Morgunblaðið - 20.01.1996, Page 2
2 C LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 C 3
Menningin
er toppur-
inn á öllu
Birgir Andrésson opnar sýningu
á Sólon íslandus í dag.
Þóroddur Bjarnason ræddi
við Birgi sem sagði honum sitt-
hvað um íslenska menningu
og tengsl hennar við verk hans.
EG HELD að ég sé að mörgu leyti sam-
nefnari fyrir ástandið í íslenskri myndlist
í dag. Eg hef fengið starfslaun og hef
sýnt á stærstu myndlistarsýningu í
heimi, Feneyjar-bienalnum, fyrir íslands hönd,
samt vita jafnvel fáir hér heima hvað ég er að
gera og hver ég er. Nú er ég tiltölulega nýkominn
af bíenalnum, skuldugur upp fyrir haus enda bú-
inn að leggja mikið í þetta í von um að fá eitt-
hvað út úr því á móti. Maður tekur peninginn og
eyðir honum í að búa til meiri myndlist og svo
vaknar maður upp við það einn daginn að það eru
mjög fáir sem hafa áhuga á „alvöru“ myndlist á
íslandi," sagði Birgir Andrésson.
„Ég hef alltaf verið bjartsýnn maður og það
er það sem hefur haldið mér gangandi. Ég hef
rekið gallerí til að gefa ungu fólki tækifæri á að
sýna myndlist og tekið ekkert fyrir og ég gaf
verk til Sarajevo að ósk sýningarstjóra sem hreifst
af sýningu minni í Feneyjum. Þetta er einmitt
ástandið hér á landi, við erum sífellt að gefa og
gefa.“
Birgir sagði að myndlistarmenn væru illa settir
miðað við aðrar listgreinar að því leyti að oftast
leigja þeir sali undir sýningar sínar og bjóða svo
ókeypis aðgang. „Menn eru hræddir um að ef það
kostar eitthvað smávegis inn þá viiji enginn koma
og sjá,“ sagði Birgir. Hann sagði myndlistarmenn
sjálfa að miklu leyti búna að koma sér í þessa
aðstöðu og að þeir geti ekki snúið til baka sem
einhver virkur áhrifahópur. „Það er hægt að skella
skuldinni á skólakerfið eins og það leggur sig
fyrir það hve myndlistaráhugi, myndnæmi og
myndlistarþekking landans er takmörkuð. Mér
fínnst það alveg stórfurðulegt þegar maður talar
BIRGIR Andrésson myndlistarmaður.
Morgunblaðið/Þorkell
við háskólamenntað fólk að margt af því hefur
svipað næmi á myndlist og 11 ára börn.“
Engin myndlist,
engar kvikmyndir
Hann sagði að svo virðist sem menn átti sig
ekki á þeim áhrifum sem myndlist hefur á aðrar
listgreinar eins og kvikmyndir og samfélagið sjálft.
„Menn virðast ekki sjá tenginguna þarna á milli
en um leið og eitthvað gefur sig í þessari keðju
þá hrynur allt. Ef öll myndlist hyrfi á íslandi þá
væri heldur engin kvikmyndagerð. Ef þú ræktar
ekki þessa fleti þá verða þeir allir veikir og slappir.
Þegar kemur að úthlutun peninga í listina þá
er allt of mikið hugsað um að allir eigi að fá sneið
af kökunni í staðinn fyrir að velja úr og gefa
þeim sem teljast efnilegir góðan starfsgrundvöll
til að þróa sína list og koma henni á framfæri.
