Morgunblaðið - 02.03.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
sama hætti um dreifíngu flúors eða
öllu heldur ördropa af flússýru.
Þeir úrreikningar verða að teljast
mjög vafasamir en þegar kemur að
dreifíngu svifryks er myndin mjög
athyglisverð. Hér að ofan var tekið
fram að dreifilíkanið hefði ákveðið
upplýsingagildi miðað við stöðugan
meðaltalsstyrk og stefnu vinds.
Þessi meðaltalsvindur er það mikill
að talsmenn álversins segja að allri
mengun verði feykt burt af svæð-
inu. Þegar kemur að svifrykinu er
allt í einu dottið á dúnalogn.
Svifrykið berst ekki út fyrir lóð
verksmiðjunnar ef frá er talinn dá:
lítill skiki af skógræktinni minni. í
þessu felst alvarleg mótsögn, sem
bendir til fleiri vandasamra óvissu-
þátta í því mati á umhverfisáhrif-
um, sem Hollustuvemd á að byggja
starfsleyfi sitt á.
(3) Ályktun Hollustuvemdar:
Hollustuvernd fullyrðir að hreinsi-
búnaður verksmiðjunnar vinni mjög
vel og fjarlægi allt að 99,9 hundr-
aðshluta af flúoríði í útblæstri en
það er óskiljanlegt nema tekið sé
fram við hvaða upphafstölu er mið-
að. Framsetning af þessu tagi er í
versta falli áróðursbragð til að villa
um fyrir almenningi en alls óskyld
vísindalegum vinnubrögðum. Holl-
ustuvemd hefur að því er virðist
ekki myndað sér sjálfstæða skoðun
á málinu en endurtekur gagnrýnis-
laust það sem íslenskt fýritæki á
vegum útlendra álframleiðenda
taldi hagkvæmt að setja í mat á
umhverfisáhrifum.
3a. Flúorokarbon - freon
í upphafi greinargerðar Holl-
ustuverndar ríkisins í Morgunblað-
inu er talað um gróðurhúsaloftteg-
undina koltvísýring. Enda þótt
gróðurhúsaáhrifin séu alvarleg ógn-
un við umhverfið em þau eigi að
síður ekki álíka ógnvænleg og eyð-
ing ósonlagsins. Eyðing ósonlagsins
skrifast að stærstum hluta á ál-
framleiðslu heimsins miklu fremur
en vegna notkunar freons í tæki til
frystingar og kælingar. Freon er
lofttegund samsett úr kolefni og
flúor. Fjölliða efnisins í föstu formi
nefnist teflon og er almenningi
kunnug sem húðun á pottum og
pönnum. Efnið er algerlega skað-
laust nánasta umhverfi og svo stöð-
ugt að ekkert festist við það í eld-
húsinu. Berist freon hins vegar upp
í heiðhvolfið getur það gengið í
samband við óson ef eitthvert þriðja
efni er til staðar sem hvetur efna-
hvörfin. Nú þegar er svo mikið af
freoni og skyldum efnum uppi í
heiðhvolfínu að það nægir til að
gereyða ósonlaginu svo fremi að
nægt magn hvata berist upp í gegn-
um veðrahvörfin. Þessi ógnun varð
til þess að þjóðir heims sameinuð-
ust um að banna notkun freons í
kælitækjum og úðabrúsum en
mestu skaðvaldarnir, illa reknar
álverksmiðjur, eru enn í fullum
gangi. Stjórnvöld á Vesturlöndum
leitast við að bæta ímynd sína með
því að flytja álframleiðslu til þriðja
heimsins, en vanþróaðar þjóðir
njóta ákveðinnar umþóttunar í um-
hverfismálum. Þessi er ein af helstu
ástæðunum fyrir skyndilegri vel-
gengni íslenskra stjómvalda að laða
álver til íslands.
Unnt er að stjóma magni freons,
sem myndast við rafgreiningu áls,
en aðeins með nákvæmri vöktun
og líklega á kostnað töluvert meiri
orku en annars væri þörf. Lágt
orkuverð á íslandi ætti að tryggja
að freonmyndun verði haldið í lág-
marki, eins og gert hefur verið í
álverinu í Straumsvík, sem hefur
staðið fyrir rannsóknum á þessu
sviði. Ekkert getur komið í veg fyr-
ir að eitthvað myndist og stöðug-
leiki efnisins kemur í veg fyrir að
hægt sé að hreinsa það úr út-
blæstri, hvorki með þurrhreinsun
né vothreinsun.
Athyglisvert er að ekki er minnst
einu orði á þennan þátt mengunar
í mati á umhverfisáhrifum eða í
tillögum að starfsleyfi fyrir álver
við Grundartanga. Áðgerðir til að
halda freonmyndun í lágmarki em
verulegur þáttur í mengunarvörn-
um sem kosta umtalsvert fé. Starfs-
leyfi yrði að innihalda ströng fyrir-
SKOÐUN
mæli um vöktun spennu á rafskaut-
um, tímanlega endurhleðslu á kerj-
un og skyldu til rannsókna ef veitt
yrði.
