Morgunblaðið - 10.08.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
2tltorgttttMaí>tf>
■ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST
BLAÐ
Mickel-
son með
forystu
ÁSTRALINN Phil Mickelson lék á
67 höggum, fimm undir pari, í
annari umferð á PGA mótinu í
Louisville, Kentucky og hefur fjög-
urra högga forystu. Þessi 26 ára,
örvhenti kylfingur, sem þegar hef-
ur sigrað á þremur mótum í ár,
fékk fugl (eitt undir) á sex holum,
m.a. á tveimur síðustu en fékk
aftur á móti aðeins skolla (eitt
yfír) á einni holu. Hann er því á
134 höggum, tíu undir pari, eftir
36 holur.
Veðrið setti strik í reikninginn
; á fyrsta keppnisdegi, í fyrradag.
Keppni var þá hætt en fyrsta
' umferðin kláruð í gærmorgun áður
en önnur umferð hófst. Mickelson
var einn þeirra sem þurfti að hætta
í fyrradag - en kláraði fyrsta
hringinn með glæsibrag í gær-
morgun og hélt síðan sínu striki.
Justin Leonard, sem er fyrrum
bandarískur meistari áhugamanna
einsog Mickelson, jafnaði vallar-
met Valhalla vallarins í gær er
hann lék á 66 höggum en metið
setti Kenny Perry daginn áður.
J Á myndinni er Steve Elkington,
; sem sigraði á PGA-mótinu í fyrra.
Hann lék fyrri daginn á 67 högg-
um en síðan á 74 annari umferð
og er því á 141 höggi samtals.
Reuter
Landsliðs-
markvörður frá
Kúbu til KA
HANDKNATTLEIKSDEILD KA hefur fengið
til liðs við sig fyrrum landsliðsmarkvörð Kúbu,
Rey Guitierrez Hernandez, og mun hann að
öllum líkingum sjá um þjálfun markvarða í
yngri flokkum félagsins í vetur auk þess sem
hann verður með KA í Evrópukeppni bikar-
hafa.
Ekki er þó allt gull sem glóir því KA-menn
geta ekki notað Hemandez í leikjum sinum á
komandi keppnistímabili því reglur handknatt-
leikssambandsins segja til um það að einungis
einn útlendingur megi leika með hverju félagi
og er Rússinn Sergei Ziza fyrir þjá KA.
„Það er sorglegt til þess að vita að við eigum
sennilega ekkert eftir að geta notað Hern-
andez nema Ziza meiðist og mér finnst það
mikil skammsýni hjá ársþingi HSI að leyfa
ekki fleiri útlendinga i deildinni, sérstaklega
þar sem svo margir af bestu íslensku leikmönn-
unum ætla að reyna fyrir sér á erlendri grundu
á næsta tímabili. Þetta er mjög öflugur mark-
vörður og við munum nota hann í leikjum okk-
ar í Evrópukeppninni en ég leyfi mér að fuU-
yrða að það er sorglegt fyrir íslenskan hand-
knattleik að Hernandez mun ekki spila í deild-
inni,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Ekkja Owens
hreifst af Mich-
ael Johnson
RUTH Owens, ekkja Jesse Owens sem vann
fern gullverðlaun á ólympíuleikunum í Berlín
árið 1936, sendi Michael Johnson árnaðaróskir
er hann hafði tryggt sér tvenn gullverðlaun á
Olympíuleikunum í Atlanta og sett heimsmet í
200 metra hlaupi. Johnson segir að sér hafi
ekki þótt vænna um nokkrar aðrar hamingju-
óskir en þær sem hann fékk frá Ruth Owens.
Eftir að hann setti heimsmet sitt á bandariska
úrtökumótinu I júní - 19,66 sekúndur - sendi
Ruth Owens honum bréf þar sem hún Iíkti hon-
um við mann sinn. „Er ég sá þig hlaupa hugs-
aði ég, guð minn góður, hann er eins og Jesse,“
sagði hún í bréfínu, en eins og fram hefur komið
í fréttum þá hefur hinum sérstaka upprétta
hlaupastíl Johnsons verið líkt við stíl Owens.
Johnson segir nú að bréfíð frá ekkju Owens
hafi verið mesta hvatning sem hann hafi feng-
ið fyrir leikana og hjálpað sér mjög til að öðl-
ast sjálfstraust til þess að verða fyrsti karlmað-
urinn til þess að fara með sigur úr býtum í 200
og 400 m hlaupi á sömu ólympíuleikum. „Að
vera líkt við Owens er mesta hrós sem ég hef
fengið um ævina.“
KNATTSPYRNA
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR, bjartsýnn fyrir seinni Evrópuleikinn
Eigum að geta sigrað
Bikarmeistarar KR standa vel að
vígi fyrir seinni leikinn gegn
Mozyr frá Hvíta-Rússlandi í Evrópu-
keppni bikarhafa en eins og greint
var frá í blaðinu í gær gerðu liðin
2:2 jafntefli í Mozyr í fyrradag.
Heimamenn gerðu tvö mörk snemma
í seinni hálfleik en KR-ingar gáfust
ekki upp og jöfnuðu á síðustu sex
mínútunum.
Það var Ríkharður Daðason sem
gerði fyrra mark KR, minnkaði
muninn á 84. mínútu og Þorsteinn
Jónsson jafnaði er aðeins hálf mín-
úta var eftir af leiknum.
„Við lékum gegn góðu og sterku
liði en sýndum að við eigum að
geta sigrað það með toppleik og
góðum stuðningi," sagði Þormóður
Egilsson, fyrirliði KR, við Morgun-
blaðið þegar hann kom til Reykja-
víkur í gær eftir 13 tíma ferðalag
frá Mozyr. „Við vorum mjög góðir
í fyrri hálfleik og fengum góð tæki-
færi til að skora en dæmið gekk
ekki upp. Við hugsuðum fyrst og
fremst um vörnina og skipulagið
gekk nokkurn veginn eftir. Samt
gættum við ekki að okkur í byrjun
seinni hálfleiks en í stöðunni 2:0
sáum við að ekki þýddi annað en
að halda áfram. Við höfðum skapað
okkur marktækifæri í fyrri hálfleik,
vissum að möguleikinn var enn fyr-
ir hendi og náðum okkur á strik
aftur sem gerði það að verkum að
við náðum að gera tvö mörk á síð-
ustu sex mínútunum."
Þormóður sagði úrslitin gott vega-
nesti fyrir seinni leikinn sem verður
á Laugardalsvelli 22. ágúst. „Betra
hefði verið að sigra en þó seinni leik-
urinn verði mjög erfiður eigum við
ágætis möguleika. En nú þurfum
við að hvíla okkur vel og gera allt
klárt fyrir sunnudaginn því við eig-
um mikilvægan deildarleik á móti
Val fyrir höndum."
Shearer skoraði
í fyrsta leiknum
ALAN Shearer, dýrasti knatt-
spyrnumaður heims, skoraði í
fyrsta leik fyrir Newcastle - vin-
áttuleik gegn 3. deildarliði Lincoln
á útívelli í gærkvöldi. Newcastle
sigraði 2:0 og gerði Shearer fyrra
markið úr vítaspyrnu í fyrri hálf-
Ieik en Belginn Philippe Albert
bætti marki við eftir hlé.
Leiksins um góðgerðarskjöld-
inn, árlegs opnunarleiks ensku
knattspyrnunnar, er beðið með
óþreyju - sérstaklega vegna þess
að Shearer er kominn í herbúðir
Newcastle. Meistarar Man. Utd.
reyndu einnig mikið til að fá hann
en liðin mætast á Wembley á morg-
un. Leikurinn verður í beinni út-
sendingu Stöðvar 3 og hefst kl. 14.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: SPÁÐ í SPILIN FYRIR BIKARKEPPNINA UM HELGINA / C4