Peningamir af velgengni slíks listamanns sem
byggi hér á landi myndi skila sér margfalt til
baka.“
Lopafánar
Á sýningunni verða blýantsteikningar af mann-
gerðri íslenskri náttúru sem sýna uppgröft gam-
alla íslenskra bæjarrústa og um leið ákveðið skipu-
lag. Hins vegar sýnir hann handptjónaða íslenska
fána í sauðalitunum. „Ég hef komist að því að
þegar maður hugsar um ísland, íslenska menningu
og menningararfleifð þá tekur fólk því alltaf sem
maður sé með nostalgíu á heilanum en það er
rangt því ef þú hugsar um ísland þá byggist öll
menning hér á arfleið. Það er alltaf talað um
þessa gömlu menningu eins og íslendingasögurnar
og torfbæina, það er aldrei talað um íslenska
nútímamenningu. Mín myndlist er endurspeglun
af þeirri veruleikasýn sem íslendingar búa yfír í
dag gagnvart sjálfum sér. íslendingar treysta sér
varla til að vera með I nútímanum. Ég er ekki
að segja að menn eigi að slíta sig frá arfinum en
þeir verða að koma auga á hvernig hægt er að
nýta hann með hjálp hugmyndaflugs og sköpun-
argáfu. Maður verður að þora að viðurkenna að
maður sé nútímamaður sem byggir á íslenskum
veruleika og reynir að komast örlítð út fyrir hann,
til að sjá þessa gífurlegu nálægð sem er einkenni
okkar. Nálægðin við fjölskylduna, arfleifðina, sög-
una og landið m.a.
Aðspurður sagði Birgir að það sem væri ein-
kennandi fyrir íslenska nútímamenningu sé sjálf-
stæðisleysi og óöryggi. „Þú þarft ekki annað en
að koma í heimsókn til fólks og þá verður það
óöruggt með sjálft sig, veitingarnar og íbúðina.
Menningin er toppurinn á öllu. Hún er litur samfé-
lagsins og segir til um hverslags þjóð býr í viðkom-
andi landi. Menningin er það sem stendur upp úr
þegar talað er um öll stórveldi í sögunni. Þetta
er nákvæmlega það sem er að gerast í Lettlandi,
Litháen og Eistlandi. Þeir eru á fullu að leita að
menningu sinni til að geta skilgreint sig sem þjóð.
Mörgum finnst sjálfsagt hallærislegt að sjá
handpijónuð listaverk í sauðalitum en Birgir segir
að það sé einmitt það sem hafi vakið athygli við
verlrið, þ.e. áræðnina við að leggja í að nota það
efni. „Þetta er auðvitað bara efni sem ég nýti
mér. Ef lopi er hallærislegur og lopafánarnir mín-
ir þá er lopaframleiðslan okkar hallærisleg og ís-
lensk menning þar af leiðandi líka.“ sagði Birgir
Andrésson.
Tónleikaröð Leikfélags Reykjavíkur
Tónlistargjörningur,
klassík, blús o g fleira
Kristinn Sverrir
Sigmundsson Guðjónsson
NÚ í lok janúar fer af stað
seinni hluti Tónleikaraðar
Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsi. Tónleik-
arnir eru á hveiju þriðjudagskvöldi í
allan vetur. Tónleikaröð LR var
hleypt af stokkunum í október síðast-
liðinn. Fyrir áramót voru haldnir tíu
tónleikar á Stóra og Litla sviði Borg-
arleikhússins. Magnús Geir Þórðar-
son, verkefnastjóri Borgarleikhúss-
ins, sagði í samtali við blaðamann
að á fímm þessara tónleika hefði
verið uppselt. „Þetta hefur tekist
vonum framar hjá okkur og tónlistar-
mennimir hafa iðulega verið ánægðir
enda finnst þeim aðsóknin hafa verið
góð og jafnvel meiri en á aðra tón-
leika.“
Dagskrá seinni hluta tónleikarað-
arinnar á þessu leikári hefur verið
ákveðin og má fínna þar fjölbreytt
efni.
23. janúar Söngsveitin Fílharm-
ónía og Elín Ósk Óskarsdóttir. Leik-
hústónlist í heila öld. Sveinn Einars-
son leikstjóri tók textana saman.
Stjórnandi verður Úlrik Ólason en
píanóleikari Jóhannes Andreasen.
30. janúar JJ-Soul Band og Vinir
Dóra. Á tónleikunum verður fluttur
blús og blúsbræðingur. Söngvari JJ-
Soul Band er breskur og heitir JJ-
Soul. Vinir Dóra leika hér með fjölda
gestaleikara, en fyrir jólin kom út
geislaplata frá sveitinni.
