Morgunblaðið - 11.02.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.02.1997, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNIN Geta sjálfum ÓTRÚLEGUR klaufaskapur Stjörnumanna síðustu 19 mín- úturnar í Garðabænum á laugardaginn, þegar þeir tóku á móti Octavio Vigo frá Spáni ífyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða, mun eflaust verða þeim Garðbæing- um dýrkeyptur þegar kemur að síðari leiknum á Spáni um næstu helgi. Eftir frábæra byrjun í síðari hálfleik sneru leik- menn algerlega við blaðinu og glutruðu góðu forskoti niður í tveggja marka tap, 28:26, og geta engum nema sjálfum sér um kennt. Morgunblaðið/Golli VALDIMAR Grímsson, þjálfarl og leikmaður Stjörnunnar, var markahæstur slnna manna á laugardaglnn með átta mörk. Hér reynir hann línusendingu inná Magnús A. Magnússon en rússinn Oleg Lvov er til varnar. Skelfilegt ETTA var skelfilegt og nú er fátt um svör. I stöðunni 24:17 varð mikið óðagot og græðgi þannig að við gleymdum að spila hand- bolta,“ sagði Valdimar Grímsson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar. „Það gerist því miður oft að við höfum forskot en missum það niður. í 45 mínútur spiluðum við okkar besta leik í vetur en leikurinn er 60 mínútur svo að það er ekki nóg og við verðum að halda út allar þessar mínútur. Við erum með betra lið og ef við lagfærum þessa vankanta þá vinnum við útileikinn. Það er iíka stutt í úrslitakeppnina hér heima og við ætlum í fjögurra liða úrslit í Evrópukeppninni en verðum að laga þessa endemis vitleysu. Af hveiju ættum við ekki að geta unnið þá? Við unnum útileik í Austurríki í 16-liða úrslitunum og getum unnið útileikinn nú en hvort það verður með þremur mörkum eða meira, verður að koma í ljós.“ Vinnum næsta leik „Ég er sáttur við úrsiitin og tveggja marka sigur er góður. Stjam- an er með gott lið svo að síðari leikur- inn verður erfíður," sagði Javier Barrios, þjálfari Spánveija. „Við vor- um að vísu ekki að ieika okkar besta leik, misstum boltann of oft. Við viss- um líka lítið um Stjörnuliðið og ekki hvers var að vænta en lærðum á það eftir því sem leið á leikinn, næsta leik vinnum við.“ Markasúpa EF HÆGT er að tala um að mörkum rigni er óhætt að full- yrða að það hafi gerst á Hlíðarenda á Iaugardaginn þegar efsta lið 1. deildar kvenna, Haukar, sótti Vals- stúlkur heim því leiknum lauk með 42:28 sigri Hafnfirðinga. Leikurinn var jafn þar til staðan var 6:6, en þá fóru Haukamir að láta til sína taka, komust í 19:13 og höfðu öll tök á vellinum. Ekki var mikið um vamir og sóknir stuttar og snaggara- legar, en það var skarð fyrir skildi hjá Val að markvörður þeirra, Vaiva Drilingaite, spilaði ekki með. Með sigrinum bundu Haukar enda á sigur- göngu Vaisstúlkna, sem komust í úrslit bikarkeppninnar með sigri á KR fyrir skömmu og unnu síðar Fram. KR velgdi Stjörnunnf undir uggum Ungar og sprækar KR-stúlkur velgdu Stjömustúlkum hressileg und- ir uggum á laugardaginn þegar liðin áttust við í 1. deild kvenna á Seltjarn- amesi. Það var ekki síst góð mar- kvarsla Vigdísar Finnsdóttir í KR sem gaf félögum hennar tóninn, en hún varði 15 skot og KR-stúlkur geta nagað sig í handarbökin fyrir að ná ekki að skora úr fjórum vítaköstum. Vesturbæingar náðu strax forystu og höfðu yfir í leikhléi, 9:7, en um miðjan síðari hálfleik náðu Garðbæ- ingar að jafna, 11:11. Þegar 30 sek- úndur