Morgunblaðið - 07.03.1997, Page 2

Morgunblaðið - 07.03.1997, Page 2
2 B FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Hið ókunna er alltaf varasamt Morgunblaðið/Ásdís ÁLFASTEINN, klofinn og afgirtur utan vegar. EFTIRFARANDI flökkusögur beinast gegn hinu framandi og kenna fólki að forðast hið óþekkta. IVINNUFÉLAGI vinkonu • minnar keypti plöntu í Blómavali og allt í lagi með það. Hún stillir henni á góðan stað í stofunni heima hjá sér og vökvar nana svo eftir nokkra daga. Nú, þegar hún er að vökva, heyrir hún eins og hvæs berast frá plöntunni. Konan pælir ekki meira í því en næst þegar hún vökvar heyrist hvæsið aftur. Hún hellir og það hvæsir aftur og hún tekur eftir því að í hvert skipti sem hún hell- ir vatni í moldina er eins og hvæs berist frá plöntunni. Hún hringir því í Blómaval og segir þeim frá þessu og afgreiðslumaðurinn spyr: „Ertu ein heima?“ „Já, með barninu mínu.“ „Komdu þér strax út, við kom- um eftir nokkrar mínútur," segir afgreiðslumaðurinn og leggur á. Konan fer út úr húsinu með barnið og stuttu seinna koma tveir menn á sendiferðabíl. Þeir eru í búningi eins og eiturúðun- armenn og með stórt búr. Þeir fara inn í húsið og koma með plöntuna út í búrinu. KÓNGULÆR, jafnvel hvæs- andi eru vinsælar í flökku sögnum. í ljós kom að banvæn kónguló, sem hvæsir þegar hellt er á hana vatni, bjó í plöntunni. Alveg satt. 2HEYRÐU, hvað helduru, • hjón sem vinkona mín þekk- ir vel fóru út að borða um dag- inn, sem er ekki í frásögur fær- andi, nema hvað að þau fara á tælenskan matsölustað. Þau ákveða að prófa eitthvað nýtt og fá tælenskan rétt. Allt gengur sinn vanagang, en þegar heim er komið fá þau bæði heiftarlega kveisu. Þau eru að drepast úr upp- og niðurgangi og þurfa að leita lækn- is. Hann gefur þeim meðal og tekur saursýni. í Ijós kemur að þau hafa borðað rottukjö* Morgunblaðið/Golli UNGIR þjóðfræðingar og nemar: Valdimar Trausti Hafstein, Inga Lára Sigurðardóttir, Rakel Páls- dóttir og Jón Jónsson. Ellefu þjóðfræðingar hafa útskrifast frá Háskóla íslands, 35 eru í námi. Með fingur í eyra sletti hann tungunni í munnvatninu Á ráðstefnu um þjóðfræði vakti unga fólkið í greininni athygli. Gunnar Hersveinn hlýddi á það greina þjóðsagnir samtímans, hæfileika förumanna og virðinguna fyrir lifandi náttúru landsins. ■" BRÓÐIR konu vinar míns, sem vinnur í Hagkaupi, sagði að IS fyrir stuttu hafi maður fallið í Qj yfirlið fram á afgreiðsluborðið. Hann var hár og grannur með hatt sem féll af í yfirliðinu og í ljós kom frosinn kjúklingur sem hafði verið undir honum.“ 41 Já, auðvitað, það líður yfir mann ef maður er með frosinn kjúkl- ing á höfðinu. „Einmitt, honum varð því ekki kápan úr því klæðinu að reyna að krækja sér í ókeypis kjúkling.“ Er þessi saga sönn? Er hún ís- lensk? Hefur hún ef til vill flakkað á milli landa? Rakel Pálsdóttir þjóð- fræðinemi flokkar hana með flökku- sögnum samtímans, sögum sem ganga á milli manna, héraða og landa og eru sagðar sem sannar og fela ævinlega í sér einhvern boð- skap. Þessi er til dæmis aðvörun gegn búðarhnupli. Rakel flutti erindi sitt á tveggja daga stefnu um Rannsóknir í Fé- lagsvísindum sem haldin var af við- skipta- og hagfræðideild og félags- vísindadeid Háskóla íslands í febr- úar. „Flökkusagnir samtímans eru stundum kallaðar nútímaþjóðsög- ur,“ segir Rakel, sem telur þær fremur líkjast sögnum vegna þess að þær eru styttri og trúlegri en þjóðsagan. „Hér er því ekki um eig- inlegar þjóðsögur að ræða,“ segir hún. Rakel hefur safnað efni um flökkusögur og er að rita B.A.