6. febrúar Pétur Grétarsson -
slagverk. Á tónleikunum verður
áhersla á slagverk. Flutt verða verk
með slagverk í öndvegi. Með Pétri
munu leika slagverksleikarar og Ka-
barett-sveit hans.
13. febrúar Stórsveit Reykjavíkur
ásamt söngkonum. Stórsveitin er
eina fullskipaða Big-band landsins. Á
tónleikunum munu söngkonurnar
Andrea Gylfadóttir, Berglind Björk
Jónasdóttir, Ellen Kristjánsdóttir,
Edda Borg og Emelíana Torrini vera
í broddi fylkingar. Stjómandi tónleik-
anna verður Stefán S. Stefánsson.
20. febrúar Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson. Ljóðatón-
leikar Gerðubergs. Fluttur verður
lagaflokkurinn „Die Schöne Magel-
one“ eftir Brahms í íslenskri þýðingu
Reynis Axelssonar en lesin verður
stytt útgáfa sögunnar á milli laga.
27. febrúar Björk Jónsdóttir og
Signý Sæmundsdóttir. Á tónleikun-
um verða fluttir dúettar eftir .Purc-
ell, Haydn, Rossini, Dvorak, Brahms
auk skoskra þjóðlagadúetta. Gerrit
Schuil mun leika undir á tónleikun-
um.
5. mars Hanna Dóra Sturludóttir
sópran, Ingveldur Ýr Jónsdóttir
mezzosópran, Gunnar Guðbjörnsson
tenor, Sigurður Skagíjörð Stein-
grímsson bassabariton og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari. Flutt verður
dagskrá úr óperum.
12. mars Sverrir Guðjónsson -
Söngur dauðans. Á tónleikunum mun
fara fram tónlistargjörningur, þar
sem tónlist, hreyfíng, hljóðmynd, lýs-
ing og áheyrendur mynda eina órjúf-
anlega heild. Verkin sem flutt verða
eru öll ný af nálinni eftir innlenda
sem erlenda höfunda. Þorsteinn
Gauti Sigurðsson mun
leika á píanó á tónleikun-
um.
19. mars Schumania -
I nóttinni. Á tónleikunum
verður sviðsettur ljóða-
söngur og ljóðaflutningur
á tólf dúettum eftir
Schuman, sem aldrei
hafa verið fluttir áður á
Islandi í einni heild. Dag-
skráin er flutt af söngv-
urunum Jóhönnu Þór-
hallsdóttur og Sigurði
Skagljörð Steingrímssyni
ásamt píanóleikaranum
Jóhannesi Andreasen. Þá
munu leikaramir Mar-
grét Vilhjálmsdóttir og
Hilmir Snær Guðnason flytja ljóðin
í íslenskri þýðingu Karls Guðmunds-
sonar og fleiri. Umsjón með dag-
skránni hefur Hlín Agnarsdóttir.
26. mars Skólakórar - Graduale-
kór Langholtskirkju, Kór Öldutúns-
skóla og Skólakór Kársness. Flutt
verða lög eftir íslenska og erlenda
höfunda frá ýmsum tímum. Kórarnir
munu syngja hver fyrir sig og einnig
allir saman.
2. apríl Caput-hópurinn - Saga
dátans. Hið rómaða verk Stravinskys
byggir á þekktri rússneskri þjóðsögu
um hermann á heimleið frá vígvellin-
um. Saga dátans verður flutt af sjö
hljóðfæraleikurum ásamt leikurum
sem flytja söguna.
9. apríl Nína Margrét Grímsdóttir
og Blásarakvintett Reykjavíkur. Á
tónleikunum verða fluttir tveir kvint-
ettar fyrir blásara og píanó eftir
Mozart og Beethoven auk annarra
verka. Blásarakvintettinn er skipaður
Bernharði Wilkinsson flautu, Daða
Kolbeinssyni óbó, Einari Jóhannes-
syni klarínett, Jósef Ognibene hom
og Hafsteini Guðmundssyni fagott.
