Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA KR-stúlkur slógu Gríndvíkinga út KR-stúlkur sigruðu Grindavík, 55:49, í íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöldi og tryggðu sér þar með réttinn til þess að mæta Keflavík í úrslitaviðureign ís- landsmóts 1. deild í körf uknatt leik. Guðmundur Helgi Þorsteinsson skrifar Leikurinn fór vel af stað hjá báðum liðum og hittnin var ágæt framan af en síðan skildu leiðir um miðbik fyrri hálfleiks þegar KR-stúlkur settu hvert skotið á fætur öðru niður og þær höfðu í raun öruggt forskot þar til allt hrökk í baklás. Þær leiddu 30:17 en Grindvíkurliðið með Penny Pappas fremsta í flokki náði að skora næstu 11 stig og í hálfleik var staðan 30:28. Penny lét mikið að sér kveða í fyrri hálf- leik og skoraði 19 af 28 stigum Grindavíkur en Helga Þorvaldsóttir var með 11 stig fyrir KR. Spennan setti mark sitt á leik- menn eftir hlé, þó sýnu meira hjá Grindavíkurliðinu sem skoraði ein- ungis 4 stig fyrstu 10 mínúturnar en það átti eftir að breytast. Drif- krafturinn sem hélt Grindavík- urliðinu áfram inni í leiknum kom með framtaki Penny sem „stal“ boltanum hvað eftir annað frá KR-stúlkum í sókninni og brunaði síðan upp og skoraði. Þegar rúm mínúta var eftir áf leiknum náðu Grindavíkurstúlkur boltanum og möguleiki þeirra á að jafna leikinn fór út um þúfur þegar skotklukkan rann út án þess að skot hefði ver- ið reynt. Næsta sókn KR stúlkna byrjaði ekki gæfulega en Guðbjörg Norfjörð færði Grindavíkurliðinu boltann á silfurfati beint úr innk- asti en spennan og æsingurinn var of mikill hjá þeim gulklæddu sem fengu dæmda á sig sóknarvillu á þýðingarmiklu augnabliki og bón- usskot handa KR stúlkum sem voru sterkari á endasprettinum. Hjá KR var leikstjórnandinn Helga Þorvaldsdóttir góð, en hún nýtti tímann vel í sókninni og Kristín Jónsdóttir sýndi einnig skemmtileg tilþrif. í Grindavíkurl- iðinu lék Penny Peppas vel en það dugði ekki til því aðrir leikmenn náðu sér ekki á strik. Penny skor- aði 33 af 49 stigum Grindavíkur í leiknum. Morgunblaðið/Þorkell MAIJENICA Rupe, lelkmaður KR, nær frákasti í lelknum gegn Grindvikingum í gær. Hún og samherjarnir fögnuðu sigri. Keflavík í úrslitin Mm FOLK ■ ÍVAR Bjarklind, knattspyrnu- maður hjá IBV, sleit liðband í hné fyrir skömmu og ljóst er að hann verður frá æfingum og keppni þar til í lok apríl. ■ JOHN Jensen, sem sneri aftur til danska liðsins Bröndby frá Arsenal skoraði strax í fyrsta leik með nýju félögunum; eina markið í æfingaleik gegn Sheffield Wed- nesday í Englandi á þriðjudag. Þess má geta að hann gerði aðeins eitt mark fyrir Arsenal á tæpum fjórum árum. ■ RAUL Aguas var rekinn sem þjálfari Maritimos í Portúgal eft- ir 0:5 tap liðsins gegn Sporting Lissabon um síðustu helgi. Hann er sjöundi þjálfarinn sem hefur fengið að taka poka sinn í 1. deildarkeppninni í vetur. ■ ALEXANDER Zickler, 22 ára leikmaður Bayern Miinchen, verður frá keppni í sex vikur, eftir að liðbönd í vinstra læri hans rifn- uðu í leik gegn Freiburg um síð- ustu helgi. ■ TONY Adams, fyrirliði Ars- enal og enska landsliðsins sem hefur verið meiddur í nokkrar vik- ur, leikur líklega með Arsenal gegn Wimbledon