Morgunblaðið - 07.03.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 07.03.1997, Síða 7
6 B FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF HEIMILISOFBELDI Halldóra -strax! Að láta spai vera sleginj hrint, sleng veggi og hús jöfnu millibði ÚT á við voru þau framan af ekk- ert frábrugðin öðrum hjónum í hverfinu; þau bjuggu í einbýlishúsi, voru vel menntuð, í góðum stöðum, snyrtileg, prúð og pen í hvívetna, virtust tillitsöm hvort við annað hvar sem þau fóru og ekkert virtist heldur ama að börnunum fímm. Innan veggja heimilisins gegndi þó öðru máli. Þar fór eiginmaðurinn hamförum með því að berja eigin- konuna í hvert skipti sem honum mislíkaði við hana eða eitthvað varð til að skaprauna honum. í aldarfjórðung hefur Halldóra, eins og hún verður kölluð hér, mátt sæta gegndarlausum barsmíðum, hótunum, kúgun og kynferðislegu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns, sem hún fékk lögskilnað frá fyrir fjórum árum. „Eftir á að hyggja finnst mér fyrstu fímmtán búskap- arárin hafa verið barnaleikur miðað við það sem yfir mig og bömin hefur gengið síðasta áratuginn, eða allt frá því Gústaf varð fyrir vinnu- slysi, sem skaðaði heilann, olli per- sónuleikabreytingum og breytti honum í algjört óargadýr. Áður var ég að minnsta kosti nokkuð viss um að hann myndi ekki ganga af mér dauðri - eftir slysið óttaðist ég stöðugt um líf mitt og bam- anna.“ Snlllingur í feluleik Halldóra segist hafa verið orðin afar snjöll í feluleik. Lífið og tilver- an snerist lengst af um að halda ofbeldinu leyndu fyrir vinum og vandamönnum. í huga hennar var vorkunnsemi þeirra það versta sem gat hent. „Að halda andlitinu" skipti hana mestu máli, enda segir hún að „áttavitinn" hafi stöðugt orðið brenglaðri. „Sist af öllu vildi ég græta mömmu eða heyra pabba segja: „Hvað sagði ég ekki?“. Þótt fáránlegt sé skipti álit þeirra mig miklu máli.“ Um tvítugt eignaðist Halldóra dóttur. Skömmu síðar kynntist hún Gústaf, varð aftur ófrísk og fannst hjónabandið betri kostur, en að standa ein uppi með tvö böm - jafnvel þótt hún hefði komist að raun um að tilvonandi eiginmanni væri laus höndin. „Ég var svo bamaleg að halda að með tíð og tíma gæti ég sigrað stjómsemi og drottnunargirni Gústafs og breytt honum samkvæmt minni forskrift að góðum eiginmanni. Við vorum mjög ólík. Hann var alvarlegur, feiminn og hlédrægur, en ég félags- Niðurstöður könnunar í apríl sl. með 3.000 manna úrtaki sýna að 1,3% kvenna og 0,8% karla höfðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu núverandi eða fyrrver- andi maka síns á tólf mánaða tímabili. Tölur, pró- sentur og súlurit skýrðu umfangið, kyn og aldur þolenda og gerenda, ástæður, tegund og tíðni ofbeldis. Að baki slíkri flokkun liggja margar sorg- arsögur um konur, karla og börn, sem hneppt eru í viðjar ofbeldis, haturs og ótta. Valgerður Þ. Jónsdóttir skyggndist inn í líf fímm bama móð- ur, sem sætti grófu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns í aldarfjórðung. lynd, ófeimin og fannst óþarfi að liggja á skoðunum mínum. Ég taldi mig vera sjálfstæða konu, þótt ég hefði smám saman látið bugast og orðið undanlátssöm og eftirgefan- leg. Ef honum hugnaðist ekki fram- koma mín; eitthvað sem ég sagði eða gerði, beið hann þar til við komum heim, en þá fékk ég það óþvegið. Honum