sókn - 25 í vöm. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Eggert Aðalsteinsson sem dæmdu þokkalega. yillur: Njarðvík 21 - Breiðablik 15. Áhorfendun Um 150. A-RIÐILL Fj. leikja u T Stig Stig HAUKAR 12 10 2 1035: 860 20 UMFN 12 9 3 1088: 951 18 KEFLAVÍK 12 9 3 1106: 973 18 TINDASTÓLL 12 8 4 928: 912 16 iR 12 7 5 1004: 947 14 BREIÐABLIK 12 2 10 945: 1143 4 B-RIÐILL Fj. lelkja U T Stig Stig UMFG 12 8 4 1130: 950 16 KR 12 6 6 1012: 1036 12 ÞÓR 12 5 7 993: 965 10 SKALLAGR. 12 5 7 899: 948 10 ÍA 12 3 9 971: 1070 6 VALUR 12 0 12 806: 1162 0 1. deild karla ÍH - Leiknir...................89:113 1.DEILD KARLA Fj. leikja U T Stig Stig SNÆFELL 5 4 1 471: 371 8 ÍS 4 4 0 303: 264 8 KFl 4 3 1 379: 321 6 LEIKNIR 5 3 2 434: 404 6 ÞÓRÞ. 4 3 1 311: 281 6 SELFOSS 4 2 2 328: 292 4 REYNIR S. 5 2 3 385: 435 4 STJARNAN 4 1 3 255: 326 2 HÖTTUR 4 0 4 230: 290 0 IH 5 0 5 418: 530 0 NBA-deildin Leikir aðfaramótt miðvikudags: Toronto - Sacramento...........90:109 Boston - Phoenix..............113:109 Detroit - Portland............107:100 ■Eftir framlengdan leik. Miami - Houston.................89:82 Orlando - New Jersey..........130:122 ■Eftir þríframlengdan leik. Washington - Charlotte.........110:96 San Antonio - Vancouver........111:62 Denver - Seattle..............117:122 Utah - LA Lakers...............108:98 LA Clippers - Atlanta..........92:100 Íshokkí NHL-deildin Buffalo - San Jose................7:2 Montreal - Anaheim................2:3 ■Eftir framlengingu. New Jersey - Calgary..............1:2 Ny Rangers - Tampa Bay............5:4 Ottawa - Pittsburgh...............1:7 Dallas - Los Angeles....i.........3:3 ■Eftir framlengingu. Knattspyrna Frakkland Auxerre - Bastia.................3:0 Le Havre - Mónakó................2:1 Lens - Bordeaux..................0:0 Lyon - Gueugnon..................0:0 Martigues - Paris St Germain.....2:4 Metz - St Etienne................1:2 Montpellier - Cannes.............3:1 Nice-Lilfe.......................2:1 Strasbourg - Nantes..............1:1 Rennes - Guingamp................3:0 Staða efstu liða: Paris St Germain..17 11 4 2 35:16 37 Metz..............17 9 5 3 18:11 32 Auxerre...........17 10 1 6 31:19 31 Lens..............17 8 7 2 21:12 31 Nantes............17 7 7 3 19:15 28 Guingamp..........17 7 7 3 14:11 28 Mónakó............17 7 5 5 28:22 26 Strasbourg........17 6 7 4 25:16 25 FELAGSLIF Aðalfundur Knatt- spyrnudeildar KR AÐALFUNDUR Knattspyrnudeildar KR verður f KR-heimilinu við Frostaskjól í ítvöld, föstudag, og hefst kl. 20.30. Dag- skrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Herrakvöld Fram HIÐ árlega herrakvöld Fram verður í Fram- heimilinu við Safamýri í kvöld og hefst kl. 19. Ræðumaður verður Hrafn Jökulsson og Sigurður Tómasson veislustjóri að vanda. KORFUKIMATTLEIKUR Haukar einir á toppn- um eftir öruggan sigur á Keflvíkingum HAUKAR sitja nú einir á toppi úrvalsdeildarinnar en liðið sigr- aði í gær í sínum áttunda ieik í röð og að þessu sinni var það næst efsta liðið, Keflavík, sem varð að játa sig sigrað. Hafn- firðingar, sem léku mjög vel, sigruðu örugglega, 88:71. Það var fyrst og fremst frábær vöm Hauka sem skóp sigur- inn. Einnig hafa Haukar yfir mjög jöfnum hópi að ráða og leikmenn sem alla jafna eru ekki í byijunarliði leystu hlutverk sín vel af hendi þegar þeirra var þörf. Hauk- arnir eru komnir með mjög gott lið sem leikur bæði vel og af skynsemi þannig að ljóst er að þeir fara langt í vetur. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Hafnfirðingar réðu gangi mála í gær allt frá byijun og það var sama hvemig Keflvíkingar reyndu að breyta varnarleik sínum, byrjuðu í maður á mann, fóru síðan í 3-2 svæðisvöm og 2-3 svæði eftir að bakvörður fór út fyrir framhetja og loks aftur í maður á mann og pressu- vöm síðustu mínútumar til að reyna að minnka muninn. En allt kom fyrir ekki. Haukar vom fljótir að átta sig á breytingunum og áttu svör við öllu og þeir létu ekki slá sig út af laginu og héldu undirtökun- um og réðu hraða leiksins. Varnarleikur Hauka var gríðar- lega góður. Leikmenn mjög hreyf- anlegir og á tánum allan tímann, hver einn og einasti leikmaður. Mesti munurinn á Haukaliðinu frá því í fyrra er þó sá að nú héldu menn ró sinni þó svo móthetjarnir skomðu nokkur stig í röð. Leik- menn eru sem sagt yfirvegaðir og það þýðir aðeins eitt — þeir eiga eftir að ná langt, Það þarf ekki að fjölyrða um leik Keflvíkinga. Falur Harðarson var veikur og Iék ekki með og ekki heldur Guðjón Gylfason. Nafni hans Skúlason var meiddur á hægri hendi en lék samt með og Davíð Grissom lék hálfveikur. Þetta breytir því þó ekki að liðið á að geta betur. En ef marka má leikinn í gær þá má Keflavíkurliðið illa við því að missa Fal því það vantaði alla stjórnun í sóknarleiknum. 'Um vörnina þarf ekki að segja margt. Liðið fékk sjö villur í fyrri hálfleik og fimm í þeim síðari sem bendir til þess að menn hafi ekki tekið á eins og til er ætl- ast, nema Davíð Grissom sem lék ágætlega í vöminni. Lenear Burns var sá eini sem lék af eðlilegri getu. Hjá Haukum léku allir vel. Pétur var frábær í vörninni og Williford einnig, en hann fellur mjög vel að leik Hauka, er baráttujaxl sem er alltaf að og hittir ágætlega. Hann gerði 10 stig í hvorum hálfleik og tók 11 fráköst í þeim fyrri. Jón Arnar var eins og kóngur í sókn- inni þar sem hann stjórnaði leik Hauka og Bergur var' sterkur og nú er Baldvin Johnsen kominn í hópinn á ný og styrkir hann veru- lega. Það eina sem hægt er að setja út á Haukana er að þeir reyndu fullmikið þriggja stiga skot í fyrri hálfleiknum, en þá skutu þeir 15 sinnum en hittu þrívegis. Mikill bamingur Það vantaði allt líf í okkur og leikgleðin var ekki til staðar,“ sagði Ari Gunnarsson besti leik- maður heimamanna eftir sanngjarnan sigur Þórs 53:74 á Skallagrími í Borg- arnesi 1 gærkvöldi. „En við emm ekki hættir og komum frískir til næsta leiks,“ sagði Ari. „Menn komu tilbúnir til þessa leiks og það gerði gæfumuninn," Teodór Kr. Þórðarson skrifar frá Borgarnesi ■ PÁLMAR Sigurðsson lék ekki með Haukum í gær og segist vera svo gott sem hættur. „Hann er alla vega búinn að losa reimarnar í skónum en er ekki enn búinn að setja þá upp í hillu,“ sagði Reynir Kristjánsson þjálfari Hauka. ■ KEFL VÍKINGAR hafa tekið upp þann sið fyrir leiki að