Morgunblaðið - 21.02.1996, Side 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrst fjölskyld-
an og vinnan og
svo körfuboltinn
Þáttaskil verða í sögu körfuboltans á ísafírði
ef KFÍ kemst í úrvalsdeildina í vor eins o g
stefnt er að. Starfíð vestra hefur vakið eftir-
tekt annarra félaga. Helgi Bjamason fékk
uppskríft að góðu félagsstarfí hjá Guðjóni
Þorsteinssyni framkvæmdastjóra og þjálfara
Körfuknattleiksfélags ísafjarðar.
BESTI lelkmaður ísafjarðarliðsins, Eglll Fjeldsted, slasaðlst
illa í bílveltu sumarið eftir að liðið vann aðra deildina og
hefur síðan verið bundinn við hjólastól. Guðjðn þjálfari seg-
ir að hann sé eftir sem áður einn af hópnum og mæti á flesta
lefki liðsins fyrlr sunnan. Hér er Egill með Jónl Kr. Gíslasyni
núverandi landsliðsþjálfara að heilsa leikmönnum fyrir
ágóðaleik sem leikinn var til styrktar honum og fieiri góðum
málefnum.
Körfuknattleiksfélagi ísafjarðar
(KFÍ) hefur gengið vel í fyrstu
deildinni í körfubolta í vetur. Liðið
er í öðru sæti, tveimur stigum á
eftir Snæfelli. Bæði liðin eru komin
í úrslitakeppni fyrstu deildar, ásamt
tveimur öðrum liðum, og eiga ein
möguleika á því að verða deildar-
meistarar. Það gæti ráðist í innbyrð-
is viðureign liðanna hvort þeirra
verður ofar á töííunni og fær þann-
ig heimaleikjaréttinn alla leið. Liðið
sem verður efst í úrslitakeppninni
leikur í úrvalsdeildinni á næsta
keppnistímabili en liðið í öðru sæti
leikur við næst neðsta liðið í úrvals-
deild um sæti í deildinni. Miðað við
árangur ísfírðinga í vetur á liðið
góða möguleika á að komast í úr-
valsdeildina í fyrsta skipti í sögu
körfuknattleiksins vestra.
Félagið endurvakið
Töluverð körfuboltahefð er á
ísafirði, Körfuknattleiksfélag ísa-
fjarðar hefur til dæmis starfað í lið-
lega þrjátíu ár. Lengst af hefur fé-
lagið verið í annarri deild. Blóma-
skeiðið sem nú stendur yfir hófst
fyrir aðeins þremur árum, árið 1993.
Þá var tekið í notkun nýtt íþrótta-
hús á Torfunesi á ísafirði og Körfu-
knattleiksfélagið endurvakið með
nýjum stjórnendum. Liðið vann aðra
deildina strax vorið eftir og var
hársbreidd frá því að komast í úr-
slitakeppni fyrstu deildar á síðasta
ári.
Þekktir menn úr bæjarlífinu voru
fengnir til að veita félaginu forystu
ásamt áhugasömum mönnum úr
körfuboltanum. Jón Kristmannsson
yfirverkstjóri í íshúsfélagi ísfírðinga
er formaður, Rúnar Guðmundsson
yfírverkstjóri í Hraðfrystihúsinu
Norðurtanganum varaformaður,
Halldór Sveinbjörnsson prentsmið-
justjóri ritari, Gísli Úlfarsson versl-
unarmaður gjaldkeri og Óli Reynir
Ingimarsson, faðir körfuboltans á
ísafírði, meðstjórnandi. Guðjón Þor-
steinsson hefur verið ólaunaður
framkvæmdastjóri deildarinnar og
þjálfari þennan tíma.
Fjölskyldan og vinnan
hafi forgang
Guðjón segir að formaður stjóm-
arinnar hafi í upphafí sett félaginu
þtjár reglur og lýst því yfir að hann
væri tilbúinn að taka þátt í starfínu
á meðan þær væru í heiðri hafðar.
Fjölskyldan væri fyrirrúmi, vinnan
í öðru sæti og körfuboltinn í því
þriðja. Guðjón segist hafa fylgt
þessum reglum fast eftir.
