Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 2
2 C LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 C 3 URSLIT KFI - Skallagr. 66:67 íþróttahúsið Torfunesi, 12. umferð úrvals- deildarinnar í körfuknattleik, föstudaginn 10. janúar 1996. Gangur leiksins: 0:2, 11:12, 16:16, 23:27, 26:32, 28:32, 30:41, 39:45, 55:55, 60:63, 66:67. Stig KFÍ: Guðni Guðnason 19, Baldur Jón- asson 18, Friðrik Stefánsson 18, Andrew Vallejo 6, Hrafn Kristjánsson 3, Ingimar Guðmundsson 2. Fráköst: 17 í vörn - 14 í sókn. Stig Skallgríms: Joe Rhett 33, Bragi Magnússon 15, Tómas Holton 8, Jón Páll Halldórsson 6, Jóhann Bjamason 3, Gunnar Þorsteinsson 2. Fráköst: 27 í vörn - 1 í sókn. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögnvald- ur Hreiðarsson. Ágætir. Villur: KFÍ 14 - UMFS 18. Áhorfendur: Um 500. 1.DEILD KVENNA IR - KEFLAVIK.................46:106 IS- UMFN......................67:40 Fj. leikja U T Stig Stig KEFLAVÍK 9 9 0 806: 438 18 KR 8 7 1 561: 387 14 ís 10 6 4 579: 462 12 UMFG 9 5 4 628: 575 10 UMFN 9 3 6 496: 631 6 ÍR 10 2 8 445: 833 4 BREIÐABLIK 9 0 9 429: 618 0 NBA-deildin Toronto-Utah................110: 96 New Jersey - Minnesota......107:110 Orlando - Atlanta........... 92: 97 • Eftir framlengingu. Vancouver-Golden State...... 86:102 KA-KR 25:21 KA-heimilið, 8-liða úrslit bikarkeppninnar, föstudaginn 10. janúar 1997. Gangur ieiksins: 3:0, 6:2, 10:4, 11:7, 13:9, 14:11, 17:12, 18:15, 21:17, 24:18, 24:21, 25;21. Mörk KA: Sergei Ziza 5/1, Heiðmar Felix- son 5, Jakob Jónsson 4, Jóhann Jóhannsson 3, Julian Duranona 2, Leó Örn Þorleifsson 2, Sævar Árnason 2, Björgvin Björgvinsson 1, Þorvaldur Þorvaldsson 1. Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 9/2, þar af 1 til mótheija, Hermann Karlsson 1. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk KR: Eiríkur Þorláksson 6, Ágúst Jóhansson 4/1, Gylfí Gylfason 3, Anton G. Pálsson 2, Geir Aðalsteinsson 2, Hörður Gylfason 3, Kristján Þorsteinsson 1. Varin skot: Eggert Sigmundsson 10, þar af 2 til mótheija. Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Egill Már og Öm Markússynir. Áhorfendur: 508 Knattspyrna England 1. deild: Stoke - Birmingham..............1:0 Tranmere - Swindon..............2:1 Badminton Evrópumót b-þjóða Island tapaði fyrir Frakklandi 0:5 í Stras- borug í gær. íslenska landsliðið leikur um 5.-8. sæti um helgina og verður fyrst leikið gegn Noregi í dag. Íshokkí NHL-deildin Boston - Montreal..............5:4 Ottawa - Colorado..............0:2 Philadelphia - Tampa Bay.......1:3 Washington 2 Ny Rangers........2:0 Phoenix - Detroit..............4:5 • Eftir framlengingu. Calgary - Hartford.............3:2 Los Angeles - Buffalo..........6:3 San Jose - St Louis............3:4 FELAGSLIF Kynning á Aikido SÝNING og kynning á sjálfsvarnar- íþróttinni Aikido verður í Laugar- dalshöll í dag, laugardag, kl. 13 og eru allir velkomnir. Gengið er inn um suðurinngang hallarinnar, en sýningin er haldin í tengslum við námskeið sem hefst á mánudaginn. KORFUKNATTLEIKUR KORFUKNATTLEIKUR Joe Rhett byrjar vel KFÍ og Skallagrímur mættust í úrvalsdeildinni á ísafirið í gær- kvöldi og höfðu Borgnesingar betur, 66:67. Leikurinn var Þár í járnum framan af Pétursson fyrri hálfleik en þeg- skrifarfrá ar staðan var 16:16 Isafirði fékk Friðrik Stefáns- son sína þriðju villu og var tekinn útaf og það nýttu gestirnir sér og höfðu 32:26 forystu í