Morgunblaðið - 05.12.1995, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Haukarsýndu
frábæra bar-
átlu í Keflavík
Náðu að jafna fyrir venjulegan leiktíma og brjóta Keflvík-
inga á bak aftur í framlengingu, 108:102
SIGURGANGA Hauka úr Hafnarfirði heldur áfram og á sunnu-
dagskvöldið gerðu þeir sér litið fyrir og sigruðu Keflvíkinga í
Keflavík íframlengdum leik, 108:102, eftiræsispennandi lokamín-
útur í venjulegum leik þar sem heimamenn virtust ætla að hafa
betur. En frábær barátta Hafnfirðinga á lokamínútunni dugði
þeim til að jafna leikinn og íframlengingunni brotnaði Keflavík-
urliðið og sigur Haukanna var að iokum sannfærandi. í hálfleik
var staðan 60:47 fyrir Keflvíkinga og eftir venjulegan leiktíma
93:93 og var þetta fyrsta tap Keflavíkurliðsins á heimavelli á
þessu keppnistímabili.
Leikurinn var afar þýðingarmik-
ill og þá sérstaklega fyrir Kefl-
víkinga sem nú eru að dragast aft-
■■■■■■■ ur úr eftir slakt
Björn gengi að undan-
Blöndal förnu. Bæði liðin
teftZik'3 léku af varfærni °S
héldu hraðanum
niðri og sú leikaðferð gafst heima-
mönnum vel framan af. Keflvíking-
ar voru sérlega hittnir í fyrri hálf-
leik þar sem þeir settu 60 stig og
þar af voru níu 3ja stiga körfur.
í hálfleik var munurinn 13 stig
og síðan réðu Keflvikingar ferðinni
lengstum í síðari hálfleik. En Hauk-
arnir börðust vel og smám samar.
tókst þeim að bijóta sóknarleik
Keflvíkinga á bak aftur og síðan
að jafna metin á lokasekúndum
þegar staðan var 93:90 fyrir Kefl-
víkinga. Þá brutu Keflvíkingar hálf
klaufalega á Pétri Ingvarssyni sem
fékk þijú vítaskot, Honum brást
bogalistin í fyrsta skotinu, næsta
skot fór niður og síðan mistókst
þriðja skotið hvort sem það var vilj-
andi gert eða ekki. Jason Williford
náði frákastinu og jafnaði metin.
„Þetta var rosalegt að okkur skyldi
ekki takast að ná þessu frákasti
sem við eigum að gera næstum í
99% tilfeila. Það var greinilegt að
Pétur lék sér að þvi að hitta ekki,“
sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og
leikmaður Keflvíkinga um þetta
atvik.
í framlengingunni voru það
Haukar sem tóku völdin á meðan
barátta Keflvíkinga dó smám sam-
an út og þá sérstaklega sóknarleik-
urinn sem var hálfgerð hörmung.
„Þetta var góður og ánægjulegur
sigur því Keflvíkingar eru erfiðir
heim að sækja. Útlitið var ekki
gott hjá okkur eftir fyrri hálfleikinn
en okkur tókst að laga vörnina í
þeim síðari og þá fóru hjólin að
snúast með okkur,“ sagði Reynir
Kristjánsson þjálfari Hauka. „Það
er athyglisvert hversu brothætt
andlega hliðin er hjá Keflvíkingum
miðað við að leikmenn liðsins eru
með um 400 landsleiki," sagði
Reynir ennfremur.
Bestir í liði Keflvíkinga voru Al-
bert Óskarsson, Guðjón Skúlason
og Lenear Burns sem þó á að geta
meira. Einnig stóð Gunnar Einars-
son sig vel í fyrri hálfleik og var
það skrýtin ráðstöfun að halda hon-
um utan vallar allan síðari hálfleik-
inn.
Hjá Haukum voru bræðurnir Jón
Arnar og Pétur Ingvarssynir ásamt
Jason Williford bestir en saman
settu þeir 82 stig af þeim 108 stig-
um sem liðið skoraði í leiknum.
Sterkur varnarleikur
Það var fyrst og fremst sterkur
varnarleikur sem færði okkur
sigurinn, þar sem Torrey John var
geysilega sterkur.
Við lékum eins og
BjZsson við gerðum í haust
skrifar °S eg vona að erfið-
leikatímabilið sé
búið og stefnan hefur verið tekin
upp á við,“ sagði Páll Kolbeinsson,
þjálfari Tindastóls, eftir sigur liðs-
ins, 61:51, á ÍR í miklum baráttu-
leik — leik hinna sterku varna.
