Morgunblaðið - 23.11.1996, Page 4
!
Venables
fær kaldar
lo/eðjur í
Ástralíu
ÁSTRALSKIR knattspyrnu-
þjálfarar eru óánægðir með
að Terry Venables var tekinn
fram yfir innlenda þjálfara
þegar hannvar ráðinn landsl-
iðsþjálfari Ástralíu í vikunni.
Margir fyrrum iandsliðsmenn
eru á sama máli. Þetta kom
fram i kðnnun sem dagblaðið
The Sydney Morning Herald
gerði en samkvæmt henni
voru átta þjálfarar í 1. deild
á móti ráðningunni, fjórir með
og tveir voru hlutiausir.
Gagnrýnin beindist fyrst og
fremst að því að lengst af ráðn-
ingartímans verður Venables
með aðsetur i London en David
Hill, formaður Knattspymu-
sambands Ástraliu, sagði að
gagnrýnendur væm ekki nógu
víðsýnir. „Neikvæð viðbrögð
heimamanna era til skammar
en gagnrýnin er tíl komin
vegna þess að við réðum ekki
innlendan mann,“ sagði Hill.
„Era þeir i alvðra að segja að
- við hefðum ekki átt að ráða
besta þjálfarann semvar á
lausu heldur mann í Ástralíu?"
spurði Hill við komuna til Ástr-
alíu eftir að hafa samið við
Venables. Hann sagði að Vena-
bies væri ákveðinn í að sýna
breskum fjðlmiðlum að þeir
hefðu rangt fyrir sér þegar
þeir segðu að hann væri að
taka við liði sem væri lágt
skrifað í knattspymuheimin-
um. „Terry Venables sagði að
hann vildi ekkert frekar en
mæta Engiendingum í úrslita-
keppni HM og sigra þá.“
Frank Arok, fyrrum landsl-
iðsþjálfari Ástralíu, sagði að
, Venables væri ekki leiðtogi.
„Einhver er að draga okkur á
asnaeyrunum, einhver sem
greinUega skilur ekki leikinn,"
sagði Manfred Scháfer, þjálf-
ari Marconi. Markaðsráðgjafi
í iþróttúm var á ððru máli,
sagði að vegna Venables kæmu
meiri peningar í knattspym-
una í Ástralíu í formi auglýs-
inga og styrkja, allt að 280
milljónir króna. Frank Farina,
fyrrum miðheiji Ástralíu og
nú þjálfari Brisbane Strikers,
tók í sama streng. „Venables
opnar margar nýjar dyr knatt-
spyraunni til góða.“
Fyrsta verkefni Venables
verður í janúar þegar Ástralía
tekur þátt í fjögurra þjóða
móti ásamt Noregi, Suður-
Kóreu og Nýja-Sjálandi.
FELAGSLIF
KR-klúbburinn
á Aski
ÚRSLITALEIKUR Keflavíkur og
KR í Lengjubikarnum verður í
Laugardalshöll í dag og hefst
klukkan 15. Félagar í nýstofnuðum
KR-klúbbi körfuknattleiksdeildar
félagsins ætla að hittast á veitinga-
húsinu Aski við Suðurlandsbraut
kl. 13.30.
SKIÐI
Panzanini stal senunni
í ólympíubrekkunni
ÍTALSKA stúlkan Sabina Panz-
anini sigraði nokkuð óvænt í
stórsvigi kvenna í heimsbikarn-
um sem fram fór í Park City í
Bandaríkjunum í gær. Hún átti
frábæra fyrri ferð og lagði þar
grunninn að öðrum sigri sínum
í heimsbikarkeppni frá þvíhún
hóf keppni 1993. Anita Wachter
frá Austurríki varð önnur og
Katja Seizinger þriðja.
Sigur Panzanini hlýtur að gefa
henni góðar vonir um verð-
launasæti á Vetrarólympíuleikunum
2002 sem fara fram á sama stað,
þ.e.a.s. ef hún verður þá enn í góðri
æfingu. Þetta var í annað sinn sem
hún keppir í þessari brekku og í
fyrra skiptið, 1994, varð hún í öðru
sæti. Það má því segja að brekkan
í Park City henti henni vel. Hún
hafði aðeins einu sinni áður staðið
á efsta þrepi heimsbikarkeppninnar,
í Alta Badia á Ítalíu fyrir tveimur
árum.
Panzanini, sem er 24 ára, náði
langbesta brautartímanum í fyrri
umferðinni og var rúmlega hálfri
sekúndu á undan Anitu Wachter frá
Austurríki eftir báðar umferðimar.