leikhléi. í upphafi síðari hálfleiks héldu Borgnesingar áfram að auka muninn og komust mest í 11 stiga forystu, 30:41. Þá tóku heimamenn sig á og komust 50:49 yfir er tæpar 8 mínút- ur voru eftir. Eftir það var leikurinn jafn og æsispennandi og er staðan var 65:67 og 5 sekúndur eftir fékk Tómas Holton, þjálfari Skallagríms, tvö vítaskot sem hann misnotaði. ísfirðingar náðu boltanum, brunuðu fram og brotið var á Guðna Guðna- syni, þjálfara KFÍ, um leið og leik- tíminn rann út. Hann gat því jafnað en misnotaði annað vítaskotið þann- ig að Borgnesingar fögnuðu eins stigs sigri. Guðni og Friðrik voru bestir í liði KFÍ en Rhett og Tómas hjá Skalla- grími og einnig má minnast á Emil Sigurðsson, fimmtán ára Borgnes- ing, sem lék sinn fyrsta leik í úrvals- deild. Hann var í byrjunarliði Skalla- gríms og skilaði sínu mjög vel, sér- lega sterkur í vörninni. Þess má geta að Derrick Bryant var meiddur og lék ekki með ísfirðingum, en hann skorar mjög mikið. Borgnes- ingar léku án þeirra sex leikmanna sem settir voru í bann vegna aga- brots. Rhett er sterkur leikmaður sem hitti svo til alltaf þegar hann skaut. Borgnesingar þurftu því ekki að taka mörg fráköst í sókninni, aðeins eitt. Fj. leikja u T Stig Stig KEFLAVÍK 12 10 2 1178: 1011 20 UMFG 12 10 2 1171: 1070 20 HAUKAR 12 8 4 1035: 993 16 ÍA 12 8 4 914: 893 16 UMFN 11 7 4 947: 895 14 KR 12 6 6 1068: 1008 12 ÍR 12 6 6 1046: 1013 12 SKALLAGR. 12 5 7 941: 1020 10 KFÍ 12 4 8 937: 1009 8 UMFT 12 4 8 982: 996 8 ÞÓR 12 3 9 934: 1034 6 BREIÐABLIK 11 0 11 810: 1021 0 TómasTómasson, umboðsmaður körfuknattleiksmanna, segist ekki hafa nægilega mikið vit á viðskiptum til að verða ríkur á að flytja inn erlenda leikmenn Við erum á láglaunasvæði Talsvert hefur verið rætt að undanförnu um hin öru skipti á erlendum leikmönnum í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik. Skúli Unnar Sveinsson ræddi við Tómas Tómasson úr Keflavík, en hann er annar tveggja íslendinga sem sjá um að útvega liðunum erlenda leikmenn. Tómas segir meðal annars að ísland sé láglaunasvæði hvað varðar laun körfuknattleiksmanna, en hann hefur selt leikmenn til nokkurra Evrópulanda, meðal annars Júgóslavíu og Litháen. Tómas er Keflvíkingur í húð og hár, spilaði með yngri flokkum ÍBK í körfu en var þó meira í fót- boltanum. „Ég byijaði að fylgjast með körfu af lífí og sál þegar liðin fyrir sunnan fóru að geta eitthvað. Ég hélt fyrst með Njarðvíkingum en var fljótur að skipta yfir á Kefla- vík þegar við fórum _að geta eitt- hvað,“ segir Tómas. Áhugi hans á körfuknattleik jókst stöðugt og ekki hvað síst á háskólaboltanum í Bandaríkjunum, sem hann segir miklu skemmtilegri og skipulagðari en NBA-deildina. Hann las allt sem hann kom höndum yfir um körfu- knattleik og fyrir fjórum til fimm árum hófst umboðsmannsferill hans. Les körfubækur fyrir svefninn „Ég komst yfir bækur með tölu- legum upplýsingum um allflesta leikmenn í háskólaboltanum og síð- an þegar liðin hér voru að leita að erlendum leikmönnum var leitað til mín og ég benti á nokkra leikmenn sem komu til greina. Þjálfari sem ég þekki í Bandaríkjunum útvegaði mér bækur þar sem allar upplýs- ingar eru um alla sem leikið hafa með fimmtíu bestu háskólaliðunum og þarna má finna allar upplýs- ingar. Bandaríkjamenn eru mikið fyrir tölulegar uppýsingar og í þess- um doðröntum finnur maður allt, liggur við að tiltekið sé hvernig nærfötum leikmenn