Það var strax ljóst í upphafi leiks-
ins að hart yrði barist. Heimamenn
með Torrey John sem lykilmann,
léku sterkan varnarleik og sýndu
mikla baráttu, þannig að leikmönn-
um ÍR var lítið ágengt upp við körfu
heimamanna. Eins og fyrr segir var
leikurinn mikill baráttuleikur, hrað-
ur, en lítið skorað vegna þess hvað
varnarleikur liðanna var öflugur.
Jafnvægi var í leik liðanna lengi
framan af, en heimymenn þó alltaf
skrefinu á undan. í upphafi seinni
hálfleiks náði Tindastóll tólf stiga
forskoti og lagði grunninn að sigri
sínum.
Ómar Sigmarsson lék skínandi
vel hjá Tindastóli og þá var Torrey
John sterkur í vörninni. Pétur Guð-
mundsson lék bæði vel í vörn og
sókn; sinn besta leik í vetur. Það
sýnir best hvað vamarleikur Tinda-
stóls var góður, að stórskytturnar
hjá ÍR, Herbert Arnarson og Jón
Örn Guðmundsson, náðu aðeins að
skora samtals ellefu stig í leiknum.
John Rhoeds og Eiríkur Önundar-
son léku vel með ÍR og þá var
Guðni Einarsson sterkur í vörninni
— hafði góðar gætur á Torrey, sem
náði ekki að skora eins mörg stig
og hann er vanur.
Valsmenn komnir með
sjálfstraust? ,
W^ALSMENN stöðvuðu sigur-
™ göngu Skagamanna á sunnu-
daginn er þeir unnu 116:107 í fjör-
ugum leik. Þetta
var annar sigur
Vals í deildjnni og
liðið er auk þess
komið áfram I bik-
arkeppninni og spurning hvort
sjálfstraustið er komið hjá Hlíðar-
endaliðinu. Skagamenn höfðu sigr-
að í þremur leikjum í röð áður en
þeir komu að Hlíðarenda en urðu
að játa sig sigraða þrátt fyrir stór-
leik Miltons Bells sem gerði 51
stig og tók auk þess 16 fráköst.
Brynjar Karl Sigurðsson, sem
lék með ÍA í fyrra og framan af
vetri, gerði fyrstu körfuna fyrir
Val, en þetta var fyrsti leikur hans
með liðinu eftir að hann sneri heim.
Eftir þetta kom hann ekki mikið
við sögu en hann var þó á staðnum
og það virtist veita Valsmönnum
ákveðinn styrk.
Jafnræði var nær allan leikinn
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
og liðin skiptust á um að hafa for-
ystu, Skagamenn þó heldur oftar.
Skagamenn léku ágæta maður á
mann vörn í fyrri hálfleik en í þeim
síðari prófuðu þeir svæðisvörn án
árangurs og fóru þá aftur í maður
á mann. Valsmenn skiptu hins
vegar stöðugt um vörn í fyrri hálf-
leik, léku eina stundina í maður á
mann en hina svæðisvörn með
þeirri undantekningu þó að ávailt
var einn leikmaður látinn vera laus
þannig að hann gæti hjálpað til í
vörninni.
Hjá Val var Bayless atkvæða-
mestur, hann er ágætur varnar-
maður og flinkur með boltann en
skotin hjá honum á sunnudaginn
voru ekki uppá það besta þrátt
fyrir að hann gerði 34 stig. Bjarki
Gústafsson átti mjög góðan leik,
lék góða vörn gegn sér stærri
manni, Haraldi Leifssyni, og hitti
ágætlega og nafni hans Guð-
mundsson barðist eins og honum
einum er lagið. Ragnar Þór Jóns-
son var lengi í gang en eftir að
hann fékk þriðju villuna fór hann
að hitta ágætlega.
Mijton Bell var yfirburðamaður
hjá ÍA. Grimmur í fráköstunum
og fljótur upp með boltann auk
þess sem hann hitti vel. Aðrir í lið-
inu voru nokkuð jafnir.
Ekki er hægt að ljúka þessari
umræðu án þess að minnast á stór-
skemmtilega körfu sem Milton.
Bell gerði fyrir Skagamenn. Það
var í fyrri hálfleik sem hann brun-
aði einu sinni sem oftar upp miðjan
völl og þegar hann var kominn
aðeins inn fyrir vítateigslínu Vals
stökk hann upp, sveif að körfunni
og tróð frábærlega yfir einn varn-
armanna Vals. Ein skemmtilegasta
troðsla sem sést hefur hér á landi
lengi.
