Morgunblaðið - 19.03.1997, Qupperneq 3
2 D MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 Ð 3
URSLIT
FH - UMFA 25:26
íþróttahúsið að Kaplakrika í Hafnarfirði,
annar leikur í átta liða úrslitum 1. deildar
karla, þriðjudaginn 18. mars 1997.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:2, 4:4, 6:4,
7:6, 7:8, 8:10, 11:12, 12:12, 12:14, 15:15,
15:18, 16:19, 18:21, 20:21, 20:23, 24:23,
24:24, 25:24, 25:25, 25:26.
Mörk FH: Guðmundur Pedersen 10/4,
Guðjón Árnason 4, Siguijón Sigurðsson 4,
Knútur Sigurðsson 4/1, Hálfdán Þórðarson
2, Stefán Freyr Guðmundsson 1.
Varin skot: Suk Hyung Lee 17/1 (þar af
7 til mótherja); 7(2) langskot, 3(1) úr homi,
2(1) af línu, 3(3) eftir gegnumbrot, eitt
eftir hraðaupphlaup, eitt vitakast.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Gunnar Andrésson
7, Ingimundur Helgason 5/3, Siguijón
Bjarnason 3, Bjarki Sigurðsson 3, Páll Þór-
ólfsson 3, Sigurður Sveinsson 2, Þorkell
Guðbrandsson 2, Jón Andri Finnsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 11
(þar af 5 til mótheija); 7(2) langskot, 2(2)
eftir gegnumbrot, eitt eftir hraðaupphlaup,
1(1) af línu. Sebastían Alexandersson 2;
eitt eftir gegnumbrot og annað af línu.
Utan vallar: 10 mínútur og þar af eitt
rautt spjald.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Haraldsson vora slakir.
Áhorfendur: Um 700.
KR - Keflavík 103:93
fþróttahúsið Seltjarnarnesi, annar leikur lið-
anna i undanúrslitum úrvalsdeildar, þriðju-
daginn 18. mars 1997.
Gangur leiksins: 0:2, 4:5, 8:11, 14:13,
18:21, 25:21, 34:25, 38:29, 40:41, 42:47,
50:47, 57:51, 63:51, 70:53, 77:56, 79:65,
86:78, 92:78, 97:80, 103:89, 103:93.
Stig KR: Roney Eford 29, Jonatan Bow
25, Hermann Hauksson 23, Ingvar Ormars-
son 16, Gunnar Örlygsson 6, Hinrik Gunn-
arsson 3, Björgvin Reynisson 1.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 22, Fal-
ur Harðarson 20, Damon Johnson 20, Krist-
inn Friðriksson 9, Albert Óskarsson 6,
Gunnar Einarsson 5, Kristján Guðlaugsson
5, Birgir Öm Birgisson 4, Elentinus Mar-
geirsson 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristján
Möller. Dæmdu mjög erfiðan leik ágætlega.
Áhorfendur: Riflega 400.
UMFN-UMFG 77:90
íþróttahúsið í Njarðvík:
Gangur leiksins: 0:2, 4:11, 11:11, 16:15,
22:28, 31:32, 39:32, 41:41, 43:44, 50:46,
50:53, 57:56, 57:60, 59:73, 66:81 77:90.
Stig UMFN: Torrey John 18, Friðrik Ragn-
arsson 17, Kristinn Einarsson 10, Páll Krist-
insson 9, Sverrir Sverrisson 8, Jóhannes
Kristbjörnsson 7, Örvar Kristjánsson 6,
Rúnar Ámason 2.
Stig UMFG: Herman Myers 31, Jón Kr.
Gíslason 14, Pétur Guðmundsson 12, Helgi
Jónas Guðfinnsson 11, Unndór Sigurðsson
10, Bergur Hinriksson 6, Páll Axel Vilbergs-
son 4, Marel Guðlaugsson 2.
Dómarar. Kristinn Albertsson og Jón Bend-
er.
Áhorfendur. 350.
NBA-deildin
Boston - Milwaukee.......126:117
Atlanta - Orlando..... ....112:107
■ Eftir framlengingu.