klæðast. Þessar bækur eru gerðar fyrir þjálfara og hafa verið gefnar út allt frá árinu 1982 og ég á þær allar. Það varð algjör bylting þegar ég fékk bæk- urnar og ég les í þeim á hverjum degi. Þær eru eins og Bíblían fyrir mig, ég hef eina á náttborðinu og les á hveiju kvöldi áður en ég fer að sofa. Síðan hefur þetta hlaðið utan á sig og nú er ég kominn með leik- menn í Finnlandi, Júgóslavíu, Lithá- en, Svíþjóð og í Belgíu auk þess sem ég er með nokkra hér á landi. Þeir íslendingar sem hafa farið út að leika, Guðmundur, Herbert og Teit- ur, fóru einnig á mínum vegum og raunar annarra umboðsmanna er- lendis. Upplýsingarnar í bókunum eru réttar, en því miður vill brenna við að sumir umboðsmenn „lag- færi“ tölurnar þannig að menn sem eiga að vera mjög góðir geta ekk- ert þegar á reynir. Svo getur það einnig gerst að leikmenn sem voru góðir í skóla hafa lítið verið í körfu HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN Greið leið hjá KA Leið bikarmeistara KA var greið í undanúrslit bikarkeppninnar. Liðið mætti KR á Akureyri í gær- ■■■■■■ kvöldi og voru gest- ReynirB. irnir ekki mikil Eiríksson hindrun fyrir heima- skrifarfrá menn sem fóru með Akureyri .. . - oruggan sigur af hólmi, 25:21. Þrátt fyrir að mörkin sem skildu liðin að í lokin væru aðeins fjögur var getumunur þeirra mun meiri og aldrei spurning hverra yrði sigurinn. KA byijaði leikinn af krafti og um miðjan hálfleikinn höfðu þeir gert 10 mörk gegn 4 mörkum gest- anna og eftir það var sigurinn aldr- ei í hættu. í upphafi síðari hálfleiks náðu KR-ingar að minnka muninn í tvö mörk en nær komust þeir ekki og KA-menn skoruðu næstu þijú mörk og juku muninn í 5 mörk en það var sá markafjöldi sem skildi liðin af lengstum í leiknum. Hjá KA fengu allir leikmenn liðs- ins að spila og að þessu sinni sátu lykilmenn langtímum saman á bekknum á meðan reynsluminni ^j^j^^Líkamsrækt^^^^ Listgrein R Sjálfsagi A Byrjendaæfingar hjá Þórshamri hefjast þriðjudag 14. janúar. m Barna-, unglinga-, og fullorðinsflokkar. Lipuró leikmenn fengu að spreyta sig. Lið- ið lék þokkalega og hefði sigur þeirra getað orðið mun stærri. Leik- menn KA voru jafnir í leiknum, en vert er þó að minnast nýliðans Harðar Flóka Ólafssonar sem kom í markið í seinnihluta fyrri hálfleiks og varði hann vel. KR-liðið var ekki uppá marga fiska í leiknum og greinilegt að þar fór lið sem vantar talsvert til þess að eiga möguleika gegn liði eins og KA. Ekki skal þó af þeim tekið að þeir börðust vel og sýndu KA enga virðingu. T Sjálfsvörn £ tP Q Karatefélagið Þórshamar síðustu mánuðina og jafnvel lent í einhvetju sem maður veit ekki um.“ En er ekki sniðugra fyrir íslensk iið að fara til Bandaríkjanna og skoða ieikmennina þegar þeir eru í sérstökum búðum, eða á markaði, tii að sýna sig? Þar geta menn séð hvað leikmennirnir geta og komist hjá því að kaupa köttinn í sekknum. Var eins og blöðruselur „Þessar búðir eru ekki eins al- gengar og þær voru og þær eru mun lakari en áður. Þarna koma mestmegnis leikmenn úr neðri deildunum í háskólaboltanum en hinir, sem eitthvað geta, eru um- setnir þannig að lið græða ekki svo mikið á að fara á þessa „markaði". Menn geta aldrei verið alveg örugg- ir um að leikmenn, sem eru með góðar tölur í skóla, geti eitthvað þegar þeir koma hingað. Þeir hafa ef til vill lagst í sukk og svínarí áður en þeir koma og geta ekkert þegar á hólminn er komið. Eddie Collins, sem