Morgunblaðið - 24.01.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.01.1997, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 C 3 URSLIT Breiðablik - KR 60:82 Smárinn, úrvalsdeildin í körfuknattleik - 14. umferð, fimmtudaginn 23. janúar 1997. Gangur leiksins: 0:2, 9:2, 14:6, 16:13, 25:19, 25:28, 30:30, 32:33, 34:35, 34:42, 41:47, 49:58, 51:68, 59:77, 60:82. Stig Breiðabliks: Clifton Bush 24, Erlingur Snær Erlingsson 11, Óskar Pétursson 10, Pálmi Sigurgeirsson 7, Einar Hannesson 4, Baldur Einarsson 4. Fráköst: 14 í vörn - 4 í sókn. Stig KR: Geoff Herman 33, Ingvar Ormars- son 14, Björgvin Reynisson 11, Birgir Mika- elsson 6, Hermann Hauksson 6, Hinrik Gunnarsson 5, Hermann Birgisson 4, Óskar Kristjánsson 3. Fráköst: 18 í vöm - 4 í sókn. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Rögn- valdur Hreiðarsson voru góðir lengst af. Villur: Breiðablik 14 - KR 15. Áhorfendur: 60. UMFN - Haukar 78:88 íþróttahúsið í Njarðvík: Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 6:11, 15:15, 21:22, 21:29, 28:37, 32:41, 32:43, 36:52, 43:52, 54:64, 62:64, 72:68, 72:80, 78:88. Stig UMFN: Torrey John 19, Rúnar Áma- son 12, Friðrik Ragnarsson 12, Kristinn Einarsson 9, Sverrir Sverrisson 8, Jóhannes Kristbjömsson 7, Páll Kristinsson 5, Örvar Kristjánsson 4, Jón Júlíus Árnason 2. Fráköst: 17 í vöm - 14 i sókn. Stig Hauka: Shawn Smith 32, Bergur Eðvarðsson 14, Jón Arnar Ingvarsson 13, Pétur Ingvarsson 10, Þór Haraldsson 8, ívar Ásgrimsson 9, Daniel Ámason 2, Björgvin Jónsson 2. Fráköst: 23 i vöm - 11 í sókn. Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristinn Óskarsson. Dæmdu ágætlega. Villur: UMFN 21 - Haukar 20 Áhorfendur: Um 200 Fj. leikja u T Stig Stig KEFLAVÍK 13 11 2 1273: 1080 22 UMFG 13 10 3 1240: 1165 20 HAUKAR 14 9 5 1182: 1156 18 UMFN 14 9 5 1194: 1133 18 ÍA 13 9 4 999: 952 18 KR 14 7 7 1223: 1144 14 ÍR 12 6 6 1046: 1013 12 KFÍ 13 5 8 1029: 1072 10 SKALLAGR. 13 5 8 1014: 1094 10 UMFT 13 5 8 1056: 1069 10 ÞÓR 12 3 9 934: 1034 6 BREIÐABLIK 14 0 14 1010: 1288 0 Meistaradeild Evrópu G-riðill: Sevilla - Villaurbanne............91:68 Pau-Orthez - Panathinaikos........66:78 Lawrence Fundeburke 27, Frederic Fautho- ux 14, Thierry Gadou 9 - Hugo Sconochini 24, Byron Dinkins 20, Nikos Ekonomou 13. H-riðill: Barcelona - Efes Pilsen...........91:67 IMBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Boston - Philadelphia.........125:127 • Eftir framlengingu. Sacramento - Detroit.......... 97: 92 SanAntonio-NewJersey.......... 95:103 Denver-Vancouver............... 94: 84 Phoenix-Utah.................. 99:111 Seattle - Portland............ 