Hann segir að menn geti ekkert
gert nema að hafa fjölskylduna á
bak við sig, það skýrði forgangsröð-
unina. Annað atriðið, forgangur
vinnunnar, skýrist að hluta af að-
stæðum í sjávarplássi þar sem það
hefur lengi gengið fyrir öllu að
bjarga þeim verðmætum sem á land
berast. Guðjón leggur einnig áherslu
á að svona verði þetta að vera því
leikmennirnir séu áhugamenn en
ekki atvinnumenn og geti ekki fórn-
að öllu fyrir áhugamálið. „Það hefur
komið oftar en einu sinni fyrir að
við höfum ekki getað tekið 2-3
menn úr leikmannahópnum með í
útileiki vegna þes's að þeir hafa ver-
ið að vinna. Við höfum aðeins tapað
þremur leikjum í vetur, reyndar
tveimur þeirra heima, og ég segi
við strákana að ef við töpum leik
sé það ekki vegna þess að þeir hafí
ekki komist heldur sýndi það að við
hefðum ekki nógu breiðan hóp,“
segir Guðjón.
Gömlu aðferðimar
Litið hefur verið til Körfuknatt-
leiksfélagsins á ísafirði sem fyrir-
myndar í fjármálum, þrátt fyrir
mikinn ferðakostnað og bandarísk-
an leikmann síðustu tvö árin. Guðjón
segir að gjaldkerinn geri fjárhagsá-
ætlun fyrir tímabilið og menn haldi
sig við hana. Allir séu sammála um
að gera ekki meira en peningar eru
til fyrir. Það komi til dæmis ekki
til greina að kaupa leikmenn. Þá
hafí undanfarin ár tekist að gera
hagstæða samninga með því að
staðgreiða vörur og þjónustu. Þann-
ig hafí farseðlar vetrarins verið
keyptir hjá Flugleiðum á haustin.
Guðjón leggur áherslu á að stjórn-
un félagsins þurfí að vera í lagi til
þess að hægt sé að ætlast til þess
að fyrirtækin styrki það. Menn verði
sem sagt að vinna heimavinnuna
sína. Hann segir að Körfuknattleiks-
félagið noti gömlu aðferðirnar.
Stjómarmenn og leikmenn annist
sjálfír fjáröflunina og vinni sér
traust með því. Félagið hafí keypt
til sín landsleik í fyrra og fengið
úrvalsdeildarlið til að koma og leika
æfingarleiki. Telur Guðjón þetta
mikilvægt útbreiðslustarf fyrir
körfuboltann og lið í markaðssetn-
ingu hans á ísafirði. í kjölfar þessa
starfs hafi tekist að ná góðum samn-
ingum við styrktaraðila.
Hann segir að bæjarbúar láti
ekki sitt eftir liggja því mjög góð
aðsókn sé á leiki, sumar helgarnar
mæti fleiri en á nokkurn úrvalsdeild-
arleik þá helgina. Og Guðjón vonast
til að öll met verði slegin þegar lið-
ið berst um úrvalsdeildarsæti í
næsta mánuði.
Reynt er að standa vel að heima-
leikjunum í íþróttahúsinu á Torfu-
nesi. Nokkrir af forystumönnum
félagsins mæta í íþróttahúsið til að
undirbúa það fyrir leikina og eftir
leiki taka þeir saman og þrífa. Guð-
jón var sjálfur lengi í boltanum og
þurfti þá ekki að hugsa um þessi
atriði. „Ég er nú í þrenns konar
hlutverki á leikdaginn, ég undirbý
húsið fyrir Ieikinn, stjórna síðan lið-
inu og þríf húsið á eftir. Þetta er
ný reynsla fyrir mig sem fleiri þjálf-
arar hefðu gott af að kynnast," seg-
ir hann.
Liðin verða að gista
í úrvalsdeildinni eru fastir leik-
dagar, yfírleitt er leikið á fímmtu-
dags- og sunnudagskvöldum. Flug-
samgöngur við Vestfirði eru erfiðar
yfir veturinn, sérstaklega í svartasta
skammdeginu því ekki er flogið
nema í björtu. Það þýðir að ef Isfírð-
ingar komast upp verða liðin ávallt
að vera fyrir vestan yfír nótt, nema
sunnudagsleikirnir verði færðir
fram á daginn. Sömu sögu er að
segja um ísfirðinga, sólarhringur fer
í hvern útileik.
