Morgunblaðið - 14.02.1997, Page 2

Morgunblaðið - 14.02.1997, Page 2
2 B FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Fólk setur sér lífsreglur Lífsreglur ■r lffsrPP’lnr °s sofna klukkan 23. Morgunblaðið/Halldór Kolbeinz LÍFSREGLAN að aka aldrei bifreið veg-na þess að farartækið er óhollt bæði mönnum og náttúru. Vænt reiðhjólið dugar alltaf, hvenær og hvar sem er. A: „Geggjun!“ Þórbergur Þórðarson var lífs- reglumaður. Árið 1910 setti hann sér strangar lífsreglur og kynnti vinum sínum á sjálfan öskudag- inn, en fékk dræmar undirtektir. Þórbergur skrifaði: „Spássera aldrei lengur úti en eina klukkustund á sólarhring. Sofa alltaf fyrir opnum glugga. Fara aldrei í kirkju, aldrei á her og aldrei á neinar aðrar trúar- samkomur. Þroska hugsunargáfurn- ar. til að verða betra, en ber það góðan árangur? Gunnar Hersveinn spurði fólk um lífsregl- urnar þeirra og hugsaði um þær með andmæl- anda á öxlinni. LÖGMÁL náttúrunnar, lög og reglur samfélagsins, siðir og venjur og aðrar hegðunarreglur umvefja einstaklinginn, en er það nóg? Er ekki rétt að setja sér nokkrar lífsreglur til viðbótar? Andmælandi (A): „Hvað er að mannfýlunni?“ Markmiðið er að hætta að vetja tímanum heimskulega, vinna gegn leti, sálarspillandi hegðun og verða sannur maður! Verða fullkominn maður, vitur, góður og viljasterkur. A: „Lífsreglur eru bara til að bijóta og fá samviskubit." Er betra að vera með samvisku- bit yfir að eyða tímanum í tóma vitleysu? Sannleikurinn verður útundan vegna þess að hugsunin fleytir kerlingar á yfirborðinu en kafar ekki í undirdjúpunum. A: „Sa-hannleikann! Hvað heyri ég!“ Það er mesta nauðsyn andlega lífsins að leita sannleikans. Lífs- reglur eru til að bera sigurorð af breyskleikanum og fara að lifa í samræmi við skoðanir sínar en ekki þvert á þær. Hugurinn á heldur ekki að dvelja við hitt kyn- ið, það ber hann af leið andlega lífsins. A: „Ha, ha, ha.“ Brátt skárri, brátt betri maður, lífsreglurnar komnar á blað. A: „Er mannfýlan gengin af göflunum.“ Lífsreglur Þórbergs Þórðarsonar Lífsregla er meðvituð ákvörð- un um að gera eitthvað ætíð eða aldrei. Henni ber að fylgja hvað sem á dynur. Hún er siðfræði einstaklingsins, hún er um hann og varðar ekki aðra. Lífreglur geta verið bæði af siðferðilegum toga og almennum. Manneskja getur sett sjálfri sér reglur eins og að vakna ævinlega klukkan 7 Þroska tilfinningalífið. . . meðal annars með því að syngja 5 til 10 lög á hvetjum degi. Hugsa aldrei um kvenfólk nema á sunnudögum. Þá er mér það leyfilegt." Þrátt fyrir að vinir Þórbergs hafi lagst gegn lífsreglunum skrifaði hann þær upp á gulgljá- andi sauðskinn. A: „Villuráfandi sauður.“ „Það var ekki aðeins undur- samlega lokkandi fyrir augað, heldur var það forskrift um það, hvernig ætti að búa til fullkominn mann,“ skrifaði Þórbergur í Of- vitann. Erf itt að falla ekki fyrir freistingunum Lífsreglur, hvort valda þær frelsi eða ánauð, upprisu eða hrösun? Það er létt verk að setja sér lífsreglur en kostar átök að halda þær. Kant setti sér lífsregl- una „Breyttu einungis eftir þeirri lífsreglu sem þú getur viljað að verði að almennu lögmáli“, og HVER ER LIFSREGLAN ÞIN? DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR HJALTI HUGASON TORFI H. TULINIUS HREINN PÁLSSON Að keyra aldrei undir áhrifum „ÉG VAR alltaf að setja mér lífsreglur sem beindust að hin- um háleitustu markmiðum í gamla daga,“ segir Dagný Kristjánsdótt- ir bókmennta- fræðingur. „Það fór fyrir mér nákvæm- lega eins og aumingja Þór- bergi, reglurnar voru ekki fyrr settar en ég byrjaði að brjóta þær, endurskoða, fresta og setja nýjar. Ég ákvað því að hætta þess- um