Charlotte - Utah.............93:114
Cleveland - Detroit...........85:82
San Antonio - Washington.....85:109
Denver - LA Lakers...........94:113
Golden State - Phoenix.......95:116
Íshokkí
NHL-deildin
Buffalo - Boston................5:1
New Jersey- Florida.............1:4
NY Rangers - Ottawa.............3:4
Phoenix - St. Louis.............3:2
Knattspyrna
Deildarbikarkeppnin
Þróttur Nes. - Keflavík.........2:2
Vilberg Jónasson 2 - Georg Birgis-
son, Haukur Guðnason.
Reykjavíkurmótið
A-riðilI:
Fylkir-KR........................1:2
Ómar Bentsen (1:1) - Þórhallur Dan
Jóhannesson (0:1), Arnar Sigurgeirs-
son (1:2), Þorsteinn Jónsson (1:3).
B-riðill:
Þróttur R. - SKÁÁ................10:1
Sigurður Hallvarðsson 5, Logi Unnar
Jónsson, Einar Örn Birgisson, Vignir
Sverrisson, Sigfús Kárason - Rúnar
Ólafsson.
UEFA-keppnin
Seinni leikir í 8-liða úrslitum:
Bröndby - Tenerife.................0:2
- Antonio Pinilla (21.), Antonio Mata Oli-
vera (120.). 39.807.
• Tenerife vann samtals 2:1.
Monte Carlo:
Mónakó - Newcastle.................3:0
Sylvain Legwinski (41.), Ali Benarbia 2
(52., 67.). 16.000.
• Mónakó vann samtals 4:0.
Mílanó, Ítalíu:
Inter - Anderlecht................2.1
Maurizio Ganz 2 (12., 60.) - Yaw Preko
(33.). 34.221.
• Inter vann samtals 3:2.
Valencia, Spáni:
Valencia - Schalke.................1:1
Antonio Poyatos (45.) - Youri Mulder (18.).
• Schalke vann samtals 3:1.
England
Úrvalsdeildin:
Wimbledon - West Ham...............1:0
Hartford (19.) - Lazarides (89.). 15.771.
• Vinnie Jones náði ekki að skora úr víta-
spymu fyrir Wimbledon.
1. deild:
Bolton - Port Vale.................4:2
Frandsen (9.), Glover (38. - sjálfsm.), Fa-
iclough (81.), Blake (83.) - Bogie (3.),
Talbot (50.). 14.150.
Ipswich - Sheff. Utd...............3:1
Grogory 3 (1., 11., 37.) - Fjörtoft (21.).
10.374.
Oldham - Charlton..................1:1
Barlow (65.) - O’Connell (89.). 4.969.
Oxford - Grimsby...................3:2
Ford (62.), Gilchrist (66.), Aldridge (90.) -
Mendonca 2 (31., 80.). 6.421.
Stoke - Wolves.....................1:0
Forsyth (47.). 15.683.
Tranmere - Man. City...............1:1
Jones (64.) - O’Brien (86. - sjlfsm.). 12.019.
■ Bolton hefur náð 16 stiga forskoti á
Wolves, sem er i öðm sæti.
Vináttuleikur
Linz, Austurríki:
Austurríki - Slóvenía..............0:2
- Primoz Gliha (73.), Ermin Siljak (82.).
14.500.
Ikveld
Handknattleikur
8-liða úrslit karla:
Ásgarður: Stjarnan-KA....kl. 20
■50. hver gestur fær páskegg.
Framhús: Fram - ÍBV......kl. 20
Hlíðarendi: Valur-Haukar.kl. 20
Leikur um sæti í 1. deild:
Selfoss: Selfoss-ÍR......kl. 20
2. deild karla:
Keflavík: Keflavík - ÍH..kl. 20
Knattspyrna
Deildarbikarkeppni KSI
Kópavogur: HK-lA.......kl. 20.30
Reykjavíkurmótið
Gervigras: Vík. - Fram.kl. 20.30
Leiknisv.: Léttir- Leiknir ...,kl. 20.30
FELAGSLIF
Fundi um íþróttir barna
og unglinga frestað
Fyrirhuguðum fundi um íþróttir barna og
unglinga á vegum íþrótta- og tómstunda-
ráðs Garðabæjar og Umf. Stjörnunnar, sem
átti að vera f Stjörnuheimilinu í kvöld, mið-
vikudaginn 19. mars, er frestað.
FERÐALOG
Aukagolfferð
Þar sem nánast.er uppselt í allar golf-
ferðir vorsins hjá Urval-Utsýn hefur verið
ákveðið að fara aukaferð til Algarve í Port-
úgal og Islantilla á Spáni þann 19. apríl.
Þetta er 11 daga ferð og komið heim 30.
apríl. Leikið verður golf í tveimur löndum
og kostar ferðin 79.500 krónur og er innifal-
ið í verðinu nfu hringir í golfi.
KORFUKNATTLEIKUR
HAIMDKNATTLEIKUR
Burðarásar hjá Keflavík hætta
ÞRJÁR stúlkur, sem allar
hafa leikið stórt hlutverk í
hinu sigursæla kvennaliði
Keflavíkur í körfuknattieik
undanfarin ár, hafa ákveðið
að hætta I körfuknattleik.
Anna María Sveinsdóttir og
Björg Hafsteinsdóttir eru
ákveðnar og sagði Björg í gær
að þær stöllur ætluðu að
„reyna“ að komast í landsliðið
í vor og hætta síðan. Anna
María Sigurðardóttir hefur
einnig ákveðið að hætta og
Margrét Sturlaugsdóttir
hyggst gera slíkt hið sama.
„Eg ætla að hugsa mig aðeins
um því ég var búin að segja
að ég ætlaði að hætta sem f s-
landsmeistari," sagði Margrét
í gærkvöldi.
KR-ingarstöðvuðu sigursælt lið Keflvíkinga
Jonatan Bow
með stórleik
KR og Keflavik verða að minnsta kosti að leika tvo leiki til viðbót-
ar í undanúrslitunum t úrvalsdeildinni í körfuknattleik því KR
lagði sigursælt lið Keflvíkinga 103:93 ígærkvöldi ískemmtilegum
leik á Seltjarnarnesinu. Menn höfðu haft á orði fyrir leikinn að
KR gæti unnið Keflavík því þar á bæ væri leikmaður sem gæti
stöðvað Damon Johnson - nefnilega Roney Eford. Þetta er rétt
að hluta til. Hjá KR er maður sem getur stöðvað Johnson, sem
að flestra mati er sterkasti erlendi leikmaðurinn í deildinni, en
hann heitir Jonatan Bow og hefur leikið hér á landi i'mörg ár.
p|ow átti sannkaliaðan stórleik
Skúi Unnar
Sveinsson
skrifar
og vonandi heldur hann áfram
á sömu braut því það er langt síðan
hann hefur sýnt
áhorfendum allar
sínar bestu hliðar í
einum og sama
leiknum. Kappinn
gerði 25 stig, það misfórst aðeins
eitt skot hjá honum í leiknum, eina
þriggja stiga skot hans, og hann
tók 16 fráköst.
Leikurinn bytjaði með miklum
látum, eitthvað sem KR-ingar vildu
örugglega ekki. „Við ætluðum að
reyna að leika rólega, nema ef
Keflvíkingar kæmu langt út á móti
okkur í vörninni. Það gerðu þeir og
við réðum vel við hraðann þannig
að við héldum áfram að leika þann-
ig,“ sagði Hrannar Hólm þjálfari
KR eftir leikinn. Keflvíkingar byij-
uðu með þriggja stiga sýningu;
gerðu fimm þriggja stiga körfur
fyrstu fimm mínútunar en þá tók
Hrannar leikhlé og fannst mörgum
furðu sæta því staðan var 18:19
og lið hans hafði leikið vel.
Skipanir þjálfarans gengu eftir,
KR-ingar settu fyrir þriggja stiga
lekann, löguðu stöðuna og komust
í 34:25 en gestirnir gerðu næstu
fjögur stig og aftur tók Hrannar
leikhlé. Ekki gekk það sem skyldi
því gestirnr skiptu í svæðisvörn og
náðu forystu, 47:42, áður en frábær
endasprettur KR fyrir hlé hófst.
Hver karfan rak aðra og gerði Eford
síðustu stigin fyrir hlé. „Stal“ bolt-
anum, brunaði upp og einhveijum
hundraðshlutum úr sekúndu áður
en klukkan gall tróð hann með
glæsibrag.