Guðjón segir að með tilkomu
Vestfjarðaganganna sé sjaldnar
ófært því þótt ekki sé lendandi á
ísafírði geti vélamar lent á Þing-
eyri og Holti í Önundarfirði. Hann
segist vissulega hafa orðið var við
hræðslu hjá úrvalsdeildarliðunum
við það að ísfirðingar kæmust upp.
„Ég fagna því að sjálfsögðu ef við
komumst upp og á næstu árum má
búast við að fleiri lið af landsbyggð-
inni leiki í úrvalsdeildinni. Ég bendi
á að það er jafn dýrt fyrir okkur
að fara suður og fyrir hin liðin að
að koma hingað. Munurinn er bara
sá að við þurfum að fara langar
leiðir í alla okkar útileiki," segir
Guðjón. Hann bendir jafnframt á
að á næstu árum sé fyrirhugað að
fjölga liðunum í úrvalsdeildinni og
hafa hana landshlutaskipta. Það
minnki ferðalögin.
Ekki keyptir leikmenn
Lið ísfirðinga er að mestu skipað
heimamönnum og er meðalaldurinn
innan við tuttugu ár. Með liðinu
Ieika tveir strákar úr KR, Hrafn
Kristjánsson leikstjórnandi og Ingi-
mar Guðmundsson, tveggja metra
maður sem nýlega fiuttist vestur.
Guðjón segir að á hveiju ári missi
liðið leikmenn sem fari í skóla í
Reykjavík. Hann segir að þeim leik-
mönnum sem komið hafí til ísafjarð-
ar sé útveguð vinna og síðan styðji
forystumenn félagsins við bakið á
þeim, eins og hveijir aðrir félagar
og nágrannar. Ekki komi til greina
að kaupa leikmenn því hann segist
hafa séð nógu mörg félög fara illa
út úr slíkum ævintýrum.
Bandaríkjamaðurinn, Christo-
pher Ozment, er talinn með sterkari
erlendu leikmönnunum á landinu.
Hann hefur skorað 43,8 stig í leik
að meðaltali í vetur. Guðjón sggir
að vanda þurfi val á erlendum leik-
mönnum því einangrun staðarins
yfir veturinn geti lagst illa í menn.
Hann hælir Ozment mjög, segir
hann sé ekki aðeins frábær íþrótta-
maður heldur falli hann vel inn í
bæjarlífið.
Þarf að vekja áhuga
krakkanna
Guðjón er Reykvíkingur, 35 ára
gamall. Hann lék með yngri flokk-
um ÍR, og í 2. flokki og meistara-
flokki með Njarðvík áður en hann
hélt til Bandaríkjanna þar sem hann
dvaldi í ár. Eftir heimkomuna lék
hann eitt ár með KR en fór síðan
með kærustunni sinni^ Björgu Bryn-
dísi Jónsdóttur, til Isafjarðar þar
sem þau hafa búið síðan 1979. Þau
reka myndbandaleigu. Frá því Guð-
jón flutti vestur hefur hann verið í
körfuboltanum á ísafirði, lengst af
sem leikmaður og oft einnig þjálf-
ari. Hann hefur því lengi verið að
beijast í neðri deildunum og vill
vinna að hagsmunum liðanna þar.
„Það þarf að leggja meiri áherslu
á fyrstu deildina því heilmikið starf
og áhugi er á mörgum staðanna.
Ég tel heppilegt að skipta landinu
upp í fjögur svæði og hafa svæðis-
stjóra yfir hverju. Hans hlutverk
yrði að koma á námskeiðum fyrir
dómara, ritara og þjálfara, vera
tengiliður við skrifstofuna í Reykja-
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR1996 C 3
-r
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
GUÐJÓN Þorsteinsson þjálfarf og. framkvæmdastjóri Körfuknattlelks-
félags ísafjarðar.
