Morgunblaðið - 30.12.1995, Qupperneq 3
2 C LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
íslenskir atvinnumenn
í knattspyrnu
í Bretlandi
Leikmenn
sem hafa leikið með
liðum á Bretlandi sem
fastir liðsmenn
á samningi
Þóróllur Beck,
Glasgow Rangers
Guðgeir Leilsson, Morton
Atli Þór Héðinsson
Morton
Greenock
Paisleyí
Þórólfur Beck, St. Mirren
GuðmundurTortason, St. Mirren
Jóhannes Eðvaldsson,
Glasgow Celtic
/Guðmundur Torfason,
. Johnstone
SKOTLAND
Ottó lék með Hearts-liðinu á
námsárum sínum í Edinborg
J Jóhannes Eðvaldsson,
Motherwell
VIÐURKENNINGAR
< Þorvaldur Örlygsson, Oldham
JGuðmundurTorfason,
Doncaster
\ Guðni Bergsson, Bolton
Þorvaldur Örlygsson, Stoke
Oldham
a CTDoncaster , „
Bolton n ■-* Sigurður Jonsson,
Sheffield Weri.
Lárus Orri Sigurðss., Stoke
Nottingham~-~1 Þorvaldur Örlygsson,
Nottingham Forrest
Sigurður Jónsson, Arsenal
ENGI -AND 0LONDON
Albert Guðmundsson var
í herbúðum Arsenal og
Glasgow Rangers, en ekki
á atvinnumannasamningi
Leikmenn sem nú leika í Englandi
■m: ,fii
uiæsiiega
vairíd
MARK Crossley, |'Kv'5
markvörður Notting-
ham Forest, sést hér
verja frábærlega skot
frá Frakkanum
David Ginola, þegar
Forest lék gegn
Newcastle á dögun-
um. Crossley og fé-
lagar leika gegn
Middlesbrough í dag.
Frakkinn Prunier
með Man. United
Morgunblaðið/Halldór
Björgvin íþróttamaður Hafnarfjarðar
BJÖRGVIN Sigurbergsson úr Kelli, íslandsmelstari í golfl og stigameist-
ari Golfsambands íslands 1995, var kjörinn íþróttamaður Hafnarfjarð-
ar 1995 á hátíð Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og íþróttaráðs í íþrótta-
húsinu við Strandgötu á fimmtudagskvöldlð. Samhllða því fengu þrett-
án aðrir íþróttamenn í Hafnarfirði viðurkenningu.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ARSENAL vonar að Hollend-
ingurinn Dennis Bergkamp geti
leikið með gegn Wimbledon, en
hann hefur ekki getað leikið með
liðinu í fímm leikjum.
■ GUÐNI Bergsson leikur ekki
með Bolton gegn Coventry, þar
sem hann er kominn í þriggja leikja
bann. Alan Stubbs, sem hefur
ekki leikið síðustu tíu leiki liðsins,
er orðinn klár í slaginn.
■ KEVIN Richardson leikur
ekki með Coventry, þar sem hann
er í leikbanni og tekur Willie Bo-
land hans stöðu.
■ ÞAÐ verður „sænskur“ slagur
á Goodison Park, þegar Everton
leikur gegn Leeds, sem er með
Tomas Brolin í sínum herbúðum,
en landi hans Anders Limpar leik-
ur með Everton.
■ ANTHONY Yeboah leikur
ekki með Leeds, þar sem hann
kemur til Englands í dag, eftir
að hafa leikið með Ghana gegn
Egyptalandi í Afríkubikarkeppn-
inni.
■ ROB Wallace mun stjórna
sóknarleik Leeds í stað Yeboah.
Leeds leikur án Carlton Palmer,
sem er í tveggja leikja banni og
þá er John Pemberton meiddur.
■ DUNCAN Ferguson byijar á
bekknum hjá Everton, þar sem
þeir Paul Rideout og Graham
Stuart, sem hafa skorað samtals
þrettán mörk, verða í fremstu víg-
línu.
■ SEX leikmenn eru meiddir hjá
Middlesbrough, þar af Nicky
Barnby, Graig Hignett og sjálfur
Bryan Robson, framkvæmda-
stjóri.
Búið að fresta fjórum leikjum á íslenska getraunaseðlinum
FOLK
■ INGVAR Arnason, fyrrum for-
maður íþróttafélagsins Gerplu í
Kópavogi hefur verið heiðraður af
íþróttaráði Kópavogs fyrir mikið
og fórnfúst starf í þágu íþrótta-
mála í Kópavogi á liðnum árum.