KR-ingar voru ákveðnir á svip
er þeir þustu til búningsherbergis-
ins og þeir voru enn illilegri er þeir
komu til síðari hálfleiks, léku stífa
vörn og eftir fimm mínútna leik
höfðu gestirnir aðeins gert eina
körfu. Þegar hálfleikurinn var tæp-
lega hálfnaður var staðan orðin
77:56 - gestunum hafði aðeins tek-
ist að gera fimm stig eftir hlé -
og með skynsömum leik var ekki
vandamál fyrir Vesturbæinga að
tryggja sér sigurinn.
KR-ingar virtust ætla að lenda í
vandræðum með villur, þrír voru
komnir með þtjár villur í fyrri hálf-
leik og Ingvar fékk sína íjórðu
snemma í þeim síðari, en þeir sluppu
fyrir horn þrátt fyrir að leika góða
vörn, eða ef til vill frekar vegna
þess. Góð vörn snýst nefnilega um
Urslitakeppnin
í körfuknattleik 1997
Annar leikur liðanna i undanúrslitum,
leikinn I Njarðvík W. mars 1997
NJARÐVÍK GRINDAVÍK
77 Skoruð stig 90
15/19 Vítahittni 13/25
6/21 3ja stiga skot 7/26
22/59 2ja stiga skot 28/39
23 Varnarfráköst 27
16 Sóknarfráköst 12
13 Bolta náð 6
13 Bolta tapað 16
16 Stoðsendingar 24
23 Villur 18
að hleypa mótheijanum ekki í gott
skotfæri, án þess þó að brjóta á
honum.
Bow var frábær eins og áður er
getið og Eford átti einnig mjög
góðan leik, bæði í sókn og vörn,
svo og Hermann Hauksson og Ingv-
ar. Gunnar Örlygsson barðist af
miklum krafti og styrkir liðsheild
KR mikið. KR-ingar þurfa úrvals-
leik til að sigra Keflvíkinga og þeir
hittu á einn slíkan í gær og vonast
eftir að fleiri fylgi í kjölfarið.
Hjá Keflvíkingum var Falur mjög
sterkur í fyrri hálfleik, gerði þá 20
stig, en ekki eitt einasta eftir hlé.
Guðjón hitti ágætlega á köflum og
Johnson átti ágætis leik, þó svo að
Bow hafi leikið frábærlega gegn
honum í vörninni.
Nýting KR-inga var til mikillar
fyrirmyndar. Leikmenn misnotuðu
aðeins tvö af 26 vítaskotum, voru
með 67% nýtingu í tveggja stiga
skotum. Keflvíkingar voru með
100% nýtingu í vítaskotum allt fram
á síðsustu sekúndur er þeir misnot-
uðu þrjú skot í röð.
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1997
mW>
Annar leikur liðanna i undanúrslitum,
leikinn á Seltjarnamesi 18. mars 1997
KR KEFLAVÍK
103 Skoruð stig 93
24/26 Vítahittni 19/22
5/17 3ja stiga skot 12/28
32/48 2ja stiga skot 19/36
33 Varnarfráköst 11
8 Sóknarfráköst 16
10 Bolta náð 7
17 Bolta tapað 9
21 Stoðsendingar 8
20 Villur 21
í<si ÞJALFARAMENNTUN KSÍ «si
C - STIG
Fræðslunefnd KSI heldur C-stigs þjálfaranámskeið 3.- 6. apríl 1997.
Þátttakendur verða að hafa lokió B-stigi KSÍ. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Námskeiðsþættir eru: Næringarfræði, markvarsla, íþróttameiðsl,
kennslufræði, leikgreining, þjálffræði, leikfræði og sálarfræði.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 581 4444.
GÓÐ ÞJÁLFUN - BETRI KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA / UEF-KEPPNIN
Ótrúlegt sigurmark
á síðustu stundu
Morgunblaöið/Golli
JONATAN Bow áttf stórleik fyrir KR í gærkvöldi og hér er hann í barátt-
unni við Damon Johnson úr Keflavík.
„EG VISSI að þrjár eða fjórar sekúndur voru til leiksloka þegar
ég fékk boltann og ekki annað að gera í stöðunni en að láta vaða
á markið," sagði Páll Þórólfsson við Morgunblaðið eftir að hafa
tryggt Aftureldingu eins marks sigur, 26:25, á FH í Kaplakrika í
gærkvöldi og þar með sæti í undanúrslitum íslandsmótsins því
nýkrýndir deildarmeistarar sigruðu einnig að Varmá sl. sunnu-
dag. „Ég sá glufu á milli tveggja manna og þar sem ég hafði
skorað úr ámóta færi ífyrri leiknum reyndi ég að gera eins -
og það tókst. Þetta var það eina merkilega sem ég gerði í leikn-
um en það var mikilvægt."