í dag. Terry Venables, landsliðsþjálfari Eng- lands, verður á meða áhorfenda til að fylgjast með frammistöðu Adams og sjá hvort hann er tilbú- inn í vináttuleik Englendinga og Búlgara á Wembely 27. mars. Keflavík tryggði sér sæti í úrslit- um íslandsmótsins í körfu- knattleik kvenna með sigri á ís- ■mi landsmeisturum Sævar Breiðabliks í Smár- Hreiðarsson anum í gærkvöldi. skrifar Lokatölur urðu 53:46 en Keflavík vann fyrri leikinn með 17 stiga mun á heimavelli sínum. „Við höfðum frumkvæðið allan tímann og ég er ánægður með stelp- urnar. Við spiluðum góða vöm og okkur tókst að mestu það sem við ætluðum okkur. Það vantaði aðeins upp á í sóknarleiknum en góður varnarleikur dugir gegn Breiða- bliki,“ sagði Sigurður Ingimundar- son, þjálfari Keflavíkur, í leikslok. Sigur Keflvíkinga var nokkuð Chuck Person hjá San Antonio Spurs varð fjórði leikmaður- inn í sögu NBA-deildarinnar í körfuknattleik til að gera 1.000 þriggja stiga körfur en hann hitti úr sjö þriggja stiga skottilraunum og gerði alls 25 stig þegar liðið vann Miami 120:100 í fyrrinótt. „Ég bytjaði að hugsa um þennan múr þegar ég hafði skorað úr 992 þriggja stiga körfum en taldi að það tæki um níu leiki að brjóta múrinn," sagði Person. „í fyrsta sinn á ferlinum taldi ég þriggja stiga körfurnar." David Robinson var annars drif- krafturinn hjá Spurs, gerði 28 stig, öruggur en Blikastúlkur náðu að setja smá pressu á gestina á loka- mínútunum. Segja má að Keflavík hafi fengið góða forgjöf fyrir leikinn þar sem þrjár af bestu stúlkum heimaliðsins vantaði. Þær Olga Færseth og Erna Hendriksdóttir eru erlendis með kvennalandsliði íslands í knatt- spymu og Hanna Kjartansdóttir er meidd. Keflavík virtist alltaf hafa leikinn í hendi sér. Sóknir Breiðabliks voru einhæfar þar sem mikið var spilað upp á Elísu Vilbergsdóttur undir körfunni og hún gerði tíu fyrstu stig liðsins. Lið gestanna var jafn- ara og liðið hafði 10 stiga forskot í leikhléi, 29:19. Þessi munur hélst framan af síð- tók 18 fráköst, átti fjórar stoðsend- ingar og „stal“ boltanum sex sinn- um. „Við byrjuðum rólega og fórum illa að ráði okkar í opnum færum en mér tókst að fara nógu snemma í gang. Eftir að hlutimir fóm að ganga upp var ljóst hvert stefni," sagði hann. Vinny Del Negro var með 100% nýtingu í vítaköstum, skoraði úr 11 skotum og gerði alls 27 stig. Tim Hardaway var með 26 stig og Alonzo Mourning 20 stig fyrir Miami. Hakeem Olajuwon skoraði 38 stig fyrir Houston sem vann Atl- anta 114:106. Olajuwon tók níu ari hálfleik en með mikilli baráttu og áræðni náðu Blikastúlkur að saxa á forskotið. Betsy Harris fór fýrir liðinu og dreif stöllur sínar áfram. Munurinn var kominn niður í þrjú stig, 44:47, þegar þijár mínút- ur voru til leiksloka en lengra náðu heimastúlkur ekki og lokastaðan varð 46:53. Það var fyrst og fremst liðsheild- in sem skóp sigurinn fyrir Keflavík. Veronicka Cook og Erla Þorsteins- dóttir voru sterkar undir körfunni. Anna María Sveinsdóttir var dijúg á lokakaflanum og þær Erla Reyn- isdóttir og Björg Hafsteinsdóttir skiluðu sínu vel. Segja má að Betsy Harris og Elísa Vilbergsdóttir hafi verið allt í öllu hjá Blikunum enda skomðu þær 39 