Morgunblaðið - 17.04.1996, Blaðsíða 3
2 D MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR17. APRÍL1996 D 3
URSLIT
Stjarnan - Haukar 19:23
íþróttahúsið í Garðabæ, íslandsmótið í
handknattleik, 1. deild kvenna, úrslit - þriðji
leikur, þriðjudaginn 16. apríl 1996.
Gangur leiksins: 0:4, 1:7, 2:12, 4:12, 6:14,
11:19, 13:19, 13:21, 18:21, 18:23, 19:23.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 8/3, Rut Steinsen 5, Guðný Gunnsteins-
dóttir 3, Nína K. Björnsdóttir 1, Margrét
Theódórsdóttir 1, Hrund Grétarsdóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 9 (þar af
2 aftur til mótheija), Sóley Halldórsdóttir
9 (þar af 5 aftur til mótheqa).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Auður Hermannsdóttir 6/4,
Hulda Bjarnadóttir 5, Heiðrún Karlsdóttir
4, Ragnheiður Guðmundsdóttir 3, Thelma
Björk Árnadóttir 3, Judit Eztergal 2.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 20/1 (þar
af 4 aftur til mótheija).
Utan vailar: 6 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnalds og Rögnvald
Erlingsson, góðir i heildina.
Áhorfendur: Rúmlega 600.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
A-deild:
Fylkir-KR........................0:0
B-deild:
Ármann - KSÁÁ....................2:1
Guðmundur Þ. Guðmundsson, Stefán Sig-
tryggsson - Sævar Guðlaugsson.
Evrópukeppni
Bordeaux, Frakklandi:
Bordeaux - Slavía Prag...........1:0
Didier Tholot (46.). 32.000.
■Bordeaux vann samtals 2:0.
Barcelona, Spáni:
Barcelona - Bayern Miinchen......1:2
Ivan De la Pena (88.) — Markus Babbel
(40.), Mareel Witezcek (83.). 110.000.
■Bayern vann samtals 4:3.
England
Goodison Park:
Everton - Liverpool..............1:1
Kanchelskis (18.) — Fowler (87.). 40.120.
1. deild
Port Vale - Grimsby.............1:0
Sunderland - Birmingham.........3:0
Watford - Reading...............4:2
Staða efstu liða:
Sunderland 43 22 15 6 59:31 i
Derby 43 20 15 8 66:46 '
Crystal Palace 43 19 15 9 64:45 '
Charlton 41 16 17 8 53:42 (
Stoke 41 17 12 12 55:45 <
Ipswich 41 17 11 13 73:61 (
Huddersfield... 42 17 11 14 59:53 (
Leicester 42 15 14 13 58:59 í
Birmingham ... 43 15 12 16 59:58 !
Skotland
Partick - Aberdeen ;.l
Þýskaland
i
Dahlin (15.) — Wegmann (49.). 27.600.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Miami - New Jersey.............110:90
New York - Toronto.............125:79
Houston - Seattle.............106:112
Indiana - Charlotte.............90:87
Denver- Sacramento..............86:90
Portland - San Antonio.........121:97
íkvöld
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið:
A-deild:
Gervigras: Þróttur- ÍR ...20.30
B-deild:
Leiknisv.: Fjölnir-Víkingur.. ...18.30
Leiknisv.: Leiknir - Léttir ...20.30
Leiðrétting
Úrslitin á íslandsmótinu í alpatvíkeppni
kvenna, sem birtust á úrslitasíðu í gær,
voru ekki rétt. Hrefna Óladóttir var sögð í
öðru sæti, en hið rétta er að Theódóra
Mathiesen úr KR varð önnur. Beðist er
velvirðingar á þessu.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
SKVASS
Hrafnhildur og Kim Magnús
sigruðu mjög örugglega
SÖMU sigurvegarar og/fyrra
hömpuðu bikurunum á íslands-
mótinu í skvassi, sem fram fór
í sölum Veggsports um helg-
ina. Kim Magnús Nielsen vann
áreynslulítið íslandsmeistara-
titilinn fjórða sinn í röð og í
kvennaflokki sigraði Hrafnhild-
ur Hreinsdóttir alla sína leiki
og stóð uppi sem sigurvegari
í þriðja sinn. Fjöldi þátttakenda
var svipaður og fyrra, um 35 í
eldri flokkunum, en mótshald-
arar segja að merkja megi stíg-
andi í íþróttinni, þó hægt fari.
