Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D
51. TBL. 85. ARG.
SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ásdís
Vertíðin í fullum gangi
VETRARVERTÍÐ stendur nú sem hæst. Aflabrögð hafa verið góð og eru margir bátar langt komnir með þorskkvótann.
Það er af sem áður var þegar bátar kepptust um að koma með sem mestan afla að landi.
Blóðug átök í Albaníu
Vlore. Reuter.
ÆSTIR mótmælendur, vopnaðir skamm-
byssum og rifflum, völsuðu um götur suður-
albanska hafnarbæjarins Vlore í gær, eftir
að sex manns að minnsta kosti biðu bana
og 22 slösuðust í átökum múgs og lög-
reglu á föstudagskvöld og aðfaranótt laug-
ardagsins. Kveikt var í höfuðstöðvum leyni-
lögreglunnar, og tveir eða þrír liðsmanna
hennar drepinn af múgnum. Skotbardagi
milli mótmælenda og lögreglu hafði geisað
í tvær klukkustundir áður en múgurinn
náði byggingu leynilögreglunnar á sitt vald.
Þar stal hann miklu magni skotvopna og
skotfæra áður en eldur var borinn að bygg-
ingunni.
Á veginum milli Vlore og höfuðborgar-
innar Tirana settu borgarar upp vegar-
tálma til að sýna samstöðu með uppreisn-
armönnum í Vlore. Samkvæmt óstaðfestum
fregnum sáust tveir herbílar í ljósum logum
við Lushnje, 80 km suður af Tirana.
Stúdentar í hungurverkfalli
Ástandið í Vlore hefur verið eldfimt und-
anfarnar vikur vegna gífurlegrar óánægju
íbúa þar, sem margir hveijir misstu aleig-
una er svokallaðir píramíta-sjóðir urðu gjald-
þrota, en við þá hafði fólkið bundið vonir
um skjótfenginn gróða. Fyrir tíu dögum
hófu 42 stúdentar í bænum hungurverkfall
til að ýta undir kröfur íbúanna í garð stjóm-
valda. Ofbeldið á föstudagskvöld brauzt út
eftir að sá kvittur komst á kreik, að lög-
regla hefði stungið stúdent með hnífi fyrir
utan háskólann. Var þetta nóg til að hleypa
ofbeldisöldunni af stað.
Á laugardagsmorgun logaði enn í hlutum
leynilögreglubyggingarinnar. Um 2.000
manns á ýmsum aldri, nær allir vopnaðir,
söfnuðust saman um morguninn við háskól-
ann, og minntust með einnar mínútu þögn
„píslarvotta lýðræðisins“, sem fallið höfðu
í átökunum um nóttina. Andrúmsloftið var
rafmagnað og gert ráð fyrir að það héldist
svo yfir helgina.
80 ár frá
valdaafsali
Jekaterínburg. Reuter.
ÁTTATÍU ár eru liðin í dag frá því síð-
asti keisari Rússlands, Nikulás II, afsal-
aði sér krúnunni í þeirri von að það
mætti verða til þess að koma í veg fyrir
að borgarastríð brytist út í hinu víðfeðma
ríki.
Valdaafsal hans, sem fram fór í einmana-
legum járnbrautarvagni nærri Pskov 2.
marz 1917, varð ekki sá tímamótaviðburð-
ur sem sumir höfðu vonazt til að binda
myndi enda á aldalanga kúgun í Rúss-
landi. Hófsömu umbótasinnarnir, sem
knúðu keisarann til að stíga þetta skref,
urðu sjálfir fórnarlömb bosévíka um hálfu
ári seinna. í júlí 1918 tóku síðan bolsévík-
ar alla keisarafjölskylduna af lífi í Jekater-
ínburg í Úral-fjöllum, þar sem Borís Jelts-
ín, Rússlandsforseti, var ríkisstjóri á Sov-
éttímanum. Hann lét rífa húsið þar sem
keisarafjölskyldan var myrt.
Harður jarð-
skjálfti í Kína
Peking. Reuter.
HARÐUR jarðskjálfti reið yfir Jiashi-hér-
að í Norðvestur-Kína í gærmorgun, með
þeim afleiðingum að um 1.500 hús
hrundu og að minnsta kosti einn lét lífið.
Styrkleiki skjálftans var 6,0 á Richters-
skalanum. Á sama svæði urðu 50 manns
fómarlömb jarðskjálfta í janúar síðast-
liðnum. Mikil jarðskjálftavirkni er um
þessar mundir í Mið-Asíu og Vestur-
Kína. Að minnsta kosti 350 manns fór-
ust og 1.600 slösuðust í jarðskjálfta í
Norður-íran á föstudag, að sögn íranska
ríkissjónvarpsins í gær.
Eiturlyfjabar-
ón sleppur
HUMBERTO Garcia Abrego, einn um-
svifamesti eiturlyfjabarón Mexíkó, slapp
úr greipum lögreglunnar seint á föstu-
dag, nokkrum klukkustundum eftir að
Bandaríkjastjórn hafði ákveðið að veita
Mexíkó „vottun“ sína sem lands sem sýn-
ir fullnægjandi samstarfsvilja í baráttunni
við eiturlyfjaframleiðslu og -smygl. Garc-
ia er bróðir Juan Garcia Abrego, sem
stýrir stærsta eiturlyfjasmyglhring Mexí-
kóflóans. Hann situr nú inni, en verið var
að yfirheyra bróðurinn vegna peninga-
þvættis og annarra sakargifta tengdum
smyglstarfseminni.
Mikill pólitískur þrýstingur var á
stjórnina að veita Mexíkó ekki þessa
„vottun“ vegna útbreiddrar spillingar í
mexíkóska embættismannakerfinu. Þau
lönd, sem ekki hljóta hina árlegu „vott-
un“ og lenda á svörtum lista sæta við-
skiptaþvingunum af hálfu Bandaríkjanna.
HVALIR
Aðnýta
eða njóta?
10
Togast á
um safn-
skóla eða
hverfis-
skóla
18
24
GÚRKUVODKI
TIL BRETLANDS