af 46 stigum liðsins. fráköst og átti sex stoðsendingar. „Efasemdir voru um hvort Hakeem væri tilbúinn í slaginn en hann eyddi þeim,“ sagði Rudy Tomjanovich, þjálfari Houston. LA Lakers vann Golden State 106:103, fyrsti sigur Lakers á heimavelli Golden State síðan 3. mars 1993. Magic Johnson var með 21 stig og Nick Van Exel 18 stig og sjö stoðsendingar en félagarnir gerðu mikilvæg stig undir lokin. „Við höfum verið óheppnir í þessari byggingu síðan ég byijaði að leika með liðinu,“ sagði Van Exel. „Því er ánægjulegt að geta loks fagnað sigri." Person braut múrinn Mattháus vill kapp- ræður við Klinsmann LOTHAR Matthaus, leik- maður Bayern Miinchen og fyrrum fyrirliði þýska lands- liðsins í knattspyrnu, sem nýlega er farinn að leika á ný eftir meiðsl, hefur skorað á félaga sinn hjá Bayern, framherjann Jiirgen Klins- maim — sem nú er fyrirliði landsliðsins — í kappræður í sjónvarpi. Ástæðan er sú að því hefur verið haldið fram að Klinsmann leggist gegn þvf að Mattháus verði valinn á ný í landsliðið. „Mér líður eins og hnefaleikara sem hefur orðið fyrir höggi og fólk er tilbúið að rota,“ sagði þessi 34 ára leikmaður. „Best væri að leysa vanda- málið í eitt skipti fyrir öll í augsýn milljóna manna. Það kæmi í ljós fyrir framan fjöldann hvort JUrgen hefur eitthvað á móti mér. Ég get ímyndað mér að það sama eigi við um Berti Vogts [landsliðsþjálfara].“ Klinsmann svaraði áskor- un félaga síns með því að segja: „Sé eitthvert vanda- mál fyrir hendi erum við nógu þroskaðir til að ræða það undir fjögur augu.“ Á ýmsu hefur gengið hjá stórliði Bayern í vetur. Mikið hefur verið rætt og ritað um valdabaráttu innan félags- ins, þar sem stjórnarfor- maðurinn, Franz „keisari“ Beckenbauer, er sagður vilja hafa óeðlileg áhrif á val liðs- ins hverju sinni og Otto Re- hagel þjálfari sé ekki yfír sig hrifínn af afskiptasemi „keisarans“. Rehagel kom til Bayern eftir hálfs annars áratugar dvöl hjá Werder Bremen, sem hann stýrði til glæstra sigra. Bayern er í öðru sæti þýsku deildarinnar og þykir eiga mikla möguleika á að endurheimta meistaratitil- inn, liðið stendur einnig vel að vígi í UEFA-bikarkeppn- inni en þrátt fyrir það er orðrómur á kreiki að skipt verði um þjálfara eftir tíma- bilið. Og þar kemur Becken- bauer við sögu, enda sagður ráða því sem hann vill hjá félaginu. Þýskir fjölmiðlar hafa getið þess upp á síðkast- ið að Beckenbauer sé að reyna að fá Hollendinginn Johan Cruyff—höfuðand- stæðing sinn frá heimsmeist- arakeppninni 1974 — til fé- lagsins næsta vetur. Cruyff hefur þjálfað Barcelona á Spáni síðustu ár með mjög góðum árangri en í vetur liefur hallað undan fæti og líklegt að hann geti hugsað sér að breyta til fyrr en síð- ar. Ýmsir telja litlar líkur á að skipt verði um þjálfara bjá Bayern eftir þessa leiktíð en þó hefur verið bent að á þeim bænum sé ekkert ómögulegt. Uli Hoeness, fyrrum leikmaður liðsins og einn forráðamanna þess í dag, sagði: „Ef Franz [Beck- enbauer] segði allt opinber- lega sem hann tjáði mér á laugardagskvöldið, væri nóg um það að skrifa.“ Og svo velta menn því fyrir sér hvað í ósköpunum hann eigi við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.