Morgunblaðið - 05.12.1995, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 C 5
fyrir-
on
li
u
Meistararnir unnu auðveldan
sigur á Blikum í Smáranum
á sunnudagskvöldið, 79:102.
Njarðvíkingar lögðu grunninn að
sigrinum í fyrri
Hörður hálfleik með kröft-
Magnússon ugum leik þar sem
skrifar þeir hreinlega
keyrðu yfir ráðvillta Blika, en stað-
an í hálfleik var 36:56.
í síðari hálfleik leystist leikurinn
upp í hreina endaleysu, úrslitin
ráðin og Njarðvíkingar gerðust
kærulausir. Blikum tókst því að
halda í við meistarana sem leyfðu
öllum að spreyta sig. Töluverð
harka færðist í leikinn í síðari hálf-
leik og misstu dómararnir öll tök
á leiknum, fóru að gefa tæknivillur
í gríð og erg og virtust flauta af
minnsta tilefni. Reyndar enduðu
liðin samtals í 52 villum sem verð-
ur að teljast dágott, þar af áttu
Njarðvíkingar 31.
Rondey Robinson fór mikinn í
liði gestanna, gerði 24 stig og tók
14 fráköst. Þá var Páll Kristinsson
sterkur, annars var Njarðvíkurliðið
mjög jafnt og allir leikmenn liðsins
komust á blað. Liðið spilaði vel
þegar með þurfti og er líklega með
mestu breiddina í deildinni ásamt
Haukum.
Góður sigur Blika á Keflvíking-
um á dögunum kom á óvart en
Njarðvíkingar voru einfaldlega of
sterkir fyrir heimamenn. Halldór
Kristmannsson gerði fallega hluti
í Blikaliðinu og Erlingur Snær
Erlingsson hitti vel, þá barðist
Agnar Olsen vel, þó oft og tíðum
virtist hann fara yfir velsæmis-
mörk í varnarleik sínum. Michael
Thoele náði sér ekki á flug, þrátt
fyrir 23 stig og Birgir Mikaelsson
var heillum horfinn í sínum aðgerð-
um.
■ Úrslit / C6
■ Staðan / C6
klauft
sinu
í sínar hendur. Þeir náðu forystu 14:5
og 18:10, en þá hófst mistakaleikurinn
af fullum krafti báðum megin. Grindvík-
ingar náðu að rétta sinn hlut og jafna
skömmu fyrir leikhlé, en þá stóð 37:37.
Jafnt var á flestum tölum í síðari
hálfleik. KR-ingum tókst að ná fimm
stiga forystu rétt fyrir miðjan hálfleik,
54:49, en með ómarkvissum leik misstu
þeir taktinn og Grindvíkingar snéru vörn
í sókn og náðu forystu 56:57 og gerðu
heldur færri mistök á lokakaflanum og
þar skildi á milli.
Ósvaldur Knudsen var einn bestur í
liði KR, vann vel í vörn og komst best
frá sóknarleiknum. Ingvar Ormsson var
góður í fyrri hálfleik en náði sér ekki
á strik í þeim síðari. Þá átti Jonathan
Bow sína spretti svo og Hermann
Hauksson.
Helgi Guðfinnsson var bestur Grind-
víkinga og Guðmundur Bragason batn-
aði þegar á leið eftir að hafa verið mis-
lagðar hendur í sókninni framan af. Hinn
ungi Páll Axel Vilbergsson lék síðari
hluta leiksins og komst vel frá sínu.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Man. City áfram
ásigurbraut
Öll toppliðin í Englandi gerðu jafntefli
WIMBLEDON veitti Newcastle
harða keppni á heimavelli og
varð fyrsta liðið til að skora
þrjú mörk gegn efsta liði deild-
arinnar, 3:3. Dean Holdsworth
skoraði tvö mörk fyrir Wibledon
og það gerði Les Ferdinand
einnig fyrir Newcastle, en þriðja
mark liðsins var sjálfsmark
Kenny Gillespie.
að gekk á ýmsu í Englandi, sjö
jafntefli urðu í úrvaisdeildinni.
Öll efstu liðin gerðu jafntefli, þannig
að staðan á toppnum breyttist ekkert.
Manchester United náði ekki að
nálgast Newcastle á toppnum, þar
sem liðið varð að sætta sig við jafn-
tefli, 1:1, gegn Chelsea á Old Traf-
ford. David Beckham náði að jafna
fyrir United, eftir að Dennis Wise
skoraði fyrir Chelsea.
Arsenal gerði jafntefli, 1:1, gegn
Aston Villa á Villa Park. David Platt
skoraði fyrir Arsenal gegn sínu
gamla félagi, með skalla eftir fyrir-
gjöf frá Paul Merson. Aðeins fimm
mín. síðar jafnaði Dwight Yorke frá
Trinidad, þegar hann kastaði sér
fram og skallaði inn fyrirgjöf frá
Alan Wright.