Allir tónleikarnir hefjast klukkan
20.30. Miðasala fer fram í miðasölu
Borgarleikhússins.
OSTA-
MARKAÐUR
Uppboð
YFIRLEITT álíta íslendingar að
listamarkaður fari eftir efnahagsleg-
um uppgangi í hveiju þjóðfélagi fýr-
ir sig, en svo er ekki nema að vissu
marki, því hann lýtur alveg sérstök-
um lögmálum. Þannig er hann víða
að rétta við þótt atvinnuleysi og
óáran ýmisleg heiji á viðkomandi
þjóðheildir, enda varð kreppan meira
fyrir mannleg mistök, skefjalausa
græðgi listhöndlara og spákaup-
manna, eins og ég hef endurtekið
bent á í skrifum mínum.
Myndlistarmarkaðurinn telst
traustari skuldabréfum, gulli og gim-
steinum og aðeins í deild impressjón-
ista og skartgripa seldust þannig
myndverk fyrir 363 milljónir dollara
hjá uppboðsfýrirtækinu Sothebys í
New Ýork á liðnu ári, sem er hvorki
meira né minna en 94% aukning frá
árinu á undan, en skart og eðalstein-
ar fyrir 254 milljónir dollara sem er
39% aukning, og segir það nokkra
sögu. Þannig eru þeir sem höfðu vit
á að halda eftir listaverkum og fjár-
festa í myndlist á síðustu árum,
meðan verðið var í lágmarki og úr-
töluraddir háværastar, nú sem óðast
að uppskera fyrirhyggju sína og
framsýni.
Risarnir á uppboðsmarkaðnum
eru sem kunnugt er Christieá og
Sothebyá með aðalstöðvar í London
og New York, og útibú víða um heim,
en fyrirtækin tilkynntu bæði mestu
veltu frá 1990 á síðasta almanaksári.
Heildarvelta Sothebys nam 1,325
milljörðum dollara 1993 og hækkaði
Dýrustu málverkin 1995
í 1,326 milljarða 1995, en varð 1,66
milljarður á síðasta ári sem gerir 2,5
milljarða þýskra marka, eða um 120
milljarða íslenzkra króna, og munu
þetta einungis opinberu tölurnar frá
New York.
Margt gekk þannig uppboðsfirm-
unum í haginn og bókaði Sotheby’s
fjórða mesta hagnað frá upphafí með
yfír þijátíu prósenta heildaraukningu
frá í fyrra, en aukningin hjá Christi-
e’s mun hafa numið sautján prósent-
um, og var þriðja besta ár fyrirtækis-
ins frá upphafi, einungis árin 1989
og 1990 skiluðu meiri hagnaði. Þess-
ar upplýsingar komu allar fram á
forsíðu listamarkaðsblaðs Frankfurt-
er Allgemeine Zeitung laugardaginn
30. desember, en kálfurinn mun vera
einn best skrifaði nákvæmasti og
áreiðanlegasti í heimi hér.
Menn taka þessa hluti fyrir i
heimspressunni, enda má af þessum
tölum ráða að list telst til verðmæta
í útlandinu og kostar peninga eins
og hvað annað, meira að segja mikla
peninga. Er ekki einasta upp á punt
og til gjafa svo við lítum okkur
nær. Þá fjölgar alþjóðlegum kaup-
stefnum listhúsa stöðugt, og þar er
höndlað með allar tegundir myndlist-
ar, og vel að merkja einnig þá rót-
tækustu. Með tilliti til þess sem í
húfi er er ekki nema von að þjóðim-
ar og listhúsaeigendur haldi vel og
fast utan um sína menn og greiði
götu þeirra. Telji það ekki ölmusu
til óþurftarfólks eins og kotþjóðir er
lifa í falskri velmegun, sjálfsþægð
°g þykjustuheimi óvita, þar sem
handföst verðmæti rýrna að verð-
gildi, en flest sem hverfur og eyðist
verður stöðugt eftirsóttara og dýr-
ara.