98: 97 •Philadelphia 76ers vann loksins, eftir þrettán leiki í röð án'Sigurs. Allen Iverson skoraði 26 stig fyrir liði, þar af þrjár þriggja stiga körfur á síðustu 30 sek. leiksins. Jerry Stackhouse skoraði 38 stig og Rex Walters 27, tók níu fráköst og átti ellefu stoðsend- ingar. • Mitch Richmond náði þrennu fyrir Sacra- mentgo Kings, skoraði 38 stig, tók tíu frá- köst og átti tíu stoðsendingar. • Grant Hill skoraði 33 stig og tók tíu frá- köst og Otis Thorpe skoraði 24 stig og tók 13 fráköst fyrir Detroit Pistons. • Karl Malone skoraði 41 stig fyrir Utah Jazz, John Stockton skoraði 23 stig og átti tólf stoðsendingar. • Cedric Ceballos skoraði 20 stig og átti tíu stoðsendingar fyrir Phoenix Suns. • Mark Jackson skoraði 15 stig, átti 12 stoðsendingar og tók 16 fráköst, er hann náði sinni elleftu þrennu fyrir Denver Nug- gets. • San Antonio náði ekki að skora yfir 100 stig í fimmtánda leiknum sínum í röð. Dom- inique Wilkins lék á ný með liðinu, eftir að hafa misst út tíu leiki vegna meiðsla i hné. Hann skoraði 20 stig eins og Vernon Max- well. • Kendall Gill skoraði 32 stig og Kerry Kittles 23 fyrir New Jersey, sem vann San Antonio í fyrsta sinn á útivelli síðan í nóvem- ber 1993. Þetta var aðeins þriðji sigur liðs- ins í 26 leikjum í San Antonio. Tennis Opna ástralska i Melbourne. Undanúrslit kvenna: Mary Pierce (Frakklandi) vann 12-Amanda Coetzer (S-Afríku) 7-5 6-1. 4-Martina Hingis (Sviss) vann 14-Mary Joe Femandez (Bandarikjunum) 6-1, 6-3. Undanúrslit karla: Carlos Maya (Spáni) vann 2-Michael Chang (Bandaríkjunum) 7-5, 6-2, 6-4. Knattspyrna Bandaríkjamótið Bandaríkin - Danmörk............1:4 Joe-Max Moore (45.) - Per Pedersen 4 (16., 26., 45., 55.). Mexíkó - Perú...................0:0 • Mexíkanar urðu sigurvegarar, fengu sjö stig, Danir sex, Perúmenn fjögur og banda- ríkjamenn ekkert. Skotfimi Landsmót STÍ Stöðluð skammbyssa: Jónas Hafsteinsson, SFK............537 HannesTómasson, SFK................529 Sigurbjörn Ásgeirsson, Leiftri.....518 Sveitakeppni: SFK..............................1.582 Leiftur..........................1.498 SR...............................1.323 Loftskammbyssa: Hannes Tómasson, SFK.............660,3 GunnarÞ. Hallbergsson, SR........633,3 Jónas Hafsteinsson, SFK..........628,8 Sveitakeppni: SFK..............................1.654 SR...............................1.552 Leiftur..........................1.551 Riffilskotfimi: Jónas Bjargmundsson, SFK...........592 Einar Steinarsson, SFK.............583 Gylfi Ægisson, SFK.................572 Fijáls skammbyssa: Hannes Tómasson, SFK...............520 Gylfi Ægisson, SFK.................488 Jónas Hafsteinsson, SFK............483 í kvöld Körfuknattleikur Úrvalsdeildin: Grindavík:UMFG-Þór............20 Seljaskólk ÍR - Skallagrímur..20 Akranes: ÍA - Keflavík........20 1. deild karla: Sangerði: Reynir - Leiknir....20 Handknattleikur 2. deild karla: Höllin Ak.: Þór - Keflavík....20 Sund Stórmót Búnaðarbankans og VISA hefst í Sundhöll Hafnarfjarðar kl. 19. Á mótinu, sem stendur fram á sunnudag, keppa helstu afreksmenn allra aldursflokka. Blak 8-liða úrslit karla: Neskaups.: Þróttur N. - ÍS....20 P — FÉLAGSLÍF Þorrablót KR Þorrablót KR verður haldið í félags- heimilinu við Frostaskjól á morgun, laugardaginn 