8,5 millj. punda maðurinn hjá
Liverpool Stan Collymore skoraði
eftir að hafa leikið tvo leiki án þess
að skora, eftir að hann kom inn
fyrir Ian Rush, sem er meiddur.
Collymore skoraði fyrir Liverpool
gegn Southampton, 1:1, á 67. mín.,
eða sjö mín. eftir að Neii Shipperley
hafði skorað fyrir Southamtpon.
Þetta var aðeins annað stig
Liverpool í fimm deildarleikjum —
ef liðið hefði tapað, hefði það verið
fjórði tapleikurinn í röð á heima-
velli. Það hefur ekki gerst hjá
Liverpooi síðan 1923.
Alan Shearer, miðheiji Englands,
skoraði þijú mörk þegar Blackburn
lagði West Ham að velli, 4:2. Shear-
er hefur skorað 21 mark fyrir For-
est á keppnistímabilinu, þar af sext-
án í 1. deildarkeppninni — hann
skoraði fyrsta markið eftir aðeins
þrjár mín., síðan aftur á sautjándu
mín. og þriðja markið skoraði hann
úr vítaspyrnu á 64. mín. Mike New-
ell skoraði fjórða mark Blackburn.
Julian Dicks minnkaði muninn fyrir
West Ilam úr vítasp.yrnu, sem
Robbie Slater fiskaði á 74. mín. og
fjórum mín. síðar skoraði Slater
annað mark Lundúnaliðsins.
Manchester City kom heldur betur
á óvart með því að leggja Leeds að
velli á Elland Road, 0:1. Markið
skoraði skoski ungmennaliðsmað-
urinn Gerry Creaney, sem kom inná
sem varamaður fyrir Richard Edg-
hill, sem meiddist á hné og var flutt-
ur á sjúkrahús. Georgi Kinkladze,
22 ára landsliðsmaður frá Georgíu,
sem kostaði City 2 millj. punda frá
Dynaino Tbilisi, skyggði á 4,8 millj.
punda manninn Tomas Brolin hjá
Leeds, sem lék sinn' fyrsta leik á
heimavelli. Kinkladze, sem talar ekki
orð í ensku, hefur verið aðalmaður-
inn í leik City í síðustu fimm leikjum
liðsins, sem það hefur ekki tapað —
heldur unnið ijóra og gert eitt jafn-
tefli. Sigurinn gegn Leeds var fyrsti
sigur City á útivelli á árinu. Fyrir
hinn góða sprett City hafði liðið
ekki unnið leik, gert tvö jafntefli og
tapað níu leikjum.
Simon Barker, varnarmaður QPR
var í sviðsljósinu á Loftus Road, þar
sem liðið gerði jafntefli, 1:1, gegn
Middlesbrough. Barker misnotaði
vítaspyrnu á fjórðu mín. — spyrnti
knettinum yfir slá og þremur mín.
seinna var dæmd á hann vítaspyrna,
þegar hann felldi Nick Barmby.
Júrgen Sommer, landsliðsmarkvö ð-
ur Bandaríkjanna, varði vítaspyrnu
Barmbys, en náði ekki að halda
knattinum sem barst út til Chris
Morris, sem skoraði af sex metra
færi. Mark Hateley, fyrrum landsl-
iðsmaður Englands og leikmaður
með Glasgow Rangers, lék sinn
fyrsta deildarleik í Englandi í ellefu
ár, lagði upp jöfnunarmark QPR sem
Alan McDonald skoraði á sextándu
mín.
Guðni Bergsson og félagar hans
höfðu enn ekki heppnina með sér —
Nottingham Forest náði að jafna,
1:1, rétt fyrir leikslok með marki
Colin Cooper, en mark Bolton skor-
aði Fabian de Freitas.
Atletico
tapaði
ATLETICO Madrid heldur
forustu sinni á Spáni, þrátt
fyrir að liðið tapaði, 1:2, fyrir
Real Betis, sem varð fyrst liða
til að skora tvö mörk hjá Atl-
etico í Ieik I vetur. Jose Mol-
ina, markvörður liðsins, sem
hefur verið lykilmaður þess,
átti mjög dapran leik og fékk
á sig ódýr mörk. Leikmenn
Atletico áttu tvö skot sem
höfnuðu á tréverkinu á marki
Betis. „Við áttum áttatiu pró-
sent af leiknum, en þeir nýttu
tækifæri sín. Svona er knatt-
spyrnan," sagði Radomir
Antic, þjálfari Atletico. Barc-
elona varð að sætta sig við
jafntefli, 1:1, heima gegn Rac-
ing Santander. Áhorfendur á
Camp Nou bauluðu á sína leik-
menn í leikslok.