4. Mengunarvarnarkröfur
og eftirlit
Hér er komið að lokakafla í grein-
argerð Hollustuvemdar. Megintil-
gangur þessa kafla er að veija þá
ákvörðun að veita starfsleyfi sem
byggist á þurrhreinsibúnaði fremur
en vothreinsibúnaði, en rökin fyrst
og fremst þau að á vindasömu og
opnu svæði sjái veðurfarið um að
feykja menguninni burtu. Hollustu-
vemd hefur gefíð út tillögur að
starfsleyfi fyrir álver við Gmndar-
tanga, sem byggjast á þeim meng-
unarmörkum sem greint var frá hér
að framan. Hér hafa verið raktar
efasemdir um gæði þeirra gagna
sem tillögur að starfsleyfí byggjast
á bæði varðandi mjög vafasamt lík-
an fyrir dreifíngu mengandi efna
og ennfremur bent á hættulega
mengunarvalda, sem höfundar um-
hverismatsins virðast ekki hafa vit-
að um eða leitt hjá sér. Umhverfis-
matið ber vott um að unnið hafí
verið innan mjög þröngra tíma-
marka, sem gerðu ekki kleift að
skoða aðra þætti en þá sem lúta
beint að byggingu og rekstri verk-
smiðjunnar en skoðun á eiginleikum
umhverfisins þar sem verksmiðjan
á að rísa er ekki fyrir hendi. Hvorki
er gerð grein fyrir mengunaróhöpp-
um, sem hljóta að gerast, né hugs-
anlegri stærð og afleiðingum slíkra
óhappa fyrir þann atvinnurekstur,
sem fyrir er eða auðlindir sem eru
nýttar á svæðinu. Aðstoðarforstjóri
álfyrirtækisins hefur þegar viður-
kennt opinberlega að slík óhöpp
eigi sér einatt stað við ákveðnar
aðstæður en við vitum ekkert um
eðli og magn mengunar sem af
þeim hlýst.
HÆTTIÐAÐ
BOGRA VIÐ
f
moppuvagn frá Jani-
. 25% léttara að vinda
úr moppunni. Tvær 15 Itr.
fötur fyrir hreint og óhreint
vatn. Ein 8 Itr. og tvær 6 Itr.
fötur uppi fyrir skoivatn,
klúta og hreinsiefni.
HENDURNAR
ALDREI í VATN!
Moppuna þarf hvorki að
brjóta saman né taka af
festiplötunni - einfaldlega
vindið beint í pressunni.
Að skipta um moppu er
leikur einn - hún smellist af
festiplötunni með fætinum
og nýrri er smellt á án þess
að snerta með höndunum!
...gœði í gegn
Besta ehf., Nýbýlavegi 18,
Kópavogi. Sími 564 1988
Útibú Suðurnesjum:
Brekkustfg 39, Njarðvík, síml 421 4313
5. Lokaorð
Sagt er að sérhver þjóð eigi þau
stjómvöld skilin sem hún kýs sér.
Þess vegna hefði ég kosið að þegja
ef frændur mínir hefðu ekki falið
mér að annast og bæta lítinn blett,
þar sem lágu rætur þeirra og ævi-
starf. Þangað á nú að veita stærst-
um hluta mengunar frá álveri á
Grundartanga og því er mér skylt
að beita tiltækum vopnum til varn-
ar. Hér að framan hefi ég reynt
að koma á framfæri athugasemdum
sem varða grundvallaratriði í tillög-
um Hollustuverndar ríkisins að
starfsleyfí fyrir álver á Grundar-
tanga. Athugasemdirnar eru
byggðar á fyrirliggjandi gögnum
og atriðum, sem hljóta að vekja
Hollustuvemd ríkisins til umhugs-
unar um gildi þeirra gagna, sem
þeim er falið að vinna úr. Stofnun,
sem á að gæta umhverfis okkar en
hefur ekki fmmkvæði og metnað
til að leiða umræðuna um mengun
er ekki trúverðug. Mengunarvamir
byggjast ekki eingöngu á að fletta
töflum um erlenda staðla heldur
einnig að setja nýja sem hæfa hveij-
um stað.
Engin niðurstaða önnur en alger
höfnun starfsleyfis fyrir álver á
Gmndartanga er vísindalega og sið-
ferðilega viðunandi.
Höfundur erjarðfræðingur.
SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 3 f*
"P
ðOU.
FASTEIGNASALA
Skiphotti 50b -105 - Reykjavík
S. 55 100 90 Sími 565-5522
Vertu hj
Ég hlakka til að sjá þig.
Hárgreiðslustofa
Grensásvegi 50, sími 588 5566.
Kœru viðskiptavinir!
Ég hefjlutt mig um set. Þann 3. mars nk.
mun ég hejja störfá Prima Donnu,
Grensásvegi 50, sími 588 5566.
Vertu hjartanlega velkomin(n).
Égi'
uppgrip
1
uppgnp - verslanir Olís
eru á eftirfarandi stöðum:
Sæbrautvið Kleppsveg
Garðabæ
Gullinbrú í Grafarvogi
Langatanga í Mosfellsbæ
Álfheimum við Glæsibæ
Hafnarfirði við Vesturgötu
'M Háaleitisbraut
Tryggvabrautá Akureyri
uppgrip eru þægilegar hraðverslanir
5 þar sem þú færð ótrúlega margt
fyrir þig, heimilið og bílinn.
léttir þér lífíð