Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 1
Danmörk
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir íslendinga
Vikugjald:
OpelCorsa, dkr. 1.795
OpelAstra, dkr. 1.995
Opel Astra st„ dkr. 2.195
Opel Vectra, dkr. 2.495
Tveggja vikna gjald:
Opel Corsa, dkr. 2.995
Opel Astra, dkr. 3.590
Opel Astra st., dkr. 3.990
Opel Vectra, dkr. 4.390
innif. ótakm. aksturog tryggingar.
Fáið nánari verðtitboð.
internationa! Car Rentai ApS.
Uppl. á íslandi sími 456-3745.
Útivist
í síðasta áfanga raðgöngu Úti-
vistar, Landnámsleiðarinnar,
sunnudaginn 29. apríl, verður
gengin fornleið frá Helguhvammi
við Köldukvísl upp Mosfellsbring-
ur og Mosfellsheiði að Heiðabæ.
Við upphaf ferðarinnar verður
fræðst um farkosti og siglingar
fornmanna á landnámstíð. Allir
eru velkomnir í ferðina, en lagt
verður af stað kl. 10.30 frá
Umferðamiðstöðinni.
PI<»r®»u»MaS>ÍS»
SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 BLAÐ C
Lægsta verð á
bílaleigubílum
hvert sem
ferðiniti er
heitið
Hríngdu í okkut- og fáðu sendan
sumarbældinginn s: 588 35 35
Eru viðburðir sem vekja áhugo ferðamanna skipulagðir með of skömmum fyrirvara?
Menningarlíf í Reykja-
vík er aðlaðandi
AÐ SÖGN Önnu Margrétar
Guðjónsdóttur, ferðamálafull-
trúa Reykjavíkurborgar, eru
íslendingar gjarnan seinir á sér
þegar skipuleggja á viðburði og
uppákomur fyrir ferðamenn,
þannig að erfitt reynist að
markaðssetja þá erlendis.
„Þegar ég er á ferðakaup-
stefnum í útlöndum fæ ég
margar fyrirspurnir um hvað
sé að gerast í Reykjavík næsta
sumar. Mér verður oft svarafátt
en ef þeir sem hafa eitthvað á
döfinni myndu skipuleggja sig
og láta okkur vita með góðum
fyrirvara gætum við kynnt við-
burðina í bæklingum okkar og
allir hefðu hag af, segir Anna
Margrét. „Það hafa komið til
mín einstaklingar síðla vetrar
og fram á þennan dag sem eru
að undirbúa uppákomur fyrir
þetta sumar. Við fögnum að
sjálfsögðu þessari viðleitni og
reynum aðstoða eins og við
getum en því miður nýtast þess-
ir atburðar ekki til markaðs-
setja borgina fyrir ferðamenn.
Ferðakaupstefnur hefjast á
haustin og standa fram eftir
vetri og það væri til dæmis
æskilegt að nú færi að koma
til mín fólk sem er að skipu-
leggja atburði næsta árs.“
List fyrir ferðamenn
Þá segir Anna Margrét að
full ástæða sé til að nýta sér
allt þetta smáa í menningarlífi
borgarbúa svo sem litla tón-
leika, leiksýningar og myndlist-
arsýningar, en þar sé af nógu
að taka, til að laða ferðamenn
að borginni og fá þá til að dvelja
í henni. Listamenn væru að
vakna til vitundar um mikilvægi
sitt í þessu samhengi en því
miður væru þeir ekki nógu iðn-
ir við að koma list sinni á fram-
færi við ferðaþjónustuna. Það
sama megi segja um marga
aðra sem eru að skipuleggja
hvers konar uppákomur í borg-
inni, hvort sem þær eru sérstak-
lega ætlaðar ferðamönnum eða
ekki, þeir mættu gjarnan til-
kynna sig til Upplýsingamið-
stöðvar ferðamála.