Real Madrid
endurtók
leikinn
REAL Madrid, sem skoraði
þrjú mörk, 3:0, á fyrstu fimmt-
án min. gegn Sevilla í fyrra,
endurtók leikinn um helgina.
Jorge Valdano, þjálfari Real
Madrid, tefldi fram ungum
leikmönmun, sem skemmtu sér
svo sannarlega. Vamarmaður-
inn Rafael Alkorta skoraði með
skalla eftir aðeins tvær mín.
og táningurinn Alvaro Benito,
sem er 18 ára, hélt upp á það
að leika sinn fyrsta leik á
heimavelli, með þvi að bæta
öðru marki við á þrettándu
min. Jafnaldri hans Raul Gonz-
alez — skoraði síðan tvö mörk,
bæði eftir góðan samleik við
Michael Laudrup — það fyrra
eftir 22 mín.
Öruggt hjá
Bayern
BAYERN Miinchen vann ör-
uggan sigur, 4:0, á Schalke og
segir Otto Rehhagel, þjálfari
liðsins, að það sé gott vega-
nesti fyrir seinni leikinn gegn
Benfica í UEFA-keppninni,
sem fer fram í Lissabon í
kvöld. Bayern er tveimur stig-
um á eftir Dortmund þegar
ein umferð er eftir fyrir vetr-
arfrí — Dortmund leikur þá í
Freiburg, en Bayern fær Diiss-
eldorf í lieimsókn.
Reuter
LES Ferdinand leikur hér á Alan Kimble áður en hann skorar
fyrra mark sitt fyrir Newcastle gegn Wimbledon.
Þjálfari Lazíó hefði
viljað hafa byssu
George Weah, knattspyrnumað-
ur ársins í Afríku, var hetja
AC Milan þegar liðið lagði Lazíó
að velli á Ólympíuleikvanginum í
Róm — skoraði sigurmarkið, 0:1,
undir lok leiksins, eftir að hafa
leikið frábærlega á varnarleikmenn
Lazíó. AC Milan hefur fjögurra
stiga forskot á Parma á Italíu.
Meistarar Juventus eru heldur bet-
ur að rétta úr kútnum — léku mjög
vel gegn Torínó og unnu nágranna-
liðið stórt, 5:0. Aðalhlutverkið í
leiknum lék Gianluca Vialli, sem
skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik.
Það leit allt út fyrir að leikmenn
AC Milan væru búnir að sætta sig
við markalaust jafntefli gegn Lazíó,
en þegar þijár mín. voru til leiks-
loka sýndi Weah hvers hann er
megnugur, þegar hann upp á ein-
dæmi sundurtætti vörn heima-
manna — spyrnti knettinum inn
fyrir vörnina og geystist síðan fram
og sendi knöttinn örugglega fram
hjá Francesco Mancini, markverði.
„Það eina sem ég sé eftir, var að
hafa ekki byssu á bekknum, til að
skjóta Weah,“ sagði Zdenek Zeman,
þjálfari Lazíó.
Juventus er greinilega komið á
góða siglingu — leikur frábæra
knattspyrnu og þegar liðið er í ess-
inu sínu, er enginn hættulegri en
Vialli, sem skoraði þijú mörk. Þriðja
markið hans var fallegast, þegar
hann sendi knöttinn í netið eftir
sendingu frá Fabrizio Ravanelli,
sem lék á ný með liðinu eftir meiðsli.
Ciro Ferrara og Ravanelli skoruðu
hin mörk Juventus, sem er sex stig-
um á eftir AC Milan.
Parma varð að sætta sig við jafn-
tefli gegn Napolí og skoraði Gian-
franco Zola mark liðsins, 1:1, úr
vítaspyrnu gegn sínum gömlu fé-
lögum.
Fiorentína skaust upp í þriðja
sætið með sigri, 0:1, á Padova. Það
var Argentínumaðurinn Gabriel
Batistuta sem skoraði sigurmarkið
eftir að venjulegur leiktími var bú-
inn. Fiorentína og hið unga lið Atal-
anta, sem komu upp úr 2. deild,
hafa verið að gera góða hluti.
Sandri Tovalieri skoraði tvö mörk
fyrir Atalanta, sem vann Vicenza,
3:1.
Inter Mílanó hefur tekið miklum
stakkaskiptum undir stjórn Eng-
lendingsins Roy Hodgson — liðið
vann Cremonese, 2:0, á San Siro.
Inter hefur leikið sex leiki undir
stjórn Hodgson án þess að tapa. '
Þrátt fyrir að einn leikmaður liðs-
ins, Gianluca Festa hafi verið rekinn
af leikvelli strax í upphafi, gáfust
leikmenn Inter ekki upp.
Enrico Chiesa skoraði sina fyrstu
þrennu í 1. deild þegar Sampdoria
lagði Bari að velli 3:1.