25. janúar. Húsið verð- ur opnað kl. 19.30. Aðalræðumaður verður séra Vigfús Þór Árnason og veislustjóri Helgi Jóhannesson. IMýársgleði Fram Nýársgleði Fram verður í íþrótta- húsi Fram við Safamýri á laugardag- inn kl. 20.30. Herbert Guðmundsson mun skemmta og einnig verða ýms- ar aðrar uppákomur. Gleðin verður fram eftir nóttu. ÞORRABLOT Hið árlega þorrablót KR verður haldið 25. janúar 1997 í félagsmiðstöð KR við Frostaskjól. Mæting kl. 19.30. KÖRFUKNATTLEIKUR IÞROTTIR USTHLAUP / EM Svissneska stúlkan Martina Hingis braut blað í Melboume KR stendur núájöfnu KR-INGAR áttu ekki íteljandi vandræðum með að sigra Breiðablik 60:82 í Smáranum í gærkvöldi þegar liðin áttust við 114. umferð úrvalsdeildarinn- ar. Vesturbæingar sigruðu þar með í sjöunda sinn í vetur en hafa tapað jafnmörgum leikjum en Kópavogspiltum hefur aftur á móti enn ekki tekist að vinna leik. „Við höfum tapað mörgum leikjum, sem gerir það enn erf- iðara að vinna í fyrsta sinn,“ sagði Birgir Guðbjörnsson þjálfari Blika eftir leikinn. Blikar með Clifton Bush í farar- broddi byrjuðu af krafti en fljótlega þótti Vesturbæingnum Geoff Herman nóg komið og tók hann til sinn ráða. Heima- menn náðu þó að halda forskotinu þar til fimm mínútur voru til leiksloka en þá tókst gestunum að ná forskot- inu með þriggja stiga körfum Hin- riks Gunnarssonar og Björgvins Reynissonar og staðan í leikhléi var 32:33, KR í vil. Syrpa Geoff á fyrstu mínútum síðari hálfleiks kom KR í þægilega átta stiga forystu, sem lið hans smábætti stöðugt við. Blikar gáfust þó aldrei upp en KR-ingar voru Stefán Stefánsson skrifar komnir á skrið eftir að hafa tekið því fullrólega fyrir hlé. Sem fyrr byijuðu Blikar ágætlega en sem oftar tókst þeim ekki að fylgja því eftir og verða fyrir vikið að lúta enn einu sinni í grasið. Clif- ton Bush, sem lék sinn þriðja leik fyrir Breiðablik, var þeirra besti maður. Hann spilar mun meira fyrir liðið en forveri hans en betur má ef duga skal. Erlingur Snær Erlings- son, Oskar Pétursson og Pálmi Sig- urgeirsson voru ágætir. Geoff Herman var bestur hjá KR þar sem hann hélt sínu striki næst- um allan leikinn á meðan aðrir tóku það rólega framan af. Þó áttu Ingv- ar Ormarsson og Björgvin Reynisson ágæta takta en aðrir gerðu það sem til þurfti fyrir stigin. „Við vorum frekar slakir fyrir hlé því við tókum of létt á leiknum," sagði Hrannar Hólm þjálfari KR eftir leikinn. „Blik- ar spiluðu líka ágætlega í fyrri hálf- leik en í þeim síðari náðum við tök- unum. Liðin sem spila við Breiðablik eiga það til að nota fyrri hálfleik til að prófa sig áfram og vonast til að eiga léttan leik en taka á í síðari hálfleik. Annars er margt sem við sjálfir þurfum að vinna í. Við þurfum að aga sóknarleikinn meira og koma boltanum betur undir körfuna á Jon- athan Bow, sem verður tilbúinn í bikarúrslitaleikinn í næstu viku.