Morgunblaðið - 02.03.1997, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997
SKOÐUIM
MORGUNBLAÐIÐ
ITILEFNIGREINAR-
GERÐAR HOLLUSTU-
VERNDAR RÍKISINS
GREINARGERÐ forstöðumanns
meng'unarvarna Hollustuverndar
ríkisins í Morgunblaðinu 14. febrúar
1997 gefur tilefni til nokkurra at-
hugasemda. Undirritaður blandar
sér í þessa umræðu vegna þess að
hann fæst við skógrækt á jörð sinni,
Klafastöðum, sem að stærstum
hluta liggur innan svokallaðs þynn-
ingarsvæðis mengunar frá væntan-
legu álveri á Grundartanga.
Greinargerð Hollustuverndar rík-
isins er rituð sem svar við grein dr.
Odds Benediktssonar í Morgunblað-
inu-4. febrúar 1997. Greinargerðin
er skipulega uppsett og sama skipu-
lagi verður fylgt í því sem hér fer
á eftir.
1. Koltvísýringur
Áhyggjur vegna koltvísýrings
lúta að uppsöfnun efnisins í and-
rúmslofti jarðar vegna umsvifa
mannsins. Sterkar líkur benda til
þess að mikil aukning efnisins í
andrúmsloftinu geti valdið óæski-
legri hitnun andrúmsloftsins, sem
síðan kynni að hrinda af stað víð-
tækum breytingum á umhverfinu,
með óæskilegum áhrifum á stóran
hluta heimsbyggðarinnar. Þrátt fyr-
ir töluverða óvissu um gildi reikni-
líkana sem spá um framtíðarþróun
gróðurhúsaáhrifa hafa þjóðir heims
góðu heilli tekið höndum saman um
að takmarka losun koltvísýrings út
í andrúmsloftið. Staðbundin áhrif
koltvísýrings valda ekki áhyggjum.
2. Brennisteinstvíoxíð
Umfjöllun um brennisteinstvíoxíð
í greinargerð Hollustuverndar ríkis-
ins er byggð á (1) áætluðu magni
brennisteinstvíoxíðs í útblæstri
verksmiðjunnar, (2) dreifingu
mengunar og lýkur með (3) ályktun
Hollustuverndar með hvaða hætti
brennisteinstvíoxíð breytist í
brennisteinssýru. Hér verður fjallað
um þessi atriði í sömu röð.
(1) Áætlað magn losunar:
Brennisteinn er aðskotaefni i raf-
skautum úr koli, sem notuð eru við
rafgreiningu í kerum álverksmiðju.
Áætlað magn losunar er 21-28 kg
af brennisteinstvíoxíði fyrir hvert
tonn af áli eða 10,4-13,8 tonn á
dag. Þetta magn jafngildir 16-20
tonnum af brennisteinssýru á dag.
(2) Dreifing brennisteinstvíoxíðs:
Líkan ef dreifingu mengunar er
unnið af innlendri verkfræðistofu.
Gæði slíkra reiknilíkana eru háð því
hvað höfundur tölvuforritsins hafði
í huga við smíði líkansins, skilningi
notandans á hugsun höfundarins
og gæðum þeirra gagna, sem forrit-
ið á að vinna úr. Forrit til að segja
fyrir um dreifingu loftkenndra og
fastra efna í andrúmsloftinu eru
fjölmörg allt frá fremur einföldum
líkönum til að greina mjög stað-
bundnar aðstæður til ofurforrita,
sem eru keyrð á öflugustu tölvum
heims.
Líkan sem á að reikna dreifingu
loftkenndra efna þarf að taka tillit
til margra þátta þar sem hver þátt-
ur getur verið breytilegur innan
þröngra tímamarka. Sem dæmi má
nefna hitamun íblöndunarefnis og
andrúmslofts, magn og útstreymis-
hraða íblöndunarefnis, vindátt og
vindstyrk, úrkomu og gerð hennar
og áhrif landslags á loftstrauma,
en fleira kemur til. Augljóst má
vera að forrit sem reiknar dreifingu
loftkenndra efna gefur eina niður-
stöðu fýrir hvert eitt gildi hvers
hinna breytilegu þátta. Sannferðug
framsetning á niðurstöðum reikn-
inga hlýtur því að vera með þeim
hætti að birta kort af dreifingu efna
við ólíkar aðstæður og meta síðan
líkur á því í hve langan tíma eitt-
hvert ákveðið ástand geti varað.
Þannig væri æskilegt að sjá dreif-
ingu efna í ólíkum
vindáttum og við mis-
munandi vindstyrk.