leggjast í hring á magann á gólflð og halda saman höndum í miðju hringsins og kalla hvatningaróp. Fínn siður, en í gær hefðu þeir að ósekju mátt bíða þar til búið var að kynna lið Hauka. ■ RAUNAR virðast nokkur lið ekki geta beðið eftir að kynningu lýkur. Þannig fóm Skagamenn af leikvelli á meðan lið Hauka var kynnt þar á dögunum og Þórsarar fóru að skjóta á körfuna þegar þeir komu í Fjörðinn. ■ ÞAÐ er góður siður að kynna liðin fyrir áhorfendum og venjan er að byrja á gestunum, en það er argasti dónaskapur hjá gestunum að geta ekki haft kyrrt um sig á meðan heimamenn eru kynntir. ■ FULL djúpt var í árinni tekið hjá okkur í gær er við sögðum að Axel Nikulásson hafi verið rekinn frá KR, því það mun hafa orðið að samkomulagi hans og stjórnar körfuknattleiksdeildar að hann léti af störfum. sagði Jón Guðmundsson þjálfari Þórs, „Eftir jafnan fyrri hálfleik ræddum við saman í leikhléi og náðum að bæta sóknarleikinn hjá okkur. En það er mjög erfitt að spila héma og ég tel það mjög gott hjá okkur að halda Borgnesingun- um í 53 stigum á þeirra heimavelli.“ Það ríkti jafnræði með liðunum í fýrri hálfleik, 30:33 í leikhléi. í seinni hálfleiknum fengu liðin 'að spila allt of gróft og það var því ekki fallegur körfubolti sem leikinn var. Liðsmenn Þórs virtust þola barninginn betur, en heimamenn fóru úr sambandi og hittu nær ekk- ert. Heimamenn héldu þó haus rétt fram yfir miðjan hálfleikinn en þá hrundi leikur liðsins. Ari Gunnars- son var sá eini af liðsmönnum Skal- lagríms sem virtist þola álagið og barðist hann til síðustu sekúndu þessa leiks. En það dugði ekki til því boltinn vildi ekki ofan í körfuna hjá samheijum hans. Þórsararnir höfðu leikinn gjörsamlega í sínum höndum eftir þetta og sigmðu ör- ugglega með 21 stigs mun. Og var Fred Williams lang bestur í liði þeirra. KR lítil hindrun fyrir Grindvíkinga Lið KR sem lék sinn fyrsta leik undir stjórn nýs þjálfara var lítil hindmn fyrir bikarmeistara Grindvíkinga í Frímann Grindavík. Leikur- Ólafsson inn endaði 103:77 skrífar frá og var byrjunarlið Grindavik heimamanna allt komið á bekkinn þegar rúmar tvær mínútur voru eftir, slíkir vora yfir- burðir þeirra. Leikurinn var þó í járnum framan af og leikmenn KR léku oft af skyn- semi í fyrri hálfleik þar sem þeir leituðust við að leika langar sóknir en allt kom fyrir ekki. Hjörtur Harð- arson lék einn sinn besta leik í vet- ur, sérstaklega í fyrri hálfleik, þar sem hann fór á kostum. Helgi Jón- as gaf honum lítið eftir og lék vel. Stóm mennirnir Myers og Guð- mundur voru rólegir til að byija með og átti Guðmundur reyndar í erfiðleikum á móti Bow. Myers end- aði leikinn þó stigahæstur og með ekki færri en 18 fráköst og var vel fagnað af áhorfendum í Grindavík þegar hann fór útaf. Hjá KR var Hermann Hauksson veikur og lék ekki með. Ingvar lék þrátt fyrir flensu og Óskar léku einnig ágæt- lega og þeir skoraðu megnið af stig- um KR. Benedikt Rúnar Guðmundsson, nýráðinn þjálfari KR, var á sínum öðram degi í vinnunni. „Strákamir virðast ekki vera í nógu góðu út- haldi og ég sé fram á að það verði nóg að gera í vinnunni. Grindavík er kannski ekki besti staðurinn til