Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 34
34 SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓRÐUR ELLERT
GUÐBRANDSSON
+ Þórður Ellert
Guðbrandsson
bifvélavirkjameist-
ari var fæddur í
Reykjavík 26. des-
ember 1899. Hann
Iést á Droplaugar-
stöðum að kvöldi
föstudagsins 21.
febrúar síðastliðinn,
97 ára að aldri.
Hann var sonur
hjónanna Guð-
brandar Þórðarson-
ar, skósmíðameist-
ara frá Vatnsleysu-
strandarhreppi, f.
24.12. 1861, d. 12.3.
1927, og Katrínar Magnúsdótt-
ur, húsfreyju, frá Syðra-Lang-
holti, Hrunamannahreppi, f.
14.4. 1861, d. 30.10. 1924. Systk-
ini Þórðar voru Magnea Katrín,
f. 18.6. 1891, dáin sama ár, og
Magnús, f. 4.1. 1896 sem nú er
látinn.
Þórður kvæntist
Guðrúnu Marin Guð-
jónsdóttur, f. 19.8.
1905, frá Framnesi í
Vestmannaeyjum, d.
3.3. 1983. Foreldrar
hennar voru Guðjón
Pétur Jónsson og
Nikólína Guðnadótt-
ir, frá Vestmanna-
eyjum. Börn Þórðar
og Guðrúnar eru:
Magnea Katrín, f.
27.6. 1923, Haraldur
Guðbjörn, f. 16.7.
1925, Lína Guðlaug,
f. 27.7. 1927, Guð-
brandur Kjai-tan, f.
19.3. 1929. Guðmundur Jón, f.
15.6.1930, og Katrín, f. 9.9.1931.
Afkomendur Þórðar eru í dag
52 að börnunum meðtöldum.
Útför Þórðar fer fram frá
Dómkirkjunni mánudaginn 3.
mars og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Öðlingurinn og heiðursmaðurinn
Þórður E. Guðbrandsson fæddist í
Brandshúsi í Reykjavík og bjó alla
sína tíð í Reykjavík. Hann kvæntist
Guðrúnu Marin Guðjónsdóttur.
Þórður og Guðrún bjuggu saman
í hamingjusömu hjónabandi í 60 ár.
Þórður og Guðrún eignuðust sex
böm sem öll eru á lífí. Þórður og
Guðrún hófu búskap sinn á Njáls-
götu 18 í Reykjavík og þar fæddust
öll börnin. Síðar fluttu þau að
Ásvallagötu 37 og bjuggu þar til
ársins 1957 er við Þórður byggðum
saman Sporðagrunn númer 2 og 4.
Þórður og Guðrún þjuggu á númer
2 og við Guðlaug dóttir þeirra á
númer 4. Þama myndaðist gott sam-
félag sem aldrei brást. Þórður bjó
einn að Sporðagrunni 2, eftir að
Guðrún eiginkona hans lést 3. mars
1983 þartil hann flutti á Droplaugar-
staði, árið 1994. Þar leið Þórði vel.
Þórður var frumheiji á mörgum
sviðum. Hann var með fyrstu bílstjór-
um landsins og þá þurfti að aka
meira og minna um vegaleysur til
að komast ferða sinna.
Þórður var einnig fyrstur til að
breyta fólksbíl í 4ra hjóla bíl (jeppa).
Hann reiknaði út drifhlutföll og hvað
mætti hækka bílinn upp svo ömggur
t
Einlægar þakkir færum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur vináttu, samúð
og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
EINARS MATTHÍASAR
KRISTJÁNSSONAR,
Markholti 13,
Mosfellsbæ.
Guðbjörg S. Kristjónsdóttir,
Kristján Einarsson, Brynhildur Geirsdóttir,
Bryndi's Einarsdóttir, Guðmundur Ó. Hermannsson,
Daði Þór Einarsson, Sigríður Björnsdóttir,
Pétur Einarsson, Björg Kr. Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN DAL ÞÓRARINSSON,
Árskógum 6,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 23. febrúar,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 4. mars kl. 13.30.
