Morgunblaðið - 03.01.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 03.01.1997, Síða 6
6 C FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF < i j i Listahjón í V estmannaeyjum Heimili hjónanna Öldu Björnsdóttur, listakonu og Hilmars Högnason- ar, hagyrðings og hag- leiksmanns í Vest- mannaeyjum er nokk- urs konar listvinnu- stofa, segir Grímur Gíslason sem heimsótti listahjónin ásamt Sigurgeiri Jónassyni, Ijósmyndara. ALDA og Hilmar hafa í samein- ingu unnið að gerð ýmissa list- muna sem eru seldir í Gallerí Hei- malist í Vestmannaeyjum, en það er rekið af nokkrum aðilum sem útbúa og selja minjagripi og ýmis- legt annað handverk. Alda hefur fengist við ýmiskonar list í gegn- um árin og bóndi hennar hefur létt undir með henni til að gera henni mögulegt að stunda listina sem mest. Hann er einnig lisfeng- inn og smíðar ýmsa fallega muni auk þess sem hann er hagmæltur og hefur á síðari árum safnað ljóð- um sínum saman og skráð þau. Morgunblaðið heimsótti hjónin á heimili sínu, sunnudagseftirmið- dag fyrir skömmu, og tók Alda á móti gestum með pijóna í hendi, en við borðstofuborðið sat Hilmir við að útbúa lundakarla. Á borðinu stóðu þrír fullgerðir lundakarlar, sem þau hjón útbúa og selja, auk efniviðs í nokkra lundakarla til viðbótar og Alda var einmitt með geysu á einn slíkan á pijónunum. Á borðinu lá einnig þykk bók sem geymir ljóðagerð Hilmis. Brennandi löngun til aö mála Alda hefur fengist við ýmis- konar listsköpun frá unglings- árum. „Ég hafði alltaf brenn- andi löngun til að mál aði ung að fikta við man þegar ég var barn þá voru listmálarar oft með trön- rar sínar að mála niðri í bæ og ég hafði ákaflega gaman af að fylgjast með þeim,“ sagði Alda. „Ég byijaði síð- an að fikta við að mála eitt- hvað sem heitið getur þegar ég var 18 ára. Þá ’ að passa börn hjá Gránz, eldri, og var eitt- hvað að dunda mér við að teikna. Ólafur sá teikn- ingar mínar og bauðst til að taka mig í tíma og kenna mér að mála, sem thann og gerði,“ segir Alda um upphaf þess að hún fór að fást við myndlistina. Hún seg- ist síðar hafa farið á tvö námskeið í myndlist hjá Bjarna Jónssyni og á eitt nám- skeið hjá Veturliða Gunnarssyni, GESTABÓK sem Hilmir smíð- aði og Alda myndskreytti. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson LUNDAKARLARNIR sem þau hjón Alda og Hilmir útbúa í sameiningu. þar með er upp talið Öldu í listinni, því henni fannst hún ekki hafa tíma til að fara í frekara listnám. Meö trönurnar vlö eldavéllna Alda og Hilmir byijuðu búskap er Alda var 18 ára og eignuðust þau 8 börn. „Við gáfum prestinum heiti um það er við giftum okkar að vera fijósöm og uppfylla jörðina og ég held að við höfum bara staðið þokkalega við það loforð," segir Hilmir. Alda eignaðist fyrsta barnið er hún var 19 ára og eins og gefur að skilja var nóg að gera á barn- mörgu heimili. „Eg fór út af vinnu- markaðnum 18 ára en hef samt alla tíð verið í fullu starfi heima fyrir og hef reynt að nýta allan tíma sem mér hefur gefist til að sinna listáhuga mínum. Það var oft lítill tími aflögu, enda stórt heimili en með aðstoð Hilmis tókst mér alltaf að finna einhvern tíma. Ég var oft með trönurnar við elda- vélina eða í stofunni og greip í þetta með heimilisstörfunum og svo nýtti ég auðvitað tímann seint á kvöldin þegar krakkarnir voru farnir að sofa.