Morgunblaðið - 21.04.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
bUNNUDAGUR 21. APRÍL 1996 D 3
OPEL MAXX er aðeins 2,97 m á íengd, um 75 sm styttri en Corsa.
TÖLVA með staðsetningarbúnaði er í MAXX.
Engin kúpling
Til þess að bæta enn úr mengun-
arvörnum var hannaður nýr þrívirk-
ur hvarfakútur sem er staðsettur
alveg upp við vélina og hitnar hann
því fyrr og helst lengur heitur. Auk
þess er útblástursloft notað á ný í
brennsluna en um þann þátt sér
háþróaður rafeindabúnaður í vélinni.
Drifbúnaður MAXX er æði sér-
stakur. Enginn kúpling er í gólfi og
skipt er um gír með því að hreyfa
stilk í mælaborðinu án þess að nauð-
synlegt sé að taka hendur af stýri.
Einnig er hægt að þrýsta á hnapp
og sér bíllinn þá sjálfur um að skipta
um gíra. í bflnum er skynjari sem
fylgist með hraða hjólanna. Hans
hlutverk er að koma í veg fýrir að
hjólin læsist við hemlun (ABS) og
sendir einnig skilaboð til hins nýstár-
lega gírkassa. Af þessum sökum
þarf ökumaðurinn eklri að skipta nið-
ur í fyrsta gír þegar hann stöðvar
bflinn á rauðu Ijósi. Fyrsti gír er
valinn sjálfkrafa. Verkfræðingar
Opel segja að drifbúnaðurinn einn
spari allt að heilum lítra á hveija 100
ekna km. Opel ráðgerir einnig að
smíða femra dyra MAXX sem yrði
60 sm lengri en tveggja dyra gerðin.
Dagur án bíls í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
halda Dag án bíls í Reykjavík vik-
una 19.-23. ágúst nk. Markmiðið
er að hvetja íbúa Reykjavíkur til
þess að draga úr notkun einkabíls-
ins í einn dag. Tilgangurinn með
því er annars vegar að fá íbúa
Reykjavíkur til þess að gera sér
betur grein fyrir neikvæðum áhrif-
um umferðar á borgarumhverfið
og hins vegar að þeir reyni annan
ferðamáta en einkabílinn, s.s. al-
mennningssamgöngur eða sam-
nýtingu bíla á lengri leiðum en
hjóli og gangi á þeim styttri.
Undanfarin ár hefur verið mik-
ill áhugi í borgum víðsvegar í
Evrópu um að draga úr bílaumferð
vegna neikvæðra áhrifa hennar á
borgarumhverfið. í þessum til-
gangi stofnuðu 34 evrópskar borg-
ir með sér samtökin „Car Free
Cities Club“ í mars 1993. Reykja-
víkurborg gerðist aðili að samtök-
unum á stofnfundi þeirra og nú
eiga 55 borgir aðild að þeim.
Kynning á nýju leiðarkerfi
Dagur án bíls i Reykjavík verð-
ur haldinn skömmu eftir að að
Strætisvagnar Reykjavíkur
breyta leiðakerfi sínu og mun því
nýtast vel til kynningar á nýju
leiðarkerfi. Styrkur hefur fengist
frá „Car Free Cities Club“ vegna
verkefnisins, alls 1.240.000 kr.
sem er bundinn þeim skilyrðum
að Reykjavíkurborg leggi einnig
fram fjárupphæð. Heildarframlag
Reykjavíkurborgar vegna verk-
efnisins er áætlað um 3.280.000
kr.
Ekki er vitað til þess að önnur
borg hafi haldið slíkan dag en
aðrar borgir hafa haldið t.d. Um-
hverfisdag. Talið er að verkefnið
geti víða vakið athygli og verið
jákvæð kynning á Reykjavík. í
viðhorfskönnun sem gerð var
síðastliðið haust sögðu 72% svar-
enda að þeir væru tilbúnir að skilja
einkabílinn eftir heima í einn dag.