voru til leiksloka skoraði síðan Ragnhildur Stephensen sigurmark Stjömunnar. sér um kennt örlagaríku síðustu nítján mínútum. Fram að þeim hafði liðið sýnt hvað í því býr og undanúrslit Evrópu- keppninnar innan seilingar því Stjarnan var betra liðið á vellinum. Sem fyrr segir átti Axel Stefánsson stórleik í markinu og vörnin hafði lítið gefið eftir þó að oft hafi verið hart að henni sótt. Fram að vendi- punktinum í síðari hálfleik, mátti einnig sjá skemmtilegar leikfléttur þar sem Valdimar Grímsson, Kon- ráð Olavson, Magnús A. Magnús- son og Jón Þórðarson sýndu listir sínar. Spánverjarnir, með tvo Rússa og fjóra landsliðsmenn innanborðs, geta þakkað Stjörnunni kærlega fyrir að gefa sér þennan sigur því liðið var ekki sannfærandi og átti sigur tæplega skilinn - nema ef vera skyldi fyrir að halda þó út þessar 60 mínútur. Markverðirnar, sem báðir eru fyrrum unglinga- Iandsliðsmennn, voru slakir, vörnin stóð oft á gati en í sóknarleiknum gengu oft upp óagaðir sóknartil- burðir. Rússinn Juri Nesterov var erfiður á línunni og landi hans, skyttan Oleg Lvov, var góður í lokin. VALDIMAR Grímsson, þjálfari og le meö átta mörk. Hér reynir hann línus trúa á kr KA-MENN voru sjálfum sér verstir þegar þeir fengu ungverska liðið Fotex Veszprém í heimsókn til Akureyrar á sunnudagskvöld- ið. Þeir sigruðu reyndar i þessari fyrri viðureign félaganna í átta liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa og þaðtelst aldeilis prýði- legt að gera 32 mörk á heimavelli þegar svo langt er komið í keppni sem þessari, en að fá á sig 31 er auðvitað óviðunandi. Og ekki mátti miklu muna; það voru aðeins snilldartilþrif Julians Róberts Duranona að leiktíma loknum sem tryggðu KA sigur - hann skoraði þá með glæsilegu þrumuskoti beint úr aukakasti. Stjörnumenn höfðu tök á leikn- um í upphafi enda búnir að afla sér upplýsinga um mótheija sína og vissu um veikleika þeirra. Stefán Garðbæingar spil- Stefansson „ „ , • skrifar uðu af skynsemi og náðu forystu en áttu í basli með að halda henni vegna sífelldra mistaka, sem skrif- ast á taugaóstyrk leikmanna þó að Spánveijarnir hafi verið iitlu skárri. Síðari hálfleikur byijaði stórkostlega fyrir Garðbæinga, þeir skoruðu úr fyrstu tíu sóknum sínum á ellefu mínútum, sem skil- aði þeim góðri forystu, 24:17. En þá var eins og leikmenn byijuðu að hugsa um að pakka í töskurnar fyrir Spánarferðina og næstu mót- heija, því ekki stóð steinn yfir steini það sem eftir lifði leiks og gestirnir skoruðu 11 mörk á meðan Stjarnan gerði tvö og fékk til þess sautján sóknir. „Við vissum að þeir myndu leika hratt og sækja stíft en ætluðum að reyna að hægja á leiknum. Þar lá veikleikinn hjá þeim en við dutt- um niður á að spila á þeirra hraða, vorum alltof bráðir í sókninni og klikkuðum á færum þar sem við vorum einir á móti markverði,“ sagði Axel Stefánsson, markvörð- ur Stjörnunnar, sem átti skínandi leik og varði 18 skot. „Við þurfum nú að laga þessa vankanta og vinn- um með þremur mörkum í síðari leiknum. Við þurfum að horfa á þetta dæmi þannig að það sé betra að sækja og við getum unnið en það verður erfitt.