Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
__________DAGLEGT LÍF
Mildari
litir innan veggj a
LITIR innan veggja heimilanna
verða mildari á næstu tveimur
árum en síðustu misseri sam-
kvæmt spá sérfræðinga sem legg-
ja línur í þessum efnum í Evrópu.
Á árlegri Heimtextil-sýningu sem
haldin var í Frankfurt fyrir sköm-
mu voru kynntar helstu nýjungar
í hönnun og var Eyjólfur Pálsson
innanhússarkitekt meöal þeiiTa
sem sóttu sýninguna.
Ljós og lýsing
Segist hann ekki hafa orðið var
við róttækar breytingar á straum-
um og stefnum í innanhússarki-
tektúr, en þó sé ljóst að glugga-
tjöld, áklæöi og innanhússmálning
verði í mildari litum en til þessa.
„Þótt einhverjar tískusveiflur séu
í litum skiptir mestu máli að per-
sónulegur smekkur húsráðenda fái
aö njóta sín. Sumir falla raunar í þá
gryfju, þegar þeir ætla að mála
heima hjá sér, að velja nokkra liti
af litaspjöldum, sem þeim fínnast
fallegir án þess að velta fyrir sér
hvernig þeir passa saman. Sam-
setning lita skiptir verulegu máli
til að heildarsvipur verði fallegur í
híbýlum.“
Lýsing er Eyjólfi hugleikin, ekki
síður en hönnun. Hann mælir með
því að fólk velti vel fyrir sér lýs-
ingu á heimili sínu áður en ráðist
er í að kaupa ljós og lampa. „Ef um
er að ræða ný hús er hægt að leita
upplýsinga hjá rafmagnstækni-
fræðingum eða rafmagnsverk-
fræðingum sem hafa séö um hönn-
un raflagna í húsinu. Þessir menn
hafa væntanlega velt fyrir sér lýs-
ingu í húsinu og er gott að heyra
hljóðið í þeim áður en ljós eru sett
upp. í eldri húsum eru lagnir oft
svo gamlar að ekki er hægt að ná
tali af þeim sem sáu um raflagnir,
en þá er tilvalið að leita upplýsinga
hjá fagfólki, til dæmis í verslunum
sem selja ljós og lampa.“
Lýsing í dökku rými
Eitt af því sem Eyjólfur bendir
á að skipti máli er að fólk átti sig á
eðli lýsingar sem það vill hafa á
heimili sínu. „Sums staðar eru loft
til dæmis mjög falleg og þá er
þess virði að hafa ljós sem lýsir
ekki aðeins niður heldur einnig
upp í átt að loftinu.“
POUL Henningsen segir að minni lýsingu þurfí í dökkt
herbergi en ljóst.
Hann segir að litir geti vissu-
lega haft áhrif á birtu í híbýlum,
en það er algengur misskilningur
að í dökku rými þurfi miklu meiri
lýsingu en í ljósu rými. „Poul
Henningsen gerði til dæmis grein
fyrir þessu í bók sem hann skrifaði
um lýsingu. Hann setti upp ljós í
20 fermetra eldhúsi með dökk-
fjólubláu lofti, svartri eldhúsinn-
réttingu og íústrauðum flísum á
gólfi. Hann setti upp eitt af sígildu
loftljósunum sínum, Ph5, í miðju
eldhússins og lét nægja 60 kerta
peru í það. Þrjú önnur ljós voru í
eldhúsinu, hvert með 25 kerta
peru, svo alls var þetta stóra og
dökka rými lýst upp með 135 kert-
um. Ástæðan er sú að augasteinar
okkar dragast saman í myrkri og
augun aðlagast því. Þess vegna
þarf minni lýsingu í dökku her-
bergi en ljósu, hversu undarlega
sem það hljómar.“
Halogen-ljós ofnotuð
Eyjólfur segir að stundum séu
halogen-ljós ofnotuð. „Besta lýs-
ing á heimilum finnst mér sú sem
líkir sem mest eftir dagsbirtu.
Loðfeldir
eru munaðarvara
en ekki stöðutákn eins o
M
LOÐDYRABÆNDUR og
sölusamtök þeirra hafa
ástæðu til að kætast um þess-
ar mundir. Eftir mörg erfið
ár hefur verð minkaskinna
hækkað um 87% og refaskinna um
20% á árunum 1995 og 1996. Því
þykir sýnt að loðfeldir eru í tísku
og verði enn um sinn.
Um síðustu helgi stóð Saga Furs
of Scandinavia, Samtök íslenskra
loðdýrabænda og Pelsinn fyrir
sýningu á minka- og refaskinnum
á Hótel Islandi. Þar voru sýndar
tæplega sextíu flíkur úr minka- og
refaskinnum, sem fulltrúar Saga
Furs ferðast með landa á milli og
kynna sem loðfeldatísku vetrarins
1997/98. Um tuttugu loðfeldir frá
Pelsinum voru einning á sýning-
unnni auk þess sem íslenskir loð-
dýrabændur sýndu afrakstur
framleiðslu sinnar og ráðunautar
frá Bændasamtökunum veittu
verðlaun fyrir bestu minka- og
refaskinnin.
Saga Furs of Scandinavia eru
samtök loðdýrabænda á Norður-
löndum, stofnuð 1954, og hafa
Samtök íslenskra loðdýrabænda
verið innan vébanda þeirra frá ár-
inu 1981. Að sögn Tom Steifel-
Kristensen, yfirmanns almanna-
tengsla Saga Furs, er hlutverk
samtakanna að sjá um alþjóðlega
markaðssetningu minka- og refa-
skinna. „Merki Saga Furs of
Scandinavia er tvímælalaust lang-
þekktasta merki á pelsum um all-
an heim. Heimsfrægir tískuhönn-
uðir eins og Yves Saint Laurent,
Nina Ricci, Lacroix, John Galliano,
Ferré og fleiri kaupa Saga Furs-
skinn. Markaðshlutdeild samtak-
anna er 70% af minkaskinnum sem
framleidd eru
á minkabú-
um og sam-
bærileg tala
íyrir
refa-
skinn
er
Wé
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MINKAPELSAR frá Pelsinum úr liágæðafeldi
Saga Royal. ítölsk hönnun.
Síð-
ast-
liðin
tutt-
ugu
ár
hafa
orðið
stórfelld
ar fram-
farir í
gæðum
skinna og
loðfeldir og
alls kyns
flíkur úr
minka- og
refaskinn-
um eru eftir-
.NÝSTÁRLEG-
UR fatnaður úr
minkaskinni;
brjóstahaldar inn
er úr hvítu og
svörtu minka-
skinni. I jakkanum
skiptast á rendur
úr svörtum minka-
feldi og satini, og
pilsið er gegnsætt
milli minka
skinnsranda.
Hönnuður: Mart-
in Reid, London.
HARALDUR Reynisson loðdýrabóndi á Hlíðarbergi á Mýrum fékk 1.
verðlaun fyrir refaskinn og Halldóra Andrésdóttir loðdýrabóndi á Fé-
lagsbúinu Engihlíð í Vopnafirði 1. verðlaun fyrir minkaskinn. Kepp-
endur fengu stig fyrir stærð skinnanna, lit og gæði, en þá var tekið
tillit til þéttleika háranna, áferðar og hreinleika þelsins. Refabændur
þurftu að skila inn þremur skinnum og minkabændur fímin.
APPELSINUGULUR minkapels með bláum legg-
ingum og röndum. Minkaskinnið er snöggt því
búið er að plokka löngu hárin, svokölluð vindhár,
af og einungis undirullin eða þelhárin eru eftir.
Hönnuður; Alex Fung, New York.
sótt tískuvara," segir Steifel-
Kristensen.
Aðspurður hvort áróður ýmissa
dýra- og umhverfisverndarsam-
taka hafi dalað segir Steifel-
Kristensen að mótmælin séu ekki
eins hávær og áður. „Fólk er orðið
langþreytt á að láta segja sér f'yrir
verkum. Það vill taka sjálfstæðar
ákvarðanir en ekki láta ofstækis-
fulla hópa gefa íyrirskipanir um
hvernig það á að hugsa, klæðast og
haga lífi sínu. Þótt loðfeldir séu
munaðarvara er ekki lengur litið á
þá sem stöðutákn. Ný hugsun og
vöruþróun hefur leitt til þess að
„ömmupelsinn“ er úr sögunni og
komnir eru fram á sjónarsviðið
pelsar frá alþjóðlegum tískuhönn-
uðum, sem nota heimsins besta
hráefni til að skapa nýja hönnun á
fatnaði úr náttúrulegasta efni sem
fáanlegt er.“ vþj