fannst hann eiga mig með húð og hári, sló mig og hrinti mér og hafði mörg orð um hversu vitlaus ég væri; ég hefði ekki átt að segja þetta eða hitt, ekki vera svona eða hinsegin og raunar fannst honum ég sjaldnast haga mér tilhlýðilega. Innst inni vissi ég að hann var þrúgaður af minnimáttarkennd og öfundaði mig af hispursleysinu." Mlkllvægt „að halda andlltinu" Ekki var óreglu um að kenna því Gústaf var stakur reglumaður á áfengi. Fyrir slysið voru barsmíð- amar ekki daglegt brauð heldur virtust þær fylgja ákveðnu mynstri. Halldóra segist stundum hafa velt fyrir sér hvort bræðisköstin ættu sér líffræðilegar skýringar, því einu sinni í mánuði brást varla að Gúst- af skeytti skapi sínu á henni með hnúum og hnefum. „Hann passaði sig alltaf að beija mig ekki í andlit- ið. Þótt tvíeggjað sé virtist okkur báðum vera jafn mikið í mun að ég „héldi andlitinu" auk þess sem þögult samkomulag ríkti hjá okkur um að krakkamir kæmust ekki á snoðir um hvað væri á seyði.“ Halldóra segir að Gústaf hafi verið fjarri því að vera eins og iðr- andi syndari dagana eftir barsmíð- amar. Honum fannst hann vera í fullum rétti og orð eins og fyrir- gefðu voru aldrei sögð. Hins vegar segir Halldóra að hann hafí verið ljúfari við sig en ella fyrst á eftir. „Hann gekk snyrtilegar um, eldaði ef til vill, braut fötin sín saman og gerði ýmislegt sem flestir telja sjálf- sagt, en mér fannst mikið til um á þessum tíma, enda var ég vön að sjá um allt; heimilið, eldamennsk- una, uppeldið, Qármálin og inn- kaupin." Vorkunn og hatur Vorkunn og hatur voru tilfinn- ingar sem bærðust til skiptis með Halldóru gagnvart eiginmanninum. Þau hjónin áttu í fjárhagserfiðleik- um og börnin fæddust eitt af öðru. „Tvö yngstu voru lykkjuslys,“ segir Halldóra, sem ekki gat hugsað sér að fara í fóstureyðingu þótt heimil- isaðstæður væm bágbornar. Hún ætlaði bara að þrauka og taldi sjálfri sér alltaf trú um að smám saman myndi ástandið lagast. „Þar kom eðlislæg bjartsýni mér trúlega í koll. Sjálfsmynd mín var brengl- uð, mér óx skilnaður í augum, við- námsþrekið var á þrotum og ég var andlega og líkamlega niðurbeygð. Nokkmm sinnum leitaði ég í Kvennaathvarfíð til að rekja raunir mínar, en minntist aldrei einu orði á vandann við mína nánustu og bar höfuðið hátt í vinnunni. Ég gerði mér ljóst að ég var í gildru, sem ég hafði enga burði til að losna úr. Gústaf fylgdist með öllum mínum ferðum og gerðum. Honum gramd- ist allt mögulegt, ég mátti hvorki fara í heimsókn til vinkonu minnar í næsta húsi né yfírleitt nokkuð nema ég ætti brýnt erindi.“ Að láta sparka í sig, vera slegin, kýld, hrint, slengt utan í veggi og húsgögn með jöfnu millibili olli ýmsum áverkum, sem gerði Hall- dórú öðru hveiju óvinnufæra um stundarsakir. Afleiðingamar hafa líka verið að koma í ljós á undan- fömum árum. Hún hefur nokkmm sinnum orðið að leggjast inn á sjúkrahús vegna gamalla meiðsla sem hún telur vera vegna langvar- andi barsmíða. Þegar hún gekk með yngsta barnið fór hún ekki í mæðra- skoðun í langan tíma til að læknir- inn sæi ekki illa útleikinn líkamann og færi að spyija óþægilegra spurn- inga. „Mesta niðurlægingin fannst mér þó sú kynferðislega kúgun, sem eiginmaðurinn beitti mig. Hann tók aldrei nei fyrir svar og fljótlega fannst mér kynlífíð ekki bara hund- leiðinlegt heldur ánauð þar sem mér var nauðugur einn kostur að láta að vilja hans hvenær og hvar sem var. í rauninni fannst mér hann nauðga mér í hvert skipti sem við höfðum samfarir.