-rit- gerð um þær. Flökkusögur hafa allt- af verið til í hverjum „samtíma". Sumar eru staðbundnar, aðrar fara um eins og eldur í sinu. Þær eru iðulega eftirminnilegar og auðvelt er að hafa þær eftir. „Flökkusagnir samtímans vekja óhug, undrun eða hlátur,“ segir Rakel, „og þær tjá oftast eitthvað sem er ofarlega á baugi í þjóðfélag- inu.“ Stundum er eins og þær ali á hræðslu og stundum eins og þær veiti útrás. Rakel Pálsdóttir var meðal ungra fyrirlesara sem miðluðu þekkingu sinni á lítilli ráðstefnu í Odda, helg- aðri hinni ungu fræðigrein þjóð- Augnablikið og ekkert annað skiptir máli VIÐHORF skipta meira máli en margan grunar og einn af lyklum þess að njóta hvers andartaks er að halda vöku sinni og hafa meðvit- und um stað og stund án þess að láta fyrirfram ákveðnar skoðanir hafa áhrif á sig. Víetnamski búddamunkurinn Thich Nhat Hanh útskýrði þessa lífssýn prýðilega í einni af fjölmörg- um litlum bókaperlum sem gefnar hafa verið út um ræktun hugans. Bókin ber heitið The Miracle of Being Awake og var fyrst gefin út af Buddhist Publication á Sri Lanka árið 1976. Allur tíml er tíminn mlnn í bókinni eru meðal annars bréf munksins til vinar síns, þar sem hann fjallar um leiðir til að leysa hversdagsleg vérkefni þannig af hendi að þau efli þroska. í einu bréfanna segir hann frá því þegar sameiginlegur vinur þeirra, Tom, breytti viðhorfum sínum til tíma. „Ég reyndi til dæmis að skipu- leggja tíma minn þannig að ég gæti átt stundir með konu minni og syni að Ioknum vinnudegi, auk þess að eiga stundir fyrir sjálfan mig,“ er haft eftir Tom. „Nú er ég hættur að skipta tímanum svona niður og er farinn að líta á allan tíma sem minn tíma. Á þessu tvennu er grundvallarmunur. Þegar ég er með syni mínum hugsa ég ekki lengur um að síðar muni ég eiga tíma fyrir sjálfan mig, heldur ver ég tíma mínum með honum af einlægum áhuga.“ Munkurinn Thich Nhat Hanh segir að nú fínni Tom ekki fyrir tímaskorti og hann falli ekki lengur í þá gryQu, til dæmis þegar hann aðstoðar son sinn við heimanám, að bíða eftir að ljúka verkinu svo hann geti farið að sinna eigin hugð- arefnum. „Hann er að veija eigin tíma, árvökull og sér meðvitandi um stund og stað, og þess vegna nýtur hann hverrar stundar betur.“ Thich Nhat Hanh segir frá því hvemig honum finnst rétt að þvo upp eftir mat. „Til eru tvær leiðir til þess,“ segir hann. „Önnur felst í því að þvo upp í þeim tilgangi að hafa hreint leirtau að loknum uppþvotti, en þeir sem fara hina leiðina hafa það eitt að markmiði að þvo upp. Ekkert annað." Hann segir frá því er hann var nýmunkur í 100 munka klaustri. „Þar var engin sápa og uppþvottur þótti síður en svo skemmtilegt verkefni, enda aðstæður erfiðar og til dæmis ekkert heitt rennandi vatn. Nú er auðveldara að njóta þess að þvo upp, en samt njóta þess fæstir. Flestir flýta sér að þvo upp til að ljúka verkinu sem fyrst af og til að geta síðan sest niður með kaffi- eða tebolla. Mér fínnst stór- kostlegt að standa fyrir framan vask og þvo upp. Þá get ég ein- beitt mér að andardrætti mínum, ég get fylgst með hverri hugsun hugans og hreyfingu líkamans af árvekni. Ef við kunnum ekki að njóta þess að þvo upp eru litlar lík- ur á að við kunnum að njóta þess að drekka te- eða kaffibollann á eftir." Að ganga á jörðlnnl Munkurinn segir að til að efla skynjun augnabliksins sé nauðsyn- legt að vera sífellt vökull, ekki að- TIL að efla skynjun augna- bliksins er nauðsynlegt að vera sífellt vökull, segir víet- namski munkurinn. j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.