Morgunblaðið - 11.02.1997, Page 5

Morgunblaðið - 11.02.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 B 5 TENNIS Morgunblaðið/Golli ikmaður Stjörnunnar, var markahæstur slnna manna á laugardaginn endingu inná Magnús A. Magnússon en rússinn Oleg Lvov er til varnar. i verða að aftaverk jamir réðu sem sagt lítið við hann og þá nýtti hann öll sjö vítaköstin sem KA fékk. Aðrir voru ekki nægilega ógnandi nógu lengi; bæði homamenn- irnir Jóhann G. og Björgvin gerðu prýðilega hluti en týndust þess á milli. Jóhann gerði tvö af þremur mörkum sínum úr horninu og Björgvin þrjú af fimm og það er ljóst að Jóhann þarf að nýtast betur í leiknum úti. Hann byijaði af miklum krafti, gerði reyndar aðeins eitt mark í fyrri hálfleik, með skoti eftir uppstökk fyrir utan vörnina, en barðist fádæma vel. Mikill kraftur var í Leó Emi á lín- unni í fyrri hálfleik en þá gerði hann öll þrjú mörk sín og fékk að auki þijú vítaköst. Hann mátti sín hins vegar lít- ils eftir hlé. Hvorki Ziza né Jakob virt- ist hafa afl og þor til að taka af skarið þegar með þurfti en þó er vert að geta að Jakob fékk tvö vítaköst og Ziza eitt. Fyrir síðari leikinn verða KA-menn að hafa hugfast að engin vettlingatök duga í vörninni og markvörðunum verður með einhveijum ráðum að koma í ham. Liðsmenn verða einnig að vera skynsamari í sóknaraðgerðunum en á sunnudag, Jóhann þarf að nýtast betur og enn meiri áherslu þarf að leggja á að koma Duranona í skotfæri. Og svo verða KA-menn vitaskuld að trúa að tími kraftaverka sé ekki liðinn. Sterkir andstæðingar Enginn vafi leikur á því að lið Vezsprém er gott. í liðinu eru mjög góðir einstaklingar, til að mynda frá- bær vinstri hornamaður og sá hægra megin er einnig rúmlega frambærileg- ur, öflugur línumaður og útileikmenn- irnir eru heldur ekkert slor. Sá þekkt- asti þeirra, József Éles hafði sig reynd- ar óvenju lítið í frammi við markaskor- un - skoraði fjórum sinnum, þar af aðeins einu sinni með langskoti en tvö mörk gerði hann eftir hraðaupphlaup og eitt af vítalínunni. Hann var hins vegar iðinn við að koma knettinum til samheija í góðu færi og ekki fer á milli mála að þarna er á ferðinni mjög snjall leikmaður. Leikstjórnandinn Laszló Sótonyi var besti maður liðsins að þessu sinni, fór á kostum í sóknar- leiknum - bæði sem ieikstjórnandi og eins eftir að hann leysti Éles af í skyttustöðunni vinstra megin; gerði níu mörk, flest gullfalleg. ir eins marks sigur á Veszprém ta bjartsýnn heimavelli og leikurinn úti verður erfið- ur - ég er satt að segja ekkert yfir- máta bjartsýnn," sagði Alfreð. Mjög góð urslit „Ég tel þessi úrslit mjög góð fyrir okkur vegna þess að lið KA er afar sterkt. Ég vona að við leikum betur á heimavelli því í dag fengum við allt of mikið af mörkum á okkur. Vöm okkar er venjulega miklu sterkari og mark- verðir okkar voru, ja - þeir virkuðu hálf þreyttir!" sagði Laszló Sótonyi, besti maður ungverska liðsins, við Morgunblaðið að leikslokum. „I dag áttum við í miklum erfiðleikum með að stöðva Kúbumanninn JDuranona, sem vitaskuld er orðinn Islendingur þótt Ungverjinn hafi ekki vitað það] en það það gengur vonandi betur næst. Ég er að sjálfsögðu mjög bjartsýnn fyrir seinni leikinn. Þá mæta örugglega 3.000 áhorfendur sem styðja vel við bakið á okkur,“ sagði Sótonyi. Norræn samvinna í tvíliðaleiknum Uf-slitaleikurinn í tvíliðaleik varð þriggja setta og stóð í 94 mínútur. Sigurvegarar urðu Linda Jansson frá Finnladi og Annica Lindstedt frá Svíþjóð, en þær unnu ungversku stúlkurnar Adrian Hegedus, sem sigraði í einliðaleiknum skömmu áður, og Noru Koves, 4:6, 6:1 og 6:2. Fyrsta settið var nokkuð glopp- ótt og virtist sem verra væri fyrir stúlkurnar að gefa upp, því sjö lotur af tíu enduðu með sigri þeirra sem tóku á móti. Ung- versku stúlkurnar sigruðu 6:4 en áttu sér ekki viðreisnarvon í næstu lotu, þar sem norræn sam- vinna naut sín til fulls og Jansson og Lindstedt komust í 4-0 áður en Ungveijarnir unnu eina settið í lotunni. Uppgjafir sænsku stúlk- unnar voru fastar og réðu þær ungversku ekkert við þær. Þriðja settið varð jafnt þó það endaði 6:2. Ungveijar komust í 2-1 en töpuðu næstu tveimur lot- um. Sjötta lotan varð löng og spennandi og þar unnu Jansson og Lindstedt mikilvægan sigur og næstu tvær lotur urðu tiltölulega auðveldar. Það var sérstaklega gaman að fylgjast með Jansson frá Finn- landi. Hún er fremur