að byija með liðið því liðið hér er gott. Það er því ljóst að það er margt sem við þurfum að laga hjá okkur og við verðum vonandi komn- ir á gott skrið þegar á líður,“ sagði Benedikt. Jóhannes Þór Harðarson skrifar frá Akranesi Spennandi botnslagur Skagamenn tóku á móti Vals- mönnum í botnslag úrvals- deildarinnar í gærkvöldi og höfðu sigur í mjög spenn- andi leik 98:81, staðan í hálfleik var 41:40. Það voru Valsmenn sem mættu ákveðnari til leiks og náðu fljótlega tíu stiga forystu, en leik- menn ÍA komust inn í leikinn um miðjan fyrri hálfleikinn og söxuðu jafnt og þétt á forskot Valsmanna. Eftir það var leikurinn mjög jafn. í síðari hálfleik snerist dæmið við og heimamenn náðu fljótlega nokkurri forystu, en Valsarar, með nýja útlendinginn, Roland Bayless í fararbroddi, náðu að jafna og eft- ir það var nær jafnt á öllum tölum þar til um sjö mínútur vora til leiks- loka. Þá náðu heimamenn góðum leikkafla. A sama tíma vora Vals- menn hálf vængbrotnir því Bayless hafði verið tekinn út af með íjórar villur. Hann kom svo inn á að nýju en breytti engu. í liði heimamanna var Milton Bell mjög sterkur, einnig lék Dagur Þórisson vel og hafði góða skotnýt- ingu. ívar Webster lék mjög vel með Valsmönnum en maður leiksins var án efa Ronald Bayless. Morgunblaðið/Ásdís PÉTUR Ingvarsson í „skotstelllngu" en Keflvíklngurlnn DavíA Grlssom er tll varnar og sýnlst líklegur tll að verja skot Péturs, en Grissom áttl ágœtan dag í vörninni, eins og Pátur reyndar líka. Ovæntmót- spyma Blika Blikar úr Kópavogi komu á óvart og veittu Njarðvíkingum harða keppni þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi og Björn það var ekki fyrr en í síð- Blöndal ari hálfleik að heima- skrifarfrá mönnum tókst að snúa Njarðvik leiknum sér í vil. í hálf- leik var staðan 44:42 fyrir Blika, en loka- tölur urðu 101:87 fyrir Njarðvík. Það vora Breiðabliksmenn sem settu fyrstu stigin og þeir réðu gangi mála framan af með yfirveguðum leik. Mestur varð munurinn 12 stig í fyrri hálfleik - 40:28, en Njarðvíkingar áttu góðan enda- sprett og náðu að minnka muninn í 2 stig. f síðari hálfleik vora það Njrðvíking- ar sem vora sterkari og það tók þá að- eins 4 mínútur að snúa leiknum sér í hag Þegar þeir settu 13 fyrstu stigin. Þann aiun tókst Kópavogsbúum ekki að brúa þrátt fyrir oft ágæta baráttu og það voru því Njarðvíkingar sem fögnuðu enn einum sigrinum á heimavelli sínu. „Það var eins og þeir væra einum til tveim mönnurn fleiri en við í síðari hálfleik og ég get vel skilið hvers vegna þetta er kallað Ljónagryfjan," sagði Michael Tho- ele, Bandaríkjamaðurinn geðþekki í liði Blika, sem hefur vakið athygli fyrir púð- mánnlega framkomu á leikvellinum. „Við hræddum þá virkilega í fyrri hálfleik og það er greinilegt að okkur hefur farið talsvert fram þó það hafi ekki dugað til sigur að þessu sinni,“ sagði Michael Tho- ele ennfremur. Bestu menn Njarðvíkinga voru Rondey Robinson, Teitur Örlygsson og Friðrik Ragnarsson en hjá Blikum þeir Mich- ael Thoele og Birgir Mikaelsson. ÖruggthjáÍR var einungis á upphafsmínútunum leik ÍR og Tindastóls í Seljaskóla ívar Benediktsson skrifar að gestirnir