Morgunblaðið - 03.01.1997, Side 5

Morgunblaðið - 03.01.1997, Side 5
- 4- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997 C 5 DAGLEGT LÍF SAGAN í konfektkössum. að valda dætrum sínum óham- ingju. Onnur er að hugsa mik- ið og vel um dótturina, hin að hugsa lítið eða ekki um hana,“ segir hún vegna tilhneigingu dætra til að rekja óhamingju sína til móður sinnar. Sjálfsævisögurnar sem Ragnhildur fjallaði um eru frá þriðja áratug aldarinnar og eru eftir Ólafíu Jóhannsdóttur (1863-1924), Ingunni Jónsdótt- ur frá Kornsá(1855-1947)og Guðbjörgu Jónsdóttur frá Broddanesi (1871-1952). „Það fyrsta sem vekur at- hygli er að konurnar lýsa sam- bandi við mæður sínar, og að þær tvær sem eignuðustu dæt- ur hafa engan áhuga á að lýsa sambandinu við dætur sínar,“ segir hún. Hér verður vitnað í texta Ragnhildar um Guðbjörgu Jónsdóttur: „Langar og miklar samvistir við móðurina, bæði andlegar og líkamlegar, koma í veg fyrir að dóttirin geti notið sín ein þótt hún þrái það. Yfirþyrmandi nálægð móður- innar hefur þannig veikt jálfsmynd dótturinnar. Eins og Ingunn og Ólafía notar Guðbjörg rúm til að tákna þrá eftir Hkamlegri ná- lægð móður sinnar. Rúmið minnir á móðurlífið, fyrstu hvílu barnsins og algjört sam- líf móður og barns. Þrá eftir þessu samlífi lýsa allar kon- urnar. Þrá þeirra Ingunnar og Ólafíu sprettur af fjarveru móðurinnar en þrá Guðbjargar af yfirþyrmandi nærveru móð- ur. Sameiginlegt konunum þremur er að þær lýsa flókn tengslum sem þær reyna að vinna úr og skilja með því að skrifa um þau í sjálfsævisögui sínum og það held ég að allar konur sem skrifa um líf sitt eigi sameiginlegt," sagði Ragnhildur að lokum. ■ Flókið samband móður og dóttur NÝLEGA var kvöldvaka á veg- um Kvennasögusafns íslands með erindum, söng og ljóðum. Ragnhildur Richter cand. mag flutti erindi um mæður og dætur í sjálfsævisögum kvenna, en hún er að búa texta um efnið í bók. Um er að ræða fyrstu sjálfsævisögurnar sem konur rituðu og eru þær frá þessari öld. „Samband móður og di er flóknasta sambandið í mannlegum samskiþtum sem ég þekki,“ segir hún. „Það má vera að kona sem hefur upplif- að óvanalega flókið samband við móður sína sé líklegri til að skrifa um líf sitt en aðrar konur og þess vegna birti sjálf- sævisögur kvenna okkur óeðli- lega flókna mynd af samband- inu. Ég held þó að svo sé ekki. Ég held að mæðgnasambandið reynist öllum dætrum flókið og að í sjálfsævisögunni reyni dóttirin að greiða úr flækj- unni.“ Ragnhildur fjallaði í erindi sínu um hvernig þrjár íslensk- ar konur lýsa sambandi móður og dóttur í sjálfsævisögum sín- um. „Af sjálfsævisögum kvenna að dæma virðast mæð- ur einkum hafa tvær Ieiðir til K' Morgunblaðið/Golli 1. SKRIFBORÐ og stóll Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og ritvél Laufeyjar dóttur hennar. SAUMAVÉL Guðnýjar Guðmundsdóttur var með þeim fyrstu sem komu til landsins. 2. Briet Bjarnhéðinsdóttir. sér grein fyrir mikilvægi þess. Það sem virðist gildislaust feli oft í sér gagnlegar upplýsingar. Hún hvetur því fólk til að gefa Kvennasögu- safninu gömul bréf og dagbækur í stað þess að henda þeim. Hún bendir á að hægt sé að setja inn- sigli á þau með skilyrði um að þau verði ekki opnuð til dæmis fyrr en eftir 30 ár. Saga kvenna tll hliðar og bak við Helvi Sipila, framkvæmdastjóri Alþjóða kvennaárs Sameinuðu þjóðanna, hvatti til stofnunar kvennasögusafna í sem flestum löndum. Hér var áskoruninni tekið af dr. Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur, 1. janúar 1975. Bókaeign safnsins er nú innan um aðrar bækur á Landsbókasafn- inu, en sérmerkt. Á skrifstofunni eru öskjur með ýmsum pappírum, greinum, fundagerðarbækur, bréf og handrit. Erla Hulda segir að þegar saga alþýðunnar sé rannsökuð þurfi að skoða dagbækur, bréf og aðrar perónulegar heimildir og það gera þeir sem stunda kvennarannsóknir. Heimildirnar eru á víð og dreif um landið, bæði skráðar og óskráðar á héraðskjalasöfnum og í heimahús- um, en það er einmitt verk Erlu að safna í sarpinn og gera Kvenna- sögusafnið að miðstöð þeirra sem leggja stund á kvennasögurann- sóknir. „Sagnfræðingurinn þarf að T leita til hliðar við og bak við stofn- anasöguna, sem er saga karlaveld- is, embættismanna, til að finna sögu konunnar." Kvehnasögusöfn eins og í Sví- þjóð, Finnlandi og Danmörku era öll á vegum ríkisins. Hér á landi er það sjálfstæð stofnun sem stend- ur og fellur með áhuga kvenna og karla um að safnið ræki hlutverk sitt, að safna, skrá og varðveita og miðla þekkingu um sögu kvenna. En þess má geta að fjár- laganefnd Alþingis veitti nú rétt fyrir jól einni milljón króna til rekst- urs Kvennasögusafns íslands árið 1997. Kvennasögusafnið á ekkert stöðugildi við Landsbókasafnið, en stjóm Kvennasögusafnsins greiðir forstöðumanninum laun af styrkj- um sem hún aflar sér. í stjórninni eru Sigríður Th. Erlendsdóttir, Stefanía Pétursdóttir og Erna Sverrisdóttir. Sýníng úr sögu kvenna Sýning á vegum Kvennasögu- safnsins stendur fram í miðjan jan- úar og er á 2. hæðinni í Þjóðarbók- hlöðunni. Elsa Ævarsdóttir arki- tekt hjálpaði til við að setja hana upp. Þar er meðal annars að finna dæmi um hvernig konur geyma ritaðar heimildir um líf sitt, í dósum og jafnvel innan í klósettpappírs- og eldhúsrúllum. Dr. Anna Sigurð- ardóttir sagðist ekki hafa safnað heldur bara ekki hent neinu. Á sýningunni er meðal annarra muna handsnúin saumavél Guðnýj- ar Guðmundsdóttur, 1859-1948, en fyrsta vélin kom til landsins uppúr 1860. Sýnishom af tímaritum kvenna: Framsókn sem kom fyrst út 1895 á Seyðisfirði. Það var kvenréttinda- og bindindisblað og beitti sér með- al annars fyrir að konur misstu ekki fjárráð sín við giftingu, en fjárráð fengu þær 25 ára gamlar. Bríet Bjamhéðinsdóttir ritstýrði hinu blaðinu, sem nefndist Kvenna- blaðið og varð það mest selda tíma- ritið á landinu. Á sýningunni er einmitt að finna skrifborð og stól Bríetar ásamt rit- vél dóttur hennar, Laufeyjar Valdi- marsdóttur. ■',

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.