Morgunblaðið - 15.12.1996, Page 4
4 C SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
RÚSSNESKI risinn hefur
löngum þjáðst af innilokun-
arkennd vegna þess að erf-
itt hefur verið um aðgang
að höfn, sem ekki leggur allan ársins
hring. Þessi kennd hefur verið orsök
útþenslu og upp úr miðri þessari öld
varð hún til þess að hinn svokallaði
Kjamorkufloti (Atomflot) var stofn-
aður. Fyrsta skip Kjamorkuflotans
var kjamorkuknúni ísbijóturinn Len-
ín, sem ekki er lengur í notkun. Flot-
inn rekur átta skip, sjö ísbijóta og
eitt flutningaskip. Eftir hrun Sovét-
ríkjanna hefur hins vegar syrt í ál-
inn. Verkefni vantar og í neyðinni
er meira að segja farið að bjóða upp
á farþegasiglingar á norðurpólinn.
„Kjamorkuflotinn var stofnaður
af nauðsyn vegna þess að allt Norð-
ur-Rússland snýr að heimskautinu,“
sagði Vladimir Blimov, talsmaður
Múrmansk-skipafélagsins. „Aðeins
kjamorkuknúnir ísbijótar geta haldið
samgönguleiðum opnum.“
Flotinn var stofnaður árið 1959.
Lenín var lengi vel eini ísbijótur hans.
Honum var hægt að sigla þar sem
SÍBÍR brýst í gegnum Norðurheimskautsísinn.
■
Á noróurpólinn
í öf lugasta
skipi heims
Ferð til Norðurheimskautsins um borð í kjarnorkuknúnum
ísbrjót tekur tvær vikur og getur kostað rúmlega tvær
milljónir króna. Karl Blöndal gisti um borð í ísbrjót í
Múrmansk og kynnti sér aðstæður.
’díselknúnum ísbijótum var ófært. Um
hávetur urðu heimskautaleiðir skyndi-
/lega færar. Næsti kjamorkuknúni ís-
bijóturinn hét Artíka, sem var hleypt
.af stokkunum árið 1975. Árið 1977
varð Artíka fyrsta skipið til að sjgla
gegnum ísinn að norðurpólnum. Árið
1978 var ísbijóturinn Síbír, sem er
jafnstór Artíka, smíðaður og fleiri
fylgdu. Nú er verið að smíða nýjan
kjamorkuknúinn ísbijót, sem á að
heita „50 ára afmæli loka heimsstyij-
aldarinnar síðari".
Vladimír Krasovskí var í áhöfn Len-
íns og hefur verið skipstjóri ísbijótsins
. Síbír frá því hann var smíðaður. Venju-
legur díselísbijótur er rúmlega 20 þús-
und hestöfl. Síbír er 76 þúsund hest-
öfl. Skipið er knúið þremur skrúfum,
sem vega 50 þúsund tonn og eru 22
þúsund hestöfl hver. 150 metrar á
íengd og kjölur þess ristir 11 metra.
Skipið getur siglt í gengum rúmlega
tveggja metra þykkan ís án þess að
nema staðar, en þegar hann er þykk-
ari þarf það atrennu.
IVeir kjamakljúfar eru í Síbír og
sagði Krasovskí að þeir hefðu aldrei
valdið vandræðum eða bilað.
Enginn ótti við kjarnakljúfana
„Það er enginn ótti við kjamakljúf-
ana,“ sagði skipstjórinn. „Inni í bátn-
um er minni geislavirkni en úti.“
Hmn Sovétríkjanna hefur verið
afdrifaríkt fyrir kjamorkuflotann.
Verkefnum hefur fækkað og flutn-
ingar em ekki jafnmiklir og áður
vom. Fyrir þær sakir hefur ísbijótun-
um Síbír og Rassía verið lagt í höfn
Kjamorkuflotans í Múrmansk. Ólík-
legt er að Krasovskí, sem á sínum
tíma sigldi til norðurpólsins, stýri
skipi sínu oftar um heimsins höf.
Ný verkefnl
Verkefnaleitin hefur knúið stjórn-
endur Múrmansk-skipafélagsins til
að brydda upp á nýjungum. Ferðir á
Norðurpólinn em þar á meðal. Boðið
hefur verið upp á þær í nokkur ár
og tekur ísbijóturinn um 100 far-
þega. Ferðin tekur tvær vikur og
kostar frá 20 þúsundum dollara (1,3
milljónum króna) til 35 þúsunda doll-
ara (2,3 milljóna króna). Ýmis að-
staða er um borð, íþróttasalur, sund-
laug og rússneskt gufubað, þar sem
boðið er upp á barsmíðar með birki-
hríslum.
Jafnstundvís og lest
„ísbijóturinn er jafnstundvís og
lest,“ sagði Blímov. „Ferðin tekur
tvær vikur og ísbijóturinn hefur
aldrei verið of seinn í höfn þótt að-
stæður hafi oft verið erfiðar."