Íkarlaflokki spiluðu 29 kepp-
endur og var leikinn einfaldur
útsláttur, sem þýðir að keppendur
•■■■ eru úr leik við fyrsta
Stefán tap. Leið Kim Magn-
Stefánsson úsar í úrslitin var
skn'far auðveld þar sem
hann vann allar lot-
ur sínar og spilaði til úrslita gegn
Jökli Jörgensen, sem lék til úrslita
í fyrsta sinn í vetur. Á leið sinni
að úrslitaleiknum vann Jökull leiki
sína örugglega þar til kom að hinum
þrautreynda Arnari Arinbjarnar, en
Jökull hafði að lokum 3-2 sigur.
Úrslitaleiknum hafði Kim síðan
lítið fyrir og vann þrjár lotur enda
ber hann höfuð og herðar yfir hér-
lenda keppinauta sína. „Ég er
ánægður með að þetta er búið.
Mótið gekk vel fyrir sig og ég hugs-
aði um að spila öruggt og var minna
þreyttur en áður. Ég náði mínu
striki og þó að Jökull hafi leikið vel
virtist hann eiga við ofurefli að etja
í úrslitaleiknum," sagði Kim Magn-
ús, sem er enn langbesti skvass-
maður landsins, hefur haldið örugg-
um tökum á íslandsmeistaratitlin-
um undanfarin fjögur ár og tapaði
ekki lotu á mótinu um helgina.
Fimm konur kepptu innbyrðis í
kvennaflokki. Síðasti leikurinn var
á milli meistarans Hrafnhildar og
Ástu Ólafsdóttur, sem er byijuð að
spila á ný eftir nokkurra ára hlé,
en báðar voru þá ósigraðar. Þær
hafa æft mikið saman svo að ljóst
var að úrslit myndu ráðast á hvor
hefði betri taugar í úrslitaleik. Fljót-
lega í úrslitaleiknum kom í ljós að
Hrafnhildur var betur undirbúin og
sigraði hún 3-0.
Framtíðin björt
„Ég tók þetta frekar létt því ef
maður nær góðri einbeitingu og
stressið hjá manni er ekki mikið
gengur vel og ég var ekki stressuð
en hún var það,“ sagði Hrafnhild-
ur. „Mér sýnist bjart framundan
hjá kvenfólkinu því þar eru margar
ungar og efnilegar stelpur og það
æfa fleiri stelpur en strákar."
Heldrimannaflokkurinn var spil-
aður í tveimur riðlum og síðan úr-
slitaleik efstu manna. í A-riðli sigr-
aði Hafsteinn Daníelsson og í B-
riðli kom, sá og sigraði ísfirðingur-
inn fertugi Viðar Konráðsson. Til
úrslita léku því Hafsteinn og Viðar
og sigraði sá síðarnefndi 2-0.