í erindi sem Þórhildur Þor-
leifsdóttir, leikhússtjóri Borg-
arleikhússins, hélt á ráðstefnu
sem ferðamálanefnd Reykjavík-
urborgar efndi til síðasta vetr-
ardag undir yfirskriftinni
ímynd Reykjavíkurborgar -
hver er hún? Hver á hún að
vera? kom einnig fram sú von
að Reykvíkingar tjaldi ekki til
einnar nætur heldur horfi til
framtíðar og hefjist handa við
að skipuleggja í tíma menning-
arviðburði ársins 2000, þegar
Reykjavík verður ein af menn-
ingarborgum Evrópu. Reykvík-
ingar ættu að notfæra sér tæki-
færið sem þá byðist til að efla
ímynd Reykjavíkurborgar sem
heimsmenningarborgar með
þjóðlegu ívafi.
Morgunblaðið/Þorkell
SKYLDU ferðamennirnir vita að þeir sitja
við Járnsmið Ásmundar Sveinssonar?
ísafjörður
►VIÐKOMUM erlendra skemmti-
ferðaskipa á ísafirði hefur fjölgað
ár frá ári. í sumar koma þangað
7 skip, 6 í fyrra og 4 árið áður.
Isafjarðarhöfn er komin í samstarf
hafna í Evrópu og kynnir sig á
þeim vettvangi. Þórunn Gestsdótt-
ir, upplýsinga- og ferðamálafull-
trúi Isafjarðar, kynnti höfnina
einnig á sýningu á Miami Beach í
Bandaríkjunum á dögununi. Hún
telur góða möguleika fyrir Isfirð-
inga á þessu sviði. Ferðamynstrið
sé að breytast hjá skemmtiferða-
skipunum. Hluti gesta fari ár eftir
ár og flestir séu búnir að sjá áhuga-
verðustu staðina suður í höfum og
vijji komast á nýjar slóðir. Þórunn
vonar að fljótlega komi tíu skip
við á Isafirði og þá fari þetta að
skipta verulegu máli fyrir bæjarfé-
lagið.
Leigubílar
►NYTT samkomulag er í gildi um
fast fargjald leigubíla frá JFK
flugvelli í New York til hvaða stað-
ar sem er á Manhattan. Gjaldið er
30 dollarar eða um 1800 ísl. kr.
með þjórfé og sköttum. Jafnframt
verða gerðar strangari kröfur til
leigubíla og bílstjórum gert að afla
sér grunnþekkingar á enskri tungu
og borginni þannig að þeir rati á
áfangastað. Það er nokkuð sem
hefur skort á til þessa.
Höfum aftur fengið sértilboð í siglingu á nýjasta og
glæsilegasta skemmtiskipi flotans IMAGINATION hjá
CARNIVAL - yfir 70 þús. . /
Verö abeins frá kr. 50.330 á mann í 7 daga siglingu í
klefa á efri þilförum útborðs með glugga, fullu lúxusfæði og
meiri skemmtun og fjölbreytni en þig dreymir um. Verð með
flugi og gistinótt á undan siglingu samtals frá kr, 96.850
Hafnargjöld, flugvallarskattar og þjónustugjöld bætast viS.
Brottför 27. sept. og 4. okt.
- Aðeins fáir klefar. íslenskur forarstjóri.
FERÐASKRIFSTOFAN
H
HEIMSKLUBBUR
INGOLFS
Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavik,
sími 56 20 400, fax 562 6564
„TOPPURINN Á TILVERUNNI!" sögðu farþegar okkar um páskana.
SÆLUVIKA Á DRAUMAEYNNI DOMINIKANA
80 farþegar okkar um páskana Ijúka lofsorði á þennan stað, sem er
paradís líkastur að fegurð.og þar er allt innifalið, sem gerir dvölina
afar þægilega og afslappaða. Hjón, sem víða hafa farið sögðu:
„Þetta er besta ferð okkar hingað til,
og við þráum að fara aftur!“
NÚ BJÓÐAST FERÐIR UM MIAMI EÐA NEW YORK ALLT ÁRIÐ.
Verð frá kr. 99.500.