“ Morgunblaðið/Júlíus BIRGIR Mikaelsson KR-lngur skoraði sex stig fyrir sitt lið í gærkvöldi. Hér berst hann við Blikana Pálma Sigurgeirsson og Clifton Bush um boltann. Það er mjög gott að byija með sigri hér í Ljónagryfjunni. Það er toppurinn,“sagði Einar Einarsson þjálfari Hauka eftir að mn bafa leitt lið sitt til Frímann sigurs gegn Njarð- Ólafsson víkingum í Njarð- skrifar frá vík. „Allir þeir sem Njarövik ég er búinn að tala við voru búnir að segja að það mundi ekki byrja glæsilega en leik- menn sýndu frábæran anda og þótt þeir fengju smá mótbyr í lok- in stóðu þeir sig vel og unnu í kvöld. Það mátti búast við því en í stað þess að brotna hélt liðið haus. Það var ekki hægt að byija betur,“ sagði Einar. Haukar, sem voru staðráðnir í að sigra í leiknum frá fyrstu mín- útu, slógu Njarðvíkinga út af lag- inu með ákveðnum leik strax í upphafi en leikurinn fór vægast sagt rólega af stað. Um miðjan hálfleikinn voru liðin aðeins búin að skora 26 stig og heimamenn áttu 11 þeirra sem þykir ekki mik- ið á þeim bæ. Shawn Smith Hauka- maður var í miklum ham og réði Torrey John ekkert við hann, hvorki í vörn né sókn. Fór svo að hann fór á bekkinn um miðjan hálfleikinn með 3 villur og 2 stig. Haukar náðu hinsvegar hægt og bítandi góðri forystu sem var mest 16 stig, 52:36 á 5. mínútu seinni hálfleiks. Um miðbik hálfleiksins vöknuðu Njarðvíkingar loks af þyrnirósar- svefni og fóru að bíta frá sér. Torrey John fór að skora grimmt og á 6 mínútna kafla breyttu þeir stöðunni úr 54:64 í 72:68. Haukarnir jöfnuðu og voru í sókn þegar brotið var á Shawn Smith undir körfunni. Eitt- hvað var Ástþór Ingvason þjálfari Njarðvíkinga ósáttur við dómgæsl- una og svo fór að dæmt var tækni- víti á Njarðvík. Smith hitti úr þrem- ur vítaskotum og Þór Haraldsson skoraði þriggja stiga körfu sem gerði nánast út um leikinn því Njarðvíkingar náðu ekki að brúa bilið á þeim tveimur mínútum sem eftir voru. Haukarnir fögnuðu því kærkomnum sigri eftir tvo tapleiki í röð og þjálfaraskipti. Njarðvíkingar vilja sjálfsagt ekki muna þennan leik lengi enda náðu þeir sér ekki á strik í honum. Allan hreyfanleika vantaði í sóknarleikinn og leikmenn náðu ekki saman í vörninni. Þeir náðu ágætum kafla í seinni hálfleik en ekki að fylgja honum eftir. Hjá Haukum var Shawn Smith mjög góður, spilar vel fyrir liðið. Jón Arnar Ingvarsson var einnig dijúgur og skoraði mikil- vægar körfur. Stórskotaliðið mætir vöm Skagamanna Þrír leikir, sem var frestað í gær vegna veðurs, verða í úrvals- deildinni í kvöld og beinast flestra augu eflaust að viðureign Skaga- manna og Keflvíkinga á Akranesi. Keflvíkingar eru í efsta sæti deild- arinnar og Skgaginn í 3. til 4. sæti og hefur verið á mikiili siglingu und- anfarið. Skaginn, sem hefur án efa komið liða mest á óvart í vetur, tapaði fyrstu þremur leikjum sínum í haust en hefur sigrað í níu af síðustu tíu leikjum sínum og þar af í fímm heimaleikjum í röð. Samkvæmt töl- fræðinni eru Skagamenn með bestu vörnina enda hefur liðið aðeins feng- ið á sig 73,2 stig að