KIM Magnús Nielsen
íslandsmeistari í
skvassi fjórða áríð í röð.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ætla að verða helmingi betri
Kim Magnús, fjórfaldur íslandsmeistari, stefnir að öruggum sigri á Smáþjóðaleikunum
Kim Magnús er á leið Danmerk-
ur þar sem hann mun fylgjast
með og æfa með danska landslið-
inu. „Þetta eru forréttindi, en
eflaust spilar inn í að ég er hálfur
Dani og búinn að kynnast þessum
mönnum á mótum í Evrópu. Manni
fer ekki mikið fram hér heima og
það þarf að fá hingað þjálfara og
spilara. Ég hef verið vel styrktur
hér heima og er mjög þakklátur
fyrir það, og það gerir mér kleift
að sækja mót erlendis. Ég reikna
með að fara á smáþjóðaleikana í
Búdapest og verð líklega áfram, fer
til Grikklands á Evrópumót meist-
ara og síðan byrjar ný mótaröð af
Pepsi
1996
PEPSI Pæjumótið verður haldið
dagana 13.-16. júní í
Vestmannaeyjum. Mótið er
fyrir 2., 3., 4., 5. og 6. flokk
kvenna í knattspyrnu. Leikið
verður í sjö manna liðum I
öllum flokkum. Allir leikirnir
fara fram á grasi.
Skráningarfrestur
er til 15. maí
i faxi 481 1260.
Nánari upplýsingar
eru veittar
i Þórsheimilinu
i síma 481 2060.
Norðurlandamótum svo það er nóg
framundan," sagði Kim Magnús.
Á alþjóðlega Norðurljósamótinu,
sem haldið var hér fyrr í vetur, lenti
Kim Magnús í vandræðum með
keppinauta sína þegar greinilega
skorti upp á úthald hjá honum, en
því á að kippa í liðinn. „Ég ætla
að verða helmingi betri eftir ár. Ég
er að vinna að úthaldinu og þegar
það kemur verð ég miklu betri -
það er öruggt - og get þá spilað
heila leiki á sama hraða og verð
ekki með tunguna lafandi niður á
gólf, þó að það hafi svo sem ekki
gerst á mótinu nú. Markmiðið er
að vinna alla leiki á smáþjóðaleikun-
faúmR
FOLK
■ ÍRIS Ragnarsdóttir hlaut af-
reksbikar Veggsports, en hann er
veittur þeim er sýnt hefur framfar-
ir og góða ástundun.
■ OMAR Guðnason hlaut bikar
Veggsports í karlaflokki, fyrir
mestu framfarir byrjenda.
■ DREGIÐ var í happdrætti á
árshátíð skvassmanna, sem haldin
var á laugardaginn. I fyrstu verð-
laun var ferð á norska meistaramót-
ið í skvassi, sem fram fer í Noregi
í lok apríl.
■ NÆSTA verkefni skvasslands-
liðsins er ferð á smáþjóðaleikana
er verða haldnir í Búdapest í sept-
ember. Stefnan er að senda besta
skvassfólkið, en í liðinu eru 5 karl-
ar og 3 konur.
um í lok september og vera í það
góðu formi að ég geti staðið við
það. Ég hef þá sumarið til að æfa
af kappi og þá verða kaflaskipti.
Úthaldsleysið hefur háð mér mikið,
til dæmis hef ég verið að spila við
lakari erlenda spilara og klúðra á
úthaldi, hef til dæmis unnið fleiri
lotur en tapa síðan, því ég hef bara
ekki lappir í þessa leiki. Það sást á
Norðurljósamótinu þegar ég spilaði
við þann besta frá Lictenstein. Þá
var jafnt 1-1 og ég yfir 5-0 í næstu
lotu en gafst þá upp, sem er í sjálfu
sér ófyrirgefanlegt,“ sagði Kim
Magnús.
Að sögn Kiins Magnúsar hefur
hann fengið mikinn og margvísleg-
an stuðning. „Fólk hefur stutt mig
og tii dæmis dregur Atli Eðvaldsson
mig út að hlaupa, en hann hefur
verið að þjálfa sína stráka í Vest-
mannaeyjaliðinu hérna í Vegg-
sporti. Hann sá að ég var mun betri
skvassspilari en úthaldið dró mig
niður því tæknina og útsjónarsem-
ina hefur maður í sér. Svo að núna
ætla ég að komast í betra form og
verð þá betri skvassmaður. Ég á
það til að vera of góður við sjálfan
mig og er að vinna allt hérna heima
en verð að gleyma öllu hér og snúa
mér að erlendum rnóturn," sagði
Kim Magnús.