Þessi uppgangur á markaðnum
hefur kannski ekki mikið að segja
almennt enn sem komið er, því
sprenging hefur orðið í íjölgun lista-
manna. Þeir hafa í fyrsta skipti í
sögunni komið fullmótaðir úr skólum
á síðustu áratugum, sem er alveg
ný og öfugsnúin þróun, ásamt því
að ofríki og oflæti sýníngarstjóra
sem valta yfir öll fyrri gildi hefur
aldrei verið meira.
Svo er það líka annað, að upp-
gangurinn var svo mikill og hömlu-
laus í lok síðasta áratugar að hann
hafði áhrif yfir alla línuna, og margt
lítilsiglt listaverkið seldist á háu
verði. Það hefur gert það að verkum
svo sem fram kom í síðasta sjón-
menntavettvangi mínum, að list-
kaupendur eru orðnir mun varari um
sig og vandlátari en áður. Þá má
einnig koma fram að almenningur
kaupir ekki list í útlandinu frekar
en t.d. á endurreisnartímabilinu, og
á listamarkaði gilda giska önnur lög-
mál en í lágmenningunni svonefndu.
Það er borgarastéttin, auðugir menn,
fyrirtæki og hið opinbera, sem hafa
tekið að sér hlutverk háaðalsins,
páfa og listafursta fyrri alda.
Uppboðsfirmu og listhús virðast
hafa dregið mikinn lærdóm af hvörf-
unum miklu og kreppunni í byrjun
áratugarins. Sýnist spá Leos Castell-
is, hins mikla listhöndlara í New
York, vera að rætast, og markaður-
inn að verða heilbrigðari og skyn-
ugri.
Svo við víkjum að uppboðunum
hefur ekki verið boðið hærra í mál-
verk sl. 5 ár en mynd Picassos er
hann málaði af vini sínum, Angel
Femandes de Soto (1903), olía á
léreft 69,5x55,2 sm, sem var slegin
söngleikjamógúlnum Anders Llyod
Webber á 26,5 milljónir dollara, sem
gerir 29,2 milljónir með öllum tilfall-
andi kostnaði, og þurfa menn því
að bæta 2-3 milljónum dollara við
allar eftirfarandi tölur. Webbers
bauð í myndina gegnum síma (Sothe-
bys, New York). Myndin kom frá
Japan og hafði verið greitt fyrir hana
26,4 milljónir dollara metárið 1989.
Önnur dýrasta myndin var „Lág-
skógur“ van Goghs (1890), olía á
léreft 73,3x92 sm, slegin á 24,5 m.
dollara í sama húsi. Þriðja; „S“pegill-
inn“ eftir Picasso (1932), olía á lér-
eft 130x96,8 sm, slegin á 18,2, m.
dollara hjá Christieá New York.
Metverð fékkst fyrir mynd Matisse
„Hindúastelling" (1923), olía á léreft
73x60 sm, slegin á 13,5 m. dollara
hjá Sothebys New York. Mynd Van
Goghs, „Ungur maður með húfu“
(1888), olía á léreft, 47x39 sm, var
í fimmta sæti, slegin á 12 m. doll-
ara, Christies New York. Metverð
fékkst svo einnig fyrir mynd Modigl-
ianis, „Fyrirsæta með hálskeðju"
(1917), olía á léreft, 91x59,7 sm,
slegin á 11,3 m. dollara, Christie’s
New York. í sjöunda sæti var mynd
Picassos, „Drengur með pípukraga“,
gvass á trefjaharðgrunn (1905),
76x65,5 sm, slegin á 11 m. dollara,
Christies New York. Picasso er loks
aftur í áttunda sæti; „Móðir og
barn“, olía á léreft (1922),
100,5x81,5 sm, slegin á 10,9 m.
dollara, Christies New York. Vakti
það athygli að myndin kom frá Pa-
melu Harriman, sendiráðherra í Par-
ís, ásamt tveimur til viðbótar, sem
mun hafa vakið undrun og blendnar
tilfinningar í Bandaríkjunum. Eina
myndin undir topp tíu, sem slegin
var á höfuðstöðvum Christies í Lond-
on, var „Dómkirkjan í Rouen, áhrifa-
mögn miðskips" eftir Claude Monet
(1894), olía á léreft, 106x73 sm,
slegin á 6,9 milljónir punda. Loks
er Modigliani í tíundá sæti; „Mynd-
höggvarinn Oscar Miestchaninoff"
(1916), olía á léreft, 81x60 sm, sleg-
in á 8,5 m. dollara, Christies, N.Y.