Sigurveig Jóhannesdóttir,
Sigmar Jónsson, Hlif Jóhannsdóttir,
Jóhannes Þór Jónsson, Sæunn Guðrún Guðmundsdóttir,
Magnús Þórarinn Jónsson, Jóhanna Halldórsdóttir,
Hallur Steinar Jónsson, Jóhanna Valgerður Magnúsdóttir,
Ragnheiður Hrefna Jónsdóttir, Magnús Þór Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
TRYGGVA STEINGRÍMSSONAR
bryta,
Hæðargarði 33,
Reykjavík.
Ása Karlsdóttir,
Guðrún Tryggvadóttir,
Karl Tryggvason, Marfa Terttu Tryggvason,
Björn Tryggvason, Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Ingveldur Marfa Tryggvadóttir, Hallgrímur L. Hauksson,
barnabörn og barnabarnabarn.
væri. Þetta gera menn í dag í tölv-
um. Þórður vann einnig seinni árin
í bílskúmum sínum á Sporðagrunn-
inu að ýmsum uppfinningum sem
hann því miður sýndi mjög fáum.
Þegar árin liðu þurfti Þórður því
miður að hætta þessu, því hann
missti sjónina smátt og smátt. Þarna
fór ómetanleg þekking.
Þórður fór snemma að vinna fyrir
sér og vann fyrst hjá Sanitas, þar
sem hann fékk 15 krónur á mánuði.
Þá var hann aðeins 13 ára gamall.
Fyrsta alvöruvinnan var að rífa upp
gijót árið 1915, þá aðeins 15 ára
gamall, ásamt frænda sínum Guð-
mundi Halidórssyni. Árið 1916 unnu
Þórður og Kjartan Sveinsson frændi
hans við að mæla fyrir rafveitufram-
kvæmdum við Elliðaárstífluna og
fengu þeir 30 aura á tímann en urðu
að ganga í bæinn kvölds og morgna.
Ganga þessi tók klukkustund hvora
leið. Ekki töldu þeir það eftir sér.
Þórður vann við ýmsar stórfram-
kvæmdir í Reykjavík, svo sem vatns-
veitu- og hafnarframkvæmdir. Var
til dæmis vélamaður gufukrana.
Þórður fór að vinna á bílaverkstæð-
inu hjá Jóni Sigmundssyni og þar
með hófst bflaumsýsla hans sem stóð
alla hans tíð. Hjá Jóni var vinnukona
frá Vestmannaeyjum sem Guðrún
hét. Þar hófust kynni Guðrúnar og
Þórðar sem síðar leiddu til hjóna-
bands. Þórður fór strax að keyra
bíla á verkstæðinu þótt að hann hefði
ekki aldur til og tók bílpróf tveimur
árum áður en hann hafði til þess
aldur og fékk til þess sérstaka undan-
þágu. Þórður vann við bílaviðgerðir
og rak vörubfl sem hann keypti á
1.500 krónur. Þetta var há upphæð
á þessum tíma. Árið 1928 urðu þátta-
skil í lífí Þórðar þegar Héðinn Valdi-
marsson bað hann að koma og keyra
fyrir BP Olíuverslun íslands. Viku-
kaupið var þá 70 krónur.
Þórður vann svo hjá Olíuverslun
ísiands sem verkstjóri og eftirlitsmað-
ur með eignum félagsins út um allt
land eða þar til hann hætti störfum
í árslok 1978. Þá hafði bflaeign Olíu-
verslunarinnar aukist úr tveimur bíl-
um í áttatíu og fjóra. Fór Þórður allt-
af lofsamlegum orðum um samstarfs-
menn sína hjá Olíuverslun íslands en
engan meira en Héðin Valdimarsson.
Þórður dvaldi síðustu árin á Drop-
laugarstöðum og taldi hann það sitt
fjórða heimili en leit aldrei á heimilið
sem stofnun. Þar naut hann frábærr-
ar umhyggju allra. Sérstakar þakkir
ber að færa forstöðukonu, lækni og
ekki síst hjúkrunarfólki og aðstoðar-
fólki sem reyndist Þórði einstaklega
vel.
Ég kveð nú tengdaföður minn og
vin með þakklæti fyrir öll árin sem
við áttum saman.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, takk fyrir allt og allt.
Kjartan Guðjónsson.
