Morgunblaðið - 14.02.1997, Page 5
4 B FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 B 5
DAGLEGT LÍF
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
JÓHANN og Marta eiga tvær dætur og var sú yngri getin með glasafrjóvgun.
MARTA GRETTISDÓTTIR
OG JÓHANN STEFNISSON
T ækniþróun
orðin nóg á þessu sviði
„VTÐ hefðum hvorki viljað sæði úr
öðrum karli né egg úr annarri konu
ef okkar efniviður hefði ekki dugað
til að geta barn,“ segja hjónin Marta
Grettisdóttir og Jóhann Stefnisson,
sem sumarið 1993 eignuðust dótt-
urina Guðlaugu Katrínu, sem getin
var með glasafijóvgun. Fyrir áttu
þau Aðalheiði Jónu, 14 ára, en eftir
að hún fæddist fékk Marta utanlegs-
fóstur ljórum sinnum og skemmdust
eggjaleiðarar hennar verulega við
það.
Marta segist hafa undirbúið sig
vel, bæði andlega og líkamlega, fyr-
ir glasafijóvgunina. „Ég held að
miklu máli skipti að halda ró sinni
fyrir fijóvgun, á meðgöngu og síðan
í uppeldinu. Auðvitað eru væntingar
fólks sem fer í glasafijóvgun miklar,
en það má samt ekki velta sér of
mikið upp úr þessu. Þetta viðhorf
okkar á örugglega sinn þátt í því
að umstangið kringum glasafijóvg-
unina truflaði okkur lítið.“
Hvar endar þetta?
Jóhanni og Mörtu líst að sumu
leyti ágætlega á rannsóknir dr.
Brinsters, sérstaklega ef hægt verð-
ur að geyma sæðisfrumur krabba-
meinssjúkra karla meðan þeir eru í
lyfjameðferð. Þó segjast þau hafa
' Ljósmynd/Jóhannes Long
SYSTURNAR Guðlaug Katrín
þriggja ára og Aðalheiður
Jóna 14 ára.
áhyggjur af því að vísindamenn
þekki ekki takmörk sín. „Nú er hægt
að hjálpa flestum ófijóum pörum,
ef ekki með tækni- eða glasafijóvgun
þá með smásjárfijóvg-
un. Við höfum áhyggj-
ur af því hversu langt
menn geta gengið í
ÞESSUM þremur fósturvísum
var komið fyrir í legi Mörtu.
Einn þeirra er Guðlaug Katrín
á fyrsta fósturstigi.
rannsóknum. Ófijótt fólk af kynslóð
foreldra okkar átti engra kosta völ.
Við eigum kost á glasafijóvgun, en
hvað um börnin okkar? Þótt tilgang-
ur rannsókna á sviði læknisfræði sé
örugglega alltaf góður er aldrei að
vita hvenær menn ganga of langt.
Okkur finnst að nú sé rétti tíminn
til að hætta og tækniþróun sé orðin
næg á þessu sviði.“
Þegar Marta og Jóhann fóru í
glasafijóvgun voru 12 egg fjarlægð
úr eggbúi Mörtu. „Mér skilst að það
þyki ekkert sérlega mikið, en alls
fijóvguðust fimm egg. Þau voru
skoðuð, metin og flokkuð og þau
þijú sem voru nýtanleg voru sett
upp í legið. Eitt lifði og úr því kom
Guðlaug Katrín," segir Marta og
sýnir stolt mynd af dætrum sínum
tveimur. Hún segir að starfsfólk á
glasafijóvgunardeild hafi reynst
þeim hjónum afar vel og ljóst sé að
þar vinni afar hæft fagfólk.
Egils pilsner er
einn fárra sinnar
tegundarí heim-
inum sem
bruggaður er upp
aö styrkleika en
ekki vatnsþynntur
eftir á.
m
| . L.
