Morgunblaðið - 14.02.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 B 3
Mér tókst að halda lífsreglurnar æ
lengur og lengur, kannski einni viku
lengur að meðaltali í ár en ár-
skömmina, sem leið. Hinn lægri r
maður varð að afsala sér fleiri og
fleiri skikum af ríki sálarinnar.
Lengur og lengur lánaðist mér að
lifa eftir kröfum hins æðra manns.
Þetta var hægfara þróun. En það
gekk í áttina
Morgunblaðið/Þorkell
KJARTAN Ámason byijar daginn með jákvæðu hugarfari.
er ákvörðunarefnið mitt
Morgunblaðið/Ól.K.M.
RAGNHILDUR
BJARNADÓTTIR
Að muna ófull-
komleikann
„EIGINLEGA má segja að bar-
áttan við lífsreglurnar hafi ver-
ið nokkuð
strembin,"
segir Ragn-
hildur Bjarna-
dóttir, lektor í
Kennarahá-
skóla íslands
„því ég hef tal-
ið mig halda
nokkrar lífs-
reglur í heiðri
eins og að vera heiðarleg og
samkvæm sjálfri mér, en hef
svo með aldrinum uppgötvað
að sjálfsblekkingin hefur haft
mig að leiksoppi - lífsreglurnar
eru ekki eins gegnheilar og ég
helst vildi. Ég er sem sagt mun
ófullkomnari en ég hélt.“
Ragnhildur segir að megin-
lífsregla hennar núna sé að
reyna að læra af reynslunni og
„að þroskast eitthvað pínulítið,
til dæmis með því að horfast í
augu við ófullkomleikann".
Hún hefur líka þá lífsreglu að
hafa lífsreglur og reyna að fara
eftir þeim.
mæltist til að aðrir tileinkuðu sér
hana líka. Hún er einföld og
snjöll, en ef til vill þarf þroska
til að halda hana.
A: „Sá þroski er ekki upp á
marga fiska.“
Einu sinni setti ég mér siðferði-
legar lífsreglur og strengdi þess
að sjálfsögðu heit að halda, viltu
heyra þær?
A: „Nei takk.“
1. Standa við loforð sem ég gef
og samninga.
2. Notfæra mér ekki óheppilegar
aðstæður annarra.
3. Ljúga ekki sjálfum mér til
hagsbóta.
4. Hjálpa, jafnvel þótt ég virðist
ekki geta grætt á þvi.
5. Leiðrétta ef ég fæ of mikið
til baka í búðum.
6. Beita ekki blekkingum til að
fá aðra til að gera eitthvað.
7. Upplýsa aðra um hið sanna í
málunum, hvort sem það virð-
ist ætla koma mér vel eða illa.
8. Láta ekki véla mig til að gera
það sem sumir gera, eins og
að fela, svíkja og blekkja.
A: „Hvílík vanþekking á
blessuðum heiminum.“
Ég hengdi lífsreglurnar upp á
vegg. En það var ekki nóg. Þær
máðust úr huganum. Sterkar að-
stæður yfirbuga menn og þeir
breyta gegn betri vitund.
A: „Sagði ég ekki!“
RÓBERT
HARALDSSON
Að vera
tillitssamur
„ÉG HEF töluvert hugsað um lífs-
reglur í áranna ás og raunar und-
ir áhrifum frá
Þórbergi sem ég
las mikið sem
strákur,“ segir
Róbert Haralds-
son heimspek-
ingur. „Égget
ekki sagt að
mikið hafi kom-
ið útúr þeim
pælingum. Þó
held ég að orðin „vandvirkni" og
„tillitssemi“ myndu koma fyrir í
lífsreglu minni.
Mér líður illa þegar ég kasta
til höndunum við eitthvert verk
en vel þegar ég hef gefið mér tíma
til að vanda mig og verk mín.
Sama gildir um tillitssemi í sam-
skiptum við aðra. Reglan væri þá
sú að vera vandvirkur og tillits-
sarnur."
