Morgunblaðið - 02.03.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Utanríkisráðherra á alþjóðlegri ráðstefnu um hvalveiðar í Reykjavík
Alþjóða hvalveiðiráðið
týndi uppruna sínum
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði við setningu alþjóð-
legrar ráðstefnu um hagræn og póli-
tísk sjónarmið varðandi hvalveiðar í
Norður-Atlantshafi, sem haldin var
í Reykjavík í gær, að stofnun, sem
hefði týnt uppruna sínum, væri í
reynd dauðadæmd. Átti hann þar
við Alþjóða hvalveiðiráðið, sem ís-
lendingar eru ekki lengur aðilar að.
Með allri virðingu fyrir ráðinu, hefði
ísland engin áform uppi um að ger-
ast aðili að því á ný þar sem ráðinu
hefði mistekist að fylgja eftir eigin
sáttmála.
Utanríkisráðherra vitnaði í Ríó-
ráðstefnuna, sem stutt hafi eindreg-
ið rétt þjóða til nýtingar á eigin
auðlindum í samræmi við þeirra eig-
in umhverfis- og vaxtarmöguleika.
Þar áður hefðu Sameinuðu þjóðimar
með Hafréttarsáttmálanum viður-
kennt yfirráð þjóða yfir slíkri nýt-
ingu innan 200 mílna landhelgi. Að
sama skapi hefðu Sameinuðu þjóð-
irnar viðurkennt sjávarspendýr sem
auðlind og lýst því yfir að þjóðir
heims skyldu vinna saman að vernd-
un hvalategunda í gegnum viðeig-
andi alþjóðlegar stofnanir. íslend-
ingar hafi fyllilega tekist á við sínar
skuldbindingar hvað þetta snerti og
myndu halda áfram á þeirri braut.
Ráðherrann sagði að mikið verk
væri óunnið í því að uppfræða þá,
sem væru beggja blands í afstöðu
sinni til hvalveiða og átti hann þar
við þann hóp manna, sem væri í
reynd með hvalveiðum en kallaði á
frekari vísindaleg rök fyrir þeim.
Halldór sagði að uppi væm hávær-
ar raddir um vemdun allra hvalateg-
unda þótt alþjóðleg lög og vísindi sem
og nútíma viðhorf í garð sjálfbærrar
þróunar séu ótvírætt hlynnt skyn-
samlegri nýtingu auðlindanna.
Að skipa öllum tegundum í sama
líffræðilega flokk hvað varðar nýt-
anleika er eitthvað sem þjóðir í
norðri, sem eiga allt sitt undir fisk-
veiðum, sætti sig ekki við. Engum
myndi t.d. koma til hugar að setja
á bann við fiskveiðum á heimsvísu
þótt þorskstofninn á afmörkuðum
svæðum væri í hættu. Nákvæmlega
það sama gilti um sjávarspendýr.
Engin röksemd væri fyrir því að
banna hvalveiðar alfarið þótt tiltekn-
ir hvalastofnar séu í hættu.
Fimm milljarða tekjur
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, ræddi á ráðstefnunni
möguleg áhrif hvalveiða á íslenskan
útflutning. í máli hans kom m.a.
fram að í besta falli gætu tekjur
þjóðarbúsins af hvalveiðum numið
allt að fimm milljörðum króna. Meg-
inhluti þeirra tekna stafaði einkum
af auknum þorskveiðum en beinar
útflutningstekjur hvalaafurða gætu
numið allt að 1,5 milljörðum, sé tek-
ið mið af veiðireynslu áranna 1980
ti! 1985.
Þórður tók skýrt fram að þessar
tölur mætti ekki taka bókstaflega.
Veruleg áhætta væri í því fólgin að
taka upp hvalveiðar að nýju þar sem
nokkrar af stærstu viðskiptaþjóðum
íslendinga væru andsnúnar veiðun-
um. Það gæti því haft veruleg áhrif
á helstu atvinnugreinar þjóðarinnar,
sjávarútveginn og ferðamannaiðnað-
inn.
Endumýjun Austur-
strætis að hefjast
GAGNGERAR endurbætur eru að
hefjast í Austurstræti, milli Lækj-
argötu og Pósthússtrætis. Skipt
verður um hellur og allar lagnir
í götunni, sem verður lokuð um-
ferð þar til verki er lokið, þ.e.
fram til 7. júní ef áætlun stenst.
„Þetta verður mikill sprengur,“
sagði verktakinn, Arnar Krist-
jánsson, í samtali við Morgunblað-
ið.