Ófrjósemi er viðamikill þáttur í rannsóknum víða um heim
og þegar Brynja Tomer gluggaði í bandarískt lækna-
blað fyrir skömmu rakst hún á grein um enn frek-
ari þróun á þessu sviði. Hugsanlega verður
hægt að flytja óþroskaðar sæðisfrumur milli
karla innan tíðar og örva sæðisframleiðslu
hjá þeim sem á þurfa að halda. Hún ræddi
m.a. við Guðmund Vikar Einarsson, sér-
fræðing í þvagfæraskurðlækningum, sem
segir brýnt að kanna t.d. hvaða erfðaefni
nýjar sæðisfrumur myndu bera.
FÓSTURVÍSIR í
móðurkviði, um
mánuði eftir
getnað.
Sæðisfrumur
fluttar milli karla
ÁSTÆÐUR fyrir
ófijósemi og leiðir til
úrbóta eru viðfangs-
efni vísindamanna um
allan heim. Sýnt hefur
verið fram á að spræk-
ar sæðisfrumur í með-
alkarli eru ekki jafn
margar og þær voru
fyrr á öldum. í British
Medical Journal birtist
grein, árið 1992, um
niðurstöður rannsókna
á 15 þúsund körlum
víðs vegar um heim.
Þar kom fram að árið
1940 syntu 112 millj-
ónir sæðisfrumna í
hveijum millílítra sæð-
is úr meðalkarli, en nú hefur þeim
fækkað um helming. Þótt sæðis-
framleiðsla í því magni sé langt frá
því að leiða til ófijósemi hafa marg-
ir áhyggjur af þróuninni ef hún
heldur áfram á sömu braut.
Rannsóknir enn
á frumstigl
Nýjar rannsóknir benda til þess
að í framtíðinni verði hægt að
ganga enn eitt skref í þróun á sviði
ófijósemi og flytja svokallaðar
stofnfrumur milli karla og örva
þannig framleiðslu á
sprækum sæðisfrumum.
Stofnfruma er frumstig
sæðisfrumu og henni til
hjálpar koma meðal
annars svokallaðar stoð-
frumur, sem næra þær
og styrkja.
Dr. Ralph L. Brinster
hefur á undanförnum
árum unnið að rann-
sóknum á rannsóknar-
stofnun dýralækna-
deildar háskólans í
Pennsylvaníu og hafa
greinar um niðurstöður
hans verið birtar í virt-
um ritum, til dæmis
Nature Medicine. Þar er
meðal annars greint frá rannsókn-
um hans á nagdýrum, sem staðið
hafa yfir í nokkur ár. Óþroskaðar
sæðisfrumur, stofnfrumur, voru
teknar úr fijóum dýrum og þær
frystar og geymdar í allt að 156
daga áður en þeim var sprautað
aftur í eistu sömu dýra eða ann-
arra. Merkustu niðurstöðurnar eru
líklega þær að eftir að stofnfrumum
hafði verið sprautað í eistu dýranna
hófst umtalsverð framleiðsla á sæð-
isfrumum, jafnvel hjá dýrum sem
fram að því höfðu verið ófijó.
Tíðindi af þessum rannsóknum
eru sögð sérlega ánægjuleg fyrir
ófrjóa karla og einnig þá sem horfa
fram á óftjósemi, til dæmis í kjölfar
lyfjameðferðar vegna krabbameins
í eistum. í ritinu Executive Health’s
Good Health Report er m.a. rætt
við dr. Marc Goldstein prófessor í
þvagfæraskurðlækning-
um í New York-háskólan-
um. Hann fagnar fréttun-
um og bætir við að þær
ættu einnig að veita betri
innsýn í orsakir ófijósemi.
