Morgunblaðið - 22.11.1995, Side 1
fN**£t«iÞIafrU>
1995
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER
BLAD
B
Sigurður segir
tilboð Örebro
umhugsunarvert
LANDSLIÐSMAÐUKINN Sigurður Jónsson er
að velta tilboði sænska félagsins Örebro fyrir
sér og gerir ráð fyrir að taka ákvðrðun fljót-
lega. Hins vegar telur hann að ekki verði af
frekari viðræðum við norska félagið Lilleström.
Eins og kom fram í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins fóru Sigurður og Guðjón Þórðarson,
þjálfariÍA, til Gautaborgar um helgina vegna
tilboðs Örebro. „Þetta er alvarlegt tilboð,“ sagði
Guðjón við Morgunblaðið en um er að ræða
samning til tveggja ára. Sigurður sagði að
Örebro væri undir miklum þrýstingi að fá nýja
leikmenn í stað þeirra sem horfið hefðu á braut
og því vildi félagið ganga frá leikmannamálum
sem fyrst.
KNATTSPYRNA
Kristinn stjómar
Valsmönnum
KRISTINN Björnsson, sem tók við þjálfun 1.
deildar liðs Vals síðsumars, lauk umbeðnu verk-
efni að siðasta deildarleik loknum en þar sem
ekki hefur verið ráðinn nýr þjálfari féllst hann
á að sjá um æfingar liðsins til áramóta. Hann
er annars þjálfari A-landsliðs kvenna sem og
U-20 ára kvennaliðsins.
Theódór S. Halldórsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Vals, sagði við Morgunblaðið að
þar sem væri verið að reyna að finna þjálfara
erlendis til lengri tíma færu Valsmenn sér að
engu óðslega. Hann sagði ennfremur að fyrst
og fremst væri verið að athuga málin í Eng-
landi og Rússlandi og þjálfari sem væri einnig
leikmaður væri síður inni í myndinni.
Andri frá Þór á
Akureyri til Fylkis
ANDRI Marteinsson, knattspyrnumaður sem lék
með Fjölni og Þór frá Akureyri sl. sumar og
þar áður með FH, hefur ákveðið að leika með
Fylki í 1. deildinni næsta sumar. Hann er annar
leikmaðurinn sem bætist við leikmannhóp Fylk-
is því áður hafði Enes Cogic komið frá ÍR.
Þórhallur Dan Jóhannsson, sem hafði hugsað
sér til hreyfings og var m.a. orðaður við Grinda-
vik, hefur ákveðið að vera áfram í herbúðum
Árbæinga.
Klinsmann
með fjögur
mörk fyrir
Bayern
JURGEN Klinsmann, fyrirliði
þýska landsliðsins, gerði tvö mörk
í 3:1 sigri Þýskalands gegn Búlg-
aríu í riðlakeppni Evrópumótsins
fyrir viku og tryggði liði sínu
sæti í úrslitakeppninni. Hann
bætti um betur í gærkvöldi, þegar
Bayern Miinchen vann Benfica
4:1. Klinsmann gerði öll mörk
þýska liðsins og lagði sitt af mörk-
um til að koma Bayem í fjórðu
umferð Evrópukeppni félagsliða
en þetta var fyrri leikur liðanna
í þriðju umferð.
Klinsmann gerði þrjú mörk á
16 mínútna kafla í fyrri hálfleik,
skoraði á 27., 32. og 43. mínútu
og bætti fjórða markinu við með
skalla mínútu eftir hlé. Kalt var
í MUnchen en hetjan lét það ekki
á sig fá og fagnaði eins og henni
einni er lagið — fleygði sér fram
og lét sig renna á vellinum við
mikinn fögnuð um 40.000 áhorf-
enda.
Alþjóða knattspyrnusambandið verður að fallast á tillögur UEFA
Formenn átfusambandanna
styðja tillögur Johanssons
Formenn knattspyrnusam-
banda álfanna hafa ákveðið
að styðja nokkrar af hugmyndum
Svíans Lennarts Johanssons, for-
manns knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, sem hann lagði
fram í sumar undir nöfnunum
Framtíðarsýn I og Framtíðarsýn
II. Veigamesta samþykktin hefur
með skiptingu hagnaðar af HM
að gera en einnig var samþykkt
að auka völd álfusambandanna á
eigin svæðum og vægi þeirra í
kosningu nefndarmanna hjá Al-
þjóða knattspymusambandinu,
FIFA. Þetta þykir mikill sigur
fyrir Johansson en að sama skapi
viss ósigur fyrir Joao Havelange,
forseta FIFA.
Formennimir sex funduðu með
Havelange í aðalstöðvum FIFA í
Zurich og var Johansson kátur
að fundi loknum. „_Er hægt að
biðja um meira? Ég er mjög
ánægður," sagði hann. Tillögur
Svians um að álfurnar skiptust á
um að halda úrslitakeppni HM
eftir ákveðinni röð og að fram-
kvæmdastjórn FIFA yrði kosin
samkvæmt breyttum reglum voru
lagðar til hliðar að sinni. „Við
erum ánægðir með niðurstöðum-
ar,“ bætti Johansson við, „en við
lítum ekki á okkur sem sigurveg-
ara. Það sigraði enginn og tapaði
enginn — allar ákvarðanir voru
samþykktar samhljóða."
Sepp Blatter, framkvæmda-
stjóri FIFA, sagði að í samþykkt-
unum fælist m.a. að ný knatt-
spyrnusambönd yrðu að sækja um
aðild að viðkomandi álfusambandi
en ekki beint til FIFA eins og
áður. Málefni leikmanna yrðu í
höndum álfusambandanna og þau
yrðu einnig ábyrg gagnvart af-
skiptum stjórnvalda á hveiju
svæði og kæmi aðeins til kasta
FIFA ef eftir því yrði óskað. Álfu-
samböndin tækju að sér skipu-
lagningu allrar riðlakeppni FIFA
nema í heimsmeistarakeppninni.
Þá yrði sérstakt ráð formannanna
og Havelange komið á sem skerti
völd forsetans.
Hagnaður til
allra sambanda
Framtíðarsýn II hefur með
markaðsmál knattspyrnunnar að
gera og fékk hún samhljóða
stuðning á fundinum en þar er
gert ráð fyrir að hagnaði af HM
verði skipt jafnt á milli allra sam-
banda innan FIFA. Johansson
hafði gagnrýnt FIFA fyrir að sofa
á verðinum í markaðsmálum og
vísaði til þess að ef allt væri með
felldu ætti hagnaður af heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu
að vera ámóta mikill og hagnaður
af Ólympíuleikum en eins og mál-
um væri háttað munaði mjög
miklu. Samningar hafa verið
gerðir vegna heimsmeistara-
keppninnar 1998 en Johansson
sagði að ef tillögur sínar yrðu
samþykktar gætu þær komið til
framkvæmda á HM 2002.
Niðurstöður fundarins verða
teknar fyrir á fundi framkvæmda-
stjómar FIFA í París í desemb^r
og síðan á FIFA-þinginu í Zúrich
í júlí á næsta ári.
HANDKNATTLEIKUR: HEÐINN GILSSON LOKS KOMINN MED LEIKHEIMILD / B2