Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 1
Dansað af innlifun.
DISKÓTEK
HJÁ AFA
OG ÖMMU
f KJALLARA í raðhúsi
nokkru í Reykjavík er að
finna eitt frumlegasta
diskótek landsins. Húsráð-
endur eru rúmlega sjötugir
og gestir þeirra á grunn-
skólaaldri.
Ur loftinu hangir giltr-
andi diskókúla og kastarar
blikka í ýmsum litum með
mismunandi takti. Barna-
börn húsráðenda ráða
þarna ríkjum og fá að bjóða
vinum og skólafélögum.
Aðstaðan þykir frábær og
ekki spillir fyrir að krakk-
arnir fá að vera í friði.
„Við erum ekki skömmuð
fyrir að hafa tónlistina
stillta of hátt. Þetta er geð-
veikt gaman, stanslaust
stuð og ýkt kúl.“
Húsráðendur bera gest-
um sínum líka vel söguna.
„Þetta eru afskaplega kurt-
eisir og góðir krakkar.“ ■
■ VÍNGERÐSEMTÓMSTUNDAGAHHAM/2 ■ í SKÓLAÁ „GAMALS
ALDRI/4 ■ RAMANDAN ER FÖSTUMÁNUÐUR HJÁ MÚSLIMUM/4 ■
NÁTTURAN SPEGLUÐIULLARFLOKA/7 ■ MEÐ AUGUM LANDANS/7
öflur og te
jafnvel tyggjó til að grennast
landi. Einar Ólafsson, lyfjafræðing-
ur hjá Medico segir að efetrin sé
upprunalega jurt og eitt elsta lækn-
ingalyf sem til er. „Þetta er eitt
af fyrstu lyfjunum sem við lærum
um í lyfjafræði og það hefur verið
notað í aldaraðir. Þetta er almennt
örvandi lyf og er meðal annars
notað í hóstamixtúrur. Áhrif af
hvoru efni um sig, koffíni og efetr-
íni, eru ekki ýkja mikil, en þegar
þeim er blandað saman í sömu hlut-
föllum og í diet fuel og ripped fuel
verður mikil almenn brennsluörvun
í líkamanum. í diet fuel er einnig
citrimax, sem dregur úr nýmyndun
á fitu og því er efnið talið henta
vel til megrunar. L-carnitine er
bæði í diet fuel og ripped fuel,
ásamt chromium ticolinate. Þessi
þijú efni, citrimax, chromium tico-
linate og L-carnitine eru seld í
lausasölu hér, sem fæðubótaefni.
Hjá lyfjanefnd er til umíjöllunar
skráning á lyfinu Letigen, sem er
blanda af koffíni og efetríni, í sömu
hlutföllum og diet fuel. Verði það
samþykkt af lyíjanefnd ætti það
að verða fáanlegt innan sex mán-
aða, gegn lyfseðli."
Sölvi Fannar Viðarsson þjálfari
í World Class segir að reglulega
komi á markað ýmis megrunar- og
heilsubótalyf, jafnt hér sem í
Bandaríkjunum. „Sum eru áhrifa-
rík, en mjög mörg eru léleg og
hafa engin áhrif. Þegar úrval af
bætiefnum er jafn mikið og raun
ber vitni er ekki hægt að ráðleggja
fólki annað en að prófa sjálft og
kanna hvað því líkar best.“ ■
Eitt elsta
lækningalyfið
í þeim efnum sem einna vin-
sælust munu vera í Bandaríkj-
unum um þessar mundir, diet
fuel og ripped fuel, eru tvö
efni, koffín og efetrín, sem
gera að verkum að sala
þeirra er bönnuð hér á
MARGAR gerðir af svokölluðum
heilsuvörum eru settar á markað
með það fyrir augum að þeir kaupi
þær sem hafa áhuga á aukinni orku
og grennri líkama. Töluvert úrval
er af slíkum varningi í íslenskum
verslunum og apótekum og í sam-
tölum við lyfjafræðinga í nokkrum
apótekum í Reykjavík kom fram
að efnið Fat binder nýtur einna
mestrar hylli þessa dagana. Einnig
er talsvert keypt af Fat burner-töfl-
um, megrunartyggjóinu Chroma
trim og megrunarteinu Sou tsian.
Þá virðist nokkuð algengt að fólk
taki með sér megrunar- og heilsu-
pillur til eigin nota, frá útlöndum,
aðallega frá Bandaríkjunum.
„Fat binder er náttúrulegt trefja-
efni, sem unnið er úr skeljum skel-
físka og bindur fitu í fæðunni,
þannig að líkaminn skilar henni
ómeltri gegnum meltingaveginn,"
segir Páll Guðmundsson, yfirlyfja-
fræðingur í Ingólfsapóteki í
Reykjavík. Hann segist ekki vita
um neinar aukaverkanir en segir
ástæðu til að hafa áhyggjur ef efn-
ið er ofnotað. „Þá held ég að hætta
sé á að fituleysanleg vítamín, eins
og A og D, skili sér út án þess að
líkaminn nýti þau.“
> (\ l \ IJ íí. 'J
—1 *•—*'>--ífer-* -*