Morgunblaðið - 07.02.1997, Page 4
.
HANDKNATTLEIKUR
FOLK
■ NEWCASTLE hefur boðið
Bobby Robson, þjálfara Barcel-
ona, starf hjá félaginu, þegar hann
hættir þjálfun. Starfíð fellst í því,
að hann hafír yfírumsjón með
knattspymuskóla Newcastle.
■ PAUL Kitson, 26 ára sóknar-
leikmaður hjá Newcastle, gekk til
liðs við West Ham í gær. Kaupverð
var 2,3 millj. pund.
■ HARRY Redknapp, knatt-
spymustjóri West Ham, vonast eft-
ir öðmm sóknarleikmanni á næstu
dögum - þar eru þeir Mike Sher-
on, Stoke og Clive Mendonca,
Grimsby, nefndir.
■ RAY Harford, fyrrum stjóri
Biackburn, tók við starfí knatt-
spymustjóra WBA í gær og sagði
að takmarkið væri aðeins eitt; að
koma Albion í úrvalsdeildina.
■ GLENN Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englands, hefur beðið Robbie
Erle hjá Wimbledon, að vera tilbú-
inn að svara kallinu - ef Robert
Lee og Paul Ince verða ekki leik-
hæfir fyrir leikinn gegn ítaliu á
Wembley.
■ DAVW Seaman, markvörður
Arsenal, sem var meiddur á hné,
segir að verði tilbúinn í slaginn
gegn Ítalíu.
■ ROBERTO Di Matteo, leik-
maður með Chelsea og ítalska
landsliðinu, segir að maðurinn sem
ítalir óttast mest á Wembley, sé
Paul Gascoigne. „Það yrði betra
fyrir okkur, ef hann léki ekki.“
■ GASCOIGNE hefur verið
meiddur á ökkla. Hann lék með
Di Matteo hjá Lazio. í gærkvöldi
kallaði Hoddle á miðvallarspilar-
ann Jamie Redknapp hjá Liver-
pool, til æfínga með landsliðinu,
vegna óvissunnar með Gascoigne.
■ SJÖ landsliðsmenn Englands
eru á sjúkralista, David Seaman,
Arsenal og Dominic Matteo, Li-
verpool, meiddir á hné, Tony Ad-
ams, Arsenal, og Gascoigne em
meiddir á ökkla, Robert Lee,
Newcastle, nára, Paul Ince, Inter
Mílanó, læri og Ian Wright, Arse-
nal, hásin.
■ GLENN Hoddle tilkynnti einn-
ig, að Alan Shearer yrði fyrirliði,
en ekki Tony Adams.
■ NEIL Lennon, miðvallarspilari
Leicester, var í gær sektaður um
56 þús. ísl. kr. fyrir að hafa sýnt
stuðningsmönnum Newcastle
klámfengið látbragð f bikarleik lið-
anna.
■ GRAEME Souness, knatt-
spymustjóri Southampton, safhar
að sér útíendingum. Nú er hollenski
miðheijinn Romano Wouden, 26
ára, kominn til The Dell. Sout-
hamptbn borgaði SC Heerenveen
150 þús. pund fyrir hann.
■ RYAN Giggs leikur ekki með
Wales vináttuleik gegn írlandi í
næstu viku, þar sem hann meiddist
á kálfa í bikarleiknum gegn
Wimbledon.
■ DENIS Irwing, félagi Giggs hjá
Man. Utd., leikur ekki með írska
liðinu vegna meiðsla á lærisvöðva.
■ ÞESS má til gamans geta að
Giggs hefur ekki leikið vináttulands-
leik með Wales sl. fímm ár, eða frá
því að hann lék sinn fyrsta landsleik
gegn Þýskalandi í október 1991,
þá 17 ára og 321 dags gamall.
■ TERRY Fleming, miðvallarspil-
ari Lincoln á bann yfir höfði sér
fyrir að hafa haft rangt við í leik
gegn Wigan sjö mfn. fyrir leikslok.
■ ÞEGAR hann átti að sjá sitt
annað gula spjald þjá dómara leiks-
ins, Paul Taylor, gaf hann upp nafn
og númer á samheija sínum , Tony
Dennis. Dómarinn ætíað að horfa á
myndbandsupptöku af atvikinu.
KA-sigraði í
hörðum slag
Einar Gunnar
frá í tvær vikur
EINAR Gunnar Sigurðsson, handknattleiks-
maður með Aftureldingu, lék ekki með félög-
um sínum gegn KA á Akureyri í gærkvöldi
og er ástæðan sú að hann meiddist á nára
fyrir nokkrum dögum. Jóhann Guðjónsson,
formaður handknattleiksdeildar UMFA,
sagði samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi
að reiknað væri með að Einar yrði úr leik
að minnsta kosti næstu tvær vikur vegna
þessa. Er það skarð fyrir skildi þjá Mosfell-
ingum sem há nú harða baráttu við Hauka
og KA um deOdarmeistaratitílinn.
'
Morgunblaðið/Kristján
JÓHANN G. Jóhannsson er komlnn f kunnuglega stelllngu f hornlnu og skorar eitt af étta
mSrkum sfnum fyrir KA gegn Afturiendlng.