Ingvari var veittur skjöldur því til
staðfestingar á fimmtudaginn.
■ LEIKMENN Aftureldingar
lögðu 2. deildar lið Fram með þrjá-
tíu mörkum gegn tuttugu og fimm
í árlegum leik félaganna til minn-
ingar um Björgvin Þórsson.
Björgvin sem lést í umferðarslysi
fyrir nokkrum árum lék með yngri
flokkum beggja félaga á sínum
tíma.
FRANSKI landsliðsmaðurinn
William Prunier er orðinn lög-
legur með Manchester United
og leikur sinn fyrsta leik með
liðinu í dag gegn QPR á Old
Trefford. Prunier, sem er varn-
armaður, tekur stöðu David
May, sem meiddist í leik gegn
Newcastle. Prunier kom til
United frá Bordeaux, en hann
hafði lent í útistöðum við for-
ráðamenn liðsins. Roy Keane
mun því leika á miðjunni. Heil
umferð verður leikin í Englandi
í dag og f gærkvöldi var búið
að fresta mörgum leikjum
vegna frosthörku — þar af
þremur í úrvalsdeildinni: Aston
Villa - Sheffield Wed., South-
ampton - Man. City og West
Ham - Newcastle. Einnig leik
Watford og Derby í 1. deild.
Það er . ljóst að Prunier mun
styrkja lið United, því að þær
fréttir komu frá Old Trafford í gær
að Steve Bruce og Gary Pallister
verða frá keppni í aðrar þrjár vik-
ur. Ef Prunier stendur sig með
United mun hann skrifa undir
þriggja ára samning við liðið og
leika einnig með gegn Tottenham
á White Hart Lane á mánudaginn.
Prunier, sem hefur verið í tvær
vikur á Old Trafford og leikið með
varaliði United, mun þurfa að borga
Bordeaux 30 millj. ísl. kr. fyrir að
kaupa sig lausan frá samningi við
það, sem hann ætlast til að United
borgi og þá mun hann fara fram á
100 millj. ísl. kr. fyrir að skrifa
undir samning, auk þess að fá eina
millj. kr. í vikulaun.
Þeir leikmenn sem koma til með
að hrella varnarmenn United á Old
Trafford eru Mark Háteley og Dani-
ele Dichio, leikmaður sem er af ít-
ölsku bergi brotinn. QPR mun tefla
fram Karli Ready í vörninni í stöðu
WILLIAM Prunier (t.v.) fagnar marki með Bordeaux í Frakk-
landi. Fagnar hann á Old Trafford í dag?
Alan McDonald, sem er í leikbanni.
Kevin Gallen, sem hefur verið
meiddur á kálfa, mun fara í læknis-
skoðun fyrir leikinn og þá er Brad-
ley Allen tilbúinn í slaginn hjá QPR.
Tottenham, sem er í þriðja sæti,
leikur í Blackburn, en Lundúnaliðið
er það eina sem hefur ekki tapað
leik á útivelli í úrvalsdeildinni. Alan
Shearer, landsliðsmiðvörður Eng-
lands, sem hefur skorað mörk í öll-
um heimaleikjum Blackburn, þarf
aðeins að skora eitt mark til að ná
100. marki sínu í úrvalsdeildinni.
„Eg er mikill aðdáandi Shearers,
en ég vona að hann bíði með að
ná tímamótamarkinu þar til eftir
leikirin gegn okkur,“ sagði Gerry
Francis, framkvæmdastjóri Totten-
ham. Blackburn leikur án varnar-
mannsins Colin Hendry og fyrirlið-
ans Tim Sherwood, sem taka báðir
út leikbann. Reiknað er með að
Chris Sutton og Paul Warhurst taki
stöður þeirra.
Það er mikið um meiðsli í herbúð-
um Tottenham — Ruel Fox, David
Kerslake, Jason Dozell og Darren
Anderton eru allir meiddir og þá
hafa þeir Terry Sheringham, Clive
Wilson og Gary Mabbutt leikið
meiddir að undanförnu og fengu
þeir frí frá æfingum í vikunni, til
að jafna sig.
Liverpool leikur gegn Chelsea á
Stamford Bridge í London. Það
getur farið svo að Robbie Fowler
geti ekki leikið með Liverpool, þar
sem hann hefur verið með flensu.
Fowler, sem skoraði þrennu gegn
Arsena! sl. laugardag, var sendur
heim af æfingu í gær.
