Morgunblaðið - 28.12.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir Guðjónsson
í læknanefnd
Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins
BIRGIR Guðjónsson, læknir, hefur verið skipaður
i Læknanefnd Alþjóða frjálsíþróttasambandsins,
IAAF, og er hann fyrsti íslendingurinn, sem hefur
verið kosinn í nefnd hjá IAAF, en í umræddri
nefnd eru 13 manns. Starf hennar felst m.a. í þvi
að ákveða Iyfjabannlista og setja reglur um fram-
kvæmd lyfjaprófa, skipuleggja læknisþjónustu á
stórmótum og halda námskeið i íþróttalæknis-
fræði í þróunarlöndunum.
Birgir nam lyflæknisfræði og meltingarsjúk-
dómafræði við Yale háskólann í Connecticut í
Bandarikjunum og var aðstoðarprófessor þar í
nokkur ár. Hann hefur tengst fimleika- og ftjáls-
íþróttahreyfingunni frá unga aldri sem iðkandi,
leiðbeinandi og dómari. Birgir er alþjóða dómari
í fijálsíþróttum og starfaði sem slikur í Heims-
meistarakeppninni í Gautaborg sl. sumar. Hann
er formaður Laga- og tækninefndar FRÍ, Laga-
nefndar ÍSÍ og Læknaráðs Ólympfunefndar Is-
lands auk þess sem hann er f Lyfjanefnd ÍSÍ.
Kjartan, Pálmi og
Theódór æfa með
Breiðabliki
KJARTAN Einarsson frá Keflavík hefur æft með
1. deildar liði Breiðabliks að undanförnu og sömu
sögu er að segja af Skagamönnunum Pálma Har-
aldssyni og Theódóri Hervarssyni. Breiðabliks-
menn gera sér vonir um að piltarnir gangi í félag-
ið og er gert ráð fyrir að það skýrist á næstu
dögum.
Hreiðar Bjarnason hefur skipt í Breiðablik úr
Þrótti, Þorsteinn Sveinsson og Sævar Pétursson
úr Val en hann lék á Nýja-Sjálandi sl. sumar. Þá
hefur markvörðurinn Hajrudin Cardaklya gert
samning til þriggja ára og Arnar Grétarsson á
eftir tvö ár af samningi sínum við félagið en Rast-
islav Lazorik gekk til liðs við Leiftur og Kristófer
Sigurgeirsson er með KR.
Patrekur skoraði
sex gegn Frökkum
PATREKUR Jóhannesson, iandsliðsmaður úr KA,
var næst markahæstur og gerði sex mörk, þar
af fjögur af línu, fyrir Evrópuúrvalið gegn heims-
meisturum Frakka, sem sigruðu 35:30. Leikrn* fór
fram í Lúxemborg 22. desember og var f tilefni
50 ára afmælis handknattleikssambands Lúxem-
borgar.
Sigur og
tapí
Keflavík
ÍSLAND og Eistland léku tvo
landsleiki í íþróttahúsinu í
Keflavík í gærkvöldi. Karla-
landsliðið fagnaði sætum sigri
í fyrsta leik sínum undir
stjórn Jóns Kr. Gíslasonar,
97:92, en kvennalandsliðið
tapaði aftur á móti stórt,
64:91. Hér á myndinni fyrir
ofan má sjá Keflvíkinginn
Önnu Maríu Sveinsdóttur
sækja að körfu Eistlands.
Mihkel Reinsalu, þjálfari eist-
neska liðsins, sagði að Anna
María hafi verið best í ís-
lenska liðinu. Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari kvenna-
liðsins, sagði að það sem réði
úrslitum, var að stúlkurnar
frá Eistlandi eru bæði stærri
og líkamlega sterkari en ís-
lensku stúlkurnar.
■ Leikirnir / 04
SUND
Eydís og Magnús styrkt
vegna undirbúnings fyrir ÓL
Olympíunefnd íslands, Sund-
samband íslands, sunddeild
Keflavíkur og nokkur fyrirtæki á
Suðurnesjum hafa gert með sér
samkomulag um að styrkja systk-
inin Eydísi og Magnús Konráðs-
börn, sundmenn úr Keflavík, fram
yfir Ólympíuleikana í Atlanta á
næsta ári. Heildarfjárstuðningur-
inn er 1,5 milljónir króna og gerir
systkinunum kleift að undirbúa sig
sem best fyrir ÓL, en þau eiga
alla möguleika á að ná Ólympíulág-
marki.
Fyrirtækin sem standa að þess-
um samningi eru auk Ólypíunefnd-
arinnar, Sundsambandsins og
sunddeildar Keflavíkur; Reykja-
nesbær, Sparisjóðurinn í Keflavík,
Morgunblaðið/V alur Jónatansson
SYSTKININ Eydfs og Magnús Konráðsbörn.
Keflavíkurverktakar, Hitaveita
Suðurnesja, Aðalstöðin, Apótek
Keflavíkur, Hilmar Sölvason,
Kaupfélag Suðurnesja og Flugaf-
greiðslan hf. Framlög fyrirtækja
og bæjarfélags eru 1.150.000 kr.,
200 þúsund er áætlað að komi úr
Afreksmannasjóði og 200 þúsund
frá Óí og SSÍ. Samningurinn, sem
tekur til tímabilsins 1. desember
1995 til 31. ágúst 1996, var undir-
ritaður í Reykjanesbæ í gær.
Til Þýskalands
Eydís og Magnús eru í hópi
fremstu sundmanna landsins. Þau
halda til Þýskalands í byijun jan-
úar og verða þar við æfingar í tvær
vikur.
GEORGE WEAH KJÖRINN KNATTSPYRNUMAÐUR EVRÓPU1995 / D3