Morgunblaðið - 01.03.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
C
1996
FOSTUDAGUR 1. MARZ
BLAD
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Ásdís
KEFLAVÍK vann Breiðablik 77:74 í Kópavogi í gærkvöldi, hafnaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik og mætlr KR í átta liða úrslitum. Breiðabllk komst ekkl í úrslitakeppnlna þrátt fyrlr góðan endasprett en
hér reyna Mlchael Thoele tll vinstrl og Elnar Hannesson að ná boltanum af Dwight L. Stewart, leikmannl
Keflavíkur. Gunnar Elnarsson er við öllu búlnn. IMánar um ieikina/C2.
SAMHERJARNIR Jón Arnar Magnússon, til
vlnstri, og Gísli Sigurðsson.
Gísli Sigurðsson
aðalþjálfari
FRÍ í Atlanta
GÍSLI Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magnús-
sonar, tugþrautarmanns og íþróttamanns ársins
1995, hefur verið ráðinn aðalþjálfari Fijáls-
iþróttasambands íslands fyrir Ólympíuleikana í
Atlanta í Bandaríkjunum í sumar. Gísli er ráðinn
til að hafa yfirumsjón með lokaundirbúningi ís-
lensku frjálsíþróttamannanna fyrir leikana og
vera ráðgjafi FRI varðandi undirbúninginn auk
þess sem hann verður aðalþjálfari sambandsins
i Atlanta.
Fimm fijálsíþróttamenn hafa náð lágmörkum
fyrir leikana. Jón Arnar í tugþraut, Guðrún
Arnardóttir í 100 metra grindahlaupi og 400
metra grindahlaupi, Pétur Guðmundsson í kúlu-
varpi, Sigurður Einarsson í spjótkasti og Vé-
steinn Hafsteinsson í kringlukasti.
David Batty farinn
frá Blackburn
til Newcastle
ENSKI landsliðsmaðurinn David Batty skrifaði
loks undir samning við Newcastle í gær, tekur
út bann á mánudag og er síðan löglegur með
efsta liði úrvalsdeildarinnar. Newcastle greiddi
Blackburn fjórar milljónir punda fyrir miðju-
manninn sem var í tveggja leikja banni og tók
út fyrri leikinn í fyrrakvöld. Hann missir af við-
ureign Newcastle og Manchester United en sagð-
ist hlakka til að byija að leika með liðinu og
var ánægður með að allt væri frágengið.
SMAÞJOÐALEIKARNIR A ISLANDI
Dinos Michaelidis í tækninefnd leikanna segir Sundsambandið á villigötum
Sundsambandi Islands ber
að sjá um framkvæmdina
Dinos Michaelidis frá Kýpur, sem
hefur verið í tækninefnd Smá-
þjóðaleikanna frá upphafi, sagði við
Morgunblaðið í gær að Sundsam-
band íslands væri á villigötum þegar
það segðist hvorki ætla að vera með
á leikunum á íslandi 1997 né, sjá
um framkvæmdina, og koma þannig
í veg fyrir að keppt yrði í sundi á
leikunum.
„Sund er skyldugrein á Smáþjóða-
leikum samkvæmt lögum Smáþjóða-
leikanna. íslendingar hafa tekið að
sér að halda leikana og verða því
að sjá um keppni í sundi. Lögum
samkvæmt geta þeir ekki skorast
úr leik varðandi framkvæmd sund-
keppninnar því viðkomandi sérsam-
bandi ber að sjá um framkvæmd
greinar sinnar. Skipulagningin er í
höndum íslendinga og það er á
þeirra ábyrgð að leikarnir fari fram
með sömu reisn og hingað til.“
Michaelidis sagðist vera hissa á
þessu upphlaupi forystumanna
Sundsambandsins. „Tækninefndin
hefur samþykkt núverandi aðstæður
á íslandi og setur ekki fyrir sig
keppni í 25 metra laug enda er for-
dæmi fyrir slíku, í San Marínó. ís-
lendingar hafa vonað að 50 metra
innilaug yrði komin fyrir leikana
1997 og vissulega hafa fulltrúar
annarra þjóða einnig borið þá von í
bijósti en hún hefur aldrei verið sett
á oddinn hjá tækninefndinni. Þvert
á móti samþykkti tækninefndin að
keppt yrði í útilaug eða innilaug, 25
metra laug eða 50 metra laug. Við
höfum alla tíð gert okkur'grein fyr-
ir aðstæðum á Islandi og samþykkt
mannvirkin sem fyrir eru.“
En nú segjast forystumenn Sund-
sambandsins ekki ætla að vera með
við óbreyttar aðstæður. Hvað gerist
ef þeir standa við þau orð?
„I fyrsta lagi er þetta staðbundið
vandamál milli Sundsambandsins
og Ólympíunefndar íslands. Smá-
þjóðaleikarnir eru undir verndar-
væng Alþjóða ólympíunefndarinnar
°g gang* þetta eftir stendur Sund-
sambandið frammi fyrir vandamáli
gagnvart öðrum þjóðum og IOC.
Islendingar hafa fullan rétt til þess
að keppa ekki í sundi en það er
ekki skynsamlegt að neita að sjá
um framkvæmdina. Það bitnar á
framkværndaraðilanum sem í þessu
tilfelli er Ólympíunefnd íslands og
það kemur niður á öðrum þátttöku-
þjóðum sem hafa lagt pening í und-
irbúning sundmanna sinna fyrir
leikana.“
Michaelidis sagði að svona vanda-
mál hefði aldrei komið upp í sögu
leikanna en það yrði rætt á fundi
stjómar Smáþjóðaleikanna í apríl
eða maí. „Ég lít á þetta sem innan-
hússvandamál og ef það leysist ekki
á íslandi kemur til kasta stjórnarinn-
ar. Sá möguleiki er fyrir hendi að
breyta lögunum, jafnvel að halda
sundkeppnina í öðru landi. Hins veg-
ar yrði hræðilegt að halda Smáþjóða-
leika án sundkeppni, ekki síst fyrir
íslendinga, sem hafa verið sterkir í
sundi á leikunum, og ég hef þá trú
að Ari [Bergmann, ritari Ólympíu-
nefndar íslands] leysi málið."
SKÍÐI: STREET NÆR ÖRUGG MED BRUNTIT1LINN / C4