Morgunblaðið - 01.05.1996, Qupperneq 1
rogtMtÞfafrtö
1996
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 1. MAI
BLAÐ
Kevin Keegan argur út í ummæli Alex Fergusons
Knattspyman í Eng-
landi er heiðarleg
Kevin Keegan,
knattspyrnu-
stjóri Newcastle, var
argur út í Alex
Ferguson, knatt-
spymustjóra Man-
chester Uhited eftir
leik Leeds og New-
castle í fyrrakvöld.
Keegan sagði að
Ferguson hefði rang-
lega ásakað Leeds
þegar hann sagði að
liðið héfði lagt sér-
staklega hart að sér
í leik gegn United
fyrir hálfum mánuði
en eftir leikinn, sem
United vann 1:0,
sagðist Ferguson
ætla að fylgjast sér-
staklega með hvort
liðið héldi upptekn-
um hætti gegn New-
castle. „Þið ættuð að
senda Ferguson
spóiu af leiknum,"
sagði Keegan við
Sky sjónvarpsstöð-
ina. „Menn segja
ekki það sem hann
sagði um Leeds.
Hann er minni mað-
ur i mínum augum.
Stundum er efast um heiðarleika í
knattspymunni erlendis en knatt-
spyrnan í Englandi er heiðarleg."
Keegan var einnig óhress með
ummæli Fergusons, sem sagði að
þar sem Newcastle hefði samþykkt
að leika ágóðaleik fyrii' Stuart
Pearce hjá Forest, hefði hann ekki
trú á að leikmenn Forest legðu sig
alla fram í leik iiðsins gegn New-
castle annað kvöld. Keegan sagði
að ágóðaleikurinn hefði verið ákveð-
inn fyrir mánuði, en ekki í gær.
Ummæli Fergusons hafa vakið furðu
í Englandi — hvað vakir fyrir honum
er ómögulegt að segja. Var hann
að brýna fyrir leikmönnum Leeds
og Forest að leggja sig alla fram
gegn Newcastle? Menn velta því
fyrir sér, hvort það vopn geti snúist
í höndum hans.
Newcastle leikur gegn Nott. For-
est á morgun og verður sýnt beint
frá leiknum á Stöð 3 kl. 18.45.
Reuter
KEITH Gillespie skoraði sigurmark Newcastle gegn Leeds á Elland Road,
0:1. Hér er hann í baráttu vlð Nigel Worthington.
KORFUKNATTLEIKUR
Þorvaldur sterkari
en Lárus Orri
ÞORVALDUR Örlygsson, sem hefur leikið mjög
vel að undanförnu, og félagar hans hjá Oidham
unnu þýðingarmikinn sigur í fallbaráttunni í 1.
deild, þegar þeir lögðu Stoke með Lárus Orra
Sigurðsson innanborðs í gærkvöldi í Oldham,
2:0. Þar hefur Oldham bjargað sér frá falli - á
heimaleik eftir gegn Luton í síðustu umferð.
Þijú lið falla og er staðan á botninum þessi:
Oldham er með 53 stig, Reading 53, Millwall 51,
Portsmouth 49, Watford 48 og Luton 45. Mill-
wall á eftir útileik gegn Ipswich og Portsmouth
útileik gegn Huddersfiled. Stoke er enn í fjórða
efsta sætinu með 70 stig þegar ein umferð er
eftir í deildinni, næst koma Chariton með 70
stig, Leicester 68, Ipswich 65 og Huddersfield 63.
Gascoigne með
tvöfalt í Skotlandi
ENSKI landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne hefur
unnið tvöfalt í Skotlandi - í gærkvöldi var hann
útnefndur besti leikmaður Skotlands 1996 hjá
íþróttafréttamönnum, aðeins tveimur dögum
eftir að leikmenn í úrvalsdeildinni völdu hann
besta leikmann ársins. Gascoigne, sem fagnaði
Skotlandsmeistaratitli um sl. helgi, hefur skorað
nítján mörk á hans fyrsta keppnistímabili með
Glasgow Rangers. „Það er stórkostlegt að vera
útnefndúr hjá íþróttafréttamönnum.“ sagði
Gascoigne, sem hefur fengið að sjá fjórtán gul
spjöld í vetur.