Þ.Þ.
Lífsreglum andmælt
Lífsreglur geta verið af allt öðr-
um toga. Menn heita sér að ganga
aldrei inn í ákveðin hús eins og
Ráðhúsið, Kringluna eða Perluna.
Og aldrei inn í ákveðnar verslanir
eða að lesa tiltekin dagblöð, þrátt
fyrir öll rök. Hér má jafnvel efast
að um lífsreglur sé að ræða, held-
ur ráði þijóskan eða sérviskan ríkj-
um.
A: „Heimsku myndi ég kallað
það, heimsku.“
En hvers vegna er svona erfitt
að halda lífsreglur? Hvað sem
maður strengir sér oft heit að
verða betri maður og lifa hinu
góða lífí, fellur maður áður en
hani galar tvisvar.
Andmælandi: „Það er mikið að
þú spurðir af viti. Ástæðurnar eru
tvær: í fyrsta lagi vegna þess að
flestir eru of veikgeðja til að
standa við það sem þeir ætla sér.
Sterkir menn finnast aðeins í bók-
um. í öðru lagi vegna þess að
enginn veit hvenær eitthvað er
rétt og hvenær rangt, vegna þess
að allt ræðst af aðstæðum. Og í
þriðja lagi vegna þess að lífsreglur
eru iðulega gegn lystisemdum
holdsins, hætti heimsins og öllum
freistingum. Aðeins ein lífsregla
hefur gildi: Að njóta órofínnar
stundar unaðarins.“
Gott, en þú flaskar á aðalatrið-
inu. Það felst miklu meiri ánægja
í því að standast freistingar en að
falla fyrir þeim. Leiðin til sjálfs-
þekkingar er sjálfsaginn á bak við
lífsreglurnar og niðurstaðan er:
Betri maður, betri heimur.
A: „Hvað er að mannfýlunni?
Hann telur pínu betri en gleði.“
PÁLL
SKÚLASON
Að fara í sund
á morgnana
„ÉG HEF ekki tamið mér lífs-
reglur heldur ýmsar lífsveiy-
ur,“ segir Páll
Skúlason pró-
fessor, „eins
og þá að fara
ísundá
morgnana og
lesa heimspeki
á hveijum
degi, hvar sem
ég er. Ég hef
velt því fyrir
mér hvort ég hafi einhveija
meginlífsreglu, en ég er ekki
viss um að ég geti orðað neina
slíka.“
Páll segir lögmál Kants sér
ætíð hugstætt: „Breyttu ævin-
lega eftir þeirri lífsreglu sem
þú getur viljað að verði almenn
lög.“ „Ég held að ég leiti alltaf
þess sem hefur almennt gildi
og getur sameinað okkur,“ seg-
ir hann.
KJARTAN Árnason skáld segir
að Iífsreglur sínar hafi mótast af
sjálfu sér líkt og vatnsrof í
náttúrunni eða þegar dropinn
holar steininn. Hann segir að
sterk rök hafi hnigið að sumum
þeirra á ákveðnu tímabili og hann
gæti hætt að fara eftir þeim
núna, en hinsvegar finnist honum
þær bara henta sér vel.
Ef til vill eru það knýjandi
aðstæður sem eru uppspretta
allra lífsreglna. Ekki sé nóg að
langa til að gera eitthvað ef
ástæðurnar eru veikar. Á hinn
bóginn setja sennilega flestir sér
lífsreglur vegna þess að þá lang-
ar til einhvers.
Kjartan segist fyrst og fremst
halda reglurnar vegna þess að
hann telji þær réttar fyrir sig.
„Maður hefur hugmyndina og
reynir að fylgja henni eftir án
þess að vera að rembast eða puða
við það,“ segir hann.
„Sérvitringsskap myndu ein-
hveijir kalla það að búa við sjálf-
sprottnar lífsreglur," segir Kjart-
an „ég veit ekki hvort þetta eru
beinlínis lífsreglur en ef til vill
ákveðinn lifsstíll."
