Morgunblaðið - 20.11.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fttwgtntlifftfrifr
D
1996
MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER
BLAD
TENNIS
Reuter
Sprettharðasti
maður heims
fær 102 millj. kr.
EINS og Morgunblaðið greindi frá í liðinni viku
reyna Kanadamaðurinn Donovan Bailey og
Bandaríkjamaðurinn Michael Johnson með sér í
150 metra hlaupi í maí á næsta ári en í gær var
tilkynnt að sigurvegarinn fengi 1,5 miHj. doilara
(um 102 millj. kr.) í sinn hlut en hinn 34 millj. kr.
„Þetta verður gott tækifæri fyrir mig tU að
geta sagt með sanni að titillinn sprettharðasti
maður heims sé minn,“ sagði Johnson, sem setti
heimsmet í 200 metra hlaupi á Ólympíuleikunum
í Atlanta í Bandaríkjunum í sumar, 19,66 sek.
Bailey, sem hljóp 100 metrana á heimsmeti, 9,84
sek. í Atlanta, var að sjálfsögðu á öndverðum
meiði. „Ég mæti ekki með því hugarfari að ég
geri ráð fyrir að tapa fyrir neinum,“ sagði
Kanadamaðurinn. „Þetta kemur allt í ljós í maí
og ég hlakka til,“ svaraði Johnson.
Heimir
eftirsóttur
HEIMIR Guðjónsson, landsliðsmaður úr KR, virð-
ist vera mjög eftirsóttur hjá liðunum í 1. deild-
inni um þessar mundir. Fjögur önnur lið en KR
hafa sett sig í samband við miðvallarleikmanninn
og vilja fá hann í raðir sínar fyrirnæsta keppnis-
tímabil. Þessi lið eru í A, Leiftur, ÍBV og Grinda-
vík.
Samningur Heimis við KR rann út í haust og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir forráðamanna
KR-inga til að fá Heimi til að skrifa undir nýjan
samning hefur það ekki tekist. „Ég er að skoða
þetta í rólegheitunum þessa dagana og ætla ekki
að ákveða mig fyrr en um næstu mánaðamót.
Ég hafði hugsað mér að semja við KR en það
hefur orðið bið á því. Það má því segja að það
sér biðstaða í málinu," sagði Heimir.
Sundlandsliðið
til Rostock
ÍSLENSKA A-landsliðið í sundi tekur þátt í Evr-
ópumótinu í 25 metra laug sem fram fer í Rostock
í Þýskalandi um miðjan næsta mánuð. í landsliðs-
hópnum eru: Elín Sigurðardóttir, SH, Eydís Konr-
áðsdóttir, Keflavík og Hjalti Guðmundsson, SH.
Landsliðsmennirnir Magnús Konráðsson úr Kefla-
vík og Logi Jes Kristjánsson úr ÍBV fara ekki
til Þýskalands. Magnús fær ekki frí vegna náms
og Logi er við æfingar í Bandaríkjunum.
Góð byrjun
hjá Becker
ÞJÓÐVERJINN Boris Becker,
sem á titil að verja í heimsmeist-
aramótinu í tennis, byrjaði á því
að sigra Rússann Yevgeny Kaf-
elnokov, sigurvegarann á Opna
franska, 6-4, 7-5 í fyrstu umferð
í Hannover í Þýskalandi í gær.
Á mótinu keppa átta efstu
tennisspilararnir á heimsaf-
rekalistanum og eru Banda-
ríkjamennirnir Pete Sampras
og Andre Agassi með tvímenn-
ingunum í riðli, en þeir mætast
í dag.
I hinum riðlinum vann Hol-
lendingurinn Richard Krajicek
Bandaríkjamanninn Michael
Chang 6-4,6-4 og Króatinn
Goran Ivanisevic sigraði Aust-
urríkismanninn Thomas Muster
með sama mun.
Myndin sýnir Ivanisevic ein-
beittan á svip í viðureign gær-
kvöldsins, en þetta er síðasta
stórmót ársins í tennis.