„Þær gætu til dæmis út-
skýrt hvort ákveðin teg-
und ófrjósemi stafar af
galla í stofnfrumum eða
hvort gallinn er í stoðfrumum sem
næra og styrkja sæðisfrumur. Við
sjáum einnig fram á að sjúklingur
með krabbamein í eistum geti látið
frysta stofnfrumur sínar áður en
lyfjameðferð hefst og látið síðan
koma þeim aftur fyrir í eistum sín-
um að lokinni meðferð.“
Ýmsum spurningum enn
ósvarað
Guðmundur Vikar Einarsson, sér-
fræðingur í þvagfæraskurðlækning-
um, hefur unnið mikið með ófijó-
semi. Hann segir umræddar rann-
sóknir mjög áhugaverðar. „Annars
vegar sýna þær hvernig hægt er að
geyma stofnfrumur í frosti og koma
þeim síðan aftur fyrir og hins vegar
er sýnt fram á að hægt er að flytja
stofnfrumu úr einni tegund í aðra,
því í rannsókninni var meðal annars
prófað að færa stofnfrumur úr mús-
um í rottur og öfugt.“
Segir Guðmundur Vik-
ar ljóst að mikil rann-
sóknarvinna þurfi að fara
fram áður en farið verður
að gera aðgerðir af þessu
tagi á körlum. „Allar
rannsóknir taka ákveðinn
tíma og mörgum spurn-
ingum þarf að svara áður
en farið er að gera nýjar aðgerðir
á mönnum. Ýmis lagaleg og siðferð-
isleg mál þarf að ræða og leita þarf
svara við mörgum spurningum af
þessum toga. Enn virðist því til
dæmis ekki hafa verið svarað hvort
erfðaefni sæðisþega eða sæðisgjafa
er í þeim frumum sem sæðisþegi fer
að framleiða. Ég sé fyrir mér að
eftir tíu ár verði búið að leysa laga-
leg og siðferðisleg vandamál og þróa
aðferðir til að gera þessar aðgerðir
á mönnum.“
GUÐMUNDUR
Vikar Einarsson.
Víð þurfum að
svara mörgum
lagalegum og
siðferðislegum
spurningum.
Mjöður
Egils áttræður
EPALÍTIÐ vita fáir að Egils
pilsner er einn fárra sinnar
tegundar í heiminum sem
bruggaður er upp að styrkleika
en ekki vatnsþynntur eftir á
eins og tíðkast í ölgerðum er-
lendis.
Þótt aðferðin hafi í fyrstu
einkum helgast af strangri
áfengislöggjöf hefur forsvars-
mönnum Olgerðarinnar Egill
Skallagrímsson ehf. ekki þótt
ástæða til að taka upp fljótvirk-
ari, auðveldari og ódýrari
framleiðsluaðferð, þ.e. vatns-
þynningu á lokastigi fram-
leiðslunnar. Slík aðferð segja
þeir að standi langt að baki
þeirri sem notuð er við fram-
leiðslu Egils pilsners.
Árið 1913 stofnaði Tómas
Tómasson heitinn fyrirtæki
sitt, Ölgerðina Egill Skalla-
grímsson, sem framleiddi ein-
ungis malt og hvítöl í fjögur
ár eða þar til Tómas sjálfur hóf
tilraunir með að brugga pilsn-
er; Egils pilsner, fyrir áttatíu
árum. Þótt Tómas setti pilsner-
inn á markað var hann framan
af ekki allskostar ánægður með
framleiðsluna.
Dönsku dátarnir og
Eglls pllsnerlnn
Synir Tómasar, Tómas Agnar
og Jóhannes, núverandi eigend-
ur ölgerðarinnar, segja að árið
1924 hafi orðið bylting í gæðum
ölsins þegar faðir þeirra réð
þýskan bruggmeistara til
starfa. „Edward Meister náði
fljótlega frábærum árangri.
Besti vitnisburðurinn um ágæti
ölsins voru þó dönsku dátarnir,
sem komu með Kristjáni X
Danakonungi í opinbera heim-
sókn árið 1926. Mönnum þótti
mikið til um að þeir tóku Egils
pilsner fram yfir þann danska
og sagan var ekki lengi að
spyrjast út. í kjölfarið hvarf
danski pilsnerinn, sem óspart
hafði verið haldið að þjóðinni,
smám saman af markaðnum og
Egils pilsner varð allsráðandi.
Þá sögðu íslandingar ef til vill
í fyrsta skipti „íslenskt - já
takk,““ segir Tómas Agnar.