Heim
frá Japan
ÍSLENSKA handknattleikslands-
liðið kom heim frá Japan í gær,
en þar sigraði liðið á átta landa
móti, lagði Norðmenn í úrslitum.
Á myndinni, sem Björn Böndal tók
eru í aftari röð frá vinstri eru
Davíð Sigurðsson, liðsstjóri, Stef-
án Carlson læknir, Olafur Stefáns-
son, sem valinn var í úrvalslið
keppninnar, Sigurður Bjarnason
mikilvægasti leikmaður mótsins,
Patrekur Jóhannesson, Dagur Sig-
urðsson, Guðmundur Hrafnkels-
son, Jakob Gunnarsson, sjúkra-
þjálfari, Þorbjörn Jensson, þjálfari
mótsins, og Guðmundur Ingvars-
son formaður landsliðsnefndar. I
fremri röð frá vinstri eru Sigfús
Sigurðsson, Gunnar Berg Viktors-
son, Bjarni Frostason, Valdimar
Grímsson, Valgarð Thoroddsen,
Davíð Olafsson og Björgvin Björg-
KNATTSPYRNA
Erfitt hjá Ajax
Evrópumeistararnir verða að sigra Panathinai-
kos í Aþenu ætli þeir sér að halda titlinum
Seinni leikirnir í undanúrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu fara
fram í kvöld. Hollenska liðið Ajax, sem á
titil að veija, tapaði 1:0 heima gegn gríska
liðinu Panathinaikos og reynir að vinna
upp muninn í Aþenu. Franska liðið Nantes
er í verri stöðu eftir 2:0 tap gegn Juvent-
us frá Ítalíu en á heimaleikinn til góða.
„Við verðum að vera raunsæir," sagði
Louis van Gaal, þjálfari Ajax. „Éftir að
hafa tapað heimaleiknum eigum við aðeins
30% möguleika á að komast í úrslitin. Við
getum sigrað í Aþenu en það verður mjög
erfitt."
Van Gaal sagði að leikmenn sínir, sem
margir hveijir yrðu í eldlínunni með hol-
lenska landsliðinu í Evrópukeppninni í júní,
vseru nánast á síðasta dropanum. „Tíma-
bilið hefur verið erfitt, mikið um meiðsl
og menn eru búnir. Markamunurinn gerir
það að verkum að Grikkirnir þurfa ekki
að sækja heldur veijast eins og þeir gerðu
í Amsterdam og við vitum allir að þeir
veijast mjög vel. Við eigum líka á bratt-
ann að sækja vegna þess að við erum
ekki eins líkamlega sterkir og leikmenn
Panathinaikos."
Van Gaal sagði að þar sem væntingar
stuðningsmanna gríska liðsins væru mikl-
ar vonaði hann að þær settu Grikkina úr
jafnvægi. „Leikmenn Panathinaikos eru
hetjur í augum grískra stuðningsmánna
eftir sigurinn í Amsterdam. Stuðnings-
mennirnir sætta sig ekki við neitt nema
sjá lið sitt í úrslitum og þessi þrýstingur
gerir leikmennina taugaóstyrka. Við verð-
um að notfæra okkur öll mistök sem þeir
gera.“
Argentínumaðurinn Juan Ramon,
starfsbróðir hans hjá Panathinaikos, var
jarðbundinn þrátt fyrir að vera í mun
þægilegri stöðu. „Það verður ekki auðvelt
að komast í úrslitin en við gerum það sem
við getum. Fyrir fyrri leikinn sagði ég að
Ajax væri besta knattspyrnulið heims og
við virðum leikmennina en virðingin hverf-
ur um leið og leikurinn byijar. Við þurfum
á stuðningi allra Grikkja að halda. Leiðin
í úrslitin er ekki auðveld vegna þess að
leikmenn Ajax koma til með að sækja eins
og hungraðir úlfar frá fyrstu mínútu. Við
stöndum betur að vígi vegna úrslitanna í
fyrri leiknum en allt getur gerst í knatt-
spyrnu."