Reykjavíkurborg gerði samn-
inginn við Amar Kristjánsson
ehf. að loknu útboði þar sem fyrir-
tækið átti næstlægsta boð; um 23
m.kr. sem er u.þ.b. jafnhátt og
kostnaðaráætlun.
Arnar sagði að um það bil 10
manns myndu vinna við verkið.
Um er að ræða um 1.800 fermetra
hellulögn og undir henni verður
skipt um hitalagnir, þar á meðal
snjóbræðslulagnir, svo og raf-
magns- og símalagnir. Einnig
verða sett ný niðurföll.
Arnar Kristjánsson og hans
menn hafa komið sér upp bæki-
stöð á Lækjartorgi, fyrir framan
Dómhúsið. Til þess að auðvelda
gangandi vegfarendum umferð
um götuna verður verkið þannig
unnið að fyrst verður norðurhluta
Austurstrætis rifinn upp og end-
umýjaður og síðan suðurhlutinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Sveinsson stjórnarformaður íslenska járnblendifélagsins hf.
Fulltrúar Elkem voru
afar ósveigjanlegir
JÓN Sveinsson, stjórnarfomiaður
íslenska jámblendifélagsins, segir að
stjómendur Elkem hafi verið afar
ósveigjaniegir í viðræðum um stækk-
un Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga. Þeir hafi í raun hald-
ið sig allan tímann við upphaflega
kröfu um aukinn hlut Elkem í verk-
smiðjunni á verði sem íslenska ríkið
hafí ekki getað sætt sig við.
„Við komum til fundarins vitandi
að þetta gæti færið á hvom veginn
sem var, en við vomm undir það
búnir að leggja í töluverða vinnu til
að ná niðurstöðu. Það kom samt til-
tölulega fljótt í ljós að Norðmennirn-
ir voru ekki tilbúnir að fallast á þau
sjónarmið sem við vorum búnir að
leggja fram á okkar síðasta fundi
þannig að það var okkar mat að það
væri enginn tilgangur að halda þessu
áfram. Þeir voru út af fyrir sig sam-
mála því.“
Jón sagði að það mætti segja að
íslensku fulltrúamir hefðu átt frum-
kvæði að viðræðuslitum. „Það hafa
engar breytingar orðið á þeirra hug-
myndum eða tillögum. Við höfum
komið fram með tillögur og breyting-
ar. Á okkar síðasta fundi komum við
fram með tilboð sem voru nánast
okkar lokatilboð og væntum þess að
það yrðu einhver við-
brögð við því, en þegar
það varð ekki fannst
okkur ekki ástæða til
að halda þessu áfram.“
Mismunandi
verðmætamat
Jón sagði að það
væri grundvallarágrein-
ingur milli íslenska rík-
isins og Elkem um mat
á verðmæti hlutabréfa
í Jámblendifélaginu.
Samkomulag um þetta
atriði væri forsenda fyr-
ir stækkun verksmiðj-
unnar.
„Við buðum Elkem að ef fjórði
bræðsluofninn kæmi til gæti fyrirtæk-
ið komist í meirihluta, en þar var einn-
ig byggt á ákveðnum verðforsendum,
þ.e. með hvaða hætti tiltekinn hluti
ríkisins gengi yfír til Elkem. Elkem
var hins vegar ekki tilbúið að fallast
á verðhugmyndir okkar í því efni.
Við ræddum einnig að ef ekki
kæmi til byggingar þessa fjórða ofns
verksmiðjunnar, sem stjórnendur El-
kem voru með hugmyndir um, gætu
þeir samt orðið meirihlutaaðili í verk-
smiðjunni árið 1999 ef þeir sam-
þykktu að kaupa tiltek-
inn hluta ríkisins á
markaðsverði á þeim
tíma. Þeir féllust heldur
ekki á þetta. Þeir vildu
leggja til grundvallar
ákveðna verðforsendu
miðað við verðlagningu
þeirra á fyrirtækinu í
dag og það sættum við
okkur ekki við.“
Stjórn Landsvirkjun-
ar samþykkti sl.
fímmtudag viljayfirlýs-
ingu um raforkusölu til
J ámblendifélagsins
vegna byggingar fjórða
og fimmta ofnsins. Jón
sagði að þetta virtist ekki hafa haft
nein úrslitaáhrif á afstöðu Elkem.
Jón sagði að fundur yrði haldinn
í stjórn Járnblendifélagsins á næstu
vikum til að skoða þetta mál í heild
sinni. „Sú staðreynd liggur fyrir að
allir eignaraðilarnir voru sammála
um að það væri hagkvæmt að ráðast
í þessa stækkun. Þess vegna fínnst
manni, sem fulltrúa meirihlutaaðil-
ans, hart að 30% eignaraðili skuli
geta stöðvað slíka ráðstöfun."