Á síðasta ári voru framleiddir
tæpir 500 þúsund lítrar af Egils
pilsner. Þótt framleiðslutækni
hafi þróast og geymsluþol auk-
ist í tímans rás segir Tómas
Agnar að bragðið sé svipað og
þegar dönsku dátarnir gæddu
sér á veigunum fyrir tæpum
sjötíu árum.
Afþýskum bruggmelsturum
Á stríðsárunum var Tómas
heitinn bruggmeistari fyrirtæk-
isins, síðan Hinrik Guðmunds-
son, eini lærði íslendingurinn í
faginu í þá daga, og árið 1953
tók Þjóðveijinn Hermann Raspe
við. „Síðan hafa Þjóðveijar ráð-
ið lögum og lofum í ölgerð fyrir-
tækisins. Hermann starfaði
áður í KindelbrUuerei, víð-
frægri ölgerð í Berlín, og hafði
getið sér góðan orðstír í heima-
landinu. Sem fyrrverandi félagi
í nasistaflokknum og uppá-
haldsbruggmeistari nasistafor-
ingja átti hann erfitt uppdráttar
eftir stríðið og hrökklaðist úr
landi. Þekking Hermanns kom
sér vel og hann átti stóran þátt
í að þróa framleiðslutæknina
og auka geymsluþolið,“ segir
Tómas Agnar.
Vegna hinnar sérstöku fram-
leiðsluaðferðar Egils pilsners
DAGLEGT LÍF________
Frjóvgun með
náttúrulegum hætti
eða aðstoð tæknilegra nýjunga
VIÐ fijóvgun með náttúrulegum
hætti etja 200-350 milljón sæðis-
frumur kappi upp á líf og dauða í
nokkra klukkutíma er þær synda í
átt að eggi sem losnað hefur úr
eggbúi konu. Sprækasta fruman,
sú sem fyrst kemst að egginu, fær
að fijóvga það en hinar deyja. Því
fer fjarri að fijóvgun takist alltaf
með þessum hætti og svo virðist sem
ófijósemi hafi aukist á síðustu árum
og áratugum. Nú er hún orðin all-
stórt vandamál í heilbrigðiskerfi
Vesturlanda.
Ekki er vitað nákvæmlega hversu
algeng ófijósemi er, en oftast er
talað um að hún hijái 10-15% para
á Vesturlöndum. Sumir telja hlut-
fallið hærra og að ófijó pör séu nær
20%. Læknavísindi hafa ýmsar leið-
ir til úrbóta, til dæmis glasa- og
tæknifijóvganir. Svokölluð smásjár-
fijóvgun er nýleg tækni sem kemur
þeim vel sem hafa ónógar sæðis-
frumur eða sæðisfrumur með léleg-
an hreyfanleika. Sæðisfrumu er þá
sprautað beint í egg konunnar og
er notuð örmjó glernál til þess,
ásamt smásjá sem stækkar
200-400 sinnum.
Glasafjóvgun
Langur biðlisti hefur verið á
glasafijóvgunardeild Landspítalans
frá því hún tók til starfa. Pör sem
fara í glasafijóvgun þurfa að upp-
fylla ýmis skilyrði og gangast undir
rannsóknir áður en metið er hvort
glasafijóvgun er viðeigandi. Að öll-
um skilyrðum uppfylltum og bið-
tíma liðnum tekur við undirbúning-
ur fyrir fijóvgunina. Öllu meiri und-
irbúningur er hjá konum en körlum,
hvort sem ófijósemi er tengd eggja-
framleiðslu hennar eða sæðisfrum-
um karlsins.