„Skynrænir"
líknarbelgir
á næsta leiti
FYRIR nokkru var sagt á þessum
síðum frá því vandamáli sem kem-
ur upp þegar barnafjölskyldur
ferðast með Iítil börn í þar til gerð-
um barnabílstólum í framsæti bíls
með tveimur líknarbelgjum. Alls
ekki er ráðlegt að hafa barnabíl-
stjólinn þar sem líknarbelg getur
blásist upp en í sumum gerðum
bíla er unnt að taka belginn úr
sambandi með því að styðja á einn
hnapp.
Núna á sér stað mikil þróun í
framleiðslu skynrænna líknar-
belgja í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Bandaríska fyrirtækið Takata
er til að mynda að þróa kerfi sem
ákvarðar hvenær rétt sé að herða
axlarólar sætisbeltanna, hvaða
líknarbelgi eigi að blása upp og
hve hratt eigi að blása þá upp.
Það getur þó liðið nokkur tími
áður en slíkur búnaður kemst í
bíla. Brýnasta verkefni framleið-
enda líknarbelgja er hins vegar
að hanna líknarbelgi sem ekki
blæs upp ef barnabílstóll er í fram-
sæti.
Fjarlægð ökumanns frá stýrinu
_ Takata hefur þróað skynjara
sem kallast SafetyShield sem með
innrauðu ljósi greinir milli fullorð-
ins farþega, barnabílstóls og far-
angurs í framsæti. Þegar nauðsyn
krefur kemur búnaðurinn í veg
fyrir að líknarbelg blási upp. Þessi
búnaður virðist hafa ýmsa kosti
umfram aftengingu líknarbelgs í
framsæti. Takata fyrirtækið segir
að SafetyShield geti veitt fullorðn-
um farþegum í framsæti og öku-
manni aukna vernd. Búnaðurinn
getur skynjað fjarlægð ökumanns
frá stýrinu og ákveðið í samræmi
við það hve hratt belginn blásast
upp. Til þess að stjórna þessu hef-
ur Takata þróað búnað sem blæs
upp belginn í tveimur þrepum,
annað hvort mjög hratt og
kröftuglega eða með minni krafti.
Til þess að sýna fram á nauðsyn
skynræns líknarbelgjabúnaðar
bendir fyrirtækið á að ökumenn
eru ekki allir steyptir í sama mót.
Sumir eru hávaxnir karlar, aðrir
lágvaxnar konur og sumir eru tví-
tugir og aðrir sjötugir.
Skynrænn liknarbelgjabúnaður
getur komið í veg fyrir að öku-
menn sem sitja mjög nálægt stýr-
inu slasist í árekstri.
Takata mun á næsta ári fram-
leiða hliðarlíknarbelgi handa
aftursætisfarþegum fyrir evrópsk-
an bílaframleiðanda.
Tryggingafélögin kvarta
Vegna þrýstings frá trygginga-
félögum leggja framleiðendur
líknarbelgja mikla áherslu á þróun
búnaðar sem skynjar hvort farþegi
sé í viðkomandi sæti. Með búnaði
af því tagi er hægt að koma í veg
fyrir að líknarbelgir blásist upp
að óþörfu. Það kostar á bilinu
60-80 þúsund ÍSK að setja nýjan
líknarbelg í bíl í stað þess sem
hefur einu sinni blásist upp.
Tryggingafélög, einkum evrópsk,
hafa hvað eftir annað bent á þann
aukakostnað sem það hefur í för
með sér fyrir þau þegar tveir líkn-
arbelgi blásast upp þótt aðeins
einn maður sé í bílnum.
Mercedes-Benz hefur þegar
fundið tæknilega lausn á þessu
máli og skynrænn líknarbelgja-
búnaður verður í nokkrum gerðum
Mercedes-Benz bíla strax á næsta
ári. BMW er einnig langt komið
með þróun slíks búnaðar.
TILBOÐ OSKAST
í Ford F-150 XLT Super Cab 4x4, árgerð '95
(ekinn 11 þús. mílur), Chevrolet Blazer S-10 Tahoe
4 dyra 4x4, árgerð '93, Geo Metro, árgerö '93,
Jeep Wrangler Hardtop 4x4, árgerð '92
og aðrar bifreiðar er verða sýndar á
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 23. apríl kl. 12—15.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö kl. 16.
Dráttartöggur
Tilboð óskast í AMC dráttartögg m/dieselvél, árgerð '85.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA