Morgunblaðið - 24.08.1996, Qupperneq 1
• }■,:Ct*
BLAÐ ALLRA L A NDSMANNA
FRJALSIÞROTTIR
KNATTSPYRNA: FRAM BURSTAÐIVÍKING í 2. DEILD / C2
BIRGIR Leifur Hafþórsson úr Leyni á Akranesi
lék best íslensku kylfínganna i gær á Evrópumót-
inu f golfi sem nú stendur yfír í Karlstad f Svf-
þjóð. Hann lék á 70 höggum, eða eina hðggi
undir pari vallarins og hefur því leikið á samtals
142 höggum (lék á 72 höggum fyrsta daginn) og
er f 15. sæti af 147 keppendum. Félagi hans úr
Leyni, Kristinn G. Bjamason, lék á 73 höggum í
gær og er á 147 höggum eftir tvo fyrstu keppnis-
dagana og er í 56. sæti. Björgvin Sigurbergsson
úr Keili var á 74 höggum og samtals 149 höggum
og er f 77. sæti. Eftir þriðja hring í dag verður
skorið niður og fá þá aðeins 70 að halda áfram
síðasta hringinn.
Björgvin sagði að þeir félagar væru nokkuð
ánægðir með gengið f gær og þá sérstaklega
Birgir Leifur sem lék hreint frábærlega. Hann
sagði að töluverður vindur hafi verið í gær og
það hafí reynst mörgum erfitt. „Vindurinn virtist
koma úr öllum áttum og því erfitt að átta sig á
aðstæðum. Nú er spáð rigningu á morgun [í dag]
og erum við ánægðir með það. Þekkjum þær
aðstæður ágætlega,“ sagði Björgvin.
Besta skor gærdagsins átti Þjóðverji sem lék
á 66 höggum, eða fimm höggum undir pari.
Pálmar fékk
silfur í Atlanta
Eigum möguleika og
verðum að trúa því sjálfir
KR-ingar drógust gegn sænska
liðinu AIK frá Stokkhólmi í
Evrópukeppni bikarhafa er dregið
var í 1. umferð keppninnar í gær.
KR fékk heimaleikinn á undan og
verður hann á Laugardalsvelli 12.
september, en síðari leikurinn verður
á Rásunda-leikvanginum 26. sept-
ember. „Ég er nokkuð ánægður með
að lenda á móti AIK. Ég t.el að við
eigum möguleika gegn þessu Iiði og
við verðum lfka að trúa því sjálfir
að það sé hægt að vinna það. Eins
verður þetta frekar þægilegt ferða-
lag,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari
KR-inga, um mótherjana í Evrópu-
keppninni.
Lúkas heldur utan til Svíþjóðar í
dag ásamt Jónasi Kristinssyni,
stjórnarmanni knattspyrnudeildar
KR, til að fylgjast með deildarleik
AIK og Örgryte sem fram fer í
Stokkhólmi á morgun. „Það verður
gaman að fylgjast með þessum leik
og eins að sjá Rúnar Kristinsson sem
leikur með Örgryte. Ég hef verið að
afla mér upplýsinga um AIK-liðið
og veit að það hefur verið að leika
vel að undanförnu eftir frekar slaka
byijun. Það verður því forvitnilegt
að sjá leikinn og þá get ég örugg-
lega sagt meira um liðið og leikstíl
þess. Það er ljóst að við þurfum að
ná hagstæðum úrslitum á Laugar-
dalsvelli og það ætlum við líka að
gera. Ég er alls ekki ósáttur við að
fá heimaleikinn á undan. Við þurfum
að gefa okkur alla í þessa leiki og
mæta með réttu hugarfari í þá,“
sagði Lúkas.
Arnór Guðjohnsen hefur leikið um
árabil í Svíþjóð og þekkir því vel til
AIK liðsins. „Liðið hefur staðið sig
vel að undanförnu, en venjulega
hefur gengið svona upp og ofan hjá
því. AIK vann IFK Gautaborg til
dæmis um daginn 6:0 og Malmö 3:0
á útivelli, en á hinn bóginn er AIK
eina liðið sem við höfum sigrað á
útivelli, við unnum 2:0 í Stokk-
hólmi,“ sagði Arnór.