í bæklingi sem kvennadeild
Landspítalans gaf út um glasa-
fijóvgun kemur m.a. fram að undir-
búningur taki um einn mánuð. Kon-
an fær daglegar lyfjasprautur í um
tvær vikur og fer síðan í rannsókn
til að kanna hvort lyfið hafi haft
tilætluð áhrif, auk þess sem eggja-
stokkar eru skoðaðir til að meta
með einungis 2,25% alkóhóli að
rúmmáli þarf oft að skipta um
ger og rækta það upp. I kveri
um sögu Ölgerðarinnar Egill
Skallagrímsson, sem Gísli Guð-
mundsson gerlafræðingur
skráði í tilefni fimmtán ára af-
mælis fyrirtækisins 1928, segir
á einum stað: „Áttunda deildin
er gerhreinræktunarstofa, og
er hún nauðsynleg, því jafnan
er skift um ger öðruhvoru, ekki
síst fyrir þá sök, að það er
hálfkvalið í svo áfengislitlu öli,
sem hjer er leyft að gera. Ger-
hreinræktunaráhöldin eru gerð
eftir fyrirsögn hins kunna vís-
indamanns E. Chr. Hansens.“
„Meiri fylling í bragðinu í
samanburði við öl, sem þynnt
er eftir á, er samdóma álit
þeirra sem hafa bragðlaukana
í lagi,“ segir Tómas Agnar.
„Egils pilsner hefur lengi verið
helsta skrautfjöður fyrirtækis-
ins og við verðum alltaf jafn-
montnir þegar erlendir kolleg-
ar hrósa okkur fyrir framleiðsl-
una.“
■
vþj
hvort blöðrur hafi myndast. Þá taka
við annars konar lyfjagjafir hjá
konunni í 12-16 daga og á sama
tíma byijar karlinn að taka sýkla-
yf. Ef meðferðin ber tilætlaðan
árangur og stærð eggbúa er nægj-
anleg er eggheimta skipulögð.
Sama dag og náð er í egg skilar
karlinn sæðisprufu sem notuð verð-
ur við fijóvgunina. Eggheimta fer
fram með aðstoð ómtækja og fær
konan þá róandi og Verkjastillandi
lyf auk staðdeyfingar. Að lokinni
eggheimtu tekur konan sýklalyf í
viku til að draga úr hættu á sýkingu
Eggjum og sæði er blandað sam-
an 4-6 klukkutímum eftir egg-
heimtu. Fylgst er með fijóvgun og
sérfræðingar meta lífvænleika fóst-
urvísa. Ef fijóvgun verður er fóstur-
vísum komið fyrir legi konunnar
tveimur til þremur dögum síðar.
Getur parið ákveðið hvort einn, tveir
eða þrír fósturvísar eru settir upp
í legið. Vegna hættu á fjórbura-
þungun eru fjórir fósturvísar ekki
settir upp. Að tveimur vikum liðnum
er gert þungunarpróf með blóðsýni
og kemur þá í ljós hvort fósturvísar
hafa náð að festast í legi. Hafi það
tekist eru blóðsýni tekin úr konunni
íjórum sinnum á næstu tveimur
vikum til að fylgjast með þungunar-
hormóni. Þá taka við ómskoðanir
til að staðfesta þungun í legi og
þroska fósturvísa. Ef allt hefur
gengið samkvæmt áætlun heldur
meðganga áfram undir eftirliti
læknis.
Heimilt að geyma
fósturvísa {fimm ár
Samkvæmt íslenskum lögum er
nú heimilt að geyma fósturvísa í
fimm ár. Geymsla þeirra er háð
skriflegu samþykki þeirra sem
leggja kynfrumur til og er aðeins
heimil í þeim tilgangi að koma þeim
síðar fyrir í konunni sem lagði til
eggið, eða eiginkonu eða sambýlis-
konu þess karlmanns sem lagði til
sæðisfrumurnar. Samkvæmt lögum
um tæknifijóvgun, sem samþykkt
voru síðastliðið vor, setur ráðherra
reglur um leyfilegan geymslutíma
fósturvísa í samræmi við bestu
læknisfræðilegu þekkingu á hveij-
um tíma. í kjölfar gildistöku lag-
anna var skipuð nefnd þriggja sér-
fróðra manna á sviði læknisfræði,
lögfræði og siðfræði til að fylgjast
með framkvæmd laganna og vinna
að endurskoðun þeirra. Voru nú-
gildandi reglur, um 5 ára geymslu-
tíma, samþykktar að tillögu þessar-
ar nefndar.
Framtíðarhúsgögn