Liverpool gefur
þremur mönn-
um frjálsa sölu
LIVERPOOL ákvað í gær að gefa
þremur leikmönnum, sem hafa kostað
liðið samtals fjórar miiy. punda,
frjálsa sölu. Það eru þeir Jan Mölby,
danski landsliðsmaðurinn, sóknarleik-
mennirnir Paul Stewart og Mark Walt-
ers, sem eru allir yfir 30 ára. „Það
er nyög sárt fyrir leikmenn eins og
þá, sem eru nyög góðir, að fá ekki
tækifæri til að leika í úrvalsdeildinni,“
sagði Roy Evans, framkvæmdastjóri
Liverpool, sem er að byggja upp nýtt
lið á Anfield Road. Hann vonar að
þeir verði búnir að finna sér lið við
sitt hæfi áður en keppnistímabilið er
úti.
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 C 3
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Olajuwon í víga-
móð gegn Nets
- tók átján fráköst og átti tíu stoðsendingar
HAKEEM Olajuwon var í miklum vígamóð með Houston Rockets
þegar liðið lagði New Jersey Nets 97:82. Hann náði tólftu þrenn-
unni á ferli sínum í NBA-deildinni og þriðju ívetur, skoraði ell-
efu stig, tók átján fráköst og átti tiu stoðsendingar, og Mario
Elie skoraði 20 stig fyrir Rockets, Robert Horry 14 og Eldridge
Recasner 12 og tók sex fráköst. Jayson Williams tók fimmtán
fráköst fyrir Nets, sem tapaði leiknum á slæmri byrjun, lenti
undir 47:25.
Indiana vann sinn áttunda heima-
leik í röð þegar Miami Heat kom
í heimsókn, 91:77. Indiana hefur
unnið sextán af síðasta 21 leik liðs-
ins. „Þetta var frábært - ég var
ánægður með bæði sóknar- og
varnarleik okkar," sagði Larry
Brown, þjálfari Indiana.
í Dallas var Tony Dumas í sviðs-
ljósinu, þegar hann skoraði sigur-
körfuna, 103:101, gegn Vancouver
Grizzlies í annarri framlengingu,
þegar fiautan gall. Þar með fagn-
aði Dick Motta, þjálfari Dallas, sín-
um 900. NBA-sigri. Það var Jason
1
Kidd sem tók frákast og sendi
knöttinn til Dumas, áður en hann
skoraði sigurkörfuna. Jim Jackson
skoraði 22 stig og Kidd 21 fyrir
Dallas, sem setti glæsilegt félags-
met - leikmenn liðsins tóku hvorki
meira né minna en 76 fráköst í
leiknum.
Allan Houston skoraði 28 af 29
stigum sínum í seinni hálfleik og
Grant Hill náði sinni íjórðu þrennu
þegar Detroit Pistons vann Tor-
onto Raptors, 113:91. Hill skoraði
17 stig, átti ellefu stoðsendingar
og tók tíu fráköst. Otis Thorpe
skoraði 23 stig fyrir Detroit.
Cleveland Cavaliers unnu sinn
sjötta sigur í sjö leikjum gegn New
York Knicks á útivelli, 76:86.
Bobby Phills skoraði 28 stig fyrir
Cavaliers, sem hafa unnið fjórtán
af nítján síðustu leikjum sínum.
Karl Malone skoraði 21 stig og
tók ellefu fráköst þegar Utah Jazz
vann Minnesota 99:83. Jeff Horna-
cek skoraði 14 stig, Antoine Carr
14 og John Stockton 13 og átti
13 stoðsendingar fyrir Utah. Tom
Gugliotta skoraði 13 stig og Isaiah
Rider og Sean Rooks sín 12 hvor
fyrir Minnesota, sem hefur tapað
sjö af átta síðustu leikjum sínum.
David Robinson skoraði 29 stig
- þar af átta í röð, þegar San
Antonio Spurs vann Los Angeles
Lakers á útivelii, 99:107. Vinny
Del Negro skoraði 18 stig og Will
Perdue skoraði 11 og tók 15 frá-
köst fyrir Spurs.
Ragnheið-
ur og Krist-
ján lands-
þjálfarar
FRÍ
FRJÁLSÍÞRÓTTASAM-
BAND íslands gekk frá
ráðningu tveggja landsþjálf-
ara í gær til að sjá um þrenn
verkefni. Ragnheiður
Ólafsdóttir, fijálsíþrótta-
kona og þjáílfari hjá FH, hef-
ur verið ráðin verkefnisstjóri
vegna unglingahópa og Syd-
ney-hóps FRI2000. Kristján
Harðarson, frjálsíþrótta-
þjálfari hjá Ármanni, var
ráðinn verkefnisstjóri vegna
verkefna landsliðsins á ár-
inu, en þau eru m.a. Evrópu-
meistaramótið innanhúss,
sem fer fram í Stokkhólmi I
mars, og Evrópukeppni í
júní.
