Morgunblaðið - 14.02.1997, Page 1
-
■ SÆÐISFRUMUR FLUTTAR Á MILLI KARLA7/2 ■ EGILS PILSNER ER
BRUGGAÐUR Á SÉRSTAKAIM HÁTT/3 ■ ALDIN AÐ ÁRUM EN BARÁTTU-
ÞREKIÐ ÓBUGAÐ /6 ■ JOE BOXER/6 ■ MEÐ AUGUM LANDANS/7 ■
!■ jfi -CL mm
Morgunblaðið/Kjartan Þorbjörnsson
ÓLÖF Guðmundsdóttir kann best við stuttar hárkollur en henni finnst að þær þurfi að vera skærlitar.
Litríkt nælonhár,
gerviaugnhár, glimmer og gljái
MEÐ stuttar eða síðar hárkollur eða hártoppa úr nælon-
hári í öllum regnbogans litum, löng gerviaugnahár, með
litríkar, gljáandi glimmerneglur og glimmer og glans á
vörum, andliti, baki og öxlum og/eða þar sem kjóllinn
berar hörundið. Þannig útbúnar mæta þær á skólaböllin,
árshátíðimar eða í samkvæmin.
Ekki þó allar en æ fleiri að sögn Óskar Guðmundsdótt-
ur, sautján ára nemanda í Flensborg í Hafnarfírði. Sjálf
notar hún rauðu kolluna sína bara spari og þá fínnst
henni viðeigandi að setja á sig glitrandi gerviaugnahár
og farða sig með glimmer og glans.
Svanhildur Óskarsdóttir, eigandi verslunarinnar Móa-
nóra á Laugaveginum, var nýverið í innkaupaleiðangri
í New York. Að áeggjan Óskar, frænku sinnar, sem var
með í för, keypti hún nokkrar litríkar hárkollur til að
bjóða upp á í versluninni. „Slíkar kollur voru mjög áber-
andi á sýningum og í verslunum. Ég bjóst ekki við að
þær ættu upp á pallborðið hér en lét slag standa og hef
ekki séð eftir því. Stelpurnar eru óskaplega spenntar
fyrir þessu. Á tveimur vikum hafa selst tíu kollur og ég
er strax búin að panta meira,“ segir Svanhildur.
Heildverslunin Hjölur flytur inn „ýktar“ förðunarvör-
ur; t.d. bláa og græna varaliti, skæra, glansandi, glitkorn-
ótta andlits- og líkamsfarða í nýstárlegum litum o.fl.
Að sögn eigandans renna vörurnar út.
Verslunarmaður með árvökul augu fyrir góðri sölu-
vöru segist ekki hafa séð nein teikn á lofti um vinsæld-
ir slíkra hárkolla og fórðunarvara í London og segir
fyrirbærið trúlega upprunnið í Bandaríkjunum. Svanhildi
fínnst stíllinn minna svolítið á diskótískuna sem réð ríkj-
um kringum 1980 þótt sú tíska hafí verið öllu hóflegri.
Einnig segir hún að „dragdrottningar“ komi óneitanlega
upp í hugann og telur að áhrifin
kunni að vera frá kvikmyndum
þar sem þær eru í aðalhlutverkum
eins og til dæmis í Priscilla.
„Svartar, hvítar og bláar kollur
eru vinsælastar og stelpurnar
sem kaupa þær eru yfírleitt
16-25 ára. Verðið er 4.300-
4.900 kr. eftir því hvort hárið
er sítt eða stutt. Ég er þakk-
lát frænku minni fyrir að hafa
reynst mér svona góður ráð-
gjafí við innkaupin á dögunum
því sjálfri hefði mér aidrei
dottið í hug að nota mætti
kollurnar annars staðar en á
grímuböllum," segir Svanhild-
ur. ■
Lífsreglur
„EN nú hefur það runnið
smátt og smátt upp fyrir
mér, að ég er ákaflega ófull-
kominn. Eg er skepna,“
skrifaði Þórbergur Þórðar-
son í Ofvitann og setti sér
Iífsreglur.
Lífsreglur verða oft til eft-
ir að menn hafa uppgötvað
ákveðna galla sem þeir vilja
losna við. Þeir vilja verða
betri og sáttari manneskjur.
Lífsreglur kosta sterkan
vilja og sjálfsaga og
þess vegna eru þær
oft brotnar.
í blaðinu er rætt við
marga um lífsreglur
sem þeir hafa sett sér
og reynt að grafast
fyrir um gildi
þeirra. „Sá sem vill
bæta heiminn verð-
ur að byrja á
sjálfum sér,“
sagði
Sókrates.
NYSTARLEGAR
förðunarvörur.
EddufeU! - Grensásveqi - Norðurbrún ~ R<o(abö? - Þverbrekku
t"