Og eins og ráða má af upptalning-
unni voru þetta allt meðalstórar
myndir og þar undir, svo ekki ræður
stærðin kaupverðinu á heimsmark-
aðinum.
Athygli vekur að fyrir utan tvær
myndir impressjónista eru þær allar
eftir módernista, en gott verð hefur
þó einnig fengist fyrir eldri myndir,
sem bendir til þess að markaðurinn
sé að styrkjast þótt breiddin sé ekki
hin sama og við lok fyrri áratugar.
Dijúga athygli vakti einnig að eintak
af steinþrykki eftir Emil Nolde
(1867- 1956) af dansandi konu var
slegin á 550 þúsund þýsk mörk hjá
Christieá í London, sem gerir um 25
milljónir íslenskra króna, sem er afar
hátt verð fyrir grafískt blað, og
marmarahöfuð eftir hinn almennt
lítið þekkta ítalska myndhöggvara,
Antonio Canova (1757- 1822), var
slegin á 360.000 pund hjá Sothebys
í London, eða 790.000 þýsk mörk,
sem gerir um 36 milljónir króna.
Bragi Ásgeirsson
SPRENGING 1982
Roman Signer í Slunkaríki
FYRSTA sýningin í Slunkaríki á
þessu ári er á verkum eftir Roman
Signer, sem er einn af þekktari
myndlistarmönnum Svisslendinga
í dag.
I kynningu segir: „Verk Signers
eru yfirleitt stuttir „eventar" eða
atburðir, þar sem ákveðin breyt-
ing eða hreyfíng á sér stað og
geta þeir tekið allt frá sekúndu-
broti upp í mánuð. Við þetta notar
hann ýmsar tegundir orku, svo
sem sprengiefni, vatnsorku,
þyngdarafí eða varmaorku. Verk-
BARNALEIKRITIÐ sívinsæla Karíus
og Baktus eftir Thorbjörn Egner verð-
ur sýnt í Ævintýra-Kringlunni kl.
14.30 í dag. Það eru leikararnir Elva
Ósk Ólafsdóttir og Stefán Jónsson
sem leika þá félaga. Sýningin tekur
um 30 mínútur og er miðaverð 500
kr. Barnagæsla er innifalin í miða-
verði.
Á öðrum tímum kostar barnagæsl-
an 100 kr. og geta börnin dvalist í
einn og hálfan tíma í senn. í Ævin-
týra-Kringlunni er lögð áhersla á
skapandi starf hvort sem er á sviði
Stefnir í
Arnesi og
Njálsbúð
KARLAKÓRINN Stefnir í Mosfellsbæ
heldur tvo konserta á Suðurlandi laug-
ardaginn 20. janúar. Fyrri tónleikam-
ir verða í Árnesi kl. 15.30 og þeir síð-
ari í Njálsbúð kl 21.
„Efnisskráin er fjölbreytt og skartar
mörgu af því besta sem samið hefur
verið fyrir karlakóra," segir í kynn-
ingu. Á tónleikunum syngja Elín Ósk
Óskarsdóttir sópran og Ásgeir Eiríks-
son bassi einsöng með kórnum. Auk
Elínar og Ásgeirs syngur einn kór-
manna, Bjöm Ó. Björgvinsson tenór,
einsöng { einu laganna.
Stjómandi er Lárus Sveinsson og
undirleikari er Sigurður Marteinsson.
Nýlega kom út geisladiskur og snælda
með söng kórsins en stóran hluta af
efni tónleikanna er þar að finna auk
annarra laga.
Aðgangseyrir á tónleikana er kr.
1.000.
