Morgunblaðið - 03.01.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 03.01.1997, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997 ILLUGI Björnsson afgreiðslumaður segir að margir nýti sér GSM-símann við jólainnkaupin. BRYNJÚLFUR Guðmunds- GUNNAR Möller talar í GSM-símann í Austurstrætinu. son með farsímann sinn. ^ EKKERTIáterá vinsældum qfi gallabuxna og ýmiss konar fatnaði úr gallaefni ef marka má nýjustu tískublöðin þetta árið. Gallaföt virðast sígild við flest tæki- færi og þykja tösk ur, skór og hattai úr galla- efni ómissandi fylgihlutir. Oft eru slíkir hlutir prýddir leður- bryddingum og öðru skrauti. Þær sem fjárfest hafa í fatnaði úr efni með mynstri áþekku dýrafeld- um á undanförn- um árum ættu líka að kætast því slíkar flík- ur virðast vera orðnar sígildar í alls konar útfærsl- um eins og sjá má á þessum myndum. Gallaefni og mynstur eins og dýrafeldir „SÆLL vertu, ég er í Kringlunni, að leita að jólagjöfum. Vildi bara vita hvort þú værir búinn að kaupa hangilærið... jú, jú, ég skal sjá um gjöfina handa mömmu. Sjáumst." Samtalinu er slitið og unga konan í leðuijakkanum stingur GSM-far- símanum í töskuna, heldur för sinni áfram um verslunarmiðstöðina og hverfur inn í eina búðina. Ofangreint samtal er reyndar hugarsmíð blaðamanns, en ef til vill ekki svo ijarri lagi. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins fóru nefnilega, eins og svo margir aðrir, í bæinn á Þorláksmessudag og kom- ust að því að ótrúlega margir voru að tala í GSM-farsímann sinn, mitt í jólaösinni. Umræðuefnin voru ekki alltaf brýn viðskiptaerindi, eins og í fyrstu mætti ætla, heldur voru margir að spjalla við vini og vanda- menn og sumir jafnvel að skipu- leggja jólainnkaupin. Þetta kom meðal annars fram í samtali við af- greiðslumenn nokkurra verslana í Reykjavík. Ein afgreiðslustúlkan sagði til dæmis frá því að hún hefði verið að afgreiða tvo pilta um dag- inn, á_ aldrinum sextán til sautján ára. „Á meðan ég afgreiddi þá, tóku þeir báðir upp GSM-símann og ræddu um partíið sem átti sér stað kvöldið áður. Ég gerði ítarlegar til- raunir til að segja þeim hvað varn- ingurinn kostaði, en þeir virtust ekki hafa neinn tíma til að tala við mig,“ sagði hún. GSM-síminn nauðsynlegur Illugi Björnsson, afgreiðslumaður í versluninni Habitat í Kringlunni, tók undir það að nokkuð margir hefðu nýtt sér GSM-símann við jóla- innkaupin. „Það eru áberandi marg- ir með farsímann á sér í verslunar- leiðangrinum. Þegar þeir sjá eitthvað sem þeir gætu hugsað sér að kaupa taka þeir gjarnan upp símann og hringja heim til að fá samþykki," sagði Illugi. „Margir eru þannig í beinu símasambandi við fjölskylduna á meðan á jólainnkaupunum stend- ur; hringja kannski heim til að lýsa í Austurstræti var Gunnar Möller, hljóðmaður, að tala við kunningja sinn. Það er náttúrlega ekki í frásög- ur færandi, nema hvað hann þurfti að svara öðru hvoru í GSM-farsím- ann sinn. Gunnar svalaði forvitpi blaðamanns og sagðist nota farsírrff ann bæði í vinnunni og tii einkáS- nota. „Ég hef notað farsíma í rúm þijú ár og finnst hann ómissandii Vinnan mín snýst mikið um það að hafa samskipti við annað fólk og því er þó nokkuð hringt í mig, en einnif hringi ég mikið úr símanum," sagði hann. Gunnar játaði þó að honuriív fyndist stressandi að vera með sím-' ann stöðugt á sér. Hann hafði varla sleppt orðinu þegar hinn umtalaði GSM-sími hringdi. Gunnar kíkti á símann sem sýndi númer þess sem hringdi og sagði við blaðamann að hann myndi hringja í viðkomandi á eftir, svo hægt væri að halda samtal- inu áfram. „Ég slekk þó stundum á símanum þegar ég er í miklu fjöl- menni. Til dæmis þegar ég er í bíó eða í kirkju,“ sagði hann afsakandi. Gunnar viðurkenndi að GSM-sím- inn hefði komið sér vel í jólainnkaup- unum. „Það er mjög gott að geta hringt heim úr bænum til að athuga hvernig gjafir ég á að kaupa. Áðan hringdi ég til að mynda í mömmu til að athuga hvað systir mín vildi í jólagjöf," sagði hann. Dýrt að hringja úr GSM-símanum Á kaffihúsum borgarinnar var ekki minna um GSM-farsíma og algengt að sjá menn rabba í símann á meðan þeir supu á kaffinu. Gísli Jóhannes- son, þjónustustjóri, var einn þeirra sem var með GSM-símann sér við hlið er hann snæddi hádegisverð á Sólon Islandus ásamt vini sínum. Hann sagði að GSM-síminn væri í eigu fyrirtækisins og eingöngu ætl- aður til þess að auðvelda viðskipta- mönnum að ná í sig þegar hann þyrfti að bregða sér frá. „Mér finnst alls ekki stressandi að vera með GSM-símann á mér,“ sagði Gísli. „Það er þvert á móti afar þægi- F arsíminn ómissandi við jólainnkaupin? hugsanlegri gjöf og athuga hvort þeir eigi að kaupa hana,“ sagði hann. Brynjúlfur Guðmundsson verslunar- maður var einn þeirra sem var að gera jólainnkaupin í Kringlunni á Þorláksmessu þegar blaðamann og ljósmyndara bar að. Brynjúlfur var með GSM-símann við hönd, að sjálf- sögðu ... eða hvað? „Jú, ég tek hann alltaf með mér hvert sem ég fer. Það er mjög þægilegt ef eitt- hvað skyldi koma upp á í vinnunni," sagði Brynjúlfur, en áréttaði að hann noti GSM-símann annars mjög lítið til einkanota. „Þeir sem hafa númer- ið að honum eru aðeins nánustu samstarfsmenn og vinir,“ sagði hann, og bætti því við að honum fyndist það engan veginn stressandi að vera með farsímann hvert sem hann færi. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir ALGENGT er að sjá menn spjalla í GSM-símann sinn á kaffihúsum í dag og stundum jafnvel tvo við sama borð að tala í sitthvorn símann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.