stóru fyrirheitum, sem ég hafði greinilega ekkert við að gera og halla mér þess í stað að litlum og tímabundnum lífs- reglum, sem hægt er að standa við. Það er bara ein lífsregla sem ég tek dauðans alvarlega en það er að keyra aldrei bíl undir áhrifum áfengis. Það er ekkert erfitt að standa við þá reglu,“ segir Dagný. DAGNÝ Að sýna öðrum samstöðu „ÉG ER ekki meðvitaður um að ég haft neina lífsreglu,“ segir Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði við Háskóla ís- lands. „Það þýðir að mínu viti ekki að ég sé lífsreglu- laus. Eitthvað sem mér er ekki fullkomlega ljóst hvað er, getur sem sé gegnt hlut- verki slíkrar lífsreglu, verið gangráður í Iífi mínu.“ Hann segir að meðvitund- arleysi um lífsreglur geti ugglaust verið slæmt ogjeitt til óljóss gildismats og þar með siðferðis. „Ég óttast hins vegar lífsreglumar ef þær verða of skilgreindar og afmarkaðar. Þær fela óhjá- kvæmilega í sér einföldun þar sem þær byggja á takmarkaðri yfirsýn og innsæi. Þó held ég með góðri samvisku að ég geti sagt að ég hafi eina meðvitaða lífsreglu sem er að reyna að sýna og efla samstöðu í þeim sundraða heimi sem við lifum í. Ég veit ekki alltaf í hverju samstaðan felst í uppkomnum aðstæðum né heldur tekst mér alltaf að vera „sólidarískur" en mig dreymir að minnsta kosti. En lífsreglan er svona: Ég reyni að sýna samstöðu!" segir Hjalti. Að skipta reglu- lega um lífsreglu „ÉG ER ekki „prinsípmaður“,“ segir Torfi H. Tulinius, „en þegar ég segi þetta þýðir það að ég á erfitt með að setja mér reglur sem ég sljórna lífi mínu eftir á meðvitaðan hátt. Ég veit ekki hvort veldur, veik- lyndi eða frelsisþrá.“ í svartsýnisköstum hallast ég að hinu fyrra og tel þetta vera löst en oftast er ég á því að þetta sé kostur, því það er þannig með reglurnar að þó maður setji sér þær og byggi á því sem maður telur best hverju sinni, þá kunna ávallt að koma upp ófyrir- séðar aðstæður þar sem reglurnar passa ekki. Reglur þarfnast því eilífrar end- urskoðunar en verst af öllu er að fylgja þeim í blindni. Því getur verið háskalegt að vera of harður „prinsípmaður“.“ Torfi segist mótaður af ríkjandi sið- ferðisreglum og haga sér yfirleitt eftir þeim, bæði meðvitað og ómeðvitað. „Þó er ekki síður mikilvægt að hafa opinn huga hér,“ segir hann. „Því að ríkjandi hug- myndir eru ekki alltaf réttar og stundum rangar. Það er nauðsynlegt að vera tilbú- inn að endurskoða þær, þegar aðstæður krefjast þess.“ Torfi lýsir lífsreglu sinni svo: „Að vera ávallt tilbúinn að skipta um lífsreglu." Að hálfkák borgi sig ekki ÉG HEF að sjálfsögðu hugleitt stöðu mína í lífinu og samfélaginu en ekki með því að hengja mig í ákveðnar lífs- reglur,“ segir Hreinn Páls- son, skólastjóri Heimspeki- skólans. „Ég verð þó var við að ég endurtek ákveðna frasa oftar en aðra. Ég held að frasamir vísi á ákveðnar lífsreglur eða viðhorf sem ég vil halda í heiðri.“ Hreinn segist fyrir stuttu hafa áminnt níu ára gamlan son sinn um að annaðhvort geri maður hlutina eins vel og hægt er eða sleppi þeim, og segir að þarna birtist ákveðin lífsregla sem hann fari eftir. „Ég hef það gjarnan á orði að hálf- kák borgi sig ekki, það sé betra að láta hlut- ina ógerða ef hugur og atorka fylgi ekki,“ segir hann, en strákurinn sneri á pabba gamla og svaraði að bragði: „Jahá, á ég þá annað- hvort ekki að taka eiturlyf eða taka þau al- mennilega?" „Ég tala stundum um að það gangi ekki að bæta stöðugt plástrum á sárin, einhvern tímann verði að rífa umbúðirnar af og skipta um þær eða meðhöndla málin öðruvísi," segir Hreinn og að lokum: „Hvað ef allir gerðu eins. . . ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.