lágvaxinn en gríðarlega mikil baráttukona sem hefur mjög gaman af því að leika, alltaf brosandi en keppnis- skapið skín samt í gegn. Auk þess er hún nett við netið og áhorfendur fengu oft tækifæri til að klappa fyrir henni. „Ég fann mig vel í dag og stoppboltarnir sem ég náði voru margir hveijir ansi góðir. Þetta kemur sjálfkrafa hjá mér, ég þarf í rauninni ekkert að hugsa um það,“ sagði Jansson ánægð eftir sigurinn. „Ég spilaði ekkert sérlega vel, en Linda gerði það hins vegar,“ sagði sænska stúlkan Annica Lindstedt um fé- laga sinn. Þær stöllur hafa aðeins einu sinni áður leikið saman í tvíliða- leik, á móti í Danmörku fyrir hálfum mánuði. „Við höfum ekki tapað leik síðan við hófum sam- vinnu,“ segir finnska stúlkan brosandi og sú sænska bætir við, að líklega þyrftu þær að halda áfram að leika saman. „Við byij- um alltaf illa og töpum venjulega fyrsta settinu, meira að segja í fyrstu umferð hérna. Vegna þess hversu illa við byijum þá höfðum við ekki miklar áhyggjur eftir fyrsta settið í úrslitaleiknum," segir sænska stúlkan, en sú finnska sagðist hafa verið dálítið bangin. Jansson býr í Stokkhólmi og sagðist halda beint þangað og halda áfram að æfa en hún færi ekki á annað mót fyrr en eftir hálfan mánuð. Lindstedt þarf hins vegar að fara í skólann og getur því ekki tekið þátt í fleiri mótum alveg á næstunni. Lindstedt tapaði í undanúrslit- um í einliðaleik fyrir ungversku stúlkunni Hegedus og var því ánægð með að hafa betur í tvíliða- leiknum gegn henni. „Jú, þetta var smá hefnd, en ég var ánægð með að hún skyldi vinna í einliða- leiknum," sagði Lindstedt. Hegedus sagðist mjög ánægð með árangurinn á mótinu enda væri fínt að sigra í einliðaleik og verða í 2. sæti í tvíliðaleik. „Við spiluðum ágætlega í dag en þær voru einfaldlega betri og við því er lítið að segja. Ég fer ángæð heim og nú er bara að æfa meira áður en ég fer á næsta mót,“ sagði Hegedus hin ungverska sem býr í Þýskalandi. Hegedus sigraði örugglega Ungverska stúlkan Adrian He- gedus sigraði hina 16 ára gömlu Marylene Losey frá Sviss nokkuð örugglega í úrslitum í ein- liðaleik á alþjóðlega tennismótinu sem lauk í Tennishöllinni í Kópa- vogi á laugardaginn. Sú ung- verska sigraði eftir 75 mínútna leik, 6:2 og 6:4, og fékk fyrir vik- ið 107 þúsund krónur. Hegedus var sterkari að þessu sinni og sig- ur hennar aldrei í hættu þó svo Losey kæmist í 4-3 í öðru setti. Sú ungverska gerði sér lítið fyrir og sigraði í þremur síðustu lotun- um og tryggði sér þar með sigur í mótinu. Hegedus réð gangi leiksins og allt virtist svo auðvelt hjá henni. Hún hélt sig að mestu við endalín- una, enda er hún mjög góð að leika þaðan og hefur gott vald á boltan- um. Sendingar hennar yfir netið voru fastar og hnitmiðaðar og þegar sá gállinn var á henni gat hún gefið lausa bolta, svokallaða stoppbolta, sem Losey átti erfitt með að ná. Svissneska stúlkan reyndi hins vegar talsvert að komast að netinu og tókst það stundum ágætlega en henni voru mjög mislagðar hendur við að koma boltanum laust yfir. Uppgjafir hennar fóru líka margar í net og því þurfti hún að nota síðari uppgjöfina, sem oft- ast er auðveldari, og því gat He- gedus oft svarað uppgjöfum henn- ar af miklum krafti. Þegar staðan var 4-4 í öðru setti átti Losey uppgjöfina og vissu stúlkurnar báðar að mikilvægt var að vinna. Lotan varð löng og spennandi og fengu báðar mörg tækifæri til að gera út um hana og um síðir tókst þeirri ungversku að sigra og síðasta lotan varð henni auðveld. Svissneska stúlkan var ánægð með annað sætið og vildi alls ekki viðurkenna að hún hefði verið þreytt þó svo hún hafi leikið lang- an undanúrslitaleik daginn áður. „Ég var alls ekki þreytt og í raun er ég mjög ánægð með hvernig ég spilaði, en hún var einfaldlega sterkari en ég í dag. Ég bjóst ekki við að ná svona langt í mót- inu enda þurfti ég að taka þátt í undankeppninni, þannig að ég er alsæl,“ sagði Losey eftir úrslita- leikinn í einliðaleik. Héðan heldur hún beint til Birmingham þar sem hún ætlar að taka þátt í öðru móti. Þegar Losey kom til íslands fyrir tíu dögum var hún í 1.092. sæti á heimslistanum og þar sem mótið gefur stig má reikna með að hún hækki um ein 350 sæti. Morgunblaðið/Golli HEGEDUS sýndi mikið öryggi í úrslitum einliðaieiksins, en henni tókst ekki eins vel upp í úr- slítum tvíilðalelksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.