náðu að halda í við John Rhodes og félaga úr Breið- holtinu. Eftir um tíu mín- útna leik höfðu ÍR-ingar náð tólf stiga forskoti og hleyptu þeir Sauðkræk- ingum aldrei mikið nær sér það sem eftir lifði leiks og innbyrtu að leikslokum auð- veldan sigur, 88:72. Það var ljóst strax í upphafi leiks að leikmenn Tindastóls myndu eiga í mestu vandræðum með grimma vörn ÍR s« John Rhodes fór fyrir eins og oft áður. Varnarleikur þeirra var leikmönnum ÍR engin hindran og þrátt fyrir hittni ÍR-inga væri oft á tíðum ekkert sérstök sigu þeir örugglega framúr. Omar Sigmarsson og Torrey John vora einu menn Tindastóls er léku af styrk, aðrir náðu sér ekki á strik. Hinrik Gunn- arsson var heillum horfinn og gekk illa að skora þrátt fyrir nokkur upplögð færi og tók einungis tíu fráköst samtals í vöm og sókn. John Rhodes fór á kostumn í liði ÍR, tók 31 frákast, þar af 24 í vöm og varði ijögur skot og kórónaði frammistöðu sína með því að skora fjögur stig með langskot- um, þau hafa ekki verið hans sterka hlið hingað til. Bræðurnir Herbert og Máras voru góðir að vanda og Guðni var öflugur í vöminni og Jón Öm var traustur í sókn. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 C 3 Brasilíumaöurínn Caio til Intemazionale KNATTSPYRNA Helgi ætlar að skora gegn Ungverjum ytra „VIÐ munum leggja áherslu á að leika sterkan varnarleik gegn Ungverjum, þar sem við sækjum þá heim. Það er númer eitt að gefa Ungverjum ekki tækifæri til að skora, verjast vel og sækja síðan hratt gegn þeim þegar við vinnum knött- ipn,“ sagði Hörður Helgason, þjálfari ungmennaliðs Islands, sem leikur gegn Ungverjum í undankeppni Ólympíuleikanna hér á Ferenvaros-leikvellinum íBúdapest ídag. Hörður tilkynnti landsliðið sem byijar leikinn gegn Ungveij- um á æfíngu á Ferensvarosleikvell- inum í gærkvöidi. Sigmunduró. Atli Knútsson, KR, Steinarsson leikur í markinu og skrifar fyrir framan hann frá Búdapest yerða þejr Brynjar Gunnarsson, KR, og Hermann Hreiðarsson, ÍBV, sem bakverðir. Auðun Helgason, FH, leikur sem aftasti varnarmaður og fyrir fram- an hann verða Pétur Marteinsson, Fram, og Gunnlaugur Jónsson, ÍA, sem er nýliði I ungmannaliðinu. Á miðjunni verða Sigurvin Ólafsson, Stuttgart, Eiður Smári Guðjohnsen, Eindhoven, og Tryggvi Guðmunds- son, ÍBV. í fremstu víglínu leika Guðmundur Benediktsson, KR og Helgi Sigurðsson, Stuttgart, sem hefur náð sér eftir meiðsli sem hann hefur átt við að stríða. Helgi hefur leikið tvo leiki með varaliði Stutt- gart að undanfömu, en ekki náð að skora. „Ég geri það hér í Búda- pest,“ sagði Helgi. Hörður sagði að vopn liðsins væra hraðar sóknir. „Við eram með fljóta og góða sóknarleikmenn, þannig að við eigum að geta skapað okkur góð sóknarfæri. Síðan ég tók við liðinu hef ég lagt áherslu á það við strák- ana að við megum ekki tapa knettin- um á hættulegum svæðum, þannig að andstæðingamir nái ekki að refsa okkur. Þá er það gamla góða barátt- an sem verður að vera í lagi, að strákanir mæti til leiks með réttu HELGI Slgurðsson er tllbúlnn f slaginn í Búdapest í dag. hugarfari. Ef baráttan verður til staðar er ég ekki hræddur við leik- inn gegn Ungveijum. Pressan er á