Hefðin er rík hjá FH og FH-ingar
eru þekktir fyrir rétt hugarfar
þegar mikið liggur við. Þeir ætluðu
BHMi sér ekkert annað en
Steinþór sigur, trúðu að þeir
Guðbjartsson gætu lagt deildar-
skrifar meistarana, léku
besta leik sinn á
tímabilinu og voru við það að ná
ætlunarverkinu þegar dómarinn
Guðjón L. Sigurðsson dæmdi ruðn-
ing á Guðmund Pedersen og klukkan
var stöðyuð en þá voru sjö sekúndur
eftir. „Ég vona Guðjóns vegna að
þetta hafi verið ruðningur,” sagði
Gunnar Beinteinsson, þjálfari og
leikmaður FH, og var greinilega
ósáttur. Hins vegar fengu heima-
menn gullið tækifæri til að gera út
um leikinn tæplega þremur mínútum
fyrir leikslok en Guðmundur, besti
sóknarmaður FH í gærkvöldi, skaut
í stöng úr vítakasti og Gunnar Andr-
ésson, öflugasti sóknarmaður UMFA
að þessu sinni, jafnaði í næstu sókn
með langskoti, 24:24. FH-ingar náðu
aftur eins marks forystu en gestirn-
Grindvíkingar
í góðum málum
Ivar
Benediktsson
skrifar
Islandsmeistarar Grindavíkur áttu
ekki í teljandi vandræðum með að
leggja Njarðvíkinga öðru sinni í einvígi
liðanna í Njarðvík í gær-
kvöldi, 90:77. Með því
að leika sama leikinn í
þriðju viðureigninni á
heimavelli á fimmtu-
dagskvöldið tryggja þeir sér rétt til
þess að veija Islandsmeistaratitilinn
sem þeir unnu I fyrsta skipti sl. vor.
„Erfiðasti leikurinn er eftir, en það er
íeikurinn á fimmtudagskvöldið, það vil
ég undirstrika. Hingað til hefur áætlun
okkar gengið upp um að einbeita okkur
að einum leik í einu og við komum
ákveðnir til leiks á heimavelli og ætlum
að ljúka einvíginu þar,“ sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur í
leikslok.
Grindvíkingar byijuðu vel í gær-
kvöldi, á sama tíma gekk allt heima-
mönnum í mót. Vörnin var hriplek og
sóknarleikurinn snubbóttur og lánlítill.
Gestirnir virtust vera að sigla framúr
er þeir féllu niður á sama plan og heima-
menn komust inn í leikinn og náðu að
jafna og ná forystu, 16:15. Eftir það
var leikurinn nokkuð í járnum þó frum-
kvæðið hafi heldur verið gestanna. í
stöðunni 32:27, Grindvíkingum í vil,
hófu heimamenn að leika pressuvörn
og gekk vel. Á skömmum tíma breyttu
þeir stöðunni í 39:32 sér í vil. Þá skiptu
þeir aftur yfir í svæðisvörn með þeim
afleiðingum að leikmönnum Grindavík-
ur tókst að jafna og komast einu stigi
yfir áður en flautað var til hálfleiks,
44:43. „Ég er mjög ánægður með að
mínir menn létu ekki hugfallast á þess-
um kafla, heldur sýndu styrk sinn og
sneru leiknum sér í hag,“ sagði Friðrik
Grindavíkurþj álf ari.
Áfram hélt baráttan í byijun síðari
hálfleiks og eins og fyrr var leikurinn
svo sem ekki mikið fyrir augað. Heima-
menn náðu að hanga í gestunum til að
byijað með en upp úr miðjum hálfleik
skildi leiðir og Grindvíkingar náðu ör-
uggri forystu. Vörnin batnaði til muna
og stemmningslítið Njarðvíkurlið fann
engin ráð til að breyta leiknum sér í
hag. Gestirnir létu skynsemina ráða í
sókninni léku langar og kerfisbundnar
sóknir undir stjóm Jóns Kr. Gíslasonar.