„Færðum þeim
stigið á silfurfati“
Selfyssingar jöfnuðu gegn Frám á elleftu stundu
AFTURELDING tapaði þriðja leik
sínum f röð í 1. deildinni þegar
liðið mœtti grimmsterkum KA-
mönnum á Akureyri í gær. Með
sigri KA, 27:23, er háspenna á
toppnum því iiðið er komið með
25 stig en Haukar og Afturelding
hafa 26. Einar Þorvarðarson,
þjáifari UMFA, var ekki kátur
eftir leikinn. „Við vorum ekki
með okkar sterkasta lið í dag
en ég er sáttur við varnarleik-
inn. Hins vegar gerðum við of
marga feila í sókninni, eina 14
tæknifeila, og fengum á okkur
of mörg hraðaupphlaup. Það er
ekki hægt að vinna leik með
slíku móti. KA-menn spiiuðu vel
en þeir hafa fengið að komast
upp með mikla hörku á heima-
velli og á þessu verða dómar-
arnir að taka,“ sagði Einar.
Harkan var vissulega til staðar í
þessum leik og leikmenn
beggja liða spiluðu eins fast og þeir
ggggggggg komust upp með.
Stefán Þór Vöm KA varð smám
Sæmundsson saman ógnvelqandi
skrifarfrá iða þar sem ákefðin
Akureyri var j fyrin-úmi. Gest-
imir úr Mosfellsbæ byijuðu reyndar
skínandi vel og skomðu þrjú fyrstu
mörkin. Sebastian varði fyrstu skot
KA-manna en eftir 7 mínútur braut
Ziza ísinn og heimamenn jöfnuðu 4:4
eftir 11 mínútna leik. Afturelding
saknaði Einars Gunnars, sem er
meiddur, en liðið hélt samt frum-
kvæðinu og náði þriggja marka for-
ystu á ný. I stöðunni 7:9 urðu hvörf
f leiknum. Vöm KA small saman,
sóknir Aftureldingar gengu ekki upp
og KA-menn skoraðu fjögur mörk í
röð og höfðu 11:9 yfir í leikhléi.
Gríðarleg stemmning var í KA-
heimilinu og dyggilega studdir af
.1200 áhorfendum héldu heimamenn
gestunum f skrúfstykki í seinni hálf-
leik. Jóhann G. fór á kostum í hrað-
aupphlaupum og Duranona gladdi
augað með þramuskotum. Helsta
vopn Aftureldingar í fyrri hálfleik,
Bjarki Sigurðsson, varð nú bitlaust
og þegar um 14 mín. voru til leiks-
loka höfðu KA-menn náð 5 marka
forskoti, 21:16, og munurinn var sex
mörk, 25:19, þegar 6 mfn. voru eft-
ir. Lokakaflinn einkenndist af tauga-
veiklun, sóknimar stuttar og ómark-
vissar en niðurstaðan flögurra marka
sigur KA.
KA-liðið lék sennilega sinn besta
Ieik í vetur og vöm liðsins ekki
árennileg. Jóhann G. og Duranona
skoraðu 8 mörk hvor og áttu stór-
leik. Liðið skoraði 11 mörk úr hraða-
upphlaupum, oftar eftir mistök S sókn
Aftureldingar en góða markvörslu.
Hjá Aftureldingu var Bjarki góður í
fyrri hálfleik og Sebastian átti fína
spretti í markinu en liðið átti ekki
svar við leik andstæðinganna að
þessu sinni. KA-menn voru hæst-
ánægðir í leikslok og líta á þennan
sigur og stemmninguna sem gott
nesti í Evrópuleikinn gegn Fotex
Vesprém nk. sunnudag.
Jöfunarmark þegar átta sekúndur
voru til leiksloka í Safamýrinni
f gærkvöldi, 23:23, dugði Selfyss-
ingum til að næla
sér í eitt stig sem
Stefánsson lyftir h*nu af botm
skrifar deildarinnar. Fram-
arar geta sjálfum
sér um kennt að hafa ekki gert út
um leikinn. „Við færðum þeim stíg-
ið á silfurfatí," sagði Sigurpáll Ámi
Aðalsteinsson, sem gerði 8 mörk
fyrir Fram. „Þetta var grátlegt en
slen lá yfir okkur til að byija með,
við áttum að byija á fullu en virð-
umst þurfa topplið til þess.“
Safamýradrengirnir áttu í mesta
basli með að fínna leiðina framhjá
stæðilegum Selfyssingum og hlupu
á vegg í tíu mínútur. Liðið náði þá
áttum og réð ferðinni fram f síðari
hálfleik en þá var eins og það teldi
stigin í höfíi og biði lokaflautsins.
Það gerðu gestir þeirra ekki og
komust yfír þó að Reynir Þór Reyn-
isson í marki Fram verði þrfvegis
úr opnum færum. Þegar tíu mfnút-
ur voru til leiksloka vöknuðu heima-
menn við vondan draum, tveimur
mörkum undir. Þeir vöktu þar til
tvær mínútur voru eftir og höfðu
þá tvö mörk í forskot. Þá hófst bið-
in eftir lokaflautinu á ný en sem
fyrr biðu gestirnir ekki eftir því og
Alexeiy Demidov skoraði jöfnunar-
markið.
Ungir og sprækir Framarar
sýndu oft leikni en ekki er hægt
að hrósa þeim fyrir að detta niður
þess á milli. Reynir Þór f markinu
varði oft vel, Sigurpáll Ámi var
góður og ekki mátti líta af Oleg
Titov.
Nóg hafa Selfyssingar af þraut-
seigju en eitthvað skortir á leikni
hjá sumum leikmönnum, sem þeir
bæta upp með baráttu og það skil-
aði liðinu stigi í gærkvöldi. Sigfús
Sigurðsson og Alexeiy voru bestír
auk þess sem Gísli Rúnar Guð-
mundsson var ágætur í markinu.