“ Áfallahjálp hefðl komlA m«r vel Fyrir áratug hafði Halldóra sætt sig við að ástandið á heimilinu væri viðvarandi og það besta sem hún gerði væri að haga seglum eft- ir vindi; lifa fyrir stundirnar milli stríðanna. Innst inni vonaði hún að örlögin gripu í taumana og Gústaf dæi fyrir aldur fram. Slíkar hug- renningar hafði hún ekki í flimting- um, en brá samt ónotalega í brún þegar hún frétti að Gústaf hefði lent í alvarlegu vinnuslysi. „Þá risti hatrið samt ekki nægilega djúpt til að ég óskaði honum dauða. Þótt Gústaf hafi verið vondur fyrir óraði mig ekki fyrir að hann breyttist í það ómenni sem síðar kom á dag- inn.“ Eins og góðri eiginkonu sæmdi sat Halldóra löngum stundum við sjúkrabeð bónda síns og var yfir- komin af vorkunn og harmi. Þegar Gústaf komst til meðvitundar var hann strax óvenju styggur og vildi ekkert með hana hafa. „Ónotin og andstyggilegheitin voru þvílík að mér stóð ekki á sama. Ég spurði lækninn hveiju þetta sætti og hann sagði að áverkamir hefðu trúlega valdið persónuleikabreytingum, sem kynnu þó að ganga til baka. Þarna tel ég að áfallahjálp hefði komið mér til góða, en ég fékk ekkert nema klapp á bakið og smá hughreystingarorð í veganesti þeg- ar kom að því að Gústaf útskrifað- ist og var sendur heim. Ég var í meira en fullri vinnu og engan veg- inn í stakk búin að annast hann, enda mátti læknum og hjúkrunar- fólki vera ljóst að maðurinn gekk hvorki andlega né líkamlega heill til skógar og álagið á fjölskylduna yrði því gífurlegt. Hann hafði verið óþægur sjúklingur og oft strokið af sjúkrahúsinu. Mér fannst vistun á geðdeild eina úrræðið en slíkt virtist útilokað. Mér varð ekkert ágengt þegar ég spurðist fyrir um hvaða aðstoð mér stæði til boða. Ég rakst alls staðar á veggi og fannst ég algjörlega ein á báti. Enginn benti mér á að ráðfæra mig við félagsfræðing, sálfræðing eða geðlækni, þótt mér skiljist að nóg sé til af slíkum fræðingum. Það er eins og heilbrigðiskerfið geri ráð fyrir að aðstandendur geti helgað sig umönnun sjúklinga allan sólarhringinn án tillits til andlegs ásigkomulags þeirra sjálfra og sjúklinganna auk þess sem ekki er tekið með í reikninginn að einhver verður að afla heimilinu tekna. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum og velti fyrir mér hvort vandamál af þessu tagi væri einstakt fyrirbæri. Fyrir einskæra tilviljun kynntist ég konu sem hafði svipaða reynslu af „kerfinu" og ég. Við bárum saman bækur okkur og gátum stappað stálinu í hvor aðra þegar verst lét. Banatilrœðl Heima var umsátursástand alla daga. Gústaf lét sér ekki lengur nægja að fínna að við mig með til- heyrandi barsmíðum heldur fóru börnin núna ósegjanlega í taugarn- ar á honum. Þau virtust aldrei gera neitt rétt. Hann setti út á allt, sama hversu smávægilegt það var, til dæmis urðu matmálstímarnir þegar öll fjölskyldan var saman komin ein allsheijar martröð og oft fór ástand- ið svo úr böndunum að við urðum að kalla á lögregluna. Mér varð þó fyrst verulega brugðið þegar Gústaf 4 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1997 B 7 Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir réðst aftan að syni okkar á ungl- ingsaldri, honum algjörlega að óvörum, tók hann hálstaki og sleppti ekki fyrr en eldri sonur okk- ar réðst á föður sinn og tókst að losa bróður sinn, sem þá náði varla andanum. Þetta var hreint og klárt banatilræði. í átökunum fór Gústaf úr axlarliðnum, fyrr sleppti hann ekki takinu." Halldóra segir að yngsti strákur- inn hafi verið það barnanna sem var hændast að föður sínum og lang umburðalyndast við hann eftir slys- ið. „Hann var mjög félagslyndur og þótti afburðagreindur. Trúlega hafa slíkir eiginleikar æst upp af- brýðisemi og minnimáttarkennd föður hans. Eftir tilræðið leitaði ég á náðir félagsmálastofnunar og fékk því framgengt að hann var sendur í sveit, enda ómögulegt að hafa hann heima við óbreyttar að- stæður. Þótt mér finnist skjóta skökku við að þurfa að senda þol- anda í stað geranda frá heimilinu kom ekki annað til greina þar sem ég hafði ekki enn safnað nægum kjarki til að sækja um skilnað. Ég geri mér vitaskuld núna grein fyrir að ég hefði átt að láta til skarar I skríða í þeim málum um leið og hann lagði hendur á mig í fyrsta skipti. Mig skorti hins vegar kjark- inn, ég óttaðist að bijálæðisköst Gústafs yrðu ennþá yfirgengilegri og hann myndi hefna sín grimmi- lega á okkur öllum. Því miður hefur margt farið úr- skeiðis hjá syni mínum síðan eins og reyndar hjá hinum börnunum líka. Þau eru núna stálpuð, sum neyta áfengis meira en góðu hófi gegnir og öll eiga þau í miklum til- finningalegum erfiðleikum. Þótt þeim hafi einu sinni þótt vænt um pabba sinn hata þau hann og fyrir- líta núna. Þau geta ekki fyrirgefið harðræðið, barsmíðarnar og of- sóknir hans á hendur fjölskyldunni, sem sér ekki enn fyrir endann á.“ Fjölskyldan einangrast Eftir að Gústaf kom heim af spítalanum varð feluleikurinn æ erfiðari. Þegar hömluleysið var mest var þrautalendingin að hringja á lögregluna. Slíkt fór vitaskuld ekki framhjá nágrönnunum auk þess sem vinir bamanna urðu oft vitni að, að Gústaf gekk í skrokk á þeim. Heimsóknir utanaðkomandi urðu fátíðari, fjölskyldan einangr- aðist, Gústaf elti og njósnaði um Halldóru og ásakaði hana um að vera í tygjum við fjölda karla þótt hún færi aldrei annað en í vinnuna og búðina. Að eigin mati var Gúst- af sá eini sem alltaf hafði rétt fyrir sér, allir aðrir voru óhemju vitlausir. Alls konar uppákomur urðu dag- legt brauð en Halldóru er þó minnis- stæðast aðfangadagskvöld fyrir sjö árum þegar Gústaf réðst skyndi- lega, að venju að tilefnislausu, á einn drengjanna, og barði hann eins og harðfisk. „Ég skarst í leikinn, hann tók á móti og áður en yfir lauk vorum við þijú komin í heiftar- leg slagsmál, en yngri börnin voru hágrátandi í felum í húsinu. Að lok- um komst strákurinn undan og hljóp eitthvað út í buskann. Ég leit- aði að honum í marga klukkutíma, keyrði um bæinn og hef sjaldan fundið til eins mikillar depurðar og þá. Mér fannst óréttlátt að ég og börnin værum ekki eins og allar þessar hamingjusömu fjölskyldur sem áreiðanlega nytu jólanna í sátt og samlyndi í öllum uppljómuðu húsunum. Lögreglan reyndist mér alltaf vel og brást skjótt við enda hékk miði á vegg á stöðinni þar sem stóð ein- faldlega: Halldóra - strax! Meðan við vorum ennþá gift hafði hún ekki vald til að fjarlægja Gústaf af heimilinu. Hvert sem ég leitaði, hjá Kvennaathvarfinu og víðar, var mér sagt að eina úrræðið fyrir mig væri að fara sjálf ásamt börnunum að heiman, helst ætti ég að fá mér vinnu á Þórshöfn á Langanesi." Heilaþvegin Halldóra segir að orka sín hafi verið á þrotum, henni fannst hún ekki fá við neitt ráðið auk þess sem henni fannst hún ekki geta yfirgef- ið sjúkan eiginmann sinn. „Sem stelpa lét ég ekki vaða ofan í mig. Ég var mikið í íþróttum, fékk gott uppeldi, var dugleg í skóla og átti marga vini og kunningja. Ekkert benti til að ég léti kúga mig og pína andlega og líkamlega síðar. Efalítið finnst mörgum frásögn mín ótrúverðug því slíka niðurlæg- ingu myndi engin heilvita mann- eskja láta yfir sig ganga, annað hvort hlyti hún að vera heimsk, algjör gunga eða haldin mikilli sjálfseyðingarhvöt. Að upplagi er ég ekkert af þessu og sjálf hefði ég trúlega tekið undir slíkar skoð- anir á sínum tíma. Ég get ekki skýrt hvers vegna ég lifði svona, brást við eins og ég gerði og hvers vegna mesta keppikefli mitt var að halda ástandinu leyndu í stað þess að skilja við Gústaf fyrir mörgum árum. Skynsemin hefði átt að segja mér að allt hlaut að vera betri kost- ur en það sem ég lét bjóða mér. Þegar ég hugsa til baka fínnst mér að ég hljóti að hafa verið heilaþveg- in, enda tapaði ég áttum og varð viljalaust verkfæri. Ég gerði mér enga grein fyrir hversu hugur minn var orðinn ruglaður.“ „Óráð“ geðlæknisins Gústaf leit vel út og þrátt fyrir heilaskaðann tókst honum að koma vel fyrir. Því var Halldóra sannfærð um að allir héldu hana ýkja ástand- ið þegar hún leitaði eftir aðstoð. Einu sinni tókst henni að fá Gústaf með sér á fund geðlæknis. „Hann kom með mér á fölskum forsendum því ég hafði búið svo um hnútana að við færum til að ræða um breytta lyfjagjöf. Gústaf tókst að blekkja lækninn eins og aðra og ekkert kom út úr viðtölunum. Lækninum fannst ekki ástæða til að gefa mér holl og góð ráð eða huga að andlegu ástandi mínu. Hann ráðlagði mér þó að kæra ekki eiginmann minn fyrir lögreglunni, sagði slíkt mjög óviturlegt. Því ráði reyndi ég að fylgja en get ekki séð að það hafí gagnast mér nema síður sé. Eftir mörg viðtöl við starfsfólk í geðheil- brigðisstétt finnst mér hjálp og aðstoð, sem í boði er æði handahófs- kennd bæði fyrir hina sjúku og aðstandendur þeirra. Hámenntað fólk ætti að gera sér betur grein fyrir að aðstandendur eru á vissan hátt sjúkir líka og oft allsendis ófærir um að taka réttar ákvarðan- ir auk þess sem geysilega kostnað- #Ég var svo barnaleg að halda að með tíð og tíma gæti ég sigrast á stjórnsemi og drottnunargirnd eiginmannsins og breytt honum sam- kvæmt minni for- skrift að góðum eiginmanni. § Hann passaði sig alltaf á að berja mig ekki í andlitið. Þótt tvíeggjað sé virtist okkur báð- um jafn mikið í mun að ég „héldi andlit- inu“. • Ég gerði mér Ijóst að ég var í gildru, sem ég hafði enga burði til að losna úr. I Þegar ég hugsa til baka finnst mér að ég hljóti að hafa verið heilaþvegin. • Honum var í mesta lagi haldið inni í tvo sólar- hringa, ég var aldr- ei kölluð til yfir- heyrslu og hann gat óhindrað hald- ið áfram upptekn- um hætti þegar hann losnaði. t Þaðereinsog heilbrigðiskerfið geri ráð fyrir að aðstandendur geti helgað sig umönn- un sjúklinga allan sólarhringinn án tillits til andlegs ásigkomulags þeirra sjálfra og sjúklinganna, auk þess sem ekki er tekið með í reikn- inginn að einhver verður að afla heimilinu tekna. arsamt er að leita til sérfræðinga fyrir þá sem ekki eru skilgreindir sjúklingar í opinberum plöggum." Myrkar hugsanir Fyrir fjórum árum kom Gústaf ekki heim eitt kvöldið og ekki næsta dag heldur. Halldóra játar að þá hafi hún vonað að hann væri dáinn og hún og börnin fengju loks frið. Hún viðurkennir líka að á tímabili hafí myrkar hugsanir læðst að sér öðru hvoru og hún jafnvel gengið svo langt að kanna hvaða dóm hún hlyti fyrir manndráp. „Hatrið, ótt- inn og fyrirlitningin ruglaði dóm- greindina og ég sá stundum enga aðra undankomuleið. Sem betur fer gerði ég mér grein fyrir að börnin yrðu engu bættari með mig í fang- elsi.“ En Gústaf var sprelllifandi og hafði leigt sér íbúð í öðrum bæjar- hluta. Hremmingum fjölskyldunnar var þó hvergi nærri lokið því hann ónáðaði hana með símhringingum að nóttu sem degi. Ef símanum var ekki svarað réðst hann inn á heimil- ið með svívirðingum, barsmíðum og morðhótunum auk þess sem hann braut stundum allt og bramlaði. Ef Gústaf hafði ekki rifíð símann úr sambandi var lögreglan kölluð til. Halldóra stóð nú betur að vígi með að kæra og krefjast fangelsis- vistunar þar sem hún var búin að sækja um lögskilnað og eiginmað- urinn fluttur út. „Honum var í mesta lagi haldið inni í tvo sólarhringa, ég var aldrei kölluð til yfirheyrslu og hann gat óhindrað haldið áfram uppteknum hætti þegar hann losnaði. Mér finnst fólk í svipaðri stöðu og ég njóta afar lítillar verndar og skiln- ings yfirvalda. Einnig finnst mér mjög ranglátt ef hann reynist eiga rétt á helmingi hússins sem við bjuggum í. Eftir skilnaðinn komst ég að raun um að Gústaf hefur í mörg ár haldið hluta af launum sín- um til haga fyrir sjálfan sig og komið peningunum vel fyrir. Hann er skráður öryrki og fékk margar milljónir í skaðabætur eftir slysið. Allir sem til þekkja vita að hann vinnur svart og þénar tvöfalt á við mig. Ríkið borgar meðlög með börn- unum, faðir þeirra hefur aldrei lagt neitt til þeirra, en samt bendir allt til þess að mér beri að láta hann fá helming af andvirði hússins, sem ég og börnin búum núr.a í.“ Vanmáttur og úrræðaleysi Halldóru er eftirsjá í öllum árun- um sem hún þraukaði í hjónaband- inu en mest rennur henni til rifya skaðinn sem börnin urðu fyrir. Sjálf segist hún vera á góðri leið með að byggja sig upp. Hún stundar lík- amsrækt, sækir tíma hjá sálfræð- ingi fyrir tvö barna sinna, sem ekki fást til að fara, í von um að hún geti nýtt sér ráð þeirra og miðlað á inilli. Á tímabili gekk hún til geð- læknis og fannst gott að geta „tapp- að svolítið afi‘ eins og hún segir. Annars segist hún hafa komist að raun um að konur í svipaðri stöðu og hún eigi ekki í mörg hús að venda þegar þær loks beri sig eftir hjálpinni. „Þegar feluleiknum lauk leitaði ég oft til lækna og hjúkrun- arfólks sem annaðist Gústaf og þekkti sjúkrasögu hans og heimilis- hagi. Mér fannst allir jafn vanmátt- ugir og úrræðalausir." Þótt Gústaf hafi ekki ónáðað fjöl- skylduna í nokkra mánuði hefur Halldóra allan varann á. Hún á erfitt með svefn, enda var Gústaf gjam á að ráðast á hana sofandi og enn segist hún vera óörugg og sér verði oft ósjálfrátt litið um öxl ef hún er einhvers staðar ein á ferð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.