Jón sagði að ríkisstjómin hlyti í
framhaldi af þessu að þurfa að taka
afstöðu til þess hvaða áhrif þessi
niðurstaða hefði á þá stefnu hennar
að selja eignarhlut ríkisins í Jám-
blendifélaginu. „Það má hugsa sér
að ríkið setti bréf verksmiðjunnar,
hluta þeirra eða þau öll, á almennan
markað, en þá eiga hinir eignaraðil-
amir, Sumitomo og Elkem, forkaups-
rétt að bréfunum. Þá er það mark-
aðsverðið sem ræður og fyrirtækin
þyrftu að vega það og meta hvort
bréfín fengjust fyrir viðunandi verð.“
íslenska ríkið getur selt
í upphaflegum samningi eignarað-
ilanna voru ákvæði um að íslenska
ríkið mætti ekki selja sinn hlut fyrstu
15 ár samningsins nema með sam-
þykki hinna eignaraðilanna. Þessi
tími er liðinn og því getur íslenska
ríkið tekið ákvörðun um að selja sinn
hlut án samþykkis hinna hluthaf-
anna.
Jón sagðist ekki vita hvar Elkem
ætlaði að byggja upp kísiljárnfram-
leiðslu sína í framtíðinni. Hann sagði
að Elkem hefði ekki látið í ljós áhuga
á að selja sinn hlut í Jámblendifélag-
inu. Markaðssamningur Járnblendi-
félagsins við Elkem gilti til ársins
2004. Sala á framleiðslu fyrirtækis-
ins væri tryggð til þess tíma.
Jón Sveinsson
eða njóta
►Frá vísindalegu sjónarmiði virð-
ist fátt því til fyrirstöðu að hefja
hvalveiðar og nýtingu þessara mik-
ilfenglegu skepna hafsins á ný, en
til eru önnur sjónarmið, bæði til-
finningalegogfjárhagsleg. /10
Kína eftir Deng
►Kínveijar standa á krossgötum.
Mun efnahagslífið halda áfram að
batna eða tekur óvissan við? /12
Saf nskólar eða hverf-
isskólar?
►Á Akureyri og víðar er nú rök-
rætt hvort allir gmnnskólar eigi
að vera hverfisskólar í stað þess
að áður voru starfandi hverfisskól-
ar og einn safnskóli fyrir unglinga-
stig. /18
Gúrkuvodki til
Bretlands
►í Viðskiptum/Atvinnulífl á
sunnudegi er rætt við Árna Helga-
son, framkvæmdastjóra Catco hf.
er framleiðir og selur íslenskt
brennivín og fleiri áfengistegundir.
/24
i_________________________
► 1-32
Ég veit hvað tónlist-
in hefur gefið mér
►Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari á að baki mikið starf í þágu
tónlistar á íslandi. Jónas segir frá
uppvaxtarárum, tónlistarnámi og
hvetjum augum hann líturtónlist-
arlíf samtímans. /1-5
Menning er auðlind
►Björn G. Bjömsson hefur komið
víða við allt frá því hann hætti í
Savannatríóinu. Hanntelur menn-
ingu íslands vanmetna uppsprettu
auðs. /8
Aðeins sá hæsti
er eftír
►Hluti af undirbúningnum er að
fara í fjallaferðir hér innanlands
og reyna búnað sem notaður verð-
ur í leiðangrinum. Morgunblaðið
slóst með í eina slíka för. /14
c
FERÐALOG
► 1-4
Montafon
►Þessi dalur vestast í Austurríki
er tilvalið skíðasvæði fyrir fjölskyl-
dufólk. /2
Ferðapistill
► I'jöldaferðamannalandið ísland?
Erlendir ferðamenn í íslenskri
náttúru vara íslendinga við of
hraðri uppbyggingu. /4
13 BÍLAR_________________
► 1-4
Á Cherokee niður
Sunset Boulevard
►Nýr Jeep Cherokee var kynntur
evrópskum blaðamönnum í sólinni
í Kalíforníu á dögunum. /2
Reynsluakstur
►Opel Vectra langbakur í mörg-
um útgáfum. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42
Leiðari 28 Skák 42
Helgispjall 28 Fólk í fréttum 44
Reykjavíkurbréf 28 Bió/dans 46
Skoðun 30 Útvarp/sjónvarp 510
Minningar 32 Dagbók/veður 85
Myndasögur 40 Gárur fib
Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. 0b
Idag 42 Dægurtónl. I2b
Brids 42
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6