meðaltali í vet- ur og er eina liðið sem hefur ekki fengið meira en 80 stig á sig að meðaltali. Heimavöllurinn vegur þungt í árangri ÍA. Leikmenn þeirra liða sem heimsótt hafa Akranes í vetur hafa aðeins_38,l% skotnýtingu þar og leikmenn ÍA verja að meðal- tali fimm skot í leik á heimavelli og eru auk þess með næstbesta hlut- fall varnarfrákasta, 70,2%, næstir á eftir leikmönnum KFI. ÍA hefur fengið á sig 68,5 stig að meðaltali á heimaveili og þar kemur á móti að Skagamenn eru með einstaklega góða vítanýtingu, 80,2%, í vetur og í síðustu sex leikj- um hafa IA-menn verið með yfir 80% skotnýtingu og á vítalínunni hafa þeir verið með 89,3% nýtingu í síð- ustu 6 leikjum, hafa hitt úr 100 skotum af 112. Keflvíkingar eru engir aukvisar heldur, enda einir í efsta sæti eftir sigurinn á Grindavík á dögunum, hafa nú sigrað í sjö leikjum í röð. Keflvíkingar skora liða mest, hafa gert 98,5 stig að meðaltali í deild- inni það sem af er. Leikmenn liðsins eru með 51,7% skotnýtingu sem er það næstbesta í deildinni, aðeins Grindvíkingar hafa nýtt skot sín betur. Það kemur sjálfsagt fáum á óvart að Keflvíkingar hafa skorað mest allra liða úr þriggja stiga skot- um, en stórskotaliðið gerir að með- altali 10,3 slíkar körfur í leik og fimm sinnum hefur liðið gert meira en 100 stig í leik og aðeins einu sinni gert færri en 80 stig. Keflvík- ingar eru með næstbestu nýtingu í þriggja stiga skotum, 41,6%, og einnig í vítaskotum, 75,5%. Mörgum leikjum frestað VEÐRIÐ á landinu í gærkvöldi hafði talsverð áhrif á íþróttalífíð og var fjórum leikjum í úrvalsdeildinni frestað og undanúrslitaleik KAogÍR í bikarkeppninni í handknattieik. KAogÍR munu mætast á sunnudags- kvöldið en þrir leikir í úryalsdeildinni verða leiknir í kvöld, ÍA og Kefla- vík, Grindavík - Þór og ÍR - Skallagrímur en óvíst er hvenær leikur Tindastóls og KFÍ fer fram. Rússarnir fengu hæstu einkunn hjá sex dómurum RÚSSNESKA skautaparið, Oksana Grit- sjúk og Evgeny Platov, fengu 6,0 eða hæstu einkunn hjá sex af níu dómurunum fyrir grunnæfingar sínar á Evrópumeist- aramótinu í ísdansi í gær. Þau eru með nokkuð örugga forystu í keppninni en í kvöld verður þriðji og síðasti hluti ís- dansins, fijálsar æfingar. Þau Gritsjúk og og Platov, sem eru heims- og ólympíu- meistarar í ísdansi, jöfnuðu með þessu evrópumetið því árið 1984 fékk breska parið Jayne Torvill og Christopher Dean 6,0 í einkunn hjá sex dómurum á EM og á Olympíuleikunum í Sarajevo síðar sama ár fengu þau 6,0 hjá öllum 12 dóm- UÞunum í fijálsu æfingunum, en þá döns- núu þau hinn fræga dans Bolero. Rússneska parið skipti um þjálfara fyrir rúmum mánuði og eru mjög ánægð með hina reyndu Tatianu Tarasovu. „Þessar einkunnir komu okkur dálitið á óvart því við vorum ekki að rembast við að fá fullkomna einkunn, heldur einbeitt- um við okkur að því að gera okkar besta,“ sagði Gritsjúk. Rússneska skautadrottningin þykur minna dálítið á leikkonuna Madonnu í hlutverki Evitu