Juve eygir
úrslitaleikinn
Fáir áttu von á að Bordeaux gæti unn-
ið upp tveggja marka mun gegn AC Milan
í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsl-
iða en franska liðið gerði betur og vann
3:0. Nantes hefur þetta í huga þegar það
tekur á móti Juventus í kvöld en Juve
vann 2:0 í fyrri leiknum og eygir úrslita-
leikinn í Róm 22. maí. Nantes hefur aldr-
ei leikið til úrslita í Evrópukeppni en Juve
var Evrópumeistari 1985 ogtapaði í úrslit-
um 1973 og 1983.
Frönsk lið áttu lengi vel erfitt uppdrátt-
ar gegn ítölskum liðum en á því hefur
orðið breyting á líðandi tímabili. PSG hafði
betur gegn Parma í Evrópukeppni bikar-
hafa og Lyon sló Lazio út í Evrópukeppni
félagsliða auk fyrrnefnds árangurs Borde-
aux gegn AC Milan.
ISHOKKI
KORFUKNATTLEIKUR
Seattle meistari í Vesturdeild
SuperSonic sigraði meistara Houston Rockets í öllum fjórum leikjum liðanna ívetur
Seattle vann Houston 112:106 í
fyrrinótt og tryggði sér þar með
meistaratitilinn í Vesturdeild NBA í
annað sínn á þremur árum. Seattle
sigraði í öllum fjórum leikjunum gegn
meisturum Houston í vetur og hefur
haft betur í 16 af síðustu 20 viðureign-
um liðanna.
Gary Payton var í miklu stuði, gerði
31 stig og „stal“ boltanum hvað eftir
annað. Shawn Kemp var með 27 stig
en Clyde Drexler skoraði 26 stig fyr-
ir Houston og Hakeem Olajuwon 25
stig.
Sacramento vann Denver 90:86 og
er á góðri leið með að trýggja sér sæti
í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í 10
ár, en liðið er í áttunda sæti í Vestur-
deild með fjórum stigum meira en
Golden State. Denver missti endan-
lega af lestinni við tapið.
Indiana var 10 stigum undir í fjórða
leikhluta en endaspretturinn var góð-
ur, Ricky Pierce jafnaði með þriggja
stiga körfu 67 sekúndum fyrir leikslok
og liðið vann Charlotte 90:87. Indiana
tryggði sér þriðja sæti Austurdeildar
en Charlotte á í erfiðleikum með að
komast í úrslitakeppnina. Reggie Mill-
er lék ekki með Indiana en hann var
skorinn upp sl. sunnudag vegna
meiðsla og leikur ekki í tvær til átta
vikur. „Þetta var frábær sigur,“ sagði
Larry Brown, þjálfari Indiana. „Vissu-
lega var erfitt að skipuleggja sóknar-
leikinn án Reggie en strákarnir stóðu
fyrir sínu og þetta var sigur liðsheild-
arinnar." Glen Rice hjá Charlotte
gerði 26 stig fyrsta stundarfjórðung-
inn en aðeins fimm stig síðustu 33
mínúturnar þegar Charlotte glopraði
niður 19 stiga forystu.
Miami vann New Jersey 110:90 og
er í áttunda sæti Austurdeildar með
tveimur stigum meira en Charlotte.
Þegar tæplega 10 mínútur voru til
leiksloka var staðan 59:54 fyrir gest-
ina en heimamenn breyttu stöðunni í
70:59 sér í hag á sjö mínútum og litu
ekki til baka eftir það. Þetta var fjórði
sigur Miami í röð en New Jersey hef-
ur tapað síðustu sjö leikjum.
New York vann Toronto 125:79 og
er í fjórða sæti Austurdeildar en því
Loks komið
að Detroit?