Hörkuspenna á Akureyri þar
sem Borgnesingar höfðu betur
Tak Þórs á Skallagrími linaðist
til muna er liðin mættust á
Akureyri sl. sunnudagskvöld. í
■■■■^■i fyrsta Ieik liðanna
Stefán Þór sigraði Þór með 35
Sæmundsson stiga mun og vann
einnig öruggan sig-
ur í Borgarnesi.
Þessi leikur var hins vegar hnífjafn
og spennandi og úrslitin réðust í
blálokin. Leikmenn Skallagríms
höfðu betur og sigruðu 71:69.
Leikurinn var dapur framan af,
skrifar frá
Akureyri
lítið skorað og staðan 5:4 eftir 5
mínútna leik og 5:8 eftir 7,30 mín.
Konráð Óskarsson fékk fljótlega 3
villur og lék lítið með Þór í fyrri
hálfleik. Smám saman rættist úr
leiknum og Þórsarar áttu góðan
endasprett og höfðu 9 stiga for-
ystu í leikhléi, 41:32.
í upphafi seinni hálfleiks
sannaðist að þetta er ekki mikill
munur í körfuknattleik. Tvær
þriggja stiga körfur frá Skalla-
grími komu liðinu strax inn í leik-
inn. Þórsurum var fyrirmunað að
hitta og eftir 5 mínútna barning
var staðan 41:40 og skömmu síðar
komust heimamenn loks á blað.
Leikurinn var nú í járnum eftir
þetta en Skallagrímsmenn þó yfir-
Morgunblaðið/Bjarni Eiríkss'
RONDY Robinson fór mikinn í liði Njarðvíkinga gegn Blikunum — gerð
24 stig og tók 14 fráköst. Birgir Mikaelsson ber lægri hlut í rimmi
við Robinson.
leitt feti framar. Þegar 2,30 mín.
voru eftir af leiknum var staðan
67:65 en Borgnesingar gerðu
næstu 4 stig.
Síðustu 50 sekúndurnar voru
æsispennandi. Þórsarar fengu bolt-
ann í stöðunni 68:69 og Kristinn
Friðriksson hitti ekki úr 3ja stiga
skoti þegar 36 sek. voru eftir.
Þórsarar brutu á Ara Gunnarssyni
þegar 20 sek. voru eftir en hann
hitti úr hvorugu vítaskoti sínu.
Þórsarar náðu frákastinu, Fred
Williams komst undir körfuna og
skaut en boltinn dansaði á körfu-
hringnum og Ermolinskíj blakaði
honum burt. Hann skoraði síðan
úr tveimur vítaskotum þegar 4
sek. voru eftir og staðan því 68:71.
Skallagrímsmenn brutu strax af
sér og Þórsarar fengu því aðeins
2 vítaskot. Kristján Guðlaugsson
hitti úr fyrra skotinu en ekki því
seinna, boltinn barst aftur til hans
en skot hans geigaði og sigur
Skallagríms í höfn.
Þórsarar söknuðu Birgis Arnar
í vörninni og voru lélegir í frá-
köstunum. Kristinn kom aftur inn
í liðið eftir straff og átti þokkalega
spretti. Hafsteinn Lúðvíksson var
mjög góður og skoraði 22 stig, en
hann hefur Iengi verið í svelti.
Fred var einnig traustur en Konráð
og Kristján náðu sér ekki á strik.
Ermolinskíj, Tómas Holton og Ari
léku allir vel fyrir Skallagrím.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir
liðið í baráttunni um þriðja sætið í
riðlinum.
Ivar
Benediktsson
skrifar
klaufaskap
Það var lágt risið á leik KR og Grinda-
víkur er liðin mættust á sunnudags-
kvöldið á Seltjarnarnesi. Fleiri mistök
sáust en góðu hófi
gegndi, einkum í sóknar-
leik beggja liða. Fjöl-
margar sendingar og
upplögð skotfæri fóru út
um þúfur fyrir hreinan
og kæruleysi leikmanna
beggja liða. Að leikslokum voru það þó
Grindvíkingar er fögnuðu sigri, 74:67.
„Þetta var erfiður leikur og lykilmenn í
mínu liði léku illa en þá komu yngri
menn inn og sigldu skipinu í höfn,“ sagði
Friðrik Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur,
er stigin tvö voru i höfn.
Að lokinni fyrstu sókn leiksins sem
gestirnir áttu virtust þeir vera sjóðheitir
því Marel Guðlaugsson kom þeim á
bragðið eftir örfáar sekúndur með
þriggja stiga skoti sem smellhitti. En
þar með má segja að Marel hafi vart
sést meira í leiknum og félagar hans
náðu sér ekki á strik og KR-ingar náðu
forystu og virtust ætla að taka leikinn