Heimsbikarhafinn Katja Seizinger
frá Þýskalandi varð þriðja. Deborah
Compagnoni, heimsmeistari í stór-
svigi frá Ítalíu, keyrði út úr braut-
inni í fyrri umferð. „Ef Deborah
hefði ekki farið út úr brautinni er
ég viss um að hún hefði sigrað. Hún
er best í þessari grein,“ sagði Panz-
anini.
ítalska kvennaliðið er nýlega
komið með nýjan þjálfara, Georgio
D’Urbano, sem þjálfaði Alberto
Tomba áður. „Við náðum í þrjú
sæti af fyrstu níu og árangurinn
sýnir að við erum með mjög góðan
þjálfara og við erum tilbúnar í slag-
inn,“ sagði sigurvegarinn.
Skíðakonumar höfðu á orði að
aðstæður í Park City hafi verið eins
og á vordögum, hiti 10 gráður og
blautur snjór. „Það er heitt hér, eins
og það sé komið vor,“ sagði Zeizin-
ger. „Eftir að hafa hampað heimsbik-
artitlinum síðasta tímabil kem ég
full sjálfstrausts og er ekki undir
neinu álagi. Ég hef unnið í öllum
greinum og það tekur enginn frá
mér.“
Hássler ökklabrotinn
THOMAS Hássler, landsliðsmaður Þjóðveija í knattspyrnu, ökkla-
brotnaði I leik með liði sínu Karlsruher á móti Diisseldorf í þýsku
deildinni í gærkvöldi. Hann lenti í samstuði við mótherja í fyrri
hálfleik og var fluttur beint á sjúkrahús þar sem hann var skorinn
upp. Hann verður frá keppni fram í febrúar. Þetta kemur sér
mjög illa fyrir landsliðið því það á að leika við Portúgal í undan-
keppni HM í næsta mánuði.
FYRSTA landslið íslands í íshokkí, aftarl röð f.v.: Tlm Chapman, þjálfarl, Símon P. Slgurðs-
son, þjálfari, Hörður J. Harðarson, Svanur Daníelsson, Agnar Magnússon, Ólafur Ragnars-
son, Ingvar Jónsson, Jónas Rafn Stefánsson, Agnar Davíð Stefánsson, Eggert Hannesson,
Matthías Þór Hákonarson, Haraldur Á. Vilhjálmsson og Sveinn Krlstdórsson, llðsstjórl. Fremrl
röð f.v.: Gunnar H. Hrafnsson, Guðjón B. Snæland, Ingólfur M. Olsen, Guðmundur Rúnarsson,
Blrgir Örn Sveinsson, Gunnlaugur BJörnsson, Jónas Breki Magnússon, Ágúst Torfason, Sigurð-
ur Einar Sveinbjarnarson og Pétur Már Jónsson.
Fyrstu landsleikir Islands
Ivar
Benediktsson
skrifar
Islenska unglingalandsliðið í ís-
hokkí leikur í dag og á morgun
fyrstu landsleiki sína er það mætir
Skotum í tveimur
vináttulandsleikjum
í Glasgow. Leikirnir
eru liður í undirbún-
ingi íslands fyrir
Evrópukeppni 17 ára og yngri í
Belgrad í mars á næsta ári. Liðið
er skipað 20 leikmönnum sem fædd-
ir eru 1979 til 1981. „Þetta eru
mikil tímamóti í starfi Íshokkídeildar
Skautasambandsins," sagði Magnús
Jónsson, stjórnarmaður, á fundi með
fréttamönnum er liðsskipan var til-
kynnt. Jafnframt var greint frá því
að Kanadamaðurinn Tim Chapman
hefði verið ráðinn landsliðsþjálfari,
en hann er einnig þjálfari hjá Bimin-
um. Chapman hefur sextán ára
reynslu af þjálfun í heimalandi sínu,
en fluttist hingað til lands í vor með
íslenskri eiginkonu sinni.
„Við erum rétt að byrja í íshokkí
en það verður spennandi að sjá
hvar við stöndum í samanburði við
Skota. Með góðum leik ættum við
að geta hangið í þeim,“ sagði Magn-
ús ennfremur.
Sem fyrr segir eru leikirnir liður
í undirbúningi fyrir Evrópukeppn-
ina í Belgrad í mars. Þar mætir
íslenska liðið Júgóslövum, Búlgör-
um, ísraelum, Spánverjum og
Tyrkjum í styrleikaflokki D, en í
þeim hópi eru lökustu þjóðirnar.