Morgunblaðið/Bjami
CHRISTOPHER Ozment, er talinn með
sterkarl erlendu leikmönnunum á land-
inu. Hann hefur skorað 43,8 stlg ■ lelk
að meðaltali í vetur.
vík og koma á framfæri upplýsing-
um um það sem um er að vera,“
segir Guðjón. Hann segir mikilvægt
að fá meiri umfjöllun um fyrstu
deildina, meðal annars til að vekja
áhuga krakkanna. Ekki sé nóg að
Iáta þau horfa á NBA-körfuboltann
í sjónvarpinu heldur þurfi að fá þau
til að taka þátt í íþróttum.
Ekki er mikil samkeppni milli
íþróttafélaganna á ísafirði um
krakkana, að mati Guðjóns. Hann
segir að handboltinn sé að reyna
að koma sér fyrir en hafi ekki geng-
ið nægilega vel þrátt fyrir ágætt
starf. Þá ættu forystumenn körfu-
boltans góða samvinnu við knatt-
spymuforystuna enda væri mikið til
sama fólkið að iðka þessar íþróttir.
„Ég held að þetta sé í góðu horfi.
Það á ekki að kynda undir sam-
keppni og ágreining milli greina
heldur eigum við að vinna saman
að því að koma upp heilbrigðum
einstaklingum," segir hann.
Körfuboltabær
Þó Guðjón Þorsteinsson sé með
körfuboltasýki á háu stigi horfir
hann ekki á bandaríska körfubolt-
ann í sjónvarpinu. Ahugi hans bein-
ist að því að efla körfuboltann á
ísafirði og að sjá til þess að hann
verði sannkallaður körfuboltabær.
Hefur hann lagt sig allan í þetta
verkefni.
Guðjón og félagar hans í stjórn
Körfuknattleiksdeildarinnar settu
sér það markmið að koma liði sínu
í úrvalsdeildina innan fjögurra ára.
Nú eru liðin þijú ár og liðið komið
í úrslitakeppnina. Guðjón segist
sannfærður um að ef liðið kemst
ekki upp í ár þá takist það að ári.
HANDKNATTLEIKUR
Mikil barátta
á toppi og botni
Eyjamenn og Víkingar eru á fallhættusvæði
Þegar fjórum umferðum og
tveimur leikjum betur er ólok-
ið í 1. deild karla í handknattleik
liggur aðeins fyrir að Valur og KA
beijast um deildarmeistaratitilinn
og KR er fallið í 2. deild. Önnur lið
eiga tölfræðilega möguleika á að
komast í átta liða úrslit en tvö lið,
ÍBV og Víkingur, eru sérstaklega
fallhættu.
Valur og KA þegar
komin í Evrópukeppni
Deildarmeistari tryggir sér sæti
í Evrópukeppni félagsliða en verði
sama lið einnig íslandsmeistari öðl-
ast lið númer tvö þátttökurétt í
EHF-keppninni.
KA hefur þegar tryggt sér rétt
í Evrópukeppni bikarhafa og því er
Valur með sæti. í EHF-keppninni
en verði Valur íslandsmeistari fer
lið númer þijú i deildarkeppninni í
EHF-keppnina. íslandsmeistari fer
meistarakeppni Evrópu og lið
númer tvö í borgakeppnina en hafi
það öðlast rétt í Evrópukeppni fær-
ist rétturinn á efsta liðið í deildar-
keppninni sem hefur ekki unnið sér
rétt í Evrópukeppni. Verði KA Is-
landsmeistari fær Víkingur þátt-
tökurétt í Evrópukeppni bikarhafa.
Því liggur ekki fyrir fyrr en eftir
úrslitakeppnina hvaða lið öðlast
keppnisrétt í Evrópukeppni í haust.