41 árfrá síðasta meistaratitli félagsins
DETROIT Red Wings er talið sigurstranglegast í úrslitakeppni NHL
íshokkídeildarinnar sem hófst í nótt. Liðið setti nýtt met í sigrum
í deildarkeppninni og leikmenn liðsins hafa beðið heilt ár eftir að
bæta upp hörmungar lokaúrslita síðasta keppnistímabils.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
Red Wings vann 62 leiki í deild-
arkeppninni, tveimur fleiri en
met Montreal Canadiens frá 1976-
1977, en metið verð-
ur til lítils að mati
flestra ef liðið nær
ekki að hampa Stan-
ley-bikarnum í lok
úrslitakeppninnar. Leikmenn liðsins
segjast enn muna vel tilfinninguna
eftir fjögur töp gegn New Jersey
Devils í lokaúrslitunum í fyrra. „Ef
við hefðum unnið alla 82 leiki okk-
ar, en ekki unnið Stanley-bikarinn,
mundu allir segja að hér væri sama
gamla Detroit liðið. Við verðum að
vinna bikarinn núna,“ sagði Steve
Yzerman, fyrirliði Red Wings.
Fá lið hér í Bandaríkjunum geta
státað af jafn áköfu stuðningsfólki
og Red Wings. Þegar liðið skorar
fyrsta mark sitt á heimavelli, henda
áhorfendur ýmsum sjávardýrum út
á ísinn, og þekktastir eru þeir fyrir
að láta kolkrabba fljúga út á meðal
leikmanna.
Lið úr Austurdeildinni hafa unnið
síðustu fimm meistaratitla, og 20
af síðustu 26 leikjum í lokaúrslitum.
Detroit hefur aðeins unnið helming
FRJALSIÞROTTIR
af leikjum sínum gegn þremur
sterkustu liðum Austurdeildar,
Philadelphia, Pittsburgh og New
York.
í fyrstu umferð úrslitakeppninn-
ar mætast í Austurdeild Philadelphia
Flyers - Tampa Bay Lightning, Pittsburgh
- Washington Capitals, New York Rangers
- Montreal Canadiens og Florida Panthers
- Boston Bruins.
Hér eru þijú lið sigurstrangleg.
Philadelphia er með geysisterkt lið
í orðsins fyllstu merkingu, með
Eric Lindros í broddi fylkingar.
Bæði Pittsburgh og New York hafa
mikla reynslu og verða ekki afskrif-
uð, en New York tapaði þó fimm
síðustu leikjum sínum í deildar-
keppninni.
I Vesturdeild mætast Detroit Red
Wings - Winnipeg Jets, Coiorado Avalanc-
he - Vancouver Canucks, Chicago Black-
hawks - Calgary Flames og Toronto Maple
Leafs - St. Louis Blues.
Helstu keppinautur Detroit verð-
ur St Louis Blues, með Wayne Gret-
sky og Brent Hull sem bestu menn.
Colorado gæti sett strik i reikning-
inn eftir að hafa fengið markvörð-
inn Patrick Roy frá Montreal fyrir
tveimur mánuðum.
fylgir heimaleikjaréttur í fyrstu um-
ferð úrslitakeppninnar. Patrick Ewing
skoraði 23 stig og John Starks 19
stig fyrir heimamenn sem beijast við
Detroit um fjórða sætið. „Við urðum
að byija með látum,“ sagði Starks.
„Við erum með miklu betra lið.“
Portland fékk San Antonio í heim-
sókn, vann 121:97 og tryggði sér
sjötta sætið í Vesturdeild. Arvydas
Sabonis skoraði 22 stig og tók níu
fráköst fyrir heimamenn og Buck
Williams var með 20 stig. Liðin hafa
mæst fjórum sinnum og var þetta
fyrsti sigurinn hjá Portland í þeim
viðureignum. David Robinson gerði
25 stig fyrir Spurs og tók 13 fráköst.