Mig langar að minnast með nokkr-
um kveðjuorðum Þórðar Guðbrands-
sonar tengdaföður míns, sem lést
föstudaginn 21. febrúar sl. á Drop-
laugarstöðum, en þar hafði hann
dvalist síðustu þijú árin.
Ég kynntist honum fyrst er ég,
sem unnusta Haraldar sonar hans,
kom norðan frá Siglufirði til Reykja-
víkur, sjóleiðina í köldum marsmán-
uði fyrir 50 árum. Ég minnist þess
ennþá hversu kvíðin ég var að hitta
þetta fólk, sem ég hafði aldrei séð.
Hvernig mundi það taka mér og
hvernig mundi mér semja við það?
Þegar ég kom að Ásvallagötu 37 á
heimili tilvonandi tengdaforeldra
minna, þeirra Guðrúnar Guðjónsdótt-
ur og Þórðar Guðbrandssonar, var
mér tekið opnum örmum og allt gert
til þess að hressa mig eftir sjóferðina.
Þessi heimsókn er mér enn í fersku
minni. Guðrún faileg, glæsileg kona
og Þórður myndarlegur og góðlegur
maður sem gott var að treysta á. Þar
kynntist ég heimili sem einkenndist
af hlýhug, umhyggju og gestristni.
Bömin voru sex, flest uppkomin. Þar
var oft glatt á hjalla við matborðið.
Þá var rætt um atburði dagsins og
málefni líðandi stundar.
Guðrún var mikil hannyrðakona
og bar heimili þeirra hjóna fagurt
vitni um verk hennar sem mörg voru
einstök listaverk. Þórður var á marg-
an hátt einstakur maður. Hann var
hógvær og dagfarsprúður í fram-
komu, einnig ráðhollur og traustur
þeim sem leituðu til hans. í vinahópi
var Þórður hrókur alls fagnaðar og
var unun að heyra frásagnir hans
frá liðinni tíð.
Ungur að árum byijaði Þórður að
vinna á sumrin við ýmis störf sem
tii féllu, en honum var sjálfsbjargar-
viðleitnin í blóð borin. Snemma beyg-
ist krókurinn, því haustið 1915, þá
tæpra 16 ára, réð Þórður sig í vinnu
í smiðju Ólafs Jónssonar við Aðal-
stræti. Þar vann hann næstu tvö
árin og kynntist Jóni Sigmundssyni
sem vann í smiðjunni veturinn
1916-17. Jón Sigmundsson rak síðar
bílaverkstæði og réðst Þórður til
starfa hjá honum og vann við bílavið-
gerðir allt þar til Jón fluttist með
fjölskyldu sína til Ameríku árið 1920.
Þórður hafði eignast vörubíl og
þar sem hann hafði fengið talsvert
af verkfærum upp í vangoldin laun,
hóf hann sjálfstæðan rekstur. Hann
fór að stunda akstur á vörubílnum
og annast bílaviðgerðir. Árið 1928
réðst Þórður sem bifvélavirki hjá
Olíuverslun íslands, en það ár fékk
hann sveinsbréf í bifvélavirkjun.
í fyrstu annaðist hann viðhald og
viðgerðir á bifreiðum Olíuverslunar-
innar er var með aðstöðu á Klöpp
við Skúlagötu. Samhliða því ók hann
með bensín og olíur suður með sjó,
austur fyrir fjjall, fyrir Hvalfjörð að
Ferstiklu og um Kaldadal í Borgar-
fyörð. Síðan fór hann að annast upp-
setningu og viðgerðir á dælum og
skyldum búnaði Olíuverslunar ís-
lands um land allt. Á þessum ferða-
lögum kynntist hann landinu og fólk-
inu og misjöfnum kjörum þess.
Þórður Guðbrandsson starfaði hjá
Olíuverslun íslands allt til ársloka
1978, er hann hætti störfum á áttug-
asta aldursári, en þá hafði hann
starfað þar samfleytt 51 ár. Fyrir-
tækið sýndi Þórði margskonar sóma,
með höfðinglegum gjöfum á ýmsum
tímamótum, en að hans mati var
dýrmætasta gjöfin sú, að fá að starfa
svo lengi sem heilsan leyfði.