KA með leik inni
KA og Valur eru samstiga með
32 stig en KA á heimaleik gegn ÍBV
til góða. Valsmenn hafa tapað ein-
um leik, 22:21 gegn Stjörnunni í
2. umferð, en gert tvö jafntefli við
Hauka, 19:19 að Hlíðarenda í 1.
umferð og 27:27 í Hafnarfirði í 12.
umferð. Þeir eiga heimaleik gegn
Selfyssingum í kvöld en síðan sækja
L
Ikvöld 1
Blak
Bikarkeppni karla, undanúrslit:
Digranes: HK - KA 20 I
Handknattleikur: • ■
1. deild karla:
Ásgarður: Stjaman - ÍBV 20 1
Seltjamames: Grótta - KA
Strandgata: Haukar- KR 20 1
Valsheimili: Valur- Selfoss.... 20 I
Varmá: Afturelding - FH 20 I
Víkin: Víkingur - ÍR 20 I
1. deild kvenna:
Strandgata: Haukar- Valur... -l8-15 |
gSBBBBHRBBBBHHBI
FELAGSLIF
þeir KA heim, þá Víking og taka
loks á móti Aftureldingu.
KA tapaði 25:22 fyrir Val að
Hlíðarenda í - 9. umferð en hefur
fagnað sigri í öllum öðrum leikjum.
KA á útileik gegn Gróttu í kvöld,
tekur á móti IBV um helgina, Val
eftir viku en fer síðan til Eyja og
tekur á móti Víkingi í síðustu um-
ferð.
Verði Valur og KA jöfn að stigum
ræður markamunur hvort liðið verð-
ur deildarmeistari. Sé hann jafn er
litið á íjölda gerðra marka. Sé enn
jafnt er komið að stigafjölda úr
innbyrðis leikjum og síðan marka-
mun í sömu leikjum en sé enn jafnt
ræður hlutkesti.
Barátta á botninum
Átta efstu liðin fara í úrslita-
keppnina þar sem efsta liðið mætir
liði númer átta, liðið í öðru sæti
keppir við liðið í sjöunda sæti og
svo framvegis. Liðin í níunda og
10. sæti ljúka keppni með síðustu
umferð deildarkeppninnar en tvö
neðstu liðin falla.
Eyjamenn eru í fallsæti, stigi á
eftir Víkingi. Þeir eiga útileik gegn
Stjörnunni í kvöld, mæta síðan KA
á Akureyri, taka svo á móti Gróttu
og KA og ljúka keppni á útivelli
gegn KR sem er þegar fallið.
Víkingur á heimaleik gegn IR í
kvöld, leikur síðan á Selfossi, fær
Framherjafundur
Framheijafundurinn sem vera átti í
Framheimilinu við Safamýri í kvöld
hefur verið frestað af óviðráðaniegum
ástæðum.
Greifakvöld GR
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur ákveð-
ið að halda herrakvöld, Greifakvöld, í
golfskálanum föstudaginn 15. mars
ef næg þátttaka fæst. Aðeins hundarð
matargestir komast að með góðu
móti í sal skálans og eru kylfingar
beðnir að nágast miða sem allra fyrst
hjá Sigurður Péturssyni í Gullgolfi og
mun hann veita allar nánari upplýs-
ingar ásamt skrifstofu GR.
Ráðstefna ÍFA
Samtökin íþróttir fyrir alla halda ráð-
stefnu á morgun, fimmtudag, um fjöl-
skylduna og frístundir. Ráðstefnan
verður að Scandic hótel Loftleiðum
milli kl. 14 og 16. Fyrirlesarar verða
sálfræðingarnir Kolbrún Baldursdóttir
og Einar Gylfi Jónsson, Gauti Grétars-
son, sjúkraþjálfari, Snjólaug Stefáns-
dóttir forstöðumaður unglingadeildar
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar og Sigurður Magnússon
fræðslustjóri ÍSÍ.
Val í heimsókn í 21. umferð og
endar gegn KA á Akureyri.
ÍR-ingar eru ekki langt frá fall-
sæti en fyrir utan Víkingsleikinn í
kvöld eiga þeir eftir heimaleik gegn
Aftureldingu, útileik gegn Haukum
og heimaleik gegn Stjörnunni.
Mögulelki á aukaleikjum
Tvö neðstu liðin falla en verði lið
jöfn að stigum í fallsæti skal leika
um að halda sætinu í deildinni því
lið fellur ekki á markamun. Það lið
sem fyrr sigrar í tveimur leikjum
verður uppi en hitt fellur. Verði
þijú lið jöfn að stigum í fallsæti
skulu þau leika heima og að heiman
og raðast aftur samkvæmt þeim
úrslitum.
