Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 1
 V ■ MILDIR LITIRINNAN VEGGJA HEIMILA/2 B LOÐFELDIR EKKI LENGUR STÖÐUTÁKN/3 ■ EFNISHYGGJA OG ALLSHERJAR FARSÆLD/4 ■ MALSNILLD I TILHUGALIFI/6 Strípulitanir og styttur þykja í tísku sem og gegn- sæir kjólar. hár og sítt VORLÍNAN í hártískunni var kynnt á frönsku hárgreiðslusýn- ingunni Haute Coiffure Frangaise sem haldin var nýlega í Parísar- borg. Þangað flykktust hár- greiðslumeistarar víða að úr heim- inum til að kanna hvað franskir starfsbræður þeirra hefðu fram að færa og þeirra á meðal voru þær Elsa Haraldsdóttir frá Salon VEH og Hanna Kristín Guð- mundsdóttir frá hárgreiðslustof- unni Kristu. í samtali við Daglegt líf sögð- ust stöllurnar vera mjög ánægðar með sýninguna þar sem fram hefði komið heilmikið af nýjung- um sem þær geti nýtt sér í starfi. Það sem einkenndi stílbragð frönsku hárgreiðslumeistaranna öðru fremur var að þeirra mati ljósir hárlitir og síðara hár en verið hefur í tísku. „Dömuhárgreiðslurnar voru líf- legar en flestir meistaranna klipptu styttur í hárið með nýrri aðferð sem gerir hárið létt og fjör- legt. Herrarnir voru alls ekki snöggklipptir heldur allir fremur síðhærðir og margir þeirra loðnir í kringum eyru og hnakka. Strípu- litanir eru mjög algengar hjá báð- um kynjum og oftast í mjög sterk- um og kröftugum tónum. Litirnar eru þó ívið dekkri hjá körl- um en konum.“ Á frönsku hársýning- unni sem haldin er bæði vor og haust, sýna jafnan frægir franskir fatahönn- uðir nýjustu sköpunarverk sín. Christian Dior hefur meðal ann- ars hann- að drag- síða og ró- sótta kjóla sem voru til sýnis en mikla athygli sýningargesta vöktu kjólar úr málmefnum, hannaðir af Paco Ra- banne. Hjá öðrum fatahönnuðum gætti meðal annars austurlenskra áhrifa, sýndur var fatnaður sem hannaður er í anda Elvis Presleys og margar fyrirsætur skörtuðu gegnsæjum kjólum og blússum. Að sögn Elsu og Hönnu Kristín- ar var andlitsförðun fyrirsætanna mjög vel heppnuð og skemmtileg. Annað hvort voru þær mikið farð- aðar um varirnar eða augun. „Varalitimir voru í fremur óvenju- legum litum, til dæmis dökkbláir eða hvítir, augnförðunin var yfir- leitt í sterkum og dökkum litum en að öðru leyti voru fyrirsæturnar lítið farðaðar.“ ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.