Morgunblaðið - 17.01.1997, Side 5

Morgunblaðið - 17.01.1997, Side 5
T“ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1997 B 5 DAGLEGT LÍF „MAÐUR sagði mér sögu, sem hafði engan hagnað af því að segja mér hana, eða nokkrum öðrum. En ég hlýt að játa, að gamalt vín hafði í fyrstu haft áhrif á sögu- manninn, og sjálfur tortryggði ég ýmislegt í þessari sögu.“ Saga Tarzans á íslandi hófst með þess- um orðum í Alþýðublað- inu 21. janúar 1922 eða fyrir 75 árum. Höfund- urinn var Edgar Rice Burroughs (1875-1950) __________ og þýðandinn Ingólfur Jónsson. Tarzan apabróðir var þriðja bók höfundar og birtist Bandaríkja- mönnum fyrst í tímaritinu All- Story í október 1912 og hlaut feikilega góðar viðtökur. Burr- oughs var á grænni grein eftir basl áranna á undan. Sagan kom svo út á bók árið 1914 og varð Móðir mín var api og... stökk á svo skömmu færi, en Tarz- an var enginn hversdagsmaður. Frá barnæsku höfðu vöðvar hans æfst í því að gefa snögg viðbrögð. Þó ljónið væri skjótt var Tarzan skjótari og dýrið skall á tré í stað þess að læsa klónum í mannakjöt en Tarzan dembdi annarri kúlu í haus þess, svo það valt grenjandi á hliðina.“ Hvílík spenna og hröð atburðarás! Og Tarzan gleymdi mennt- un sinni og sté fæti á ljónin sem biðu í lægra haldi, horfði beint í tunglið og rak upp hið ógurlega siguröskur. Burroughs skrifaði ekki fyrir börn heldur handa lesendum á öll- um aldri. Tarzan hefur orðið vin- sæll í nær öllum miðlum. Fyrsta kvikmyndin var gerð árið 1916 og var ein af sex fyrstu kvikmyndun- T arzan hinn ógurlegi mundar enn kutann TARZAN og sonur hans í samnefndri kvikmynd. gefnar út 72 bækur eftir Burr- oughs á ensku. „Síðan hafði Tarzan apabróð- ir fundið heitan mjúkan iíkama þrýstast að sér. Heitur, unaðs- legur andi er leikið hafði um andlit hans og varir hafði fært nýtt líf í bijóst hans. Varir höfðu snortið varir hans í brennandi kossum og kveikt í hjarta hans bál — bál, sem skóp nýjan Tarz- an.“ Jane var komin til sögunnar. „Lesendur blaðsins ættu að fylgjast með sögunni frá upphafi og er lítill vafi á, að hún mun falla þeim vel í geð,“ skrifaði rit- stjóri Alþýðublaðsins 21. janúar 1922 og sagan féll þeim vel í geð. Löngu síðar féll dreng- urinn Richard Korn fyrir henni. „Þegar ég var sjö ára gamall erfði ég eftir föðurafa minn dálítið safn af bókum eftir Edgar Rice Burroughs,“ segir Richard. „Þar með kviknaði áhugi minn á verkum þessa áhrifamikla höfundar.“ Byrjaði sjö ára að safna - Tarzansýning Richard Korn er fæddur 1956 og alinn upp í Connecticut í Banda- ríkjunum, hann leikur á kontrabassa í Sinfóníu- hljómsveit íslands, safnar fyrstu útgáfum af verkum Burroughs og hvaðeina öðru sem heyrir til sögu Tarzans á íslandi eins og bókum, bíóskrám, mynda- sögum. Sýning hans í Þjóðarbók- hlöðinni verður opnuð almenningi miðvikudaginn 22. janúar. „Á sýn- ingunni verður efni sem ég hef safnað saman um verk Burroughs á ensku, íslensku og ýmsum öðrum málum,“ segir hann. send frá aðdáendum og var þekkt- ur fyrir að svara þeim fljótt og vel. Hann stóð m.a. í bréfaskriftum við að minnsta kosti einn íslend- ing. Helga Fjeturs, jarðfræðing og nýaldarsinna. Helgi hafði áhuga á vísindaskáldskap Burroughs og sendi honum spurningar vegna bókarinnar Prinsessan af Mars um hvort hann hefði verið undir áhrif- um frá einhveijum frá reikistjörninni Mars og hvort þetta væru alvöru sögur. Burroughs segir síðar á öðrum vettvangi frá þessum bréfum og svarar að um skáldskap sé að