STAÐAN
Sigurjón frá
keppni í
tvær vikur
SIGURJÓN Sigurðsson hand-
knattleiksmaður úr FH
meiddist, missteig sig á
vinstri fæti, á æfingu á
dögunum helgi og var í fyrstu
talið að hann væri með slitin
liðbönd í ökkla. Nú er hins
vegar komið í (jós að þau eru
„illa teygð“ eins og hann
sagði í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég missteig mig ofan
í annað misstig, þess vegna
varð þetta verra en ella. Það
bjargaði mér frá enn frekari
meiðslum að ég var vel „teip-
aður“. Ég hef verið með ökkl-
ann í þrýstiumbúðum síðan
um helgi og á að vera í þeim
í tvær vikur. Með réttri með-
höndlun eru mér gefnar von-
ir um geta ieikið á ný að þeim
tíma loknum, en þá verð ég
að „teipa“ mig vel,“ sagði
Sigurjón, en hann var á leik-
skýrslu með félögum sínum
gegn Val á miðvikudags-
kvöldið.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir u j T Mörk u j T Mörk Mörk Stig
VALUR 18 8 1 0 247:196 7 1 1 235:198 482:394 32
KA 17 8 0 0 236:203 8 0 1 250:226 486:429 32
HAUKAR 18 6 1 2 238:221 4 2 3 224:210 462:431 23
STJARNAN 18 6 1 2 235:210 3 2 4 233:233 468:443 21
FH 18 4 2 3 245:239 4 1 4 231:213 476:452 19
UMFA 17 5 1 3 223:206 4 0 4 193:198 416:404 19
GRÓTTA 17 4 3 1 196:189 3 0 6 213:221 409:410 17
SELFOSS 18 5 0 4 225:231 3 0 6 227:247 452:478 16
ÍR 18 5 0 4 198:193 1 1 7 198:229 396:422 13
VÍKINGUR 18 3 0 6 215:222 2 0 7 190:210 405:432 10
ÍBV 17 3 0 6 199:209 1 1 6 185:220 384:429 9
KR 18 0 0 9 209:280 0 1 8 220:261 429:541 1
BADMINTON / HM LANDSLIÐA
íslensku liðin
eru úr leik
ÍSLENSKA karlalandsliðið í
badminton tapaði, 1:4, fyrir
Noregi í gærkvöldi, í Prag í
Tékklandi, ídöprum leik og
varð í öðrum sæti í sínum riðli.
Kvennalandsliðið hafnaði einn-
ig í öðru sæti í sínum riðli á
eftir Skotum og hefur því lokið
keppni því aðeins efsta liðið í
hverjum riðli kemst áfram.
Broddi Kristjánsson var ekki svip-
ur hjá sjón á móti Hans Sperre
og tapaði 4/15 og 5/15. Tryggvi
Nielsen lék við Erik Lia og tapaði
fyrri lotu 6/15. Var langt undir í
seinni lotunni, en var að ná sér á
strik þegar leikurinn var stöðvaður
vegna boltavandræða í stöðunni
10/11. Þegar leikurinn fór í gang
aftur var Tryggvi ekki með og tap-
aði 11/15. Guðmundur Adolfsson
spilaði ágætlega en tapaði fyrir
Börge Larsen 7/15 og 6/15 — þá
var leikurinn tapaður 0-3. Árni Þór
Hallgrímsson og Broddi áttu ekki í
vandræðum með Trond Wáland og
URSLIT
NBA-deildin
Washington - New Jersey......81:99
Cleveland - Miami.............73:70
Detroit - Minnesota..........113:83
Dallas - Golden State.......100:112
Houston - Sacramento........118:111
■Eftir framlengingu.
Phoenix - Vancouver...........98:94
■Eftir framlengingu.
Seattle - Atlanta............102:94
Íshokkí
NHL-deildin
Philadelphia - New Jersey.......4:1
Los Angeles - Boston............3:3
■Eftir framlengingu.