kom eitt sinn til Snæ- fells, var mjög góður í háskólaliði sínu en hafði ekki ieikið í eitt ár þegar hann kom hingað og var eins og blöðruselur þegar hann kom og gat ekki neitt. Því miður er ekkert skothelt í þessum málum frekar en öðrurn." Umboðsmenn taka 10% af kaup- verði leikmanna. Ertu ekki orðinn vel efnaður af þessu? „Nei, langt frá því. Það er hálf- gerð sveitamennska í þessu hér ennþá og þó svo liðin eigi að greiða 10% þá gengur svona og svona að fá það greitt. Ef maður væri nógu harður í að rukka með aðstoð lög- fræðinga gæti maður sjálfsagt haft eitthvað upp í símreikningana, sem eru rosalega háir, en ég nenni því ekki, er trúlega ekki nógu harður af mér í viðskiptum. Oftar en ekki ýta menn því á undan sér að greiða og ef það dregst á milli ára er oft búið að skipta um stjórn og þá er fjandinn laus, fyrrum formaður kannski orðinn vörubílstjóri á Sel- fossi eða eitthvað. Nokkur lið eru þó traust og standa við sitt. Það er talað um að við eigum að fá 10% af því sem liðin greiða Morgunblaðið/Július KEFLVÍKINGURINN Tómas Tómasson hefur séö um að útvega mörgum körfuknattleiksfélögum erlenda leikmenn og ætlar aö færa ennfrekar út kvíarnar á næstu árum. fyrir leikmennina en ég hef það fyrir reglu að ef leikmaður kemur aftur næsta ár tek ég ekkert fyrir það. Er- lendir umboðsmenn eru hins vegar flestir harðir á því að hver samningur sé aðeins til eins árs og því þarf að greiða árlega til þeirra þó svo sami leikmaðurinn spili í mörg ár með sama liðinu.“ Góöir miðað við verð Hvað fá erlendu leikmennirnir greitt fyrir að leika hér á iandi? „Við erum á láglaunasvæði hvað þetta varðar, en ég held samt að mér hafi tekist að fá hingað leikmenn sem eru það góðir að þeir ættu ekki að leika hér miðað við hvað þeir fá greitt. Ég nefni sem dæmi Taft, sem var hjá Val. Hann fór aldrei neðar en í áttunda sæti í stigaskorun þau fjögur ár sem hann var í háskóla og gerði 26 stig að meðaltali í leik. Fleiri góðir leikmenn hafa komið hingað og ekki sýnt það sem búast hefði mátt við af þeim. Ein ástæða fyrir því er að þeir fá ekki greidd laun og þetta eru atvinnumenn sem leggja sig ekki fram nema staðið sé við samninginn. Því miður eiga flest liðin hér alltaf í vandræðum með að greiða það sem samið er um. Það hefur verið lausn hjá sumum félögum að skipta um erlendan leik- mann, það er oftast auðveldasta lausn- in ef illa gengur. Það hlýtur að vera menningarsjokk fyrir þessa stráka að koma til íslands. Þeir eru ungir og margir að fara að heiman í fyrsta sinn og þó svo þetta séu stórir og miklir menn þá eru þeir í raun litlir margir hveijir þegar betur er að gáð. Hjá sumum liðum getur verið fjár- hagslega hagkvæmt að skipta um er- lendan leikmann því áhorfendum fjjölg- ar þegar nýr leikmaður kemur og það borgar kostnaðinn við að skipta, til dæmis eins og hjá Grindvíkingum í fyrra þegar Dobard kom. Menn eru stundum lengi að komast inn í leikinn hér og stundum eru félögin fullfljót að láta þá fara. Dobard var til dæmis hlægilegur í fyrstu leikjunum en svo sannaði hann sig heldur betur. Ég var búinn að vera með hann á lista hjá mér í mörg ár, en hann vildi aldrei koma til íslands, fyrr en í fýrra. Rondey var trúlega einn lélegasti erlendi leikmað- urinn sem ég hef séð, en hann sannaði sig og stóð sig frábærlega. Hvað kostar það fyrir félag að fá erlendan leikmann? Er það eitthvað meira en íslenskir leikmenn eru