Ferðamannaþjónusta er hins veg-
ar ekki mikil tekjulind fyrir Kjarn-
orkuflotann og má segja að tilgang-
urinn sé að nota skipin á þeim árs-
tíma, sem engin verkefni er að fá.
Blímov er þeirrar hyggju að fram-
tíð flotans geti legið í því að bijóta
flutningaskipum annarra rikja leið
til austurs.
„Á tímum Sovétríkjanna hefði
verið óhugsandi að búa til alþjóðlega
Morgunblaðið/Karl Blöndal
KOJA í káetu um borð í kjarnorkuknúna ísbrjótnum Síbír:
Enginn óþarfa munaður.
siglingaleið,“ sagði Blímov. „En þá
varð 180° kúvending á öllum sviðum
og árið 1991 sigldi fyrsta erlenda
skipið, franskt flutningaskip, þessa
leið.“
í kjölfarið fylgdu lög um að opnuð
hefði verið alþjóðleg siglingaleið, en
ástand hennar hefur verið misgott.
„Það tekur helmingi styttri tíma
að sigla norðausturleiðina en Súes-
skurðinn," sagði Blímov. „Norðaust-
urleiðin er 12 til 15 daga sigling,
en Súes-skurðurinn 35 daga.“
Þrátt fyrir þennan augljósa kost
hefur áhugi á að nota leiðina verið
takmarkaður enn sem komið er.
„Það þarf að greiða hærri iðgjöld
af tryggingum skipa, sem sigla þessa
leið,“ sagði Blímov. „Ef bátur, sem
siglir í kjölfarið á ísbijót, er ekki
styrktur sérstaklega getur hann
hæglega skemmst í ísnum. Aðeins
Múrmansk-skipafélagið á skip, sem
eru þannig búin. Aðrir þyrftu að láta
breyta flota sínum.“ _
Gönguleióir á íslandi
Reykjanesskagi
ÚT ER komin bókin Reykjanes-
skagi í ritröðinni Gönguleiðir á
íslandi. Þetta er fjórða bókin
sem útgáfufélagið Víkingur
gefur út að meðtöldum þýðing-
um. Bókin eru endurútgáfa á
eldri bók, Suðvesturhornið,
Reykjanesskagi. Fyrirhugað er
að gefa bókina út á ensku og
þýsku vorið 1997.
Höfundurinn, Einar Þ. Guð-
johnsen, sem lést á síðasta ári,
var einn þekktasti ferðafrömuð-
ur landsins. Synir hans, Björn
og Sigurður, standa að útgáf-
unni, en sá síðarnefndi starfaði
mikið með föður sínum að
vinnslu bókarinnar.
í inngangi skrifar Einar:
„Það er enn sem fyrr, að í vali
íeiða byggi ég fyrst og fremst
á reynslu minni af gönguferðum
á þessu svæði. Þannig vel ég
helst þær leiðir sem ég hef sjálf-
ur gengið eða hefi horft á úr
fjarlægð. Það er augljóst að
gönguleiðum á Reykjanesskaga
verða aldrei gerð tæmandi skil,
alltaf má finna nýjar leiðir og
útúrdúra, sem gaman er að
kanna. Það er einmitt tilgangur
bókarinnar meðal annars að fá
fólk til að fara út að ganga og
hreyfa sig, bæði til heilsubótar
og til ánægjuauka."
Einar skildi eftir sig drög að
fleiri bókum og er markmið
Víkings að flúka því verki svo
úr verði heilstætt safn um
gönguleiðir á íslandi í máli,
myndum og með ítarlegum
skýringarkortum.
SUNNAN á skaganum — Karlinn á Reykjanesi.
Allar síður eru litprentaðar. í bókinni, örnefnaskrá og fjöldi
Yfirlitskort af hveiju svæði eru mynda. ■
Nýr umboðs-
maður
Home link
HJÖRDÍS Sigurðardóttir, tók nýlega
við sem umboðsmaður alþjóðlegu
heimilisskiptasamtakanna, Home
Link Intemational, á íslandi. Sam-
tökin hafa starfað frá 1953 og er
markmið starfseminnar að gefa fé-
lagsmönnum kost á að skipta um
heimili þegar ferðast er milli landa.
Félagar Home Link em yfir ellefu
þúsund frá um 25 löndum. Upplýs-
ingum um heimili þeirra, óskir um
frí og annað sem máli skiptir, er
safnað saman af umboðsmönnum
samtakanna og gefnar út á bókum.
Árgjald Home Link á íslandi er
6.000 krónur. Nánari upplýsingar
er hægt að fá hjá umboðsmanninum
í síma 5578303. Eins er hægt að
senda fyrirspumir í pósthólf 3384,
123 Reykjavík eða í tölvupóstfang
eliassig@centrum.is. ■