Það er í það minnsta ljóst á þessum
leik að Njarðvíkingar verða að gera
mun betur ætli þeir að snúa þessu ein-
vígi sér í hag. Alltof margir leikmenn
liðsins eru að leika með hangandi hendi
og er engu líkara en þeir séu sáttir við
að ná ekki lengra.
Liðsheildin hjá Grindvíkingum sann-
aði sig í þessum leik. Jón Kr. lék mjög
vel og Herman Myers reyndist Njarð-
víkingum óviðráðanlegur á sama tíma
og Torrey John náði sér aldrei á strik
hjá heimamönnum. Sé mið tekið af
þessum leik eiga Grindvíkingar að gera
út um einvígið á fimmtudaginn, en til
þess verður skynsemin að vera við völd
eins og að þessu sinni.
ir svöruðu að bragði þegar 40 sek-
úndur voru eftir.
Rétt eins og FH-ingar voru deild-
armeistararnir ekki ánægðir með
dómarana og lái þeim hver sem vill.
Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik
náði Afturelding þriggja marka for-
ystu á fyrsta þriðjungi seinni hálf-
leiks, 18:15, og um miðjan hálfleik-
inn var sami munur, 21:18, en þá
minnkaði Guðmundur muninn með
marki úr horni. Bergsveinn Berg-
sveinsson fór út á móti honum, ann-
að hné markvarðarins virtist fara í
hornamanninn sem féll við eftir að
hafa skorað og Guðjón dómari sýndi
Bergsveini umsvifalaust rauða
spjaldið. „Hann sagði að ég hefði
slegið Guðmund og þess vegna hefði
hann sýnt mér rauða spjaldið,“ sagði
Bergsveinn. „Hins vegar fór ég út
á móti eins og ég geri alltaf en rak
hnéð í lærið á honum og átti að fá
tvær mínútur fyrir það. En ég sló
hann aldrei og því var þetta mjög
ranglátur dómur.“
Fram að þessu hafði Afturelding
leikið mjög vel, skorað úr níu af 11
sóknum í hálfleiknum en þetta setti
liðið út af laginu um stund og mót-
lætið sem á eftir fylgdi bætti ekki
úr skák en heppnin var til staðar í
lokin. „Við vorum komnir með þægi-
lega stöðu, þriggja marka forystu,
en gerðumst of værukærir og mátt-
um þakka fyrir sigurinn,” sagði
Páll Þórólfsson.
FH-ingar luku keppni með sóma.
Þeir voru mjög ákveðnir í vörninni,
gáfu mótheijunum aldrei frið og
sóttu hratt og ákveðið en þetta
nægði ekki. „Ákveðið millibilsástand
ríkti hjá okkur í vetur en þetta var
einn besti leikur okkar og framtíðin
er björt,“ sagði Gunnar Beinteinsson
og bætti við að hann ætlaði ekki að
halda áfram að leika samhliða því
að þjálfa. Eins og í fyrri leiknum
BLAK
SOKNARNYTING
Annar leikur liðanna í úrslitakeppni
íslandsmótsins, leikinn í Hafnarfirði
þriðjudaginn 18. mars 1997.
mm
k.
FH
Mörk Sóknir %
Afturelding
Mörk Sóknir %
12 13 24 23 50 F.h 12 57 S.h 14 23 24 52 58
25 47 53 Alls 26 47 55
9 Langskot 5
0 Gegnumbrot 7
7 Hraðaupphlaup 6
3 Hom 2
1 Lína 3
5 Víti 3
var Lee mjög góður í markinu, varn-
armennirnir voru samstíga en í sókn-
inni var títtnefndur Guðmundur
helsti maður.
Afturelding fékk mun meiri mót-
spyrnu en í fyrri leiknum en stóðst
álagið. Þar hafði sterkur varnarleik-
ur mikið að segja en Alexei Trúfan
hélt Hálfdáni Þórðarsyni niðri á lín-
unni og skipti það miklu máli.
Hilmar skoraði
5.000. markið
HILMAR Þórlindsson, Stjörn-
unni, skoraði 5.000. markið í
úrslitakeppninni, síðan byrjað
var að leik til úrslita um Is-
landsmeistaratitilinn í hand-
knattleik með þeim hætti sem
nú er gert, 1992. Tímamóta-
markið skoraði Hilmar eftir
29 sek. gegn KA á Akureyri.