Tampa Bay - Dallas..............4:2
Detroit - Vancouver.............4:3
Coiorado - Edmonton.............7:5
Erik Lia og unnu 15/8 og 15/9.
Tryggvi og Páll Hængsson töpuðu
í slöppum leik á móti Hans Sperre
og Jim Ronny 11/15 og 4/15.
Islensku strákarnir fengu gefins
fyrsta leikinn, gegn liðinu frá Nep-
al, sem mætti ekki á mótstað. Síðan
unnu þeir Mauritius 4:1. Broddi sigr-
aði 15/9 og 15/7, Tryggvi Nielsen
vann 15/8 og 17/16, Þorsteinn Páll
Hængsson tapaði 15/7, 11/15, 2/15,
Árni Þór og Broddi unnu í tvíliðaleik
15/3 og 15/7 og Þorsteinn og Guð-
mundur Adolfsson unnu einnig í tví-
liðaleik og þurfti oddaleik til.
Stúlkumar í öðru sæti
Kvennalandsliðið hefur lokið
keppni í sínum riðli þar sem það
hafnaði í 2. sæti á eftir Skotum sem
halda áfram í keppninni.
ísland vann Litháen 5:0 (E]sa
Nielsen van 11/3, 11/1, Vigdís Ás-
geirsdóttir vann 11/0, 11/4, Brynja
Pétursdóttir vann 11/4, 11/3, Esla
og Vigdís unnu í tvíliðaleik 15/2,
15/4 og Birna og Guðrún Júlíusdótt-
ir unnu 15/6 og 15/3).
ísland vann síðan Tékkland 4:1
Þá töpuðust allir leikirnir gegn Skot-
um í gær, 0:5.
Duranona
markahæstur
og Bjami hefur
varið mest
KA-maðurinn Julian Duranon
er markahæsti leikmaður 1.
deildar karla með 163 mörk
þegar flest liðin hafa lokið 18.
umferðum af 22. KA hefur
reyndar leikið 17 leiki og hef-
ur Duranona því skorað 9,9
mörk að meðaltali í leik.
Bjarni Frostason úr Haukum
er hins vegar sá markvörður
sem hefur varið flest skot, eða
278.
Markahæstir
Julian Duranona..............163/61
Juri Sadovski................144/61
Valdimar Grímsson, Selfossi...138/66
Patrekur Jóhannesson, KA....118/15
Sigurpáll Á. Aðalsteinss., KR.116/34
Knútur Sigurðsson, Víkingi....110/47
Dimitri Filippov, Stjömunni.104/46
Aron Kristjánsson, Haukum....104/5
ólafur Stefánsson, Val.......103/27
Gunnar Viktorsson, ÍBV.......102/18
Bjarki Sigurðssoiij UMFA.....101/21
Arnar Pétursson, IBV......... 98/27
Siguijón Sigurðsson, FH...... 96/35
Hilmar Þórlindsson, KR....... 95/20
Magnús Sigurðsson, Stjömunni....92/2
Konráð Olavson, Stjömunni......91/20*
Einar G. Sigurðsson, Selfossi.90/0
Flest skot varin:
Bjami Frostason, Haukum....,.278/15
Sigtryggur Albertsson, Gróttu ...264/11
Reynir Reynisson, Víkingi......263/20
Magnús Sigmundsson, ÍR.......248/10
Guðmundur Hrafnkelss., Val...245/15
SigmarÞ. óskarsson, ÍBV......245/13
Hallgrímur Jónasson, Selfossi.216/4
Bergsveinn Bergsveins., UMFA..215/13
Guðmundur A. Jónsson, KA......215/7
Ingvar Ragnarsson, Stjömunni ..170/10
Magnús Árnason, FH.............136/7
Knattspyrnuþjálfari óskast
Knattspymudeild Víkings, Ólafsvík, óskar eftir aö ráða þjálfara
fyrir meistaraflokk félagsins sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar hjá Eggerti í hs. 436 1331 og vs. 436 1611.
Áhugasamir afli sér upplýsinga sem fyrst.
Umsóknir sendist tii: Víkingur, Ólafsvík, Hjarðartúni 6,
355 Ólafsvík, Snæfellsbæ,
fyrir 26. febrúar nk.