Ungveijum, því að þeir verða að vinna okkur til að tryggja sér sigur í riðlinum. Þeir koma því öragglega af miklum krafti í leikinn, en ég vona að það hjálpi okkur — að við náum að snúa vopninu í höndum þeirra. Ef við eram sterkir fyrir í byijun er líklegt að mótspyman fari í taugamar á þeim,“ sagði Hörður. I’\ talska félagið Internazionale til- kynnti í gær að það hefði keypt Brasilíumanninn Caio, miðherja Sao Paolo. „Caio hefur undirritað samn- ing,“ sagði talsmaður Inter og gaf ekki nánari skýringar en ítalska blaðið Gazzetta Dello Sport sagði að kaupverðið hefði verið 4,6 millj. dollarar (tæplega 300 millj. kr.). Inter keypti einnig miðheijann Marco Branca frá Roma og gerði tveggja ára samning við hann en lánaði Roma Marco Delvecchio út tímabilið. Caio Ribeiro Dedocoussau, eins og þessi tvítugi piltur heitir fullu nafni, er ítalskur í móðurætt og hittir fyrir landa sinn hjá Inter, Roberto Carlos. „Roberto Carlos hefur sagt mér að Inter sé frábært lið,“ sagði Caio við Gazzetta Dello Sport. „Ég veit að liðið er skipað ungum leikmönnum sem setja stefnuna hátt.“ Orðrómur hefur verið um að kaupin verði fjármögnuð með sölu á Paul Ince og að sænski miðjumað- urinn Jonas Them eigi að koma í staðinn fyrir Ince en talsmaður Int- er sagði að allt tal um aðrar breyt- ingar væra aðeins getgátur. Ince hefur verið orðaður við Ars- enal, sem var tilbúið að greiða 6,5 millj. punda, en Peter Hill-Wood, formaður félagsins, sagði að Ars- enal hefði dregið sig í hlé. Hins vegar vilja Newcastle United, Tott- enham Hotspur, Chelsea og Middl- esbrough fá Ince í sínar raðir, sam- kvæmt enskum fjölmiðlum. Ingesson til Bari Sheffield Wednesday seldi Svíann Klas Ingesson til Bari fyrir 900.000 pund en í fyrradag hafnaði enska félagið tilboði ítalska félags- ins upp á 800.000 pund í landsliðs- manninn. Ingesson gekk til liðs við Sheffield eftir HM í Bandaríkjunum í fyrra en var mikið frá vegna meiðsla og náði aðeins 22 leikjum með liðinu. Roberto Mancini hótaði að fara frá Italíu eftir að hafa verið vikið af velli um liðna helgi en Sampdor- ia sagði að framheijinn yrði áfram hjá félaginu. Udinese keypti Rússann Igor Shalimov frá Lugano í Sviss en Shalimov ték áður með Inter. Þá fékk Cremonese ástralska miðhetj- ann John Aloisi frá belgíska félag- inu Anversa og er um lánssamning að ræða. FOLK ■ ALVIN Martin, miðvörður hjá West Ham, hefur ákveðið að hætta að leika knattspyrnu á meðal þeirra bestu þegar tímabiiinu lýkur í vor. Martin, sem er 37 ára, hefur spilað með West Ham í 21 ár og á 17 landsleiki fyrir England að baki. ■ DUNCAN Ferguson sen dæmdur var í þriggja mánaða fang elsi fyrir að ráðast á mótheija losnai úr gæslunni 22. nóvember. Everton, sem keypti hann frá Glasgow Ran- gers, vonaðist til að geta notað hann strax en 12 leikja bannið, sem leik,- maðurinn var einnig dæmdur í, tek- ur ekki gildi fyrr en hann losnar úi fangelsinu. ■ TONY Higgins, framkvæmda stjóri skoska sambandsins, var ekk sammála niðurstöðunni; sagði at fyrst bannið var ekki felt niður ætt það að miðast við tímann þega Ferguson var settur inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.