Valdimar Grímsson er sá
leikmaður sem hefiu” skorað
flest mörk í úrslitakeppninni,
199 fyrir Val og KA. Olafur
Stefánsson, Val, kemur næstur
með 190 mörk, Bjarki Sigurðs-
son hefur skorað 161 mark
fyrir Víking og Aftureldingu,
Dagur Sigurðsson, Val, hefur
skorað 156 mörk, einnig Sig-
urður V. Sveinsson, sem skor-
aði mörk sín fyrir Selfoss.
Stjarnan jafnaði metin
Lið Stjörnunnar kom á óvart í
Ásgarði í gærkvöldi er það lagði
íslandsmeistara Þróttar í þremur
hrinum gegn einni í undanúrslitum
íslandsmótsins. Það þarf því hreinan
úrslitaleik á milli liðanna til að fá
úr því skorið hvort liðið mætir Þrótti
Neskaupstað í úrslitum. Hrinurnar
enduðu 16:14, 11:15, 15:7 og 16:14
fyrir heimaliðið sem var mun frísk-
ara en gestirnir sem hafa ekki leikið
eins illa í langan tíma. Móttakan var
í molum en hún hefur verið ein sterk-
asta hlið liðsins og uppgjafírnar voru
einnig slakar, 27 fóru forgörðum.
Maður leiksins var „silfurrefurinn“
Hristo Stoyianov hjá Stjörnunni.
Hann sýndi ótrúleg tilþrif í lágvörn-
inni og stjórnaði sókninni eins og
herforingi. Sá leikmaður sem kom
mest á óvart og leikmenn Þróttar
áttuðu sig ekki á var miðjumaðurinn
Óli Freyr Kristjánsson. Það var ein-
kennandi fyrir leik Þróttara í gær-
kvöldi að þjálfarinn Leifur Harðar-
son, sem hefur stefnt að því að hætta
að spila, sá ástæðu til að skipta sjálf-
um sér inn á í uppspilarahlutverkið.
Söguleg endalok í „Köben“
GÓÐUR DAGUR A LEIUGJUIUIUI
Söguleg endalok urðu í Kaupmanna-
höfn í gærkvöldi, þegar leikmenn
Tenerife á Spáni tryggðu sér rétt til að
leika í undanúrslitum UEFA-bikar-
keppninnar, með því að skora sigur-
markið 2:1 á síðustu mín. í framlengdum
leik. Bröndby vann fyrri leikinn á Tene-
rife 1:0, en Spánveijarnir voru yfir 1:0
eftir venjulegan leiktíma í gærkvöldi.
Þá varð að framlengja leikinn, þar sem
staðan var jöfn 1:1. Allt stefndi í víta-
spymukeppni, en svo varð ekki þegar
Antonio Mata Olivera skoraði sigurmark
Tenerife 2:1.
Newcastle fékk skell í Mónakó, tap-
aði 0:3 og samtals 0:4. Leikmenn Món-
akó hafa tekið stefnuna á að leika sinn
annan úrslitaleik í Evrópu, en liðið lék
til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa
1993.
Maurizio Ganz var hetja Inter í
Mílanó, skoraði bæði mörk heimamanna
gegn Anderlecht, 2:1, sem unnu saman-
lagt 3:2. Ganz skoraði eina mark liðsins
í Brussel á dögunum. Inter stefnir á að
komast í sinn þriðja úrslitaleik í UEFA-
keppninni á sjö árum, liðið varð UEFA-
meistari 1991 og 1994.
Þýska liðið Schalke er fjórða liðið í
undanúrslitum
Juventus - Rosenborg
Atletico Madrid - Ajax
Auxerre - Dortmund
Porto - Manchester United
Chelsea - Southampton
Leicester - Tottenham
Middlesbro - Blackburn
Fram - ÍBV
1,20 3,85 6,40
1,95 2,70 2,75
2,10 2,65 2,55
2,00 2,70 2,65
1,50 3,00 4,00
2,00 2,70 2,65
2,00 2,70 2,65
1,80 4,50 1,80
1,65 4,90 1,95
1,80 4,50 1,80
1,80 4,50 1,80
Meistaraaeílaín
Úrvalsdeildin
Nissan deildin