Morgunblaðið - 07.02.1997, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
I
|
Hefur átt árs-
miða Í76 ár
GIOVANNI Faenza, knattspyrnuáhugamaður
frá Bologna á Ítalíu, er svo sannarlega kominn
í heimsmetabókina. Hann hefur verið ársmiða-
hafi Bologna í 76 ár. Faenza, sem er 96 ára,
er eini maðurinn sem hefur séð með berum
augum þegar Bologna hefur orðið sjö sinnum
Ítalíumeistari.
'•'sW-i
SKÍÐI
JltofgtntÞIiifeifr
1997
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR
BLAD
Rauter
Páfinn hefur
vinninginn
PÓLVERJAR eru að
hugleiða að fresta síð-
ustu umferðinni í 1.
deildarkeppninni í
knattspyrnu, sem á að
fara fram i í júni.
Ástæðan fyrir þvi er
heimsókn Jóhannes
Páls páfa til heima-
lands sins — á sama
tíma.
„Gullmörk" í
HM1998
MIKLAR líkur eru á
að reglan um „gull-
mörk“ verði tekin upp
i HM f Frakklandi
1998. Það er að segja,
að það lið sem verður
á undan að skora i
framlenginu fagnar
sigri. Það fyrirkomu-
lag var i EM í Eng-
landi. Joao Havelange,
forseti FIFA, mun
ræða um þessa breyt-
ingu við Michel Plat-
ini.
Hidalgo fór
eftir skipun-
um Tapis
MICHEL Hidalgo,
fyrrum landsliðs-
þjálfri Frakklands,
sem tók þátt í mútu-
málinum í Marseille,
sagði í gær að hann
hafi skrifað undir pen-
ingatékka i sambandi
við málið, þar sem eig-
andi félagsins, Bern-
ard Tapie, hafí skipað
honum svo fyrir.
Ámodt
með gull
NORÐMAÐURINN Kjetil-Andre Amodt,
sem hér brunar niður brautína á Ítalíu,
kræktí sér í fjórðu gullverðlaunin og ell-
eftu medalíuna á ferlinum i gærkvöldi
er hann sigraði í alpatvíkeppni á heims-
meistaramótinu, en kapparnir keppa i
svigi og bruni. Amodt hlaut tímann 3
minútur og 10,40 sekúndur en Svisslend-
ingurinn Bruno Kernen varð annar á
3.10,68 og Mario Reiter frá Austurríki
þriðji á 3.11,69. Þetta var annar sigur
Norðmanna á heimsmeistarmótínu og er
óhætt að segja að þeir byiji vel, þvi karl-
arnir hafa aðeins keppt f tveimur grein-
um. Amodt var í þriðja sæti eftir fyrri
umferðina í sviginu. „Ég var nýög fúll
eftír fyrrí ferðina þannig að ég ákvað
að keyra eins hratt og ég gætí í þeirri
siðari. Loksins tóks mér að ná i þessi
gul!verðlaun,“ sagði Norðmaðurinn án-
æður eftír sigurinn. Landi hans, Lasse
Kjus, sem sigraði í alpatvfkeppninni á
Ólympfuleikunum 1994 og heimsmeist-
aramótinu árið áður, var annar eftir fyrri
ferðina en brást bogalistín í þeirri siðari
og varð fímmtí. Amodt nálgast nú árang-
ur Marc Giradellis hvað verðlaunapen-
inga varðar, vantar aðeins tvo til aðjafna
við kappann frá Lúxemborg.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Rússneskur blær á mót-
heijum Stjömunnar
Stjarnan leikur á laugardaginn
við spænska liðið Pilotes
Posada Octavio frá borginni Vigo
í Evrópukeppni félagsliða í As-
garði á morgun. Spánverjar eru
með öflugt lið og segja Stjörnu-
menn að þeir þurfi að eiga góðan
leik ætli þeir sér áfram. Um þess-
ar mundir er félagið í fjórða sæti
spænsku deildarinnar eo varð f
því sjötta í fyrra, auk þess sem
það lék til úrslita í bikamum við
Teka.
Brynjar Kvaran, aðstoðarþjálf-
ari Stjömunnar, hefur kynnt sér
leik Vigo eins og kostur er, en frek-
ar erfiðlega gekk að fá upplýsingar
um liðið. „Liðið leikur fímm einn
vöm, með manninn talsvert langt
úti, ekki ósvipað og Rússar. Mikið
mseðir á sömu mönnunum og allir
geta lokið sóknum þannig að liðið
er mjög jafnt og öflugir menn í
hverri stöðu. Það er held ég ljóst
að við verðum að eiga tvo mjög
góða leiki til að komast áfram,“
segir Brynjar.
KA leikur gegn ungverska liðinu
Fotex Veszprém á Akureyri í Evr-
ópukeppni bikarhafa á sunnudag-
inn. Ungverska liðið er sterkt og
eru tólf landsliðsmenn í herbúðum
þess.
Leikmenn Brann
léttast í S-Afríku
BIRKIR Kristinsson, Ágúst Gylfason og samheijar þeirra þjá
Brann eru I æfingabúðum f Suður-Afriku þar sem þeir taka
einnig þátt f knattspyrnumóti í Sun City. Leikmenn hafa æft
f þunnu loftí f 1.700 m hæð f þijátíu stíga hita. Þeir hafa ekki
náð að vinna á vökvatapinu og hafa misst eitt og hálft kg á
dag, einn þeirra var tveimur kg léttari - Per-Ove Ludvigsen.
Annað vandamál er að leikmennirnir hafa misst mikið salt úr
iíkamanum þar sem þeir hafa svitnað mikið. „Okkar vandamál
hefur verið að við höfum ekki drukkið nægilega mikið af vatni,“
sagði Ludvigsen.
HANDBOLTI: SELFYSSINGAR JÖFNUÐU GEGN FRAM Á ELLEFTU STUNDU / C2