Morgunblaðið - 03.01.1997, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.1997, Page 1
■ ER FARSÍMINN AÐ VERÐA ÓMISSANDI VIÐ JÓLAINNKAUPIN7/2 ■ ÍS- LENSKUR STRÁKUR í FÆREYSKRI FERÐASÖGU/3 ■ LISTAHJÓN í VEST- /6 ■ MEÐ AUGUM LANDANS/7 ■ EGILSSAGA/8 ■ Saga kvenna HULIN undir sögu stofnanna, falin ofan í kössum, bak við orð og drauma liggur saga kvenna á Islandi. Sagan birtist í bréfum, dagbókum, ljóð- um og sjálfsævisögum sem fræðimenn eru byrjaðir að rýna í og skrifa um. Hugvísindakonum hef- ur vaxið ásmegin undan- farið og fræðin um konur fengið byr undir báða vængi. Kvennasögusafn Islands er orðið aðgengi- legft í Þjóðarbókhlöðunni og 30 eininga nám í kvennafræðum hafið göngu sína í Háskóla íslands. í blaðinu í dag er rætt við þijár konur um sögu kvenna í bréfum, bókum og hlutum, og hvers vegna þeirra saga er á bakvið, til hliðar og milli lína. á róandi lyfjum GERA má ráð fyrir að um eitt hundr- að hundar og nokkrir kettir hafí ver- ið undir áhrifum róandi lyfja hér á landi yfír nýliðin áramót. Að sögn dýralækna verða sum gæludýr, sér- staklega hundar, ofsahrædd þegar flugeldar springa með tilheyrandi lát- um, ljósagangi og reykjamekki . Að sögn Olafar Loftsdóttur, dýra- læknis í Víðidal, eru hundar þau dýr sem einna helst sýna merki um ofsa- hræðslu þegar sprengingamar byija. Í það minnsta hafí ekki aðrir en hund- eigendur fengið róandi lyf fyrir dýr sín. „Þessi mikla hræðsla lýsir sér meðal annars í því að hundamir byija að nötra þegar þeir heyra í flugeldum og fínna reykjamökkinn. Þeir æða fram og aftur, missa matarlyst og líður eins og himnarnir séu að hrynja." Elva Ágústsdóttir, dýralæknir á Akureyri, segir að tæplega 20 hund- eigendur hafí leitað til sín fyrir ára- mót og fengið róandi lyf fyrir hunda sína. Helga Finnsdóttir, dýralæknir í Reykjavík, segir að fjölmargir hund- eigendur hafí fengið róandi lyf hjá sér fyrir þessi áramót og enn fleiri ieitað upplýsinga. „Margir eigendur hvolpa vildu vita hvernig þeir ættu að meðhöndla hvolpinn yfír áramót. Ég ráðlegg fólki að leyfa fyrstu áramótum hunda að líða án þess að gefa þeim róandi lyf. Þá er hægt að fylgjast með hvolpinum og koma í veg fyrir að hann verði hræddur, til dæmis með því að sprengja hvorki knöll né annað innan dyra, halda hundinum innanhúss meðan verið er að sprengja flugelda, draga gluggatjöld fyrir glugga og tempra hávaða með því að hafa kveikt á útvarpi eða sjónvarpi. Ef hundur verður samt mjög hræddur er sjálf- sagt að gefa honum róandi lyf fyrir næstu áramót.“ Helga segir alþekkt að önnur dýr Lyfið er ekki vona- bindandi sýni hræðslueinkenni, hestar fæl- ist til dæmis gjarnan um áramót og dæmi séu um að hross í hesthúsum slasist þess vegna. Einnig segist hún hafa gefið köttum róandi lyf fyrir áramót, þótt mun sjaldgæfara sé að þeir fái róandi lyf en hund- ar. Að sögn dýralækna er gæludýrum fyrst og fremst gefið róandi lyf sem inniheld- ur acepromazin og er skylt geðlyfi sem mannfóikið notar. Finnbogi Rút- ur Hálfdánarson hjá Lyfjadreifingu, sem flytur inn slíkt lyf, segir að efn- ið valdi vöðvaslökun, það dragi úr hræðslu og kvíða og valdi svefn- kenndu ástandi. Virkni lyfsins varir í um 15 klukkustundir. „Lyfíð er ekki vanabindandi og hefur ekki aðr- ar aukaverkanir en þær að það getur lækkað blóðþrýsting.“ Kvenna- sögusaf n í Þjóðarbók- hlöðu We try harder? AVIS bílaleigan Sóltúni 5 Reykjavík 562 4433

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.