Morgunblaðið - 14.02.1997, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Aldin að árum
en baráttuþrekið óbugað
Þóra Einarsdóttir er enn
að, áttatíu og fjögurra
ára. Frá herbergi sínu á
dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Seljahlíð aflar
hún fjár fyrir nauð-
stadda Indveija. Hún
sagði Valgerði Þ. Jóns-
dóttur frá baráttu sinni
við að tryggja áfram-
haldandi rekstur skóla,
sem hún setti á
laggirnar á Indlandi.
■■■ ÞÓRA Einarsdóttir, oft kennd
o við Vemd, segist enn vera „að
Wi sníkja". Hún er orðin áttatíu
O °g fjögurra ára og hefur trú-
O lega farið síðustu ferð sína til
H" Indlands, en þar stofnaði hún
Wi endurhæfíngarheimili fyrir
IQ holdsveikar stúlkur í Madras
Ub fyrir áratug. Frá morgni til
kvölds situr hún við símann og
skrifar á tölvuna í herbergi sínu
í Seljahlíð þar sem hún hefur
búið síðastliðna mánuði. Þótt
35? Þóra sé heilsulaus og komist
ekki sjálf til að fylgjast með
rekstrinum fer fátt fram hjá
henni. Síminn og tölvan eru hjálpar-
tæki hennar.
Þóru er mikið hjartans mál að
tryggja áframhaldandi rekstur heim-
ilisins, sem fyrir nokkmm ámm var
breytt í skóla með áherslu á bókleg-
ar greinar, tölvunotkun og hand-
mennt. Hún segist vera orðin
þaulæfð í sníkjum og þann starfa
geti hún altént innt af hendi þótt
hún komist varla milli húsa. Innan
Morgunblaðið/Þorkell
„ÓKEYPIS skóli er raunhæf þróunarhjálp — neyðarhjálp,"
segir Þóra Einarsdóttir.
skamms halda tveir synir hennar
ásamt ritara Indversku barnahjálp-
arinnar, sem jafnframt er félagi í
Soroptimistasambandi íslands, eins
styrktaraðila skólans, til Madras.
Þau ætla að skoða aðstæður og
kanna hvort breytinga er þörf á
kennsluháttum eða á öðram sviðum.
Meft langan llsta f fartesklnu
„Synir mínir kosta ferðina úr eigin
vasa, öðmvísi væri þetta ekki hægt.
Þeir verða augu mín og eyra og
hafa langan lista fyrirmæla frá mér
í farteskinu. í kjölfar fréttatilkynn-
ingar frá Læknum án landamæra,
alþjóðasamtökum sem ég hef starfað
mikið með, þarf til dæmis að kanna
hvort leggja eigi meiri áherslu á
fræðslu um alnæmi og smitleiðir.
Samtökin benda á að alnæmi hafi
tekið við af holdsveiki sem skæðasta
plága Indlands," segir Þóra, sem
flestir þekkja af störfum hennar að
líknar- og mannúðarmálum hér
heima og á Indlandi. Hún var hvata-
maður að stofnun Verndar; félaga-
Vísir að safni
með indversk-
um munum
ÞÓRA Einarsdóttir ætlar að
ánafna íslensk-indverska menn-
ingarfélaginu alla þá indversku
muni, sem henni hafa áskotnast
á ferðum sínum um Indland. Hún
afhenti Jóni Arnalds, ræðismanni
Indlands á íslandi, gripina með
ósk um að þeir yrðu fyrsti vísir
að indversku safni hér á landi.
Að sögn Jóns er í bígerð að
flokka munina og skrá helstu
upplýsingar í samráði við Þóru.
Ætlunin er að koma gripunum
fyrir í vistlegum húsakynnum
sem félagsmenn geta jafnframt
notað til hugleiðslu. ■
Morgunblaðið/Þorkell
I
í
t
\
i
c
]
t
1
]
1
(
!
!
1
]
i
;
1
i
ÞÓREY Vilhjálmsdóttir frá
Eskimo Models í viðtali hjá
blaðamanni The New York
Times.
NICK Graham milli Sóleyjar
og Völu í sjónvarpsviðtali eft-
ir sýninguna.
ALLS tóku 10
karlmenn þátt í
sýningunni auk
ísleusku stúlkn-
anna.
Joe Boxer
á leið til íslands
VEGLEG sýning á vegum banda-
ríska tískuframleiðandans Joe Box-
er sem haldin verður á íslandi í
apríl næstkomandi var kynnt fyrir
fjölmiðlum á sýningu í New York
á-dögunum. Sýningin á íslandi verð-
ur fyrsta alþjóðlega tískusýning Joe
Boxer. Nick Graham aðaleigandi
fyrirtækisins var hér á landi fyrir
nokkram vikum þar sem hann hafði
samband við íslenskar módelskrif-
stofur en hann hyggst aðeins nota
íslenskar fyrirsætur á sýningunni.
„Graham valdi fjórar fyrirsætur
frá Eskimo Models til að fara út á
sýninguna í New York og fóru þær
allar í boði Joe Boxer. Stúlkurnar
sem voru einu kvenfyrirsæturnar á
sýningunni vöktu mikla athygli er-
lenda fjölmiðlafólksins," segir Þó-
rey Vilhjálmsdóttir, en hún rekur
Eskimo Models ásamt Ástu Kristj-
ánsdóttur. Þórey sagði ennfremur
að sýningin i New York hefði verið
mjög fagmannlega unnin og að það
væri gott tækifæri fyrir íslenska
módelskrifstofu að vera valin í þetta
verkefni.
íslensku stúlkurnar sem fóru út
á vegum Eskimo Models heita Elva
Dögg Melsteð, Júlía Björgvinsdóttir
Valgerður Árnadóttir, og Sóley
Kristjánsdóttir.
Sýningin var haldin í sýndarveru-
leikamiðstöð á Times Square og
vakti athygli fyrir frumleika. Henni
var sjónvarpað á tveimur sjónvarps-
stöðvum í Bandaríkjunum og birt-
ust m.a. valdir kaflar í Entertain-
ment Tonight sem sýndur hefur
verið á Stöð 2.
Gott tœklfœrl
“Þetta var frábær ferð og mér
leið alveg eins og í bíómynd allan
tímann. Þessi sýning mjög frumleg
og litrík, alls ekki eins og þessar
hefðbundnu “catwalk“ sýningar.
Við stelpurnar vorum sérstaklega
kynntar sem fyrirsætur frá Islandi
og vakti það verulega athygli fjöl-
miðla,“ sagði Elva Dögg Melsteð.
Hún er sannfærð um að tækifæri
eins og þetta geti reynst mjög vel
í hinum harða heimi fyrirsætu-
bransans og sagði að lokum að rús-