Áhugaverðast væri að
sjá dreifingarlíkan fyr-
ir kyrra daga, sem eru
æði margir við Grund-
artanga. Þess í stað
birtir mat á umhverfis-
áhrifum eina mynd af
dreifingunni og miðar
við meðaltalsvind-
styrk, og meðaltals-
vindátt. Þessi meðal-
talsaðferð hefur tak-
markað upplýsinga-
gildi, og er ófullnægj-
andi til að meta stað-
bundin (Hvalfjörður)
og tímabundin áhrif mengunar af
völdum brennisteinstvíoxíðs og
annarra. mengandi efna.
(3) Ályktun Hollustuvemdar: í
mestum hluta umíjöllunar um
brennisteinstvíoxíð í greinargerð
Hollustuverndar er látið nægja að
vísa til dreifingarspár í umhverfís-
mati, en undir lokin er gerð tilraun
til að skýra áhrif mengunarinnar á
þann hátt að fólk, sem ekki hefur
sérþekkingu skilji. Slíkar tilraunir
leiða oft til einföldunar sem endar
í rökleysu. I einfaldaðri skýringu
Hollustuverndar er taláð um „þum-
Alger höfnun starfs-
leyfís fyrir álver á
Grundartanga, segir
Guðmundur E. Sig-
valdason, er eina niður-
staðan, sem er vísinda-
lega og siðferðilega
viðunandi.
alputtareglu" sem segir að í 10 km
fjarlægð frá upphafsstað mengunar
hafi tíundi hluti brennisteinstvíox-
íðs breyst í brennisteinssým, helm-
ingur í 500 km fjarlægð o.s. frv.
Niðurstaða Hollustuverndar er að
öll mengun sé löngu komin á haf
út og þess vegna skaðlaus þegar
brennisteinssýra hefur myndast.
Lítum aðeins nánar á þetta ferli.
Brennisteinstvíoxíð tengist súrefni
loftsins og myndar brennisteinsþrí-
oxíð. Hraði efnahvarfsins er háður
ríkjandi umhverfísaðstæðum. Strax
og tengingin hefur átt sér stað
dregur brennisteinsþríoxíð til sln
raka úr andrúmsloftinu og myndar
brennisteinssým. Loftkennda efnið
hefur þá breyst í vökva, sem mynd-
ar ördropa, sem eru 1/1000 mm í
þvermál. Smæð og rafhleðsla drop-
anna veldur því að þeir fljóta í loft-
inu og falla ekki til jarðar fyrr en
regn eða snjór skola þeim niður.
Ástæða þess að rannsókn á þessu
fyrirbrigði hefur stóreflst á síðustu
ámm er sú að við ákveðnar aðstæð-
ur (t.d. mikil eldgos) geta ördropar
af brennisteinssým
borist upp í heiðhvolfið
þar sem þeir virka sem
hvatar á eyðileggingu
ósons. Við vitum að
brennisteinstvíoxíð
breytist í þríoxíð á mun
skemmri tíma en áður
var haldið, en breytingr
in er háð umhverfinu.
Reikna má með að
helmingur efnisins hafi
breyst í þríoxíð á
nokkmm klukkustund-
um en við hvaða að-
stæður sem er hefst
ferlið strax og brenni-
steinstvíoxíð kemst í
snertingu við andrúms-
loftið. Hraðast verður ferlið ef efni
eru í nánd, sem hvetja efnahvörfín
og þar er járn mjög virkt. Blöndun
á kísiljámryki Járnblendiverksmiðj-
unnar og brennisteinstvíoxíði frá
álverksmiðju mun sennilega flýta
mjög fyrir myndun brennisteinssýru
úr útblæstri beggja verksmiðja.
Gera verður þá kröfu I starfs-
leyfi að brennisteinsmagn í kol-
skautum miðist við hámarksgildi
með ströngum skilyrðum um
minnkandi magn með tíma uns
brennisteinssnauð kolskaut verði
notuð innan tiltekins árafjölda.
3. Flúorsambönd
Umfjöllun um flúoríð í greinar-
gerð Hollustuverndar er byggð á
(1) áætluðu magni flúorlosunar (2)
dreifingu flúormengunar og lýkur
með (3) ályktun Hollustuverndar.