að fá? „Ég veit það ekki nákvæmlega, en þó gæti ég trúað að bestu íslensku leik- mennirnir séu að fá svipuð laun og flestir erlendu leikmennirnir. Það kost- ar auðvitað dálítið að fá leikmenn frá Bandaríkjunum. Flugið er eitthvað á bilinu 50 til 80 þúsund, eftir því hvaðan þeir koma. Síðan þarf að fá leyfi til að leika og það kostar rúman átta þus- und kall og síðan 28 þúsund fyrir Íeyfi frá FIBA og gjald til KKÍ. Flestir leik- mennirnir eru að fá eitthvað um 2.000 dollara (134.000) á mánuði og þetta er það sem það kostar lið að fá erlend- an leikmann. Einn helsti kosturinn við að biðja okkur um að útvega leikmann er að við vitum hvað leikmenn kosta en sum- ir erlendir umboðsmenn byija á að spyija hvernig leikmenn þú viljir. Síðan hversu miklu þú vilt kosta til og ef þú ert svo einfaldur að segja t.d. 4.000 dollara sendir hann þér leikmann sem ætti ekki að kosta nema rúma 2.000 dollara og hirðir síðan mismuninn sjálf- ur. Eitt besta dæmið er Jeff Johnson hjá Tindastóli sem mér skilst að hafi verið með 4.000 dollara. Hann stóð alls ekki undir því. Joe Rhett, sem var að koma til Skallagríms, er mjög sterk- ur leikmaður sem hefði verið valinn í NBA í fyrstu umferð háskólavalsins ef UM HELGINA ■ KENNET Andersson mun ekki leika með Bologna gegn Parma á Ítalíu um helgina, þar sem hann er í eins leiks banni. Parma leikur án tveggja lykil- manna, sem taka einnig út bann - það eru sóknarleikmennirnir Enrico Chiesa og Alessandro Melli. Þá leika Argent- ínumennirnir Nestor Sensini og Hern- an Crespo ekki með liðinu, þar sem þeir eru að leika með landsliði Argent- ínu. ■ JUVENTUS leikur einnig án tveggja leikmanna, sem eru í banni - Zinedine Zidane og Moreno Torricelli. ■ AC Milan leikur án lykilmanna gegn Vicenza. George Weah, Christophe Dugarry og Paolo Maldini eru allir meiddir. ■ ARRIGO Sacchi, þjálfari AC Milan, er ekki ánægður með lið sitt og ætlar að gera miklar breytingar. Hann segir marga leikmenn áhugalausa. ■ FYRSTA skref Sacchi í breytinguni tók hann í vikunni er hann seldi bakvörð- inn Christian Panucci til Real Madrid. ■ SACCHI er óhress með hvað þeir Roberto Baggio miðvallarspilari og varnarmaðurinn Alessandro Costac- urta eru í lélegri æfingu. Hann hefur sett þá báða út úr liði sínu fyrir leikinn gegn Vicenza. ■ FRANSKI landsliðsmaðurinn Marcel Desailly fer af miðjunni til að taka hlut- ÍÞRÓMR FOLK verk Costacurta í vörninni og í fremstu víglínu verða þeir Marco Simone og Júgóslavinn Dejan Savicevic ■ SACCHI mun líklega tefla fram tveimur 19 ára ára leikmönnum, miðvallarspilaranum Massimo Ambrosini og varnarmanninum Francesco Coco. ■ VICENZA mun tefla fram sínu sterkasta liði, nema að bakvörðurinn Gustavo Mendez getur ekki leikið, þar sem hann er að leika með Ur- uguay. Roberto Murgita og Marc- elo Otero verða í fremstu víglinu liðsins, þeir Fabio Viviani og Dom- enico di Carlo stjóma varnarleikn- um. ■ PAUL Ince leikur ekki með Int- er gegn Napolí, þar sem hann tekur út leikbann. Þá mun miðheijinn Ivan Zamorano, ekki leika með liðinu, þar sem hann er að ieika landsleik með Chile, og Nicola Berti er meiddur. ■ UDINESE leikur án fjögurra útlend- inga, er liðið mætir Piacenza. Þjóðverj- inn Oliver Bierhoff, Egyptinn Hazem Emam, Pólverjinn Marek Kozminski og Daninn Thomas Helveg eru meiddir. ■ FIORENTINA leikur án fyrirliða síns, Gabriel Batistuta, þegar liðið mætir Reggiana. Hann leikur með