Þess má geta að Skotar eru í styrk-
leikaflokki C.
Æfingar hjá íslenska liðinu hóf-
ust í ágúst eftir að valinn hafði
verið 26 manna hópur drengja sem
hefur æft sleitulaust síðan og í vik-
unni var fækkað í hópnum niður í
20 pilta sem taka þátt í fyrstu leikj-
unum. „Hæfileikarnir eru til staðar
og með bættri aðstöðu hef ég trú
á að við eigum að geta byggt upp
gott lið sem gæti náð ágætum ár-
angri á alþjóðlegum mótum,“ sagði
Chapman.
■ ROY Hodgson, þjálfari AC
Milan, á von á góðum leik þegar
liðið mætir Inter í nágrannaslag á
morgun. „í mínum huga er ljóst
hver er sigurvegarinn. Það eru
áhorfendurnir sem hafa borgað sig
inná leikinn," sagði hann.
■ MIKILL áhugi er á leiknum og
er uppselt. í fyrra greiddu 82.788
áhorfendur um 145 millj. kr. í að-
gangseyri á leik liðanna en upphæð-
in verður hærri að þessu sinni.
■ STEFFEN Iversen gekk í gær
til liðs við Tottenham en enska
félagið náði þá samkomulagi við
Rosenborg í Noregi um kaupin á
framheijanum. Spurs hafði boðið
2,3 millj. punda en talið er að kaup-
verðið sé 2,5 til 3 millj. punda og
er Iversen dýrasti leikmaður Nor-
egs. Manchester United greiddi
Molde 1,5 millj. punda fyrir Ole
Gunnar Solskjær í sumar og var
það þá met.
■ IVERSEN fer ekki til Totten-
ham fyrr en Rosenborg hefur lok-
ið keppni í Meistaradeild Evrópu
en það getur orðið 4. desember tapi
liðið fyrir AC Milan.
■ KEITH O’NeiU, landsliðsmaður
íra, hefur endurnýjað samning sinn
við Norwich City til ársins 1999.
■ COVENTRY hefur boðið eina
milljón punda í Daren Huckerby,
framherja Newcastle.
■ PAUL McStay, fyrirliði Celtic,
leikur ekki með liði sínu vegna
meiðsla fyrr en eftir áramót.
■ IORDAV Lechkov frá Búlgar-
íu og írinn Tony Cascarino gætu
verið á förum frá Marseille innan
skamms en þeir hafa ekki tryggt
sér sæti í liðinu að undanförnu.
■ FENERBAHCE í Tyrklandi
hefur boðið í miðjumanninn Lec-
hkov, sem er 29 ára og fór frá
Hamburg til Marseille fyrir líðandi
tímabil. Franska félagið Caen vill
fá írska miðheijann, sem er 34 ára.
ÚRSLIT
Handknattleikur
2. deild karla:
ÍH - Hörður ísaf.........27:21
ÞórAk.-HM................27:23
Knattspyrna
England
1. deild:
Sheffield Utd. - Bolton....1:1
■Guðni Bergsson lék allan leikinn með
Bolton sem fyrirliði.
Þýskaland
Bochum - Mönchengladbach..........2:0
■Þórður Guðjónsson lék ekki með Bochum.
Karlsruhe - DUsseldorf............2:0
Staða efstu liða:
VfB Stuttgart........14 9 3 2 37:13 30
Leverkusen...........14 9 3 2 31:15 30
Bayern Munchen.......14 8 5 1 23:12 29
Borussia Dortmund....14 8 3 3 28:16 27
Bochum...............15 7 5 3 21:19 26
Köln.................14 8 1 5 27:21 25
Karlsruhe............15 7 3 5 26:19 24
Frakkland
PSG - Marseille..................0:0
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Toronto - Cleveland............81:89
Detroit - New Jersey...........96:88
Indiana - Charlotte............87:90
Orlando - Minnesota............90:86
Dallas - LA Clippers..........105:94
Houston - Phoenix............115:105
Mihvaukee - Atlanta............65:73
Denver - Chicago..............92:110
Utah - Golden State..........109:104
■ Eftir framlengingu.
Íshokkí
NHL-deildin
Boston - Montreal................2:6
Buffalo - Toronto................6:3
Philadelphia - Pittsburgh........7:3
■St. Louis - Phoenix.............4:3
Edmonton - NY Rangers............3:2
San Jose - Detroit...............1:6
■Vancouver - Chicago.............2:1
■ Eftir framlengingu.