Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ptiargiattWaíiiilö
1997
LAUGARDAGUR 8. MARZ
BLAD
FRJALSIÞROTTIR / HEIMSMEISTARAMOTIÐ INNANHUSS I PARIS
Morgunblaðið/Ásdís
Kipketer setti
heimsmet í París
og tryggði sér
3,5 millj. króna
WILSON Kipketer frá Danmörku setti heimsmet
i undankeppni í 800 m hlaupi innanhúss á heims-
meistaramótinu í Paris. Hann hljóp á 1.43,96
mín. Paul Er-
eng frá Kenýa
áttigamla
metið, 1.44,84
min., sem
hann setti í
Búdapest í
mars 1989.
Kipketer, sem
er Kenýumað-
ur, tryggði
sér 3,5 millj-
ónir ísl.
króna, en það
fá menn fyrir
að setja
heimsmet. __________ ___ ________
Sömu upphæð
fá sigurvegarar í hinum ýmsu greinum, þannig
að sigurvegari sem setur heimsmet i leiðinni fær
greidda 100.000 dali — andvirði rúmlega 7 millj-
óna króna. Kipketer getur bætt heimsmet sitt,
þannig að hann gæti fengið hærri upphæð í
vasann. Hér á myndinni fagnar hann meti sinu.
Elliott þjálfar
Guðrúnu fram
yfir ÓL í Sidney
Frágengið er að Jamaíkabúinn Norbert Elliott þjálfar
Guðrúnu Arnardóttur fram yfir Ólympíuleikana í
Sydney árið 2000.
Elliott fór að þjálfa Guðrúnu við háskólann í Athens
í Georgíuríki þegar hún hóf þar nám og hefur gert það
síðan. Guðrún hefur náð mjög góðum árangri undir
hans stjórn - setti m.a. tvö íslandsmet í 400 m grinda-
hlaupi á Ólympíuleikunum í Atlanta í fyrra, þar sem
hún komst í undanúrslit - og kveðst mjög ánægð með
að öruggt sé að samstarf þeirra haldi áfram. „Við störf-
um saman fram yfir leikana í Sydney. Þó hann fari í
annan skóla elti ég hann þangað," sagði Guðrún í gær,
en Eiliott þjálfar enn háskólaliðið í Athens og sinnir
Guðrúnu sérstaklega að auki. Guðrún er flutt þangað
aftur og æfir af krafti. Elliott sagði við Morgunblaðið
á Ólympíuleikunum í Atlanta að Guðrún væri hæfileika-
ríkasta hlaupakona sem hann hefði þjálfað og vildi ólm-
ur fá að starfa með henni áfram.
Hér á myndinni til hliðar kemur Guðrún Amardóttir
(168 ) í mark í 400 metra hlaupinu í heimsmeistaramót-
inu innanhúss, sem hófst í París í gær. Frá vinstri eru
Deon Hemmings, Hanebenesova frá Tékklandi, Guðrún,
Jearl Miles-Clark og Nezha Bidoune.
■ „Guðrún, hvað er að þér?“ / C3
ÞOLFIMI
Unnur kennir hjá Carmen
Valderas í Valencia
Unnur Pálmarsdóttir, fyrrum
íslandsmeistari í þolfimi, er
í Valencia á Spáni. Þar hefur hún
kennt þolfimi í Meditterantum
Sport og keppnisskóla hinnar
frægu Carmen Valderas í Valenc-
ia Universitat. Það er mikill heið-
ur fyrir Unni, sem hefur séð um
kennslu á sextíu manna hóp.
Unnur hefur meðal annars kennt
hinum efnilega þolfimikappa Lu-
isma, sem er eitt besta efni Spán-
verja í þolfimi — Spánarmeistari
karla. Carmen hefur látið Unni
þjálfa Luisma m.a. í listfengi og
tjáningu, sem hefur verið Unnar
sterkasta hlið. Unnur, sem er
nýorðinn 21 árs, verður í sviðs-
ljósinu í háskólanum í Valencia í
dag, þar sem hún mun kenna
maraþon þolfimi í tvær klukku-
stundir með Carmen Valderas og
Luisma. Unnur verður með þeim
uppi á sviði, Carmen kennir en
Unnur og Luisma verða fyrir aft-
an hana.
Unnur varð íslandsmeistari í
þolfimi 1995 og meistari í para-
keppni 1996. Hún hefur kennt
þolfimi hér á landi undanfarin ár
og er væntanleg heim frá Spáni í
apríl.
Unnur Pálmarsdóttlr
KÖRFUKIMATTLEIKUR: FÁTT GETUR STÖÐVAÐ KEFLVÍKINGA / C4