“ Það er eitthvað mikið að þegar leikreynt lið eins og Stjarnan, ger- ir þvílík mistök eins og á þessum Alfreð ekki „leynivopn" ALFREÐ Gíslason veit að hann þarf að laga vörn KA-liðsins fyrir seinni leikinn við Fotex Veszprém, en aðspurður neitaði þjálfarinn því að sjálfur yrði hann leynivopn ytra. Alfreð, sem hefur stöku sinnum komið inni vörnina í vetur, meiddist nefni- lega á öxl á dögunum og er ekki leikhæfur. Sverrir með úti? SVERRIR Björnsson, leikmaður KA, var ekki með á sunnudag enda með hægri hönd í gifsi. Þumalfingur hans brákaðist á dögunum en að sögn Aifreðs gæti svo farið að hann yrði tilbú- inn í slaginn í Ungveijalandi. Sverrir er sterkur varnarmaður. Gott að vera færri? ÞAÐ virtist henta KA-mönnum ágætlega að vera einum færri í leiknum á sunnudag. Duranona var rekinn af veili er tæp ein og hálf mín. var eftir af fyrri hálfleik en Björgvin Björgvins- son gerði engu að síður tvö síð- ustu mörk hálfleiksins - úr horni og eftir hraðaupphlaup. Hann fullkomnaði svo þrennuna með því að gera fyrsta mark seinni hálfleiks, úr horni, skömmu áður en Duranona kom inná. Ágæt sóknar- nýting KA nýtti 61% sókna sinna í fyrri hálfleik en 58% eftir hlé, sam- tals 59,5%. Ungveijarnir nýttu aftur á móti 54% sókna sinna fyrri hluta leiksins en sóknarnýt- ing liðsins í seinni háifleik var 64% og því samtals 59%. Ljóst er að á brattann verður að i sækja fyrir KA-menn um næstu helgi og litlar sem engar líkur á að eins marks sigur verði Skgptj Akureyringum nægi- Hallgrímsson legt veganesti til Ung- skrifar veijalands, þar sem þeir freista þess að komast áfram í keppninni. Ungveij- arnir eru erfiðir heima að sækja; sigr- uðu t.d. norska liðið Viking þar með 12 marka mun en töpuðu síðan með níu marka mun í Noregi. Til að KA komist í undanúrslit á þessum vettvangi í fyrsta sinn þarf vörn liðsins að minnsta kosti að taka stakkaskiptum fyrir leikinn ytra og markvarslan sömuleiðis, því hvort tveggja var í lamasessi á sunnudag. EG er fyrst og fremst óánægður með vörnina og markvörsluna. Sóknin var í lagi á köflum en hitt af- spyrnuslakt," sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA, eftir sigurinn á Veszprém. KA-menn léku lengstum flata vöm en breyttu um tíma í 5-1, þar sem Sergej Ziza lék fyrir framan félaga sína. „Þetta gekk vel í tíu mínútur en þá kom Gu- yrka inná hjá þeim, hann kom mikið inn í vömina og komst að mínu mati oft upp með að blokkera á ansi vafasaman Ungveijarnir eru mjög hreyfanlegir og léttleikandi og þeir þungu varnar- menn KA sem voru á miðsvæðinu réðu illa við þá. Kraftur í Duranona Sóknarleikurinn var hins vegar góð- ur á köflum hjá KA þótt hann væri býsna einhæfur og það er deginum ljósara að KA-menn geta leikið enn betur í sókninni en í þessum leik. Duranona gerði 14 af 32 mörkum KA; sjö með skotum utan af velli að aukakastinu i lokin meðtöldu, en tvö þessara langskota gerði hann reyndar eftir hraðaupphlaup - þó Ungveijarnir væru komnir í vörnina stökk hann upp langt úti á velli og knötturinn söng í marknetinu í bæði skiptin. Ungver- hátt fyrir félaga sína. Við skiptum aftur í flata vörn en þá komu þeir með alls konar skot sem strákarnir réðu ekkert við - það var engin hreyfing í vörninni." Alfreð benti á að Éles, alla jafna besta skytta ungverska iiðsins, hefði vart náð sér á strik en gæti reynst KA-mönnum erfiður á útivelli. „Við förum ekki út til að halda einhveiju forskoti heldur til að byija aftur frá byijun, við verðum að vinna eða gera jafntefli. Þeir eru gríðarlega sterkir á Alfreð Gíslason, þjálfari KA, eft Ekki yfirmál

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.