Þegar ég kom fyrst í heimsókn til
tengdafólks míns, árið 1947, bauð
Þórður okkur Haraldi og Katrínu
dóttur sinni í ferðalag til Þingvalla
og að Gullfossi og Geysi. Þetta var
regluleg skemmtiferð. Alla bæi og
búendur þekkti hann með nafni, eins
nánast hveija þúfu og stein. Hann
fléttaði inn í frásagnir sínar ýmsa
atburði sem tengdust mönnum og
málefnum. Þetta frábæra minni og
frásagnarhæfileikar hans entust
honum alla tíð.
Kveðjustundir verða ekki umflún-
ar og er það í raun hið eina í þess-
ari tilvist sem gengið er að með vissu.
Slíkar stundir kalla fram í hugann
myndbrot liðins tíma. Þórður var
góður vinur bamanna okkar; Elínar
og Þórðar Gunnars. Þau höfðu bæði
dvalið hjá ömmu og afa, en Þórður
Gunnar þó enn lengur vegna veikinda
minna. Bamaböm okkar; Haraldur
Páll, Ragna Rós og Jón William,
hændust mjög að langafa sínum og
ekki má gleyma fímmta ættliðnum;
Huldu Björk, þriggja ára og Elínu
Aðalsteinu, fjögurra mánaða.
Það var alltaf ánægjulegt að heim-
sækja Þórð á Droplaugarstaði og
hann var alltaf svo glaður þegar ein-
hver úr fjölskyldunni kom í heim-
sókn. Hann var ætíð vel klæddur og
snyrtilegur. Mér þótti hann virðuleg-
ur öldungur, 97 ára gamall. Ég tel
mig ríkari af að hafa kynnst Þórði
Guðbrandssyni tengdaföður mínum
og nú að leiðarlokum þakka ég hon-
um af öllu hjarta alla tryggð hans
og elskusemina við okkur öll.
Blessuð sé minning hans.
Ragna H. Pálsdóttir.
Mig langar með örfáum orðum að
kveðja þig, elsku afí, og um leið þakka
þér leiðsögnina og samfylgdina í
gegnum tíðina. Mínar fyrstu minning-
ar um þig voru frá ferðalögum þar
sem við fórum öll fjölskyldan saman
í beijamó. í þeim ferðum sagðir þú
okkur frá öllum kennileitum og ýmsu
öðru fróðlegu sem þú hafðir upplifað
á ferðum þínum um landið. Sögumar
þínar um gömlu tímana, kaupin og
kjörin, fólkið og landið gerðu það að
verkum að löng ferð var fljót að líða.
Seinna þegar þú hafðir nóg af tíman-
um og við heimsóttum þig, hélst þú
sögunum áfram. Alla tíð fylgdist þú
ótrúlega vel með því sem var að ger-
ast í þjóðfélaginu og ræddir það fram
og til baka. Oftar en ekki rakst þú
okkur á gat, því þú vissir oft miklu
meira um málin en við. Þú bjóst yfír
miklum manngæðum sem lágu einna
helst í dugnaði, samviskusemi, hóg-
værð, hlýju, friðsemd og kærleika.
Þú varst okkur afkomendunum góð
fyrirmynd. Mig langar að kveðja þig
með sálmi sem amma söng alltaf fyr-
ir mig þegar hún svæfði mig á
Sporðagrunninu. Ég veit, elsku afí,
að núna líður þér vel hjá ömmu. Bestu
þakkir fyrir alltsaman.
Nú legg ég augun aftur.
Ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Sigrún Kjartansdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega Ifnuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HELGU JÓNSDÓTTUR
frá Tungufelli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar
á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir alúð og
umönnun.
Svandis Pétursdóttir, Magnús Oddsson,
Sigrfður J. Pétursdóttir, Steen Lindholm,
Pétur Magnússon, Ingibjörg Ingimarsdóttir
og Ágúst Logi.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐBJARGAR BENONÍU
JÓNSDÓTTUR,
Foldahrauni 39F,
Vestmannaeyjum.
Þórarinn Eiríksson,
Kristín Þórarinsdóttir,
Erna Þórarinsdóttir,
Ólöf Jóna Þórarinsdóttir, Hjörleifur Jensson
og barnabörn.