um þessar mundir enda er hún kominn með ljóst hár, en var áður dökkhærð. Hárgreiðsla hennar minnir einnig nokkuð á Sharon Stone. „Ég skipti venjulega um háralit á tveggja ára fresti,“ sagði Gritsjúk. ~t~ MARTINA Hingis, hin sextán ára tennisstjarna f rá Sviss, braut blað á opna ástralska tennismótinu í Melbourne, er hún tryggði sér rétt til að leika til úrslita gegn frönsku stúlk- unni Mary Pierce. Hingis, sem er fædd íTékklandi, á mögu- leika til að verða yngsta tennis- konan til að fagna sigri í Melbourne. Hingis gerði sér lítið fyrir og lagði hina kunnu Mary Joe Fernandez frá Bandaríkjunum í undanúrslitum, 6-1, 6-3. Hún verð- ur sextán ára, þriggja mánaða og 26 daga gömul er hún leikur úrslita- leikinn og með sigri getur hún orð- ið yngsta tenniskonan til að fagna sigri í einu af fjórum stóru tennis- mótunum síðan áhugamaðurinn Lottie Dod vann sinn fyrsta sigur í Wimbledon 1887, 15 ára og tíu mánaða. „Ég var taugaóstyrk, þrátt fyrir það náði ég að leika vel. Þetta var frekar auðveldur leikur, ég náði mér vel á strik. Leikurinn þróaðist í það að verða of hraður fyrir fyrir Fermandez,“ sagði Hingis, sem er aðeins 1,67 m og 53 kg. Hún lék hratt og ákveðið. „Það er erfítt að eiga við Hingis, sem er svo fljót í snúningum," sagði Fernandez. Hingis mætir Mary Pierce, sem varð meistari í Melboume 1995 í úrslitum á morgun, Pierce vann Amanda Coetzer 7-5, 6-1. „Ég var ákveðin að endurtaka leikinn frá því fyrir tveimur árum. Ef einhver hefði sagt við mig í fyrra heima í París, að ég ætti eftir að leika til úrslita hér i ár, hefði ég talið hann vera að grínast," sagði Pierce, sem Z m w m Reuter Afanga nað MARTINA Hingls fagnar sigrinum f undanúrslitunum f gær og hefur sett markið ó að verða yngst tennlskvenna til að slgra á elnu af stóru mótunum. tók sér hvíld í þijá mánuði í fyrra vegna meiðsla á öxl. „Það var erfið- ur tími.“ Hingis hefur þrisvar sinnum leik- ið gegn Mary Pierce, síðast í Ham- borg í apríl í fyrra. Hún hefur ekki náð að vinna lotu í þeim þremur viðureignum, þannig Pierce á að vera sigurstranglegri. Moya óstöðvandi Óvæntustu úrslitin á miðviku- daginn voru þegar Spánveijinn Carlos Moya, sem byijaði mótið með stæl með því að slá út meistar- ann Boris Becker, lagði Bandaríkja- manninn Michael Chang, sem er í öðru sæti á heimslistanum, 7-5, 6-2, 6-4. „Ég geri mér fyllilega grein fyrir að ég var að vinna stór- an sigur, ég lék ótrúlega," sagði Moya. Chang hefur ekki náð að fagna sigri í stóru mótunum síðan hann fagnaði á opna franska meist- aramótinu 1989, þá sautján ára. „Ég vissi fyrir leikinn, að ég yrði að taka áhættu til að leggja Chang að velli - varð að vera á hreyfingu; það tókst,“ sagði Moya, sem er í 24. sæti á heimslistanum. Hann mætir Pete Sampras, sem er í efsta sæti á listanum, eða Thomas Must- er, sem er í fimmta sæti, í úrslita- leiknum á sunnudaginn. Gotl að vinna hér TENNIS x

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.