Hann sagði ljóst að róðurinn yrði
erfiður fyrir KR-inga, það væru ekki
neinir heimsfrægir í liðinu, en hann
nefni þó Paskal Simson, stóran þel-
dökkan miðjumann sem væri einn
besti maður liðsins og hefur verið
að banka á landsliðsdyrnar. Einn
landsliðsmaður er í liðinu, bakvörð-
urinn Gary Sandgren og síðan hefur
markvörðurinn Magnus Hetman ver-
ið varamarkmaður landsliðsins. Am-
ór kvað mjög líklegt að KR-ingar
gætu fengið einhveijar greiðslur fyr-
ir sýningarréttinn því AIK væri vin-
sælasta félagið í Stokkhólmi.
Hörðustu stuðningsmenn AIK
nefna sig „Svarta herinn“ og hafa
verið mjög áberandi á leikjum liðsins
og fylgja því hvert sem er. Þeir þykja
ekki til fyrirmyndar og hafa oft
skapað ólæti í kringum leiki liðsins.
„Þessi hópur er ekki skipaður sak-
lausum kórdrengjum, heldur eru
þetta atvinnulausir unglingar sem
láta oft ófriðlega,“ eins og sænskur
blaðamaður sem til þekkir orðaði
það. Hann taldi líklegt að stór hluti
þessa hóps myndi fylgja liðinu til
Reykjavíkur.
LAUGARDAGUR 24. AGUST
BLAD
Annað
heimsmet
Masterkovu
á níu dögum
RÚSSNESKA hlaupadrottn-
ingin Svetlana Masterkova
gerir það ekki endasleppt á
hlaupabrautinni því á Heysel-
leikvanginum í Brussel í gær-
kvöldi setti hún nýtt heimsmet
11.000 metra hlaupi og er það
annað heimsmet hennar á niu
dögum. Hér kemur hún I mark
á 2:28,98 mínútum og bætti
gamla metið, sem Maria Mutola
frá Mósambík setti á sama velli
fyrir ári, um 0,36 sekúndur. Á
miðvikudag í síðustu viku setti
Masterkova heimsmet í mflu-
hlaupi á móti í ZUrich í Sviss.
Salah Hissou frá Marokkó
vann reyndar afrek kvöldsins
er hann bætti heimsmetið í
lOkm hlaupi um 5,45 sekúndur
og hljóp á 26:38,08 min. Sló
hann met, sem ólympíu-
meistarinn Haile Gebreselassie
frá Eþíópíu setti í Hengelo í
Hollandi í júní í fyrra en hann
var ekki með í Brussel í gær.
PÁLMAR Guðmundsson vann til silfurverðlauna
1100 metra skriðsundi í flokki S3 á Ólympíu-
móti fatlaðra í Atlanta I gær. Hann synti á 1.59,82
mín. og var undir gamla
ólympíumetinu sem var
2.00,14 mín. Sigurvegarinn
synti á 1.59,21 mín. Pálmar
hefur því unnið bæði gull-
og silfurverðlaun í Atlanta
því á þriðjudaginn sigraði
hann 1200 metra skrið-
sundi. Hann keppir síðan í
50 metra skriðsundi í dag.
Sigrún Huld Hrafnsdótt-
ir varð í þriðja sæti í 50 m
skriðsundi þroskaheftra,
syntí á 33,29 sek. Bára B.
Erlingsdóttír varð sjötta i
sama sundi á 34,10 sek.
Gunnar Þ. Gunnarsson hafnaði í 14. sætí í 50
metra skriðsundiþroskaheftra og korast ekki í
úrslit. Hann synti á 30,00 sek.
íslenska íþróttafólkið hefur imnið til tíu verð-
launa í Atlanta, hlotið fern gullverðlaun, tvenn
silfurverðlaun og fem bronsverðlaun.
KR dróst gegn sænska liðinu AIKfrá Stokkhólmi í Evrópukeppni bikarhafa
1996
KNATTSPYRNA
Birgir Leifur í
15. sæti á EM