Fyrirlestur í
Norræna húsinu
DANSKI hönnuðurinn og textíllista-
konan Hanne Backhaus flytur fyrir-
lestur í Norræna húsinú á sunnudag
kl. 16.
í fyrirlestrinum um textílþrykk,
handverk og hönnun mun Hanne fjalla
um verk sín og hvernig vinna að
þrykki, hönnun og kennslu spilar sam-
an í starfi hennar. I fyrirlestrinum
mun hún sýna litskyggnur af eigin
verkum og einnig myndband af tísku-
sýningu Blá Form.
Hanne kennir við Danmarks Des-
ignskole. Að auki hefur hún ásamt
öðrum sex listakonum rekið verslunina
Blá Form síðastliðin fjórtán ár. Hanne
ið er þá ýmist framkvæmt á sýn-
ingarstaðnum, eða sett fram sem
ljósmyndaröð, video, 8 mm kvik-
mynd, eða innsetning sem ber
þess merki að atburður hafi átt
sér stað eða muni eiga sér stað.
Signer gerir einnig stóra útiskúlp-
túra þar sem stöðug hreyfing á
sér stað.“
Sýningin í Slunkaríki hefst
laugardaginn 20. janúar kl. 16 og
stendur til II. febrúar. Slunkaríki
er opið frá fimmtudegi til sunnu-
dags frákl. 16-18.
myndlistar eða leiklistar. Sögur eru
sagðar og sungið þegar tækifæri gef-
ast. Boðið er upp á andlitsmálun og
eru börnin oft óþekkjanleg eftir veru
sína I Ævintýra-Kringlunni. Þar
breytast þau í prinsessur, ljón, trúða
og aðrar ævintýraverur.
Á fímmtudögum kl. 17.00 verða
áfram minni uppákomur eða skipulögð
dagskrá. Næstkomandi fimmtudaga
ætlar Ólöf Sverrisdóttir leikkona að
bjóða bömunum í leikræna tjáningu.
Nánari upplýsingar veitir Olöf
Sverrisdóttir.
er gestakennari við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og kennir nám-
skeið í mynsturgerð og textílþrykk.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Þrjár teikni-
myndir í Nor-
ræna húsinu
SÝNDAR verða þijár sænskar teikni-
myndir byggðar á þekktum sænskum
bamabókum eftir Beppe Wolgers og
Olof Landström, Gunnar Berefelt og
Eva Eriksson í Norræna húsinu á
sunnudag kl. 14.
Myndirnar em við hæfi yngri bama,
þær em með sænsku tali og 40. mín.
að lengd.
Allir em velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Kvikmynd
frá Úzbekistan
íMÍR
„HINN hijáði" nefnist kvikmyndin
sem sýnd vemr í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10, á sunnudag kl. 16.
Myndin var gerð í Úzbekistan í
Mið-Asíu á árinu 1966 og fjallar um
atburði sem gerðust þar á dögum
borgarastyijaldarinnar 1920.
Leikstjóri er T. Sabirov. Skýring-
artal er á ensku.
Aðgangur að sýningunni er ókeypjs
og öllum heimill.
Túskildings-
óperan
HALALEIKHÓPURINN mun verða
með sýningar á Túskildingsópemnni
eftir Bertolt Brecht nú um helgina,
þ.e.a.s. laugardaginn 20. janúar og
sunnudaginn 21. janúar.
Sýningarnar hefjast kl. 20.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Olivier Debré, Komar og Melamid og
Ingólfur Arnarsson til 18. febr. og
Kjarvalssýning fram á vor.
Listasafn íslands
Ný aðföng III til 25. febr.
Gallerí Sævars Karls
Guðrún Einarsdóttir sýnir.
Hafnarborg
Kaffe Fassett sýnir til 19. febr.
Gallerí Geysir
Steinn sýnir til 28. jan.
Gallerí Fold
Ólafur Már Guðmundsson sýnir til 28.
jan.
Gallerí Stöðlakot
Nína Gautadóttir sýnir til 21. jan.
Gallerí Greip
Samsýning 20 myndlistarmanna til 28.
jan.