íÞfémR
FOLK
■ TVEIR leikmenn Middlesbrough,
hafa verið kaliaðir í landsliðshóp
írlands, sem mætir Tékklandi í
vináttulandsleik í Prag í næstu viku.
Það eru miðvallarspilarinn Alan
Moore og bakvörðurinn Curtis
Fleming, sem hafa ekki leikið lands-
leik.
■ ÞEIR koma inn í landsliðshópinn
fyrir Keith O’NeilI, Norwich og
Terry Phelan, Chelsea, sem eru
meiddir.
■ DUNCAN Ferguson, miðheiji
Evertons, er kominn á ný í lands-
liðshóp Skotlands, eftir sextán mán-
uða fjarveru - vegna meiðsla, leik-
banns og þá var hann um tíma í
fangelsi. Ferguson lék síðast lands-
leik í desember 1994.
■ SKOTAR mæta Dönum í Kaup-
mannahöfn í næstu viku, en Craig
Brown, landsliðsþjálfari Skota, seg-
ist vilja reyna Ferguson í vináttu-
leik.
■ TERRY Venables hefur valið
Jason Wilcox, Blackburn, í lands-
liðshóp sinn fyrir leik gegn Króatíu
á Wembley í næstu viku. Wilcox
hefur aðeins leikið sjö leiki með
Blackburn síðan hann byijaði að
leika á ný eftir alvarleg meiðsli á
hné, sem hann hlaut í mars 1995.
■ ALAN Shearer, félagi Wilcox
hjá Blackburn, sem hefur skorað
35 mörk á keppnistímabilinu, er
ekki í landsliðshópnum þar sem
Venables vill gefa Stan Collymore,
Liverpool, annað tækifæri. Colly-
more tók stöðu Shearer í leik gegn
Búlgaríu á dögunum, þegar Shear-
er var meiddur.
■ ENSKI landsliðshópurinn er
þannig skipaður: David Seaman,
Tim Flowers, Ian Walker, Gary
Neville, Rob Jones, Sol Campbell,
Mark Wright, Ugo Ehiogu, Stuart
Pearce, Philip Neville, Robert
Lee, Paul Ince, Paul Gascoigne,
David Platt, Dennis Wise, Jamie
Redknapp, Jason Wilcox, Steve
Stone, Trevor Sinclair, Stan
Collymore, Teddy Sheringham,
Robbie Fowler, Nick Barmby, Les
Ferdinand, Peter Beardsley,
Steve McManaman.
■ ER Thomas Brolin búinn að
leika sinn síðasta leik fyrir Leeds?
Howard Wilkinson, knattspyrnu-
stjóri Leeds, sem keypti sænska
landsliðsmanninn frá Parma á 4,5
millj. punda, valdi hann ekki í leik-
mannahóp sinn fyrir leik gegn Man.
Utd. í dag. Sporting Lissabon,
Benfica og Parma hafa sýnt áhúga
að fá þennan 26 ára leikmann til sín.
■ SÁ orðrómur hefur verið í Eng-
landi, að Terry Venables, lands-
liðsþjálfari, sé tilbúinn að vera áfram
með enska landsliðið - fram yfir
HM í Frakklandi 1998.
Valaá
samning
VALA Flosadóttir, frjálsíþrótta-
kona úr IR og Evrópumeistari í
stangarstökki kvenna, og Aust-
urbakki hf., umboðsaðili Nike á
íslandi, undirrituðu fyrir helgi
samstarfssamning til eins árs.
Hann kveður á um að Vala noti
aðeins fatnað og skó frá fyrir-
tækinu við æfingar og keppni
næsta árið. Samningurinn er
metin á rúmlega 200.000 krónur.
Vala hefur verið hér á landi und-
anfarna daga, eftir að hafa verið
í æfingabúðum í Póllandi um
páskana, en fer utan til Svíþjóðar
á mánudaginn. Hún sagði enga
keppni fyrir dyrum hjá sér næstu
vikurnar þannig að áherslan
væri lögð á æfingar fyrir sumar-
timabilið.