Morgunblaðið - 21.03.1997, Side 1
■ KOIMUR í HEIMSPEKI/2 ■ ÞAU FEMGU SÓFASETT, UÓSAKRÓMUR OG
FLEIRA í KAUPBÆTI MEÐ GÖMLll HÚSI/4 ■ SKEMMTILEGIR SPARIDAG-
AR í HVERAGERÐI/5 ■ PÁLL ÓSKAR ER Á LEIÐ í EUROVISION/6 ■
Andleg og líkamleg
upplyfting fjölskyldunnar um páska
PÁSKAR eru tími gleðinnar í huga
nútíma íslendinga. Fimm streitu-
lausir frídagar fjölskyldunnar til
andlegrar og líkamlegrar upplyft-
ingar. Hér verður stiklað á gleðinni.
MATUR: Páskalambinu er
slátrað og fæst nú ferskt í búðum.
Svínið kemur fast á hæla þess í
kjötborðinu.
ÍÞRÓTTIR: Skíði og sleðaferð-
ir. Skíðavikan á ísafírði er víðfræg-
ust, en verið verður á skíðum alls
staðar þar sem færi gefst.
SÆLGÆTI: Súkkulaði í líki
eggja og jafnvel má koma auga á
hoppandi súkkulaðikanínu klædda
í álbúning.
FLUG: Borgar sig að bóka
strax en hvorki er flogið á föstudeg-
inum langa né páskadag.
KEYRT í SUMARBÚSTAÐ:
Páskar eru ferðahelgi fjölskyld-
unnar og sumarbústaðaeigendur
gleðjast. Hugið að veðri og færð!
Hlustið á Utvarp Umferðarráð.
Hafið hlýjan fatnað í bílnum, keðj-
ur, skólfu, dráttartaug og varahluti
meðferðis. Spennið beltin og slakið
á við stýrið.
GÖNGUR: Útivist
með ferðafélögunum!
Gönguferðir og skíða-
gönguferðir léttar og
erfiðar. Dæmi: Snæfell-
Lónsöræfi með austur-
landsdeild Ferðafélags Is-
lands. Páskar á Mývatni, pásk-
ar á Búðum. Úrvalið er gott.
SKEMMTIST AÐIR:
-Heimilaðar eru almennar
skemmtanir um páska 1997 en með
tímatakmörkunum. Miðvikudaginn
26. mars til 3.00 og skírdag til kl.
23.30. Föstudaginn langa er
skemmtanahald bannað en heimilað
aftur frá miðnætti til kl. 4.00.
Laugardag fyrir páska eiga
skemmtistaðir að vera lokaðir eins
og á páskadag. Annan í páskum
má svo skemmta sér til kl. 3.00
um nótt. Það má veita borðvín í
matmálstímum á föstudaginn langa
og páskadag.
MESSUR: Minnst er síðustu
Morgunblaðið/Ásdís
kvöldmáltíðarinnar á skírdag,
kyrrðin er lofuð á föstudaginn langa
og oft eru messur klukkan átta á
páskadagsmorgun.
BÍÓHÚS: Veisla með nýjum
myndum í kvikmyndahúsunum.
Annar í páskum er bíódagurinn.
NEYÐARÁÆTLUN: Verkfall
og gott að fara í skoðunarferðir í
hverfmu heima hjá sér. Spila á
kvöldin við kertaljós og syngja.
Jafnvel óhætt að tala saman. ■