Og hér koma
lífsreglurnar:
1. MATUR „Ég hef sett mér
það að vera grænmetisæta og
borða því aldrei kjöt eða fisk, og
hef ákveðið að drepa ekki dýr,
þótt ég amist ekki við dýradrápi
annarra. Þettaer aðeins mín eig-
in lífsregla. Ég ætla ekki að
breyta heiminum heldur lifa eftir
eigin hugmyndum í sátt við
aðra.“
2. BINDINDI „Ég er núorðið
algjör bindindismaður bæði á tób-
ak og vín. Ég er feginn að hafa
tekið þessa ákvörðun þótt ég
þurfi ekki að vera bindindismað-
ur. Það tók mig átta ár að hætta
að reykja og mér fannst ekki
rétt að bjóða líkamanum upp á
það lengur."
3. TRÚ „Ég fer ekki í kirkju
nema í stöku jarðarför. Ég stend
utan allra trúfélaga þótt ég sé
mikill aðdáandi guðdómsins og
er sannfærður um tilvist hans.
4. HUGARFAR „Ég einset
mér alla morgna að takast á við
daginn með jákvæðu hugarfari.
Það gengur auðvitað upp og ofan
fyrir þriggja barna föður með
fjölskyldu. Ég vil ekki að fólk sé
daprara eftir að hafa hitt mig,
heldur að það sé léttara yfir því
en áður ef aðstæður leyfa. Ég
held að allt eigi sér broslega hlið.“
5. ÁHYGGJUR„Að hafa ekki
áhyggjur - og það gengur betur
og betur að ná því markmiði,
jafnvel þótt ég hafí ástæður til
að hafa sæmiTegar áhyggjur af
framtíðinni. Aðferðin felst ein-
faldlega í því að treysta og leggja
öll mín mál í hendur guðs. Þetta
hefur verið ráðlagt í gömlum
bókum, en er ekki eins flókið og
virðist við fyrstu sýn. Hins vegar
krefst áhyggjuleysið einbeitingar
framan af.
6. ÁST „Lífsregla sem er mér
markmið, er að elska konuna
mína þannig að hún sjái ástina
og finni fyrir henni, og hún þurfi
ekki að spyija eftir henni. Háleit-
ara markmiðið væri að elska alla
menn en það er aðeins fjarlægur
draumur.
Lífsreglur og
tannburstun
Kjartan segir lífíð hafa tilhneig-
ingu til að vera bara eins og það
er, en stundum knýi aðstæður
menn til að endurskoða lífemi sitt
og að taka afstöðu til þess.
„Stundum gerist eitthvað sem
beinir sjónum frá heiminum og
inná við og ef til vill setja menn
sér lífsreglur í framhaldi af þvl.“
„Sennilega er óþarfi að setja
sér hástemmdar lífsreglur, heldur
aðeins nokkrar af innri þörf sem
verða svo smátt og smátt að eigin
lífsmynstri eins og að klæða sig
á morgnanna og bursta tennum-
ar,“ segir Kjartan að lokum. ■
Notaðu aðeins það besta,
notaðu TREND snyrtivörur
Með TREND nærðu árangri.
TREND naglanæringin styrkir
neglur. Þú getur gert þínar eigin
neglur sterkar og heilbrigðar.
TREND handáburður með Duo-
liposomes, ný tækni sem vinnur
inní húðinni. Einstök gæðavara.
Snyrtivörurnar frá TREND eru fáanlegar
í apótekum og snyrtivöruverslunum um
land allt. Einnig i SjónvarpsmarkaSnum.
TilEHD
COSMETICS
Einkaumboð og heildsala
S. Gunnbiörnsson 6 CO,
Iðnbúð 8, 210 Carðabæ.
Símar 565 6317 og 897 33«7* Fax 565 8217.
HVER ER LIFSREGLAN ÞIN?
RÓBERT
PÁLL