Gallerí Ingólfsstræti 8
Ingólfur Arnarsson sýnir til 4. febr.
Gallerí Úmbra
Sýning á nótnahandritum Áskels Más-
sonar til 31. jan.
Nýlistasafnið
Ásta Ólafsd., Guðmundur Thoroddsen
og Jón Sigurpálsson sýna til 28. jan.
Gestur í setustofu er Nina Ivanova.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyndum eftir
Siguijón Ólafsson stendur í allan vetur.
Galleri Sólon íslandus
Birgir Andrésson sýnir.
Listhús 39
Fríða S. Kristinsdóttir sýnir til 22. jan.
Listasafn Kópavogs
Ingiberg Magnússon sýnir til 21. jan.
Mokka
Komar og Melamid sýna Eftirsóttasta
málverk bandarisku þjóðarinnar til 11.
febr.
Ráðhús Reykjavíkur Öm Þorsteinsson
sýnir höggmyndir til 21. jan.
Myndás Sýning á 18 bestu ljósmyndum
úr íslandskeppni Agfa og Myndáss. Út
janúar.
Slunkaríki Verk Romans Signertil 11.
febr.
TONLIST
Laugardagur 20. janúar
Karlakórinn Stefnir í Árnesi kl. 15.30.
og í Njálsbúð kl. 21.
Sunnudagur 21. janúar
Natalia Chow og Helgi Pétursson halda
orgel- og söngtónleika í Akureyrar-
kirkju kl. 17.
Þriðjudagur 23. janúar
Söngsveitin Fílharmónía heldur tón-
leika; íslensk leikhústónlist í heila öld
í tóníeikaröð LR kl. 20.30.
Fimmtudagur 25. janúar
Sinfóníuhljómsveit Islands ásamt ein-
leikaraprófsnemendum úr Tónlistar-
skólanum í Reykjavík kl. 20 í Háskóla-
bíói. Söngnemendur Tónlistarskóla Ár-
nesinga og Tónlistarskóla Rangæinga
halda sameiginlega tónleika í Hvoli kl.
21.
Leiklist
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 20. jan., sun., lau.
Kardemommubærinn lau. 20. jan. sun.,
mið., lau.
Don Juan fim. 25. jan.
Glerbrot fös. 26. jan.
Kirkjugarðsklúbburinn fim. 25. jan., fös.
Leigjandinn fim., 25. jan., fos.
Borgarleikhúsið
fslenska mafian lau 20. jan., fim., lau.
Iina Langsokkur sun. 21. jan.
BarPar lau. 20. jan., fos. lau.
Hvað dreymdi þig, Valentína? lau. 20. jan.,
sun.
Við borgum ekki, við borgum ekki fös. 26.
jan.
Konur skelfa frums. lau. 27. jan.
Grámann sýn. lau. 20. jan.
Leikfélag Akureyrar
Sporvagninn Gimd lau. 20. jan., fös., laU.
íslenska óperan
Madama Butterfly sun. 21. jan., fós.
Hans og Gréta lau. 20. jan., sun., lau.
Hafnarfíarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör iau. 20. jan., fös., lau.
Loftkastalinn
Rocky Horror fós. 26. jan., lau.
Kafllleikliúsið
Sápa þrjú og hálft fös. 26. jan.
Vegurinn er vonargrænn lau. 20. jan., fim.
Kennslustundin sun. 21. jan., lau.
Möguleikliúsið
Með bakpoka og banana lau. 20. jan., sun.
Berrössuð á tánum söngdagskrá fyrir 2-6
ára lau. 27. jan.
Leikfélag Hafnarfíarðar
„Hinn eini sanni seppi“ frums. lau. 20. jan.
KVIKMYNDIR
MÍR „Hinn hrjáði" sun. 21. jan. kl. 16.
Norræna húsið Þijár sænskar teikni-
myndir fyrir börn sun. 21. jan. kl. 14
LISTAKLUBBUR
Leikhúskjallarinn Saga leiklistar á
íslandi mán-. 22. jan. kl. 20.30.
Karíus og Baktus í
Ævintýra-Kringlunni