FRI ákvað að láta verkefni
varðandi Ólympíuleikanna í
Atlanta bíða, þar til
Ólympíunefnd íslands hefur
afgreitt óskir FRÍ um fjár-
magn til undirbúnings, en
fimm fijálsíþróttamenn hafa
þegar náð lágmörkum til
þátttöku á leikunum.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt.
Indiana - Miami ....91: 77
Detroit - Toronto ..113: 91
Cleveland - New York ....86: 76
Dallas - Vancouver ..103:101
Houston - New Jersey ....97: 82
....99: 83
San Antonio - LA Lakers ..107: 99
Íshokkí
NHL-deildin
Leikir í fyrrinótt:
5:4
Pittsburgh - Hartford 9:4
3:1
4:3
4:1
3:2
Skíði
Bormio, Ítalíu:
Brun karla: mín.
....1:55.35
Andreas Schifferer (Austurr.) ....1:55.66
Ed Podivinsky (Kanada) ....1:55.86
Werner Perathoner (Ítalíu) ....1:55.87
Atle Skaardal (Noregi) ....1:55.91
Peter Runggaldier (Italíu) ....1:56.12
Guenther Mader (Austurr.) ....1:56.25
Jean-Luc Cretier (Frakkl.) ....1:56.28
Stefan Krauss (Þýskal.) ....1:56.65
Roland Assinger (Austurr.) ....1:56.73
Staðan stig
885
2. Michael Von Griinigen (Sviss). 498
3. Knaus 390
4. Alberto Tomba (Ítalíu) 356
327
305
299
8. Jure Kosir (Slóveníu) 265
9. Christian Mayer (Austurr.) 243
9. Mario Reiter (Austurr.) 243
Semmermg, Austurriki:
Svigkvenna mín.
Pemilla Wiberg (Svíþjóð) 1:40.28
(50.41/49.87)
Karin Roten (Sviss) 1:41.20
(51.61/49.59)
Elfi Eder (Austurr.) 1:41.76
(51.44/50.32)
Kristina Andersson (Svíþjóð).......1:41.78
(51.54/50.24)
Martina Accola (Sviss).............1:41.96
(51.78/50.18)
Claudia Riegler (N-Sjál.)..........1:42.11
(52.07/50.04)
Patricia Chauvet (Frakkl.).........1:42.22
(51.85/50.37)
Sonja Nef (Sviss)..................1:42.23
(52.00/50.23)
Staðan stig
1. Alexandra Meissnitzer (Austurr.)...488
2. Anita Wachter (Austurr.)...........478
3. Martina Ertl (Þýskal.).............433
4. Katja Seizinger (Þýskal.)..........413
5. Michaela Dorfmeister (Austurr.) ......349
6. Picabo Street (Bandar.) 328
7. Heidi Zurbriggen (Sviss)...........300
8. Pernilla Wiberg (Svíþjóð)..........294
9. Elfi Eder (Austurr.)............. 260
Reuter
ZAN Tabak hjá Toronto Raptors nær að koma knettinum framhjá Theo Ratllff og skora tvö
stlg gegn Detroit Pistons í NBA-delldinni í fyrrlnótt.
Gamlárshlaup IR Strákarnir lögðu Belga
GAMLÁRSHLAUPIR fer fram 20. árið í röð á
morgun kl. 13. Eins og áður hefst hlaupið við
gamla ÍR-húsið við Túngötu, þar sem endamark
ið er einnig. Vegaíeng er um 9,5 km og er keppt
bæði í einstaklings og sveitakeppni í sjö aldurs-
flokkum karla og kvenna. IR-húsið verður kl.
11.30, þar sem er búningsaðstaða og sturtur.
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjöl.
STRÁKARNIR í 17 ára landsliðinu í knattspyrnu
lögðu Belgíumenn að velli, 2:1, á sex liða móti í
fsrael í gær. Belgíumenn skoruðu fyrsta mark leiks-
ms, Haukur Hauksson jafnaði og síðan skoraði
Árni Ingi Pjetursson sigurmarkið úr vítaspyrnu.
Strákarnir leika gegn Grikkjum á gamlársdag,
Ungveijum 2. janúar og heimamönnum 4. janúar.