“ „Ég fór upp með börnin og kom þeim í rúmið og las síðan úr ein- hverri sögu eftir Kiljan fyrir þau því ég var búinn að finna það út að þá voru þau fljót að sofna. Þeim hefur trúlega þótt lesturinn frekar leiðinlegur, enda varla barnaefni, en þetta virkaði vel til að svæfa þau og svo komst ég líka yfir að lesa talsvert eftir nóbels- skáldið með þessu móti,“ skýtur Hilmir hlæjandi inní. Málaðl veggteppl Alda hefur haldið nokkrar sýn- ingar á málverkum sínum og síð- ast sýndi hún er veitingastaðurinn Gallerí Pizza var opnaður á Hvols- velli í sumar. En Álda hefur ekki bara fengist við að mála á hefð- bundinn hátt. Hún er þekkt fyrir að mála á flauel, bæði dúka og veggteppi og segir sérstaka ástæðu fyrir því. „Eg var 18 ára þegar ég byijaði að mála á flau- el. Hilmir hafði gefið mér fallega hillu með því skilyrði að ég saum- aði vejggtappi til að hafa við hill- una. Eg vildi standa við að útbúa veggteppi en eftir að hafa aðeins velt þessu fyrir mér sá ég að ég yrði mun fljótari að mála teppi en að sauma það. Ég fór því niður í bæ, keypti flauel og málaði mynd af sveitabæ og hestum á það og var því komin með fínasta veggteppi. Þegar fólk sá þetta lík- aði því svo vel að það var farið að falast eftir að ég málaði svona fyrir það og þannig vatt þetta upp á sig.“ Alda segist alltaf hafa þurft að fá útrás fyrir að skapa eitthvað og oft hafi hún búið til ágætis muni án þess að efnið í þá kost- aði mikið. „Einu sinni datt mér í hug að útbúa gólfvasa úr gömlum blómapottum sem ég raðaði sam- an og skreytti síðan með brotum úr undirskálum og fleiru sem ég muldi niður og límdi á. pottana. Tveir kaupmenn sáu þessa vasa hjá mér og urðu svo hrifnir af að annar fékk þá til sölu í verslun sinni og seldi marga," segir Alda. Lundakarl í jólasvelnabúnlngi Alda og Hilmir tóku ásamt fleiri áhugamönnum um handverk þátt í að koma heimilisiðnaðargallerí- inu Heimalist í Vestmannaeyjum á fót fyrir nokkrum árum og hafa selt verk sín þar. Lundakarlarnir sem þau eru með á borðstofuborð- inu eru meðal þess sem þau hafa útbúið og selt í Galleríinu, en þau byijuðu að útbúa þá þegar Hilmir varð að láta af störfum sem ráðs- maður á sjúkrahúsinu fyrir fjórum árum þegar hann varð sjötugur. Hilmir mótar lundakarlana úr vír sem Alda vefur síðan með lopa. Haus úr leir er mótaður og settur á grindina en síðan pijónar Alda peysu, húfu og vettlinga á karlana og saumar á þá gallabuxur. Hilm- ir útbýr lundaháfinn, lundann í netið, finnur gijót úr Eldfells- hrauni sem karlinn. situr á og býr til plötu sem þetta festist á. Fyrstu lundaháfana bjó Hilmir til úr sköftum af gömlum málning- arpenslum frá Öldu en síðar fór hann að búa þá til úr bambus sem hann klauf í litlar ræmur. „Þessir karlar hafa fengið mjög góðar viðtökur. Útlendingarnir sem koma í Gallerí Heimalist, eru mjög hrifnir af þeim og kaupa gjarnan. Til dæmis keyptu útlend- ingar tvo fyrstu karlana sem við gerðum. Annar fór til Þýskalands en hinn til Afríku. Fyrir nokkru kom hérna bandarísk kona sem keypti svona lundakarl og hafði með sér vestur um haf. Hún hafði svo samband við okkur eftir að hún var komin heim og bað mig um að útbúa annan lundakarl fyr- ir sig en vildi að hann yrði hafður í jólasveinabúningi, því hún ætlaði að nota hann til að skreyta stofuna hjá sér um jólin. Ég brást auðvitað vel við þessu. Pijónaði jólasveina- búning og klæddi lundakarlinn í, þó að mér þætti hálf skrýtið að il

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.