(_1) Áætlað magn flúorlosunar:
Áætlað magn losunar er 0,6 kíló
af flúoríði fyrir hvert tonn af áli
eða 0,3 tonn af flúoríði á dag frá
verksmiðju, sem framleiðir 180.000
tonn af áli hvert ár. Allir kannast
við að blý er þyngra en ál. Á sama
hátt er ekki raunhæft að leggja að
jöfnu tonn af brennisteinssýru og
tonn af flússýru. Tonnið af flússýru
inniheldur fimm sinnum fleiri og
mun skaðlegri sameindir en tonn
af brennisteinssýru. Þessar upplýs-
ingar um losun eiga við flúor í loft-
kenndu ástandi við útblástursop
verksmiðju. Við kólnun þéttist gasið
og myndar samstundis ördropa af
flússýru með svipuðum hætti og
brennisteinssýran og fylgir henni
upp frá því í dreifingu. I greinar-
gerð Hollustuvemdar í Morgun-
blaðinu er ekki minnst á flúor í
svokölluðu svifryki en gert er ráð
fyrir losun 0,5 tonna af svifryki á
dag (1 kíló fyrir hvert tonn af áli).
Ástæða er til að fjalla nokkuð ítar-
lega um svifryk þar eð svo virðist
sem reynt sé að sneiða hjá umræðu
um þennan mengunarþátt. í þurr-
hreinsibúnaði álverksmiðju er leit-
ast við að hremma flúoríð í út-
blæstri, áður en það fer út í and-
rúmsloftið, með því að binda það á
yfirborði súrálsagna. Engar upplýs-
ingar liggja fyrir um magn flúors
sem fer út í andrúmsloftið bundið
á yfirborði súrálsagnanna eða
svifryksins. Súrálsduftið sem slepp-
ur í gegnum síurnar er mjög fín-
kornað, hvert korn sennilega 10
þúsundustu úr millímetra í þver-
mál. Samanlagt yfirborð kornanna
er því óhemju stórt en hreinsun flú-
ors úr útblæstrinum byggist að
verulegu leyti á því að flúorið hefur
sterka tilhneigingu til að tengjast
yfirborði agnanna. Tengið er hins
vegar mjög veikt og rofnar I vatns-
upplausn. Af þessu mengaða efni
fer hálft tonn út í andrúmsloftið á
hveijum degi án þess að Hollustu-
vemd sjái ástæðu til að nefna það.
Eins og áður er getið liggja eng-
ar upplýsingar fyrir um mælingar
á þessum þætti flúormengunar. Á
meðan ekki eru birt ítarleg gögn
um eðli og efnasamsetningu svo-
kallaðs svifryks frá álveri á Grund-
artanga verður að líta svo á að einn
hættulegasti mengunarvaldinum
hafi gleymst við mat á umhverfis-
áhrifum. Þó er sérstaklega tekið
fram í greinargerð Hollustuverndar
að „Flúoríð er það mengunarefni
sem mestar áhyggjur eru tengdar
við í álframleiðslu". (2) Dreifing
flúormengunar: Athugasemdir
varðandi útreikning á dreifingu
brennisteinstvíoxíðs gilda með
Húsavík • Húsavík • Húsavík • Húsavík •
l!jj ý W;iií£yi!F!t
Island að vetri býður
upp á fjölmarga
möguleika til afþreyingar
og skemmtunar.
Skíðaferðir, fjallaskoðun,
listalif, matur, menning og
skemmtun. Flugleiðir
innanlands bjóða flug, gistingu,*'^
skemmtun og ævintýri á einstöku
Gjugg-verði fyrir einstaklinga, hópa
og fyrirtæki.
Lífgaðu upp á tilveruna í vetur og skelltu þér
í ógleymanlega helgarferð tii Húsavíkur
með Flugleiðum innanlands.
á Húsavík
n &
Húsavík hressír!
Gjuggpakki irá kr.
14.530
1
*______________________________
M • Flug fraiu og til baka.
■ • Gistíng i 2 nætur mað
S morgunvtrði.
^ • Afslátlariiofti og flugvall-
arskattur innifalinn.
Verð pr. mann.
Gjoggkelgin Z ~ SL mars
Vetrarævintýri á Húsavík
Stórkostleg dagskrá í Húsavíkurfjalli með
vélsleðaferð, jeppaferð, sleða-
bruni, gúmbátabruni, heitu kakói, lifandi &
tónlistog fleiru ogfleiru!
- skíðaferð í Húsavíkurfjalli
- slökun í sundi, gufu og heitum pottum
- vélsleðaferd á Þeistareyki
- ferð í Lónið og jarðhitabað í Mývatnssveit
- menningarrölt um Safnahús og kirkju
- gönguskíðaferðir fyrir alla fjölskylduna
- vélsleðaferðir...
E'NSTAKUR
84% ALOE VERA
hand- og líkams-
áburðurinn frá
JASON
á engan sinn líka.
Gæðin tandurhrein
og ótrúleg.
Fæst meðal annars
í öllum apótekum
á landinu.
Guðmundur E.
Sigvaldason