KNATTSPYRNA
Venables þjálfari Ástralíu
Terry Venables staðfesti í gær að
hann hefði undirritað samning
við Knattspyrnusamband Ástralíu
varðandi landsliðsþjálfarastarf þess
sem hann gegnir frá 1. janúar nk.
Hann gerði samning til 19 mánaða
og fær 200.000 pund á ári sem er
þriðjungi meira en hann fékk þegar
hann var landsliðsþjálfari Englands.
Venables hefur stjórnað knatt-
spyrnumálum hjá Portsmouth að
undanförnu en verður nú formaður
1. deildar félagsins.
Venables, sem hefur þjálfað Cryst-
al Palace, QPR, Barcelona og Totten-
ham verður um það bil fjóra mánuði
á ári í Ástralíu en fylgist með ástr-
ölskum leikmönnum í Evrópu hinn
hluta ársins. Ástralir leggja mikla
áherslu á að komast í úrslitakeppni
HM í Frakklandi 1998 og sagði
Venables að hann hefði trú á að það
tækist. „Ég vona það innilega og
hefði ekki tekið starfið að mér ef ég
héldi að það tækist ekki. Það hlýtur
að vera markmiðið og ég þarf að
finna út hvernig á að ná því. Það
er starf mitt.“
Ástralía, sem er í riðli með Ta-
hiti, Nýja-Sjálandi og Salómonseyj-
um, hefur einu sinni átt lið í úrslitum
HM, 1974, en þarf að ná efsta sæti
í riðlinum og hafa síðan betur á
móti fjórða liði í Asíuriðli til að kom-
ast í úrslitakeppnina 1998.
Venables hefur fengið mörg tilboð
um að stjórna félagsliðum síðan hann
hætti með enska landsliðið eftir Evr-
ópukeppnina í sumar, m.a. frá Black-
burn, en hafnað þeim öllum. „Ég
hafði áhuga á að halda áfram í al-
þjóðaknattspyrnunni," sagði hann.
Ég var landsliðsþjálfari Englands í
tvö og hálft ár og það var ánægjuleg-
ur tími. Ég sé ekki eftir ákvörðuninni
sem ég tók eftir viðræður við Knatt-
spyrnusamband Englands en ég var
ekki ánægður og hefði viljað ljúka
starfinu á meira viðeigandi hátt -
eftir Heimsmeistarakeppnina. Nú á
ég möguleika á að komast þangað
og ég geri það sem ég get tii þess.“
TERRY Venables
David Hill, formaður Knattspyrnu-
sambands Ástralíu, leyndi ekki gleði
sinni eftir að samningurinn hafði
verið undirritaður en Venables var
efstur á lista og síðan komu Johan
Cruyff, Howard Wilkinson og Jack
Charlton. „Þetta er mikil fjárfesting
fyrir okkur,“ sagði Hill. „Að komast
í úrslitakeppni HM hefur algjöran
forgang hjá okkur og til að það ger-
ist verðum við að tefla fram eins
sterku liði og við getum, besta þjálf-
aranum og bestu stjórninni. Terry
Venables er sá besti sem við gátum
fengið og þetta á eftir að verða mik-
ið ævintýri fyrir hann og knattspyrn-
una í Ástralíu."
Jack Reilly, fyrrum markvörður
landsliðsins, sagði að ráðningin væri
sem köld vatnsgusa framan í inn-
fædda en Hill var á öðru máli. „Við-
brögðin hafa almennt verið mjög já-
kvæð. Menn verða að hafa í huga
að við höfum aldrei haft ástralskan
landsliðsþjálfara. Terry tekur við af
Eddie Thomson sem er frá Aberdeen
í Skotlandi. Hafi hlutirnir gengið upp
með Eddie lief ég ekki trú á að
vandamál komi upp í samskiptum
við Terry. Ég ræddi við marga leik-
menn í síma og þeir voru mjög
spenntir."
KNATTSPYRNA: INTER í GÓDRISTÖDU í EVRÓPUKEPPNIFÉLAGSUÐA / D4