landsliði Argentínu um helgina. ■ SAMPDORIA teflir fram sínu sterk- asta liði gegn Cagliari, Roberto Manc- ini, Argentínumanninum Juan Veron, Frökkunum Pierre Laigle og Christ- ian Karembeu. ■ GIANLUCA Vialli varð ekki að ósk sinni, að vera aftur valinn í landsjiðshóp Ítalíu fýrir vináttuleik gegn N-írlandi 22. janúar. ■ VIALLI, sem hefur ekki leikið lands- leik síðan í desember 1992, var ekki í náðinni hjá Arrigo Sacchi, fyrrum landsliðsþjálfara. Hann vonaði að nýi þjálfarinn, Cesare Maldini, myndi velja hann, þegar hann myndi velja sitt fyrsta landsliðshóp. ■ MALDINI gerði það ekki, en aftur á móti valdi hann tvo félaga Vialli hjá Celsea, Gianfranco Zola og Roberto Di Matteo, ásamt Fabrizio Ravanelli hjá Middlesbrough. hann hefði gengið heill til skógar en hann lenti í því að vakna einn daginn og geta ekki hreyft sig. Hann var með hjartagalla og notar nú gangráð. Annars held ég að það borgi sig fyrir liðin hér að ræða við okkur og fá ráðleggingar. Það kost- ar ekkert og ég hef bara gaman að því að finna upplýsingar um leik- menn fyrir lið.“ Virtur þjálfari væntanlegur Tómas hefur brennandi áhuga á körfuknattleik og hefur því mörg járn í eldinum. „Það eru miklar lík- ur á að Tex Winter, sóknarþjálfari Chicago, komi hingað næsta sum- ar. Karlinn, sem er 72 ára gamall, er goðsögn meðal þjálfara. Hann þjálfaði lengi í háskólaboltanum og gaf út bók um hina svokölluðu þrí- hyrningasókn fyrir mörgum árum, ég held árið 1966. Hugmyndir hans þóttu bull fyrst þegar hann setti þær fram en eru stöðugt að verða vinsælli og Phoenix er að taka þetta upp núna. Tex er mjög fær þjálfari og virt- ur og hugmyndir hans um sóknina eru dálítið byltingarkenndar, sér- staklega fyrir NBA þar sem sóknin byggist mest á að bakvörður kemur með boltann upp völlinn og sóknin endar oftast á miðheijanum, sér- staklega ef hann er stór. Tex gerir hins vegar alla leikmennina virka í sókninni með þessum hugmyndum sínum. Menn eins og Jordan hafa kallað þetta þriggja og hálfs leik- hluta sókn, og á þá við að hann spili þetta í þremur leikhlutum af fjórum, en taki síðan til sinna ráða og geri hlutina upp á eigin spýtur. Karlinn hefur haldið fyrirlestra um þetta í Bandaríkjunum og á Filippseyjum en hvergi annars stað- ar. Ég þekki hann vel og hann er tilbúinn að koma næsta sumar og halda fyrirlestur um þetta hér á landi. Ég þarf að fara að vinna í því að fá evrópska þjálfara til að koma hingað á fyrirlesturinn, en þetta er dýrt og verður að undirbúa vel til að tapa ekki of miklu á svona ævintýri." Tómast segist hafa í hyggju að færa út kvíarnar og telur miklar líkur á að hann komi manni að í NBA í haust. „Ég er með strák frá Nígeríu sem ég er alveg viss um að verður valinn í háskólavalinu í haust. Ég þarf að vísu að hafa leyfi til að mega vera með menn í NBA, þannig að ég verð að útvega mér einhvern lepp svona til að byija með. En ég stefni á að auka þessa starfsemi á næstu árum. Það er búinn að fara óhemju tími og pen- ingar í að stofna til kynna við þjálf- ara og leikmenn og því ætla ég að halda áfram.