ræða og að hann trúi að hann hafi skrifað sögur sínar sjálfur. Svarbréf rithöfundarins * verða á sýningunni. Skömmu eftir heimstyijöldina ... got því ekki sagt mér mikiö Morgunblaðið/Golli RICHARD Korn með fyrstu frumútgáfuna af Burroughs bók sem hann eignaðist Back to the stoneage. Eftir að sögurnar um Tarzan höfðu birst í Alþýðublaðinu gaf Ingólfur Jónsson þær út í bókar- formi árin 1922-1925. Snemma á fimmta áratugnum fékk Siguijón Sæmundsson í Siglufjarðarprent- smiðjunni útgáfuréttinn og gaf út 19 Tarzanbækur og einnig teikni- myndasögur um Tarzan og son hans alveg fram á níunda áratug- inn. Myndasagan um Tarzan hefur birst í Vísi og síðar DV síðan á fjórða áratugnum. Margar Tarz- an-myndir hafa verið sýndar hér í kvikmyndahúsunum, fyrst árið 1925 í Nýja Bíói og sú síðasta Greystoke; the Legend of Tarzan, Lord ofthe Apes, árið 1984. Rich- ard Korn segir að Burroughs hafi aldrei verið sáttur við hvernig draumaverksmiða Hollywoods birti Tarzan. Burroughs fékk óteljandi bréf síðari settist Burrouhgs í helgan stein og las yfír allar bækurnar sínar „til þess að rifja upp það sem ég sagði og hvernig ég sagði það,“ sagði Burroughs. Hann langaði til að skrifa nýjan sagnaflokk með Júpíter að sögusviði, en lést á heimili sínu 19. mars 1950. Árið 1967 kom út bók eftir hann sem fannst í handriti í dánar- búinu, það var I Am A Barbarian og gerist í Róm á dögum Calígúla keisara. Spakmæli Tarzans Tarzan hefur síðasta orðið. Hann er spurður: „Hvernig kom- ust þér í fjárans frumskóginn og hvernig stóð á yður þar?“ Tarzan svaraði með stillingu: „Ég fæddist þar, móðir mín var api og gat því ekki sagt mér mikið. En hver fað- ir minn var, veit ég ekki.“ ■ Gunnar Hersveinn metsölubók í Banda- ríkjunum. Tarzan var sonur ungs aðalsmanns, Johns Claytons, lá- varðs af Greystoke og konu hans, lafði Alice. Aðalsmaður- inn ungi var sendur til að grafast fyrir um ástandið í ný- lendu Breta á vesturströnd Afríku. Hann lætur lífið í Afríku ásamt konu sinni, þegar Tarzan er eins árs og apynj- an Kala, sem misst hafði unga, elur hann upp sem eigið afkvæmi. Tarzan snýr nú aftur enn á ný. Walt-Disney keppist við að búa til teiknimynd um ævintýri hans og á síðasta ári hófst framleiðsla á nýrri sjónvarpsþáttaröð um kapp- ann og á íslandi byijar sýning um Tarzan á Islandi í 75 ár á annarri hæð í Þjóðarbókhlöðunni sem Richard Korn heldur. Tarzan vlnsœll í öllum miðlum „Enginn algengur maður hefði sloppið undan klóm Núma, er hann um sem fengu meira en milljón dali í aðgangs- eyri. Johnny Weissmull- er, ólympímeistari í sundi, og Maureen O’S- ullivan leikari urðu svo talmyndastjörnur í hlut- verki apabróðurins og Jane. Fyrstu útvarpsþætt- irnir um Tarzan voru gerðir árið 1932 og voru þeir fyrstu sem voru teknir upp áður en þeim var útvarpað víða um heim. Árið 1966 voru gerðir sjónvarpsþættir um Tarzan með Ron Ely í aðalhlutverki. Tarzan varð svo einnig vinsæll sem myndasöguhetja í tímaritum og dagblöðum. Burroughs skrifaði 26 Tarz- anbækur en hann var líka vin- sæll vísindaskáldsagnahöfundur. Hann gaf út ellefu bækur sem gerðust á reikistjörnunni Mars, sjö sem gerðust í iðrum jarðar og fimm Venusarsögur, og lýsir þar fyrirbærum sem síðar uppgötvuð- ust svo sem ratsjá, hljóðsjá, sjón- varp, fjarriti, sjálfsstýribúnaður, tundurdufl, miðunarbúnaður og margt annað. Alls hafa verið WEISSMULLER og O'Sullivan sem Tarzan og Jane. hugsaðu um heilsuna!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.