Dortmund fékk skell
í Karlsruhe
MEISTARAR Dortmund fékk skeli í Þýskalandi
í gærkvöldi, töpuðu stórt fyrir Karlsruhe, 0:5.
Dortmund og Bayem Miinchen eru nú efst með
58 stig, markatala Dortmund er betri. Karlsruhe
fékk óskabyijun þegar Thomas Hassler skoraði
eftir aðeins sex mín.
Capello tók tilboði
Real Madrid
FABIO Capello, þjálfari Ítalíumeistara AC Milan,
staðfesti í gær að hann hefði ákveðið að taka
tilboði Real Madrid. „Ég hef ekki skrifað undir
en ég fer til Madríd,“ sagði Capello sem hefur
verið þjálfari AC Milan síðan 1991 og ætlar að
gera samning við spænska félagið til þriggja
ára. „Saga Real er glæsileg og ég ætla að vinna
að því að koma liðinu á toppinn í Evrópu á ný.“
AC Milan bauð Capello samning til þriggja
ára en hann sætti sig ekki við ákvæði tengd
árangri liðsins á samningstímabilinu. „Fyrirtæki
sem setur svona ákvæði í samning treystir ekki
viðkomandi," sagði hann en bætti við að hann
væri ekki sár. „Breyting er nauðsynleg, því sam-
skipti verða erfið eftir svo mörg ár.“ Hann sagði
að AC Milan yrði áfram stórveldi en félagið
gerði ráð fyrir að senya við hollenska framheij-
ann unga Patrick Kluivert hjá Evrópumeisturum
Ajax innan tveggja ára. „Ég fer frá frábæru liði
og með Kluivert innan tveggja ára verður það
áfram á hæsta stalli næstu fjögur árin.“
Teitur og Anna María best
TEITUR Örlygsson úr Njarðvík
og Anna María Sveinsdóttir úr
Keflavík voru í gærkvöldi út-
nefnd bestu leikmenn íslands-
mótsins í körfuknattleik, enþá
hélt körfuknattleiksfólk lokahóf
sitt á Hótel Sögu. Bestu erlendu
leikmennirnir í deildunum voru
kjörnir Jason Williford hjá
Haukum og Betsy Harris hjá
Breiðabliki, en það eru leikmenn
deildanna sem kjósa bestu ein-
staklingana. Besti nýliði karla á
síðasta vetri er Bjarni Magnús-
son af Akranesi og hjá konunum
var það Sóley Sigurþórsdóttir,
sem einnig leikur meðÍA.
Leikmenn liðanna kusu Birgi
Guðbjörnsson besta þjálfara árs-
ins, en hann hélt um stjórnvölinn
hjá Breiðabliki í vetur og náði
góðum árangri með liðið. Sömu
sögu er að segja af besta þjálfar-
anum í kvennadeildinni, Suzette
Sargente, sem þjálfaði Njarðvík.
Kristinn Óskarsson úr Kefla-
vík var kjörinn besti dómari
ársins og Sigmundur Már Her-
bertsson frá Njarðvík sá efnileg-
asti.
DHL-hraðflutningar, sem er
aðalstyrktaraðili karladeildar-
innar, valdi besta hraðaupp-
hlaupsmanninn í deildinni og
varð Eiríkur Önundarson hjá IR
fyrir valinu. Nike-lið er einnig
kosið og karlaliðið skipa Jón
Arnar Ingvarsson og Sigfús Giz-
urarson úr Haukum, Teitur Ör-
lygsson úr Njarðvík, Guðmund-
ur Bragason úr Grindavík og
Hermann Hauksson úr KR. I
kvennaliðinu eru Helga Þor-
valdsdóttir úr KR, Linda Stef-
ánsdóttir úr IR, Anna Dís Svein-
björnsdóttir úr IR, Guðbjörg
Norðfjörð úr KR og Anna María
Sveinsdóttir úr Keflavík.
SKÍDI: 21. ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR / D2, D3