“ fatám FOLK ■ ITALSKI landsliðsmaðurinn Gianfranco Zola hjá Chelsea var valinn leikmaður desembei-mánaðar í ensku úrvalsdeildinni. ■ ENSKI landsliðsmarkvörðurinn David Seaman verður með Arse- nal á ný í dag, gegn Sunderland, eftir langt hlé vegna meiðsla. ■ DENNIS Bergkamp, hollenski landsliðsmiðheijinn hjá Arsenal, verður hugsanlega með í dag gegn Sunderland, en hann hefur legið veikur. ■ NAT Lofthouse, fyrrum leik- maður Bolton og miðheiji enska landsliðsins, verður heiðraður með því að ein stúkan á nýjum leikvangi félagsins, verður nefnd eftir honum. Þess má geta að Lofthouse, sem er 71 árs, er nú stjórnarformaður Bolton. ■ GUÐNI Bergsson og félagar í Bolton byrja að leika á þessum nýja og glæsilega leikvangi í haust, þegar næsta keppnistímabil hefst. ■ NORSKI bakvörðurinn Björn Tore Kvarne, 24 ára, gekk til liðs við Liverpool í gær frá Rosen- borg. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. Kvarne, er metinn á 224 millj. ísl. kr. en Li- verpool greiðir ekkert fyrir leik- manninn þar sem samningur hans við Rosenborg var runninn út. ■ DEAN Holdsworth, miðvallar- spilari Wimbledon, mun ekki leika með liðinu gegn Derby af persónu- legum ástæðum. ■ ANTHONY Yeboah ætlar að reyna að leika með Ghana gegn Marokkó í undankeppni HM um helgina, þrátt fyrir að hann hefur lítið sem ekkert getað leikið með Leeds vegna meiðsla - ekki leikið heilan leik síðan í mars. ■ „ÉG skii ekki hvernig Yeboah geti leikið landsleik, þar sem hann hefur ekki verið klár í slaginn með okkur," sagði Billl Fotherby, stjórnarformaður hjá Leeds. ■ OTTO Konrad, 32 ára lands- liðsmarkvörður Austurríkis, sem hefur leikið með Casino Salzburg, hefur gengið til liðs við Real Zaragoza á Spáni. Hann skrifaði undir samning til 1999. ■ MEDI BEN Rekhissa, landsl- iðsmaður frá Túnis og einn besti knattspyrnumaður S-Afríku, lést í byijun vináttuleiks liðs hans, Esperance og franska liðsins Ly- on. Rekhissa var 26 ára. Handknattleikur Bikarkeppni HSÍ 8-liða úrslit karla Laugardagur: Ásgarður: Stjarnan - Haukar......16.30 Sunnudagur: Hlíðarendi: Valur-FH................20 Seljaskóli: ÍR - Grótta.............20 8-liða úrslit kvenna Laugardagur: Ásgarður: Stjaman - FH..............14 Sunnudagur: Strandgata: Haukar - Fram...........20 Seltjamames: KR - ÍBV...............17 Víkin: Víkingur - Valur.............17 Körfuknattleikur Laugardagur: Laugardalshöll: Stjömuleikur KKÍ....15 1. deild kvenna: Hagaskóli: KR - Breiðablik.......13.30 1. deild karla; Stykkish.: Snæfell - Selfoss.......230 Borðtennis A. Karlsson mótið fer fram í TBR-húsinu á sunnudaginn kl. 10.30. Blak Laugardagur. 1. deild karla; Ásgarður: Stjarnan - Þróttur N......16 1. deild kvenna: Víkin: Víkingur - Þróttur N......13.30 Fimleikar Nýárssýning FSÍ verður í Ásgarði í Garðabæ á morgun, sunnudag kl. 14. Knattspyrna Úrslit í 4. deildarkeppni karia í knattspyrnu innanhúss verða leikin í Laugardalshöllinni kl. 18.30 til 20.50 í dag. Keppni í 3. deild karla fer fram í dag í Iþróttahúsinu í Austurbergi. hefst keppnin kl. 10, lok verða kl. 19.12. Golfklúbbur Bakkakots (GOB) Mosfellsdal (hjá Laxnesi) A Bakkakotsvelli ciga kylfmgar kost á að spila golf í fallcgu og grónu umhverfi. Miklar farmkvæmdir áttu scr stað hjá klúbbnum á síðasta ári. Nýr skáli var tckin í notkun og átak í uppbyggingu þcssa 9 holu golfVallar. Við bjóðum nýja fclaga vclkomna í klúbbinn. Félagsgjald 1997. Aðalfclagar kr 22.000 Makar 11.000 lóáraogyngri 6.000 17-24 ára “ 11.000 Ellilífcyrisþcgar 11.000 Félagsmenn í öðmm klúbbum Suniarfclagar 1 1.000 Vallargjald 1997 kr. 1.200 hjón “ 1.600 Skráning í klúbbinn og upplýsingar Magnús hs. 564-3536. vs. 565-3200 Hans hs. 561-2231. vs. 552-5450

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.