Morgunblaðið - 15.05.1996, Side 1
| BRANPARAR\
| þrautir!
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Revkiavík
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 15. MA11996
Vorboðinn í
vegarkantinum
SUMAR
ÁNDRI Indriðason, 9 ára,
Klettatúni, 781 Höfn, er
listamaður úr Austur-
Skaftafellssýslu, sem er
höfundur þessarar fallegu
og vel gerðu myndar.
Höfundurinn kallar hana
Vorboðann í vegarkantin-
um. Andri er mikill ná-
kvæmnismaður, sem sést
á smáatriðum myndarinn-
ar, það er ekkert sem
gleymist á fólksbílnum á
myndinni, sem er greini-
lega sænskur, Volvo 245;
gulu vegarstikurnar,
þessar nýju, frá Vega-
gerðinni eru á sínum stað
og blessaður vorboðinn
ljúfi, lóan, stendur á steini
við vegarkantinn og fylg-
ist með öllu sem hreyfist
í nágrenninu. Það er eng-
in furða, sjáið þið þúfu-
kollinn þarna lengst til
vinstri á myndinni - þar
virðist vera lóuhreiður!
í Skaftafellssýslum er
stærsti jökull landsins,
Vatnajökull, með alla sína
skriðjökla, og er einn
þeirra á myndinni á milli
tveggja fjallstinda. Kvöld-
sólin skín á vesturhimnin-
um og roðar hann. Það er
sumar á íslandi og lífið
er dásamlegt.
Njótum náttúrunnar,
hún er svo fjölbreytt og
alltaf eitthvað spennandi
að sjá og heyra.
Myndasögur Moggans
þakka Andra kærlega fyr-
ir myndina.
ÞAÐ þarf ekki að segja mikið
um þessa fallegu mynd eftir
Evu Björgu Stefánsdóttur, 10
ára, Hjallavegi 18, 530
Hvammstangi. Hún segir sjálf
svo margt og mikið um sumar-
ið á landinu okkar, nema hvað
við tölum ekki útlensku hérna
hvert við annað, og allra síst
þegar við tjáum ást okkar. ís-
lenskan á svo mörg falleg orð
til þess að tjá sig með, enda
stundum kölluð ástkæra yl-
hýra málið.
Eva Björg mín, þakkir fyrir
fallega mynd.
Leiðrétting
MISTÖK urðu þegar
heimilisfang stúlkunnar
Katrínar Oskar Grétars-
dóttur birtist í Pennavin-
um um daginn. Biðjast
Myndasögurnar velvirð-
ingar og birta rétt nafn
og heimilisfang. Ef ein-
hver ykkar hafið þegar
sent bréf til Katrínar Ósk-
ar ættuð þið að bíða í
nokkrar vikur og sjá til
hvort þið fáið svar, ef það
gerist ekki skuluð þið
endilega senda bréf til
hennar aftur á rétt heimil-
isfang.
Katrin Ó. Grétarsdóttir
4180 Bonway Drive
Pensacola FL 32504
U.S.A.