Morgunblaðið - 12.03.1997, Page 1
MARZ 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Pennavinir
Ég er 7 ára og heiti Daní-
el Smárason og hef áhuga á
rappi, snjóbrettum og frí-
merkjum.
Daniel Smárason
Hávallagötu 7
101 Reykjavík
Hæ, hæ.
Ég óska eftir pennavin-
um, bæði strákum og stelp-
um, 8-10 ára, sjálfur er ég 8
ára. Áhugamál mín eru fót-
bolti, píanó, íþróttir og
smíði.
Andri M. Johnsen
Háarifi 5
360 Heliissandur
[branpararI
LEIKIR |
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
SNJÓR, snjór, snjór setur mikinn svip
á allt umhverfis okkur um þessar
mundir og Lára Halla Sigurðardóttir,
8 ára, Álfaskeiði 90, 220 Hafnarfjörð-
ur, gerði þessa skemmtilegu mynd af
brosandi snjóhúsi. Bestu þakkir fyrir,
Lára Halla.
Snjór
Frá skáldum
BÖRNIN góð!
Myndasögur Moggans kynna skáld og Ijóð. í dag er
skáldið Jón úr Vör (f. 1917).
Á strönd orðsins
Nú á ég ekki framar
von á neinu
sem gæti komið mér
á óvart,
ég vaki og ég sef.
Eins oggamall sjómaður
geng ég á strönd orðsins
með net mín í dögun,
endurnærður
eftir langan nætursvefninn.
Éghorfi á eftir þeim ungu
sem róa bátum sínum
útáhafíð...
ogerglaður.
(Úr Gott er að lifa, 1984)
1.000.000.000
MILLJARÐUR= eitt þúsund
milljónir. Það tók banda-
rísku konuna Mörtu Drew 5
ár að te(ja upp í milljón. Hún
skrifaði hverja einustu tölu
frá 1-1.000.000 og þurfti til
þess 2.473 blaðsíður i A4
stærð, sem er venjuleg stærð
vélritunarpappírs. Og hún
setti víst heimsmet.
Ef þið hafið áhuga á að slá
metið og t.d. telja upp í einn
miHjarð og skrifa hverja ein-
ustu tölu á blað, ættuð þið að
byrja ekki seinna en strax.
Ef þið sitjið við talningu og
skriftir í 12 klukkustundir á
hverjum degi allan ársins
hring verðið þið búin eftir
19.024 ár!
Góða skemmtun og ég
meina það, þið verðið að
taka ykkur frí á jólunum og
á afmælisdaginn - en þá bara
bætið þið við nokkrum ára-
tugum.
Sjóræningjaskip við bryggju
FINNST ykkur nútíma sjóræningja-
skipið hans Jóns Árna Sigurðssonar,
Blöndubakka 13,109 Reykjavík, ekki
glæsilegt? Áhöfnin er eldti að sama
skapi frýnileg, ónei. Grimmilegir bófar
og dusilmenni (ómenni, vesalingur) til
alls líklegir. En það er drengur í stigan-
um úr brúnni. Hvaða erindi á hann um
borð í þetta voðalega skip? Hann